Morgunblaðið - 09.04.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1980
23
1
• Séð yfir aðalsalinn í verksmiðjunni í Herzogaurau. Ætia mætti af
myndinni, að hér sé um bjarta og hlýlega verksmiðju að ræða. Það er
blekking, hitinn og fnykurinn var óþolandi.
• Hermann Gunnarsson, iþróttafréttamaður útvarpsins bregður á
leik, eftir að hafa fundið „hljóðnema“ einn mikinn.
Ljósmyndir — gg.
• Svo sem sjá má, hljóta að vera framleiddar margar stærðir af
íþróttaskóm. Hér eru sýnishorn af þeim minnstu og þeim stærstu.
• í minjasafni Adidas, sem er að finna í Herzogaurau,
kennir margra grasa. Þar eru m.a. margar kynslóðir af
íþróttaskóm og eru sumir knattspyrnuskórnir þar
vægast sagt broslegir. Þar er einnig að finna merka skó
eins og þann hér að ofan, en í honum varð Muhammeð
Ali heimsmeistari í hnefaleikum í annað skiptið.
Skóreimastjórmn
var farinn heim
- Mbl. í heimsókn í höfuðstöðvum
Adidas skammt fra Núrnberg
ÞAÐ fór varla fram hjá lands-
mónnum. að Valsmenn voru
staddir í Munchen fyrir skömmu.
Þar léku þeir til úrslita um
Evrópubikarinn eins og kunnugt
er, en hér er þó ekki ætlunin að
rifja upp þann leik. Fréttamenn
voru eins og vænta mátti í för
með Valsmönnum og eina frídag-
inn sem þeir fengu í Múnchen,
var þeim boðið að líta á höfuð-
stöðvar Adidas-verksmiðjanna
sem eru í þorpi nokkru að nafni
Herzogaurau, ekki langt frá
Múnchen.
Ólafur Schram, umboðsmaður
Adidas á íslandi og tvífari Franz
Beckenbauer með meiru var
hvatamaður að heimsókninni, fór
á undan hópnum til Herzogaurau.
Nokkrir af fararstjórum Valsliðs-
ins tóku að sér fararstjórn
blaðamannaflokksins og endaði
það næstum með ósköpum. Örn
Höskuldsson dómari var gerður út
af örkinni að kaupa lestarmiða
fyrir flokkinn, en að sjálfsögðu
varð hann viðskila og fannst
hvergi þrátt fyrir stormasama
leit. Lestin var að fara og menn
komnir á fjórar fætur, bæði í leit
að Erni og í bænastöðu við fætur
lestárstjórans sem var allt að því
grátbeðinn að fresta brottför um
fáeinar mínútur. Það kom ekki til
greina. En á síðustu sekúndu,
bókstaflega, sást Örn koma hlaup-
andi fyrir næsta horn af slíkum
hraða, að eins gott var að enginn
þvældist fyrir.
Við stigum því um borð í lestina
til Núrnberg. En það voru ekki
réttarhöld sem biðu okkar, heldur
ekill frá Adidas sem flutti hópinn
á leiðarenda til Herzogaurau. Ól-
afur Schram tók á móti okkur og
Adidas bauð í mat áður en að
gengið var um sali verksmiðjunn-
ar. Steikina þurfti varla að hafa
fyrir því að tyggja.
Síðan rakleiðis til verksmiðj-
unnar, tíminn var naumur. Myhd-
irnar sem birtast með þessari
grein segja meira heldur en mörg
orð, þetta er mikil verksmiðja,
ekki þó sú stærsta, þvert á móti.
En þarna eru höfuðstöðvarnar.
Verksmiðjan í Herzogaurau er
fyrst og fremst skóverksmiðja og
þar eru framleidd 2000 pör af
íþróttaskóm á degi hverjum. Sam-
anlagt framleiða Adidas-verk-
smiðjurnar um 200.000 skópör á
dag, en það er næstum því eitt par
á hvern íslending á degi hverjum.
Þrátt fyrir mikla vélvæðingu, kom
manni á óvart hve mikil handa-
vinna er í kringum þessa skógerð.
Við spurðum um þann sem sér um
að þræða skóreimarnar í þessi
2000 skópör daglega, en hann var
farinn heim að leggja sig. Við
vorum einnig á hraðferð.
- gg-
• Hinn þekkti skíðakappi Haukur Jóhannsson fyrir miðju sigurvegari í alpatvíkeppni karla og stórsvigi,
veitir viðtöku bikar fyrir sigur í alpatvikeppni, t.v. Bjarni Sigurðsson Húsavik er varð annar og Karl
Frímannsson er varð i þriðja sæti.
