Morgunblaðið - 09.04.1980, Side 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
• Sigursveit Ísíirðinga í flokkasvigi. Frá vinstri, Valdimar Birgisson, Guðmundur
Jóhansson, Ifafsteinn Sigurðsson og Sigurður Jónsson. Ljósm. Mg. S.g.
„Hef hugleitt að hætta“
— segir Steinunn Sæmundsdóttir
STEINUNNI Sæmundsdóttur
þarf vart að kynna fyrir áhuga-
mönnum um íþróttir. Stcinunn
hcfir sl. fimm ár vcrið stcrkasta
skíðakona landsins svo sem sjá
má af árangri hcnnar á lands-
mótum frá 1976, en þá kcppti
Steinunn fyrsta sinni í flokki
fuliorðinna.
Árangur Steinunnar er eftirfar-
andi: Islandsmeistari í svigi 1978,
79 og 80. Islandsmeistari í stór-
svigi 1976, 77, 78, 79 og 80.
íslandsmeistari í alpatvíkeppni
1976, 1978, 79 og 80.
Steinunn hefir þannig hlotið 12
gull af þeim 15 sem hún hefir átt
möguleika á að hljóta undanfarin
fimm ár, sannarlega stórkostlegur
árangur.
I samtali við Mbl. að keppni
lokinni hafði Steinunn eftirfar-
andi að segja:
„Ég hefi leitt hugann að því að
hætta keppni nú, eða a.m.k. að
draga úr þessu. Ég hefi nú verið í
fríi frá menntaskólanámi mínu
um eins og hálfs árs skeið til að
stunda skíði og verð að leiða
hugann að framtíðinni."
Hvernig hefur þér gengið að
standa straum af kostnaði við
skíðaiðkanir?
„Ég á nú góða að. Auk þess hefi
ég notið allgóðra styrkja frá
Skíðasambandinu og vil nota
tækifærið til að þakka þann
stuðning. Þá mun skíðadeild Ár-
manns veita okkur félögum sem
verið höfum í landsliði nokkurn
styrk."
Nú hefir almennur skíðaáhugi í
Reykjavík aukist gífurlega undan-
farin ár. Hefur sama aukning átt
sér stað hvað varðar keppnisfólk?
„Nei, fjölgun hefir ekki orðið
mikil hvað keppnisfólk varðar.
Hins vegar eru þeir bestu ötulli
við æfingar nú en fyrr. Við eigum
þó mörg mikil efni og má þar t.d.
nefna Tinnu Gunnlaugsdóttur,
Þórdísi Jónsdóttur, Árna Þór og
reyndar ýmsa fleiri."
Megum við ekki eiga von á þér á
næsta landsmót á Siglufirði þrátt
fyrir allt?
„Við skulum í sjálfu sér ekkert
fullyrða. Við verðum bara að sjá
til næsta ár.“
Jón vakti mesta athygli
SÁ skíðamaður sem hvað mesta
athygli vakti á skiðalandsmóti á
Akureyri um páskana er án efa
Jón Konráðsson, göngumaðurinn
frá Ólafsfirði. betta er í fyrsta
sinn sem Jón keppir í flokki
fullorðinna á Landsmóti, enda
nýlega orðinn tvitugur. Það er
ekki amalegt að fara á brott af
sínu fyrsta landsmóti með fern
gullverðlaun eins og Jón gerði
nú. Mbl. lagði nokkrar spurn-
ingar fyrir Jón við verðlaunaaf-
hendinguna á páskadag.
Hvernig var 30 km. gangan á
laugardag?
„Þetta er erfiðasta ganga sem
ég hef tekið þátt í. Veðrið gerði
okkur erfitt fyrir og þar að auki
var pressan á mér mjög mikil þar
sem við Ingólfur vorum mjög
jafnir allan tímann, og það var
raunar ekki fyrr en á síðustu
metrunum sem ég tryggði mér
sigur."
