Morgunblaðið - 09.04.1980, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
_____ _____ ?
• Pétur Pétursson fiskar vítaspyrnu gegn Roda JC fyrr á þessu keppnistímabili.
Skoraði Pétur s'íðan sjálfur úr spyrnunni. Pétur skoraði mark um helgina, er
Feyenoord lagði Haarlem að velli, var það fyrsta mark Péturs í nokkrar vikur. Hann
hefur nú skorað 21 mark í hollensku dcildarkeppninni, einu minna en Kees Kist hjá
AZ'67 Alkmaar. „Ég er ákveðinn að ná honum“ sagði Pétur í viðtali við Mbl. í gær, sjá
nánar texta ...
Islenska sundlandsliðið
valið fyrir Kalottkeppnina
KALOTT sundkeppnin, sem jað-
arsvaeði Norðurlanda halda ár-
lega, verður nú í ár haldin í
Gállevare í Svíþjóð dagana 19. og
20. apríl n.k.
Þátttökuþjóðir eru Finnar,
Svíar, Norðmenn og íslendingar,
sem taka nú þátt í þessari keppni
í annað sinn.
Landsliðsnefnd SSÍ, hefur val-
ið íslenska landsliðið. sem keppir
á þessu móti. Er það skipað
eftirtöldum einstaklingum:
Anna F. Gunnarsd.Ægi 3 landsk.
Elín Unnarsd. Ægi 1 landsk.
Katrín L. Sveinsd. Ægi 2 landsk.
Mágnea Vilhjálmsd. Ægi nýliði
Ólöf L. Sigurðard. Self. 5 landsk.
Sonja Hreiðarsd. Ægi 7 landsk.
Þóranna Héðinsd. Ægi 4 landsk.
Halldór Kristiensen. Ægi 3 landsk.
Hugi S. Harðars. Self. 4 landsk.
Ingi Þ. Jónss. ÍA 3 landsk.
Ingólfur Gissurars. IA 3 landsk.
Magni Ragnarss. ÍA nýliði
Þorsteinn Gunnarss. Ægi nýliði
Stjórn SSÍ valdi fararstjórn
með landsliðinu til Svíþjóðar, en
hana skipa:
Örn Geirsson, stjórnarmaður SSÍ,
fararstjóri Guðmundur Harðar-
son, landsliðsþjálfari, Snorri
Magnússon, liðsstjóri (sundþjálf-
ari IA)
Landsliðsnefnd SSÍ skipa:
Erlingur Þ. Jóhannsson, form.
Örn Geirsson, Guðmundur Harð-
arson.
I Kalott keppninni á síðasta ári
urðu úrslit stigakeppni mótsins
eftirfarandi:
Finnland 269.5
Noregur 254.5
Svíþjóð 177.5
ísland 124.5
Aðeins tókst íslendingum að
sigra í einni sundgrein þ.e. í 200 m
baksundi karla, en þar sigraði
Hugi Harðarson.
Þátttaka í
Meistaramóti Skotlands
Dagana 23.-26. apríl fer fram í
Edinborg Meistaramót Skotlands
í sundi, en það mót er opið til
þátttöku fyrir útlendinga. Stjórn
SSI hafði fyrr í vetur samþykkt að
reyna að styrkja sundfólk til
þátttöku í mótum erlendis. Vegna
fjárskorts SSI mun það ekki
mögulegt. Sundfólkið hefur því
ákveðið að afla fjár til fararinnar
sjálft og greiða allan kostnað.
Það sundfólk sem hefur ákveðið
þátttöku í Skoska meistaramótinu
eru Selfyssingurinn Hugi Harðar-
son, Akurnesingarnir Ingi Þ.
Jónsson og Ingólfur Gissurarson,
og Ægiringarnir Sonja Hreiðars
dóttir, Katrín L. Sveinsdóttir og
Þóranna Héðinsdóttir. Með þessu
unga og efnilega sundfólki fer
landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þ.
Harðarson.
Fjáröflun SSÍ
Að undanförnu hefur stjórn SSI
unnið að því að safna styrktarfé-
lögum. A næstu dögum mun
landsliðsfólk heimsækja styrkt-
arfélagana og eru þeir beðnir að
taka á móti sundfólkinu af vin-
semd og skilningi, um leið og þeim
er þakkað rausnarleg framlög.
„Er að finna
mig aftur“
— OKKUR gekk mjög vel í leik
okkar um síðustu helgi á móti
Haarlem og sigruðum 2—0. Ég
skoraði fyrsta mark Feyenoord
með skalla og er það eina mark
mitt í nokkurn tíma en vonandi
tekst mér að skora i næstu
leikjum, sagði Pétur Pétursson
cr Mbl. ræddi við hann í gærdag.
Ég veiktist í vetur og það hefur
setið illa í mér. Ég léttist um ein
5—6 kg og er núna loks að finna
mig aftur. Er allur annar maður.
í leiknum á móti Ilaarlem lék ég
á miðjunni og það á betur við mig
en að leika á vinstri vængnum.
Við eigum fimm leiki eftir í
deildarkeppninni og ætli okkur
takist ekki að halda í þriðja sætið.
Ég á von á því að AZ vinni mótið í
ár. Það er nefnilega gífurlegt álag
á Ajax vegna Evrópuleikjanna.
— Nú við erum komnir í undan-
úrslit í bikarkeppninni og kom-
umst vonandi í úrslit. Við leikum á
móti Spörtu í undanúrslitunum.
