Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
KEPPNIN í 3. deildinni í
handknattleik karla lauk
ekki fyrr en á þriðjudags-
kvöldið eftir heilmikið
bardús við að koma af sex
síðustu leikjunum. Á
sunnudagskvöldið fengust
þó úrslit á þann veg að
Breiðablik sigraði með
glæsibrag, hlaut 25 stig af
28, skoraði 388 mörk gegn
266 og hafði því upp lang-
mesta markamun í deilda-
keppninni í ár — 122
mörk. Akranes hafnaði í
öðru sæti með 23 stig og
leikur aukaleiki við Akur-
eyrar-Þór um sæti í 2.
deild.
Sex leikir í kös
Lokahrinan í deildinni ein-
kenndist annars vegar af baráttu
Breiðabliks og Akraness um sigur-
inn þar sem Breiðablik átti tvo
leiki móti einum leik Akraness, en
þegar hér var komið, stóðu liðin
jöfn að stigum, og hins vegar af
hringlanda með leikina og því að
dómarar mættu ekki.
Á föstudagskvöldið léku fyrst
Akranes og Keflavík á Skaganum
og þar sigruðu heimamenn 26:22
(10:9), síðan Breiðablik og Dalvík
að Varmá þar sem Breiðablik
sigraði 36:17 (17:7). Til fyrri leiks-
ins mætti aðeins annar tilkynntur
dómari og heimamaður dæmdi á
móti honum, sem að vísu kom alls
ekki að sök.
Á laugardaginn mættu Dalvík-
ingar til leiks við Selfyssinga fyrir
austan, en dómarar mættu ekki.
Á sunnudaginn mættu Dalvík-
ingar aftur á Selfossi kl. 14 og léku
við heimamenn, sigruðu gestirnir
19:16 (7:8). Síðan fóru Dalvíkingar
Sigurlið Breiðabliks
Fremri röð: Sigurjón Rannversson, Óskar Friðbjörnsson markvörður, Brynjar Björnsson fyrirliði, Heimir
Guðmundsson markvörður, Kristján Halldórsson, Hannes Eyvindsson, Júlíus Guðmundsson. Aftari röð:
Hulda Pétursdóttir formaður Handknattleiksdeildar Breiðabliks, Sigurður Sveinsson, Qlafur Björnsson,
Hallvarður Sigurðsson, Björn Jónsson, Hörður Már Kristjánsson, Sigurður Sigurðsson, Kristján Andrésson
aðstoðarmaður, Sigfús Guðmundsson þjálfari. Á myndina vantar Hilmar Hreinsson, Aðalstein Jónsson og Jón
Halldórsson. — Ljósmynd: Sverrir Kristinsson.
Breiðablik sigraði
með glæsibrag
hraðfari í Garðabæ og léku við
Stjörnuna kl. 17 leik sem þessi lið
höfðu átt að leika á Dalvík fyrr í
mánuðinum. Stjörnumenn sigruðu
29:18 (15:12).
Leikur Gróttu og Stjörnunnar
sem átti að vera þennan dag var
færður til þriðjudags.
Á sunnudagskvöldið léku svo
Óðinn og Breiðablik í Laugar-
dalshöll kl. 22.15 (kristilegur
tími!) þar sem