Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
— og aftur er komin spenna í toppbaráttuna
Þegar Liverpool sigraði
Stoke í síðustu viku á
sama tíma og Manchester
Utd. beið lægri hlut gegn
Nottingham Forest. leit út
fyrir að varla myndi MU
skipta sér af einstefnu
Liverpool frekar. Var þá
munurinn á liðunum *orð-
inn 6 stig. En stóri leikur-
inn var svo á Old Trafford
á laugardaginn. þá mætt-
ust risarnir og varð því að
koma frekar við sögu í
baráttunni um efsta sætið.
Og það tókst liðinu, að
viðstöddum tæpum 60.000
áhorfendum. Og það meira
að segja eftir að Liverpool
hafði náð forystunni í
leiknum. Liverpool hafði
umtalsverða yfirburði í
leiknum framan af, eink-
um lengst af í fyrri hálf-
leik. Bæði John.son og
Dalglish létu Gary Bayley
í marki MU verja frá sér
skot úr dauðafærum áður
en að Liverpool skoraði
loks. Það var á 14. mínútu,
en þá sendi Ray Kenndy
langa sendingu inn í víta-
teig MU. Grodon McQueen
hugðist skalla knöttinn
frá, en misreiknaði sig
algerlega og gerði síðan
gott betur, féll kylliflatur
þannig að leiðin var greið
fyrir Ken Dalglish sem var
á vakki, 1—0. En það tók
heimaliðið aðeins fjórar
mínútur að jafna metin,
þá skoraði Mick Thomas
af stuttu færi eftir send-
ingu frá Steve Coppell.
Ian Wallace lék með Coventry á
nýjan leik eftir meiðsl og það var
ekki sökum að spyrja, Coventry
vann Boro 2—1 og Wallace skoraði
bæði mörk liðsins. Hodgeson svar-
aði fyrir Boro. Tony Glavin og
Chris Jones skoruðu sigurmörk
Tottenham gegn Úlfunum, bæði
komu mörkin eftir snjallar send-
ingar Ardiles. John Richards svar-
aði fyrir Úlfana, en hvarf síðan af
leikvelli meiddur. Loks leikur Pal-
ace og Brighton. Leikmenn Palace
voru ljónheppnir að hreppa annað
stigið, að vísu sótti liðið látlaust,
en færin voru fá og langt á milli
þeirra. Peter Ward skoraði fyrir
Brighton á 6. mínútu, en Jim
Cannon tókst að jafna seint í
síðari hálfleik.
Manchester Utd sýndi síðan
sínar bestu hliðar fyrsta hálftíma
síðari hálfleiks. Sigurmarkið kom
á 64. mínútu. Ray Wilkins, sem
átti stórleik, tók hornspyrnu og
Joe Jordan skallaði áleiðis til
Jimmy gamla Greenhoff, sem
skoraði laglega. Greenhoff lék
þarna sinn fyrsta heila leik í rúma
11 mánuði, eða allar götur síðan
að United tapaði úrslitaleik bik-
arkeppninnar fyrir Arsenal í mái
síðast liðnum. Meiðsl á nára gerðu
honum lífið leitt og tveir frægir
læknar höfðu ráðlagt honum að
leika aldrei knattspyrnu framar.
En karlinn lét ekki segjast og
skoraði sigurmarkið gegn Liver-
pool. Ekki í fyrsta skíptið, heldur
þriðja skiptið sem hann skorar
sigurmark United í leik gegn
Liverpool. Greenhoff lék í stað
Mcllroy, sem var rekinn af leik-
velli gegn Forest í vikunni og tók
útleiksbann.
Eftir að Greenhoff hafði skorað
varð allt vitlaust á vellinum og
sóknarloturnar buldu, einkum á
marki Liverpool. Ray Clemence
varði snilldarlega frá Macari og
síðan naumlega fyrirgjöf Coppell
er Greenhoff kom æðandi eins og
eimreið til að' skora. Liverpool
náði skyndisókn og Martin Buch-
an bjargaði af línu skoti Johnson
og í næstu sókn átti Ray Wilkins
þrumuskot í þverslá Liverpool-
marksins. Síðasta stundarfjórð-
unginn jafnaðist leikurinn á ný,
en var ávalt tvísýnn. Liverpool
varð fyrir því óláni að missa Alan
Kennedy út af vegna meiðsla í
fyrri hálfleik. Sam Lee kom þá inn
á og stóð sig vel. En þetta varð til
þess að færa varð Jim Case aftur í
öftustu víglínu, en fram að því
hafði hann leikið lykilhlutverk
fyrir Liverpool á vallarmiðjunni.