Fer fyrri leikurinn fram 16. apríl.
Úrslitin í bikarnum verða hins
vegar 17. maí.
Ég er ákveðinn í því að leika
með íslenska landsliðinu þá leiki
sem ég verð valinn til að leika og
eru í HM-keppninni í sumar sagði
Pétur. Feyenoord fer í keppnisferð
til Hong Kong og Ástralíu eftir að
keppnistímabilinu lýkur hér, að
öllum líkindum. Óvíst er hvort ég
fer með vegna landsleiksins heima
2. júní á móti Wales.
Ég hef sloppið sæmilega frá
meiðslum í vetur, en hef samt
slæman verk í leggnum á hægra
fæti og fer með það til sérfræðings
á morgun. Þetta hefur háð mér í
nokkurn tíma og ég þarf að fá
þetta gott.
I lok samtalsins báðum við
Pétur að spá um úrslit í leik Ajax
og Forest sem fram fer í Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspyrnu
í kvöld í Englandi. Ajax vinnur
sagði Pétur, hollenskum liðum
gengur alltaf vel með ensk lið.
-þr.
Góður sigur Feyenoord
og Pétur skoraði mark
PÉTUR Pétursson reif sig upp úr
þeim öldudal sem hann hefur
verið í síðustu vikurnar. Feye-
noord vann góðan sigur gegn
Haarlem á útivelli, 2—0, og
Pétur var meðal markaskorara
liðsins, sáu þeir Pétur og Carlo
De Lewe um mörkin að þessu
sinni. Annars tryggði Ajax enn
betur stöðu sína á toppi deildar-
innar með góðum og auðveldum
sigri gegn Nec Nijmegen. Ruud
Krol, Sören Lerby og sjálfsmark
tryggðu Ajax stigin tvö. Úrslit
leikja í Hollandi um hclgina urðu
þessi.
AZ’67 Alkmaar — FC Utrechtl—0
Mac Breda — Pec Zwolle 2—1
GAE Deventer — Tvente 1—2
Sparta — Maastricht 1—0
Den Haag — Willem 2 0—0
Ajax — Nec Nijmegen 3—0
Haarlem — Feyenoord 0—2
Vitesse Arnhem — Roda JC 1 — 1
Excelsior — PSV Eindhoven 1—2
AZ’67 Alkmaar er þó aðeins
tveimur stigum á eftir Ajax.
Alkmaar sigraði Utrecht með
marki Kees Kist. Kist hefur þá
skorað 22 mörk í hollensku deild-
arkeppninni, tveimur meira en
Pétur Pétursson.
Norðmaðurinn Hallvar Thore-
sen hjá Tvente hefur gert mikla
lukku meðal Hollendinga í vetur.
Hann skoraði sigurmark Tvente
gegn Deventer og átti allan heið-
urinn af fyrsta markinu sem Ab
Gritter skoraði. Gerard Hullegie
skoraði eina mark GAE.
Staðan í hollensku deildar-
keppninni er nú þannig, að Ajax
er í efsta sætinu sem fyrr, hefur
hlotið 46 stig eftir 29 leiki. Alk-
maar er skammt undan, með 44
stig, einnig eftir 29 leiki. Feye-
noord hefur 38 stig að loknum 28
leikjum.
Sex mörk hjá
Hamburger SV
EINN leikur fór fram í vestur
þýsku deildarkeppninni í
knattspyrnu og það var sannar-
lega dagur Hamburger SV, sem
skoraði eigi færri en 6 mörk hjá
botnliðinu Herthu Berlin, þar af
þrjú á síðustu fimm mínútum
leiksins, en næstum hclmingur
áhorfenda var annað hvort far-
inn heim, eða á leið heim. Willy
Reiman skoraði tvö fyrir HSV og
þeir Hieronymus, Júrgen Mil-
ewski, Kevin Keegan og Jakob
skoruðu sitt markið hver.
En það var mun meira um að
vera í bikarkeppninni, er leikirnir
í fjórðungsúrslitunum fóru fram.
Úrslit þeirra urðu sem hér segir:
Bor. Dortmund — Stuttgart 3—1
Hamburg — FC Köln 1—4
Schalke 04 — Bayeruth 3—1
Kickers Offenb. — Dússeldorf 1—3
Litlu liðin, Hamburg, Bayeruth
og Offenbach, sem slógu út
Mönchengladbach, Bayern og
Hamburger, áttu erfiðara upp-
dráttar að þessu sinni, enda leik-
vellirnir ekki snjó og ísi lagðir
eins og þegar stóru sigrarnir
unnust í janúar.
Ársþing KKÍ
á næstunni
ÁRSÞING KKÍ verður hald-
ið dagana 26. og 27. april
næstkomandi og verður þar
vonandi ráðist af krafti á
hinar götóttu reglur sam-
bandsins svo að endir verði
bundinn á flóð kærumála
fram og til baka eins og
verið hefur í vetur.
Þá verður einnig stjórn-
arkjör. Óvist er hvort Stefán
formaður Ingólfsson gefi
kost á sér á nýjan leik, en
tilnefningar hafa engar bor-
ist frá félögunum.
Þróttur .
AÐALFUNDUR Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar
verður haldinn fimmtudag-
inn 10. april 1980 kl. 20.30 í
félagsheimilinu við Sæviðar-
sund. Dagskrá samkvæmt
félagslögum. Stjórn Þróttar.