„Nú er ég hættur“
- segir Haukur Jóhannsson
Hinn eitilharði baráttujaxl,
Haukur Jóhannsson, hlaut tvö
gullverðlaun á landsmótinu á
Akureyri um páskana. Haukur er
enginn nýgræðingur í íþróttinni
og hefir ávailt vakið athygli fyrir
frábæra keppnishörku og áræði.
Haukur keppti fyrst i flokki
fullorðinna á landsmóti 1971 og
var þetta því tiunda landsmótið
sem hann tekur þátt í.
Haukur hefir unnið til eftirtal-
inna gullverðlauna á landsmótun-
um: íslandsmeistari í svigi 1972 og
73, íslandsmeistari í stórsvigi
1974, 75 og 80, íslandsmeistari í
alpatvíkeppni 1972, 79 og 80
Auk þess hefir Haukur nokkr-
um sinnum hlotið gull fyrir
flokkasvig.
Ef við byrjum þá á sígildu
spurningunni Haukur: Ætlarðu að
halda áfram keppni?
„Já, hún er að verða sígild
þessi. Eg hefi verið spurður sömu
spurningar undanfarin 4—5 ár og
er þó ekki nema 27 ára. En, já, nú
er ég hættur."
Af hverju?
„í fyrsta lagi 'iefi ég ekki lengur
nægan tíma tii að stunda skíðin
svo vel fari. I t-ðru lagi þá hefi ég
uppgötvað að það er fleira til en
skíðin, ég ætla að snúa mér að
öðru. Fyrir svo sem 4—5 árum
komst ekkert að í mínum haus
nema skíði og aftur skíði, en það
er fleira til.“
Var þetta erfið keppni Haukur
og naust þú þess ef til vill að vera
á heimavelli?
„Stórsvigið var ekki erfitt og
þar naut ég að nokkru heimavall-
ar. Einhvern veginn virðist stór-
svigsbakkinn hér eiga sérlega vel
við mig og ég tapa varla keppni í
stórsvigi hér á Akureyri. Svigið
var hins vegar nokkuð erfitt fyrir
mig. Ég var alltof mikið með
hugann við alpatvíkeppnina og
hlaut ekki nægjanlega góðan tíma
í fyrri ferðinni til að eiga vonir um
sigur. Ég hefði betur látið vaða og
stefna á fyrsta sætið í stað þess að
vera svo upptekinn af tvíkeppn-
inni, en við breytum því ekkert úr
þessu."
Nú virðist sem akureyrskir
skíðamenn séu í nokkurri lægð og
hafi verið síðustu ár. Kanntu
einhverja skýringu á því?
„Já, þetta er rétt. Frá 1971 og
nokkur næstu ár á eftir eyddum
við allt of miklu fé og tíma í
toppfólkið en gleymdum að halda
uppbyggingunni áfram. Ég held þó
að þetta sé að koma aftur og mér
sýnist að eftir 4—5 ár verðum við
aftur á toppnum þar sem við
eigum að vera.“
Nú hefir þú verið í skíðalands-
liðinu undanfarin ár og þekkir því
vel til þar. Á skíðaþingi og öðrum
vettvangi hefir verið talsvert deilt
á landsliðið og þá ekki síst fyrir
óreglu.
„Já, þetta er rétt og ég hefi í
sjálfu sér engu við þessar ásakanir
að bæta. Ég vil þó segja það að
óregla hjá skíðafólki er síst meiri
en ég þekki annars staðar til í
íþróttalífi. Hitt er svo annað mál
að ástandið mætti vera betra.
Hvað landsliðið varðar að öðru
leyti er ég sáttur við ýmis fram-
kvæmdaatriði þar svo sem hvað
varðar útvegun á búnaði. Hins
vegar hafa samskipti landsliðs-
fólks við formann SKÍ verið afar
stirð svo að ekki sé meirá sagt.“
Nokkuð að lokum Haukur?
„Já, mér finnst óttalegt hversu
skíðamenn hætta ungir keppni.
Þar spila að sjálfsögðu fjárhags-
málin inn í og svo margt hefir
verið rætt og ritað um kostnað
íslensks íþróttafólks við iðkun
íþrótta sinna og óþarfi að endur-
taka það hér. Ég vil þó vona að
einhver lausn finnist á því máli í
náinni framtíð og tel það raunar
aðalmál íslenskrar íþróttaforystu
að vinna að því.“