Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980 21
Meistarataktar í.B.V.
VORKNATTSPYRNAN er
komin á fleygiíerð og um helg-
ina fóru fram þrír leikir í litlu
bikarkeppninni. ÍA hreppti
fjögur stig í tveimur leikjum,
liðið vann UBK 2—1 í Kópavogi
og Hauka 1 — 0 á Skaganum. Þá
skildu Haukar og ÍBK jöfn á
Kaplakrika, 1 — 1.
íslandsmeistarar ÍBV hafa
oft átt í erfiðleikum að fá
æfingaleiki á vorin, en um
helgina mættu bæði Ármann úr
2. deild og islenska unglinga-
landsliðið til leiks og sigruðu
heimamenn í báðum leikjum.
Þórður Ilallgrímsson, óskar
Valtýsson og Kári Þorleifsson
skoruðu fyrir ÍBV er liðið
skellti Ármanni 3 — 1. Og Eyja-
menn skoruðu öli mörkin er
ÍBV sigraði unglingalandsliðið
4—2. Þeir Sigurlás Þorleifsson
og ómar Jóhannsson skoruðu
tvö mörk hvor fyrir ÍBV. Gústaf
Baldvinsson skoraði sjálfsmark
og ungur Eyjamaður í liði
landsliðsins, Samúel Grytvík,
skoraði siðara markið.
Örn skoraöi
gegn hollenska
stórliðinu!
ÖRN Óskarsson, Eyjamaðurinn
sterki, hefur gert það gott hjá
hinu nýja félagi sínu, Örgryte í
Svíþjóð. Örn hefur verið fasta-
maður í aðalliði Örgryte í
æfingaleikjum að undanförnu
og eru úrslit eins þeirra sér-
stakiega athyglisverð. Það var
um páskana, að Örgryte lék
vináttuleik gegn Vitesse Arn-
hem, sem er i 1. deild i Hollandi.
örgryte sigraði í leiknum með
fjórum mörkum gegn engu og
skoraði Örn eitt af mörkum
liðsins. Sigurður Björgvinsson
lék ekki með Örgryte í leiknum.
14 leikir
án taps!
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR sigr-
uðu Austurríkismenn i lands-
leik í knattspyrnu seint í
siðustu viku með einu marki
gegn engu. Fór leikurinn fram
á ólympíuleikvanginum i
Munchen og þótti fjörugur og
vel leikinn. Hans Muller skor-
aði það sem reyndist vera sigur-
markið með þrumuskoti af 25
metra færi. Kom markið á 34.
minútu leiksins.
78.000 manns sáu leikinn, en
þetta var 14. leikur vestur-
þýska liðsins i röð án taps, eða
siðan Jupp Derwall tók við af
Helmut Schön.
Um helgina léku einnig Belg-
ar og Pólverjar, vináttuleik, og
sigruðu Belgar með 2 mörkum
gegn einu.
Haukar
- Valur
í kvöld
HAUKAR og Valur eigast við í
undanúrslitum bikarkeppni HSÍ
suður i Hafnarfirði i kvöld og
hefst leikurinn klukkan 20.00. Er
hér um siðasta möguleika Vals ti)
þess að hreppa einhvern titil á
þessu keppnistimabili, Haukarn-
ir eru jú íslandsmeistarar utan-
húss. Hér er i veði sæti í Evrópu-
keppni bikarhafa og fýsir Vals-
menn vafalaust i þá keppni eftir
árangurinn i vetur. Vist er einn-
ig, að Haukar hafa áhuga á þvi
að verða bikarmeistarar og má
þvi búast við hörkuleik.
• örn óskarsson hefur tryggt
sér sæti í aðalliði Örgryte og
leikið vel i æfingaleikjum að
undanförnu. Hér er hann í
baráttu við tvo Blika í Kópa-
vogi og hefur betur.
• Sigursveit Reykjavíkur í flokkasvigi kvenna á Skíðalandsmótinu á Akureyri
sem fram fór um síðustu helgi á Akureyri. Frá v. Halldóra Björnsdóttir, Steinunn
Sæmundsdóttir, og Ásdís Alfreðsdóttir. Sjá fréttir af mótinu á bls. 23, 24 og 25.
Atli kom heim með
samningsdr ög i vasa
Atli (eða Attila eins og Þjóð-
verjar hafa bitið í sig að hann
heiti) Eðvaldsson dvaldist um
páskana hjá vestur þýska stórlið-
inu Borussia Dortmund, æfði með
liðinu og ræddi við forráðamenn.