Vissir þú allan tímann hversu
mjótt var á mununum hjá ykkur
Ingólfi?
„Já, það voru nokkrir aðstoð-
armenn við b'rautina, sem gáfu
mér alltaf upp tímann, þannig að
ég var allan tímann með á nótun-
um.“
Nú lýstir þú því yfir á dögunum
að þú hefðir ekkert annað gert
undanfarnar þrjár vikur en að æfa
undir landsmótið?
Já, það er rétt. Ég hafði ákveðið
fyrir þetta landsmót að hætta
þegar því lyki, þar sem ég hrein-
lega ræð ekki fjárhagslega við að
æfa svo stíft sem til þarf. Annað
hvort verður að æfa og ná toppár-
angri eða hreinlega hætta. Hins
vegar eftir þennan góða árangur
minn er eg í miklum vafa um
framhaldið."
En hvernig er unnt að gera
íþróttafólki mögulegt að æfa svo
sem til þarf?
„Ég hefi í sjálfu sér enga lausn
á því máli fremur en aðrir. Þó er
það ljóst að til að leysa þennan
vanda er engum öðrum til að
dreifa en hinu opinbera. Mig
langar að koma hér á framfæri
þakklæti til bæjaryfirvalda á Ól-
afsfirði, sem hafa létt undir með
okkur göngumönnum á þann hátt
að sleppa okkur við fyrirfram-
greiðslu útsvara í ár. Þar er t.d.
stigið spor í rétta átt. Þá hafa
bæjarbúar verið okkur afar hjálp-
legir með áheitum og á annan
hátt.“
Hefir þú nokkra hugmynd um
beinan útlagðan kostnað hjá þér í
ár?
„Ég hef nú ekki á reiðum
höndum hversu há upphæð það er.
Þó get ég sagt það að það er alls
ekki undir 1 ‘/2 milljón sem ég hefi
lagt í beinhörðum peningum í
þetta í vetur, og þetta getur ekki
gengið svona hjá mér. Ég er
nýlega búinn að festa kaup á íbúð
og þangað fara mínir peningar og
verða að gera.“
Að lokum Jón. Ertu bestur?
„Þetta var nú ljóta spurningin.
En, ég verð að svara neitandi.
Gottlieb bróðir er sterkastur og
hefur verið í vetur."
i
Sigurbjörn Gunnarsson bi
SKÍÐAMÓT
ÍSLANDS
Skíðalandsmótið
Landsmóti íslands á skiðum lauk í Illíðarfjalli við Akureyri á
páskadag. Veður til keppni var einkar óhagstætt alla dagana. en þrátt
fyrir það tókst Akureyringum að halda dagskránni, svo sem ráð var
fyrir gert í upphafi. Þó varð að fresta þvi að keppni gæti hafist
tvívegis meðan mestu byljirnir gengu yfir, en dæmið gekk allt saman
upp að lokum og eiga Akureyringar hrós skilið fyrir góða framkvæmd
á þessu landsmóti.
Keppni var yfirleitt fremur jöfn og spennandi og athygli vekur hve
mikil barátta var í göngukeppnunum. og þá ekki síst að Ólafsfirðing-
urinn ungi, Jón Konráðsson hlaut fern gullverðlaun. sigraði í 15 km
og 30 km göngu og þá að sjálfsögðu í tvikeppninni og Jón var í sveit
Olafsfirðinga, sem sigraði í 3X10 km göngu. En það voru fleiri en Jón
Konráðsson, sem hlutu fern gullverðlaun. Steinunn Sæmundadóttir
lék þann leik eftir og ekki fer á milli mála að Steinunn ber höfuð og
herðar yfir aðrar íslenskar skíðakonur. Steinunn sigraði í svigi,
stórsvigi, alpatvíkcppni og var í sigursvcit Reykjavíkur í flokkasvig-
inu. Það er óhætt að segja að þau Steinunn og Jón hafi verið menn
mótsins, sigruðu í þeim greinum, sem þau tóku þátt í. Þó verður ekki
svo við skilið að ekki sé getið frammistöðu Gottliebs Konráðssonar
ólafsfirði, bróður Jóns, Gottlicb sigraði með yfirburðum í báðum
göngugreinum 17 — 19 ára og var einnig í sigursveit Ólafsfjarðar í
boðgöngunni. Það er trúa undirritaðs að þar fari besti skíðagöngu-
maður íslands í dag og vcrður fróðlegt að fylgjast með Gottlieb
Konráðssyni í framtíðinni. Að öðru leyti birtast úrslit og stuttar
umsagnir ásamt viðtölum hér í blaðinu.