En United sigraði og hleypti það
enn einu sinni spennu í mótið.
United á eftir að mæta Totten-
ham, Coventry og Aston Villa á
heimavelli, Norwich og Leeds .á
útivelli. Liverpool á hins vegar
eftir heimaleiki gegn Derby (átti
að leikast í gærkvöldi), Arsenal og
Aston Villa og útileiki gegn Stoke,
Middlesbrough og Crystal Palace.
Með því að sigra Bolton 3—1 á
mánudagskvöldið, minnkaði Un-
ited muninn niður í 2 stig og getur
því greinilega allt gerst enn. En
áður en lengra er haldið skulum
við rifja upp helstu úrslit í síðustu
viku, þ.e.a.s. á fimmtudag og
föstudag.
1. deild:
Manchester Citi 1 (Deyna) —
Everton 1 (King)
Norwich 2 (Jones, Fashanu) —
Arsenal 1 (Rix)
Leeds 2 (Cherry, Flynn) —
Middlesbrough 0
Tottenham 0 — Ipswich 2 (Marin-
er, Osman)
Nott. Forest 2 (Britles, Robertson)
— Man. Utd 0
2. deild:
Chelsea 0 — QPR 2 (Burke, Busby)
Newcastle 2 (Cassidy, Shoulder)
— N. County 2 (Christie, Benja-
min)
Bristol Rov. 1 (Banton ) — Ful-
ham 0
Charlton 1 (Hales) — Luton 4
(Moss, Grealish, West, Hatton)
Wrexham 1 (McNeil) — Burnley 0
Þá er það Umferðin á laugar-
daginn, þegar Liverpool beið lægri
hlut fyrir Manchester Utd. Það
var margt merkilegra úrslita
þennan dag sem flesta, en lítum á
úrslit leikja:
1. Deild:
Arsenal — Southampton 1—1
Aston Villa — Nott. Forest 3—2
Bristol City — WBA 0—0
Cr.Palace — Brighton 1—1
Dreby — Leeds 2—0
Everton — Bolton 3—1
Ipswich — Norwich 4—2
Man.Utd — Liverpool 2—1
Middlesbrough — Coventry 1—2
Stoke — Man.City 0—0
Wolves — Tottenham 1—2
Nottingham Forest átti í vand-
ræðum með varnarleik sinn gegn
Aston Villa og þegar upp var
staðið gat liðið hrósað happi að fá
aðeins þrjú mörk á sig. Að öðru
leyti lék liðið alls ekki illa og um
hörkuleik var að ræða. Des
Bremner kom Villa í 1—0, en
Garry Birtles jafnaði. Alan Evans
kom Villa hins vegar yfir fyrir hlé.
Larry Lloyd sendi knöttinn í eigið
net fljótlega í síðari hálfleik, en
lokaorðið átti Ian Bowyer fyrir
Forest þegar hann skoraði á 76.
mínútu. Trevor Francis stóð
skömmu síðar í dauðafæri, en hitti
ekki knöttinn.
Hasarinn er nú ekki síður í
botnabaráttunni. Bolton er að vísu
þegar fallið og tapaði illa fyrir
Everton. Megson, Eastoe og Kidd
skoruðu fyrir Everton, en Neil
Whatmore svaraði fyrir Bolton.
• Paul Mariner (t.v.) var iðinn að skora um helgina og lið hans Ipswich, hefur
leikið 20 leiki í röð án taps. Alan Kennedy, bakvörður Liverpool, er hins
vegar úr leik í bili, hann meiddist illa gegn Man. Utd. og hvarf af leikvelli.
í 2. deild gerðist þetta.
Burnle 0 — Sherwbury 0
Leicester 1 (May) — Chelsea 0
Luton 1 (Hatton) — Watford 0
N.County 0 — Charlton 0
Oldham 1 (Atkinson) — Cam-
bridge 1 (Finney)
Preston 0 — Wrexham 0
QPR 1 (Burke) — Birmingham 1
(Dillon)
Sunderland 1 (Cummins) — New-
castle 0
Trevor Ross brenndi af víti fyrir
Everton. Manchester City telst
enn vera í alvarlegri fallhættu, en
liðið var þó betri aðillinn gegn
Stoke. Aðeins snjöll markvarsla
Peter Fox í marki Stoke bjargaði
heimaliðinu frá tapi í slökum leik.
Derby á hins vegar þokkalegan
möguleika á því að bjarga sér.
Liðið hefur leikið vel að undan-
förnu og vann öruggan sigur á
Leeds með mörkum Barry Powell
og Garry Emson. Leikmenn Brist-
ol City geta hins vegar nagað sig í
handarbökin, þeir fóru illa með
sæg tækifæra gegn WBA og urðu
því að gera sér annað stigið að
góðu þegar þörf var á báðum.
Ipswich ætlar sér ekkert annað
en að hirða annað sætið í deildinni
af Man. Utd. Liðið lék sinn 19. leik
í 1. deild í rðð án taps er Norwich
var lagt kirfilega að velli. John
Wark skoraði þrennu, tvö víti og
Paul Mariner eitt, en mörk Nor-
wich skoruðu þeir Kevin Bond og
Keith Robson. Arsenal, sem einnig
á möguleika á öðru eða þriðja
sætínu, gaf eftir, enda erfiðir
leikir framundan í FA og UEFA-
bikarkeppninni, Liverpool og Juv-
entus eru mótherjarnir. Liðið
deildi stigum sem Southampton á
heimavelli sínum, Alan Sunder-
land skoraði eina mark Arsenal,
en Phil Boyer jafnaði. Athygli
vakti snilldarmarkvarsla Ivan
Katalinic, Júgóslava í marki Sout-
hampton.
1 —1
II 1. DEILD 1
Stadan í ensku knattspyrnunni eft- 1
I ir leiki raánudagsins var bessi:
Liverpool 36 22 8 6 71 27 52
Man. lltd 37 20 10 7 55 30 50
Ipawieh 38 19 9 10 62 37 47
Arsenal 36 16 13 7 47 28 45
Aaton Villa 37 14 13 10 46 43 11
Wolverh. 31 17 6 11 18 36 40
I Southampton 37 15 9 13 54 46 39
Nott. Forest 35 16 6 13 54 40 38
Middlesb. 35 14 10 11 39 33 38
WBA 38 11 16 11 53 48 38
C. Palace 38 11 15 12 39 44 37
Coventry 36 15 6 15 51 56 36
Norwich 38 11 11 13 51 58 36
Tottenham 37 14 8 15 16 55 36
I>eeds 37 11 13 13 40 46 35
Stoke 36 11 10 15 40 49 32
Brixhton 37 9 14 14 42 52 32
Everton 37 8 15 14 41 47 31
Man. City 38 9 13 16 35 60 31
Derby 37 9 8 20 39 58 26
BrÍKtol City 36 7 12 17 27 53 26
Bolton 36 4 12 20 32 66 20
| 2. DEILD 1
Birminxhair 37 19 9 9 51 32 47
Chelsea 38 21 5 12 60 50 47
Luton 38 15 15 8 62 42 45
Sunderland 36 18 9 9 56 37 45
Leicester 36 16 12 8 50 35 44
Newcaatle 38 15 13 10 49 41 43
QFR 37 16 10 11 65 46 42
Westham 35 17 6 12 45 35 40
Preston 37 11 16 10 49 46 38
Oldham 37 14 10 13 46 46 38
Wrexham 38 16 6 16 39 42 38
Cambridae 37 11 15 11 19 44 37
Cardiff 36 15 7 14 36 41 37
Shrewsbury 37 16 1 17 51 47 36
Orient 36 12 12 12 13 48 36
Swansea 37 14 7 16 41 50 35
Notts. County 37 lft 13 11 43 1.3 33
B. Rovers 37 11 10 16 45 56 32
Watford 37 9 12 16 29 10 30
Burnley 38 6 13 19 37 65 25
Fulham 35 7 7 21 34 62 21
Charlton 36 6 9 21 34 66 21
Gamli maðurinn Greenhoff
skoraði sigurmark United