Atli náði að sýna sinar bestu
hliðar á æfingum og i æfinga-
leikjum, þannig að þeir þýsku
urðu yfir sig hrifnir. Var t.d. haft
eftir þjálfaranum Udo Latek í
Bild Zeitung: „Ég ætla mér að
festa á honum kaup, hann er
feykilega „tekniskur“, skotharð-
ur og býr yfir mikilli skalia-
tækni. Og hann mun ekki kosta
okkur mikið.“
Atli er kominn heim á nýjan
leik, ekki var endanlega gengið frá
samningum ytra. En um næstu
helgi eru væntanlegir hingað til
lands forráðamenn Dortmund-
liðsins og verður þá væntanlega
gengið frá síðustu smáatriðum ef
ekkert óvænt hleypur á snærið.
Borussia Dortmund er eitt af
sterkustu liðunum í „Bundeslíg-
unni“ en hvergi í heiminum er
leikin jafn góð knattspyrna og í
þeirri deild. Atli verður fyrsti
Islendingurinn sem leikur á þeim
vettvangi og verður það mikill
skóli. Dortmund var lengi framan
af vetri í efsta sætinu í deildinni,
en síðan tóku lykilmenn að meið-
ast og dróst liðið þá dálítið aftur
úr. Enn er liðið þó í hópi efstu liða
og er auk þess komið í 4-liða úrslit
þýsku bikarkeppninnar. Þjálfari
liðsins, Udo Latek, maðurinn sem
hældi Atla í hástert um páskanna,
er einn frægasti þjálfari Evrópu.
Atli Eðvaldsson ásamt þjálfara Borussia Dortmund, Udo Latek.
myndin er tekin á æfingu um páskana.
Titillinn blasir
við FC Briigge
TVEIR mikilvægir leikir fóru
fram í belgísku knattspyrnunni í
gærkvöldi. Standard Liege vann
Beerschot á heimavelli 4:1 og FC
Brugge vann Anderlecht á úti-
velli 1:0
— Eftir þessi úrslit má segja að
titillinn blasi við Brugge, sagði
Ásgeir Sigurvinsson í stuttu
spjalli við Mbl. í gærkvöldi. Það er
áfram tveggja stiga munur á
Standard og Brugge og þeir hafa
auk þess unnið fleiri sigra og það
jafngildir þriðja stiginu. Það má
því mikið útaf bregða í fimm
síðustu umferðunum ef við eigum
að eiga möguleika, sagði Ásgeir.
Standard lék vel í gærkvöldi og
þeir Riedl, Matos og Edström
skorðuð mörkin og eitt mark var
sjálfsmark. Brugge lék án fjög-
nrra af fastamönnum liðsins en
vann samt sigur.
- SS.
Tvöstig til
ÚRSLIT leikja í ensku
knattspyrnunni urðu þessi
í gærkvöldi:
1. deild:
Bolton — Middlesbrough 2:2
Brighton — Wolverhamton 3:0
Leeds — Stoke 3:0
Liverpool — Derby 3:0
2. deild:
Liverpool
Cambridge — Notts County 2:3
Cardiff — Leicester 0:1
Charlton — Fulham 0:1
Orient — Queens Park Rangers 1:1
Shrewsbury — Sunderland 1:2
Athyglin beindist auðvitað mest
að leik Liverpool og Derby og þar
vann Liverpool öruggan sigur með
mörkum Colin Irwin, David John-
son og sjálfsmarki Keith Osgood.
Valur vann Þrótt
VALUR sigraði Þrótt 3:2 í fyrsta
leik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu, sem leikinn var á
Melavelli i gærkvöldi að viðstödd-
um 2—300 áhorfendum.
Valur lék undan snörpum vindi í
fyrri hálfleik og skoraði þá þrjú
mörk gegn einu marki Þróttara.
Nýliðarnir Hörður Júlíusson og
Þorsteinn Sigurðsson skoruðu tvö
fyrstu mörk Vals og Atli Eð-
valdsson hið þriðja. Mark Þrottar
skoraði Halldór Arason.
í seinni hálfleik sótti Þróttur án
afláts en skoraði aðeins eitt mark
og var Baldur Hannesson þar að
verki. Voru Þróttarar óheppnir að
hljóta ekki a.m.k. annað stigið.
- SS.