Boðganga 3X10 km
Það var ánægjulegt að sjá sex
sveitir mæta til keppni í boðgöngu
og auk þess eina gestasveit sem
Ólafsfirðingar sendu. Það fór svo
sem flestir höfðu spáð að A-sveit
Ólafsfjarðar tók þegar forystu í
hinni opinberu keppni, þó svo
gestasveitin hefði forystuna fram-
an af. A-sveit Ólafsfjarðar sigraði
með nokkrum yfirburðum, en
spennan var í hámarki hvað annað
sætið varðaði. Þresti Jóhannssyni
tókst að tryggja ísfirðingum 2.
sætið á síðasta sprettinum, og
urðu Isfirðingarnir tæpri mínútu
á undan A-sveit Reykjavíkur.
Hins vegar hreppti gestasveit Ól-
afsfirðinga næst besta tímann, en
vann að sjálfsögðu ekki til verð-
launa. Gottlieb Konráðsson hlaut
bestan brautartíma, 33.01 mín., og
sá sem næstur kom var Finnur
Gunnarsson, gestasveit Ólafs-
fjarðar, á 31.21 mín.
Þetta er í fjórða sinn sem
Ólafsfirðingar sigra í boðgöngu.
Fyrst sigruðu þeir 1976 og síðan
þrívegis í röð eða 1978, 1979 og nú
í ár.
Stórsvig karla
I stórsviginu, sem fram fór á
skírdag beindust augu flestra að
ólympíuförunum, Sigurði Jónssyni
og Birni Olgeirssyni. Hins vegar
hygg ég að áhorfendur hafi eðli-
lega flestir verið á bandi heima-
manna. Fyrstur fór brautina
Bjarni Sigurðsson og keyrði
Bjarni sérdeilis vel og fékk tímann
67,88. Næstur í röðinni var Karl
Frímannsson, en honum tókst
ekki eins vel upp og hlaut tveimur
sek. lakari tíma. Keppendur fóru
síðan einn af öðrum og engum
tókst að hnekkja tíma Bjarna, fyrr
en Haukur Jóhannsson, Akureyri,
birtist í brautinni, Haukur fór
brautina af miklu öryggi og hlaut
tímann 67,82 sek og reyndist það
vera besti tíminn úr fyrri ferð.
Sigurður Jónsson var ræstur 10.
og Sigurður varð fyrir því óláni að
keyra út neðarlega í brautinni. í
síðari ferðinni sýndi Haukur Jó-
hannsson öryggi sitt og keppnis-
skap og hlaut einnig bestan braut-
artíma í þeirri ferð og þar með
gullið. Bjarni Sigurðsson fór
seinni ferðina einnig mjög vel, en
ekki nægilega til að hnekkja
Hauki. Bjarni hlaut annað sætið.
Þetta var í þriðja sinn sem
Haukur Jóhannsson sigraði í stór*
svigi á íslandsmóti. Haukur sigr-
aði 1974, 1975 og síðan nú í ár.
Stórsvig kvenna
I stórsvigi kvenna bjuggust
flestir við sigri Steinunnar Sæ-
mundsdóttur. Sú varð og raunin.
Steinunn var ræst fyrst af kepp-
endum og fór brautina af miklu
öryggi og hlaut tímann 70,31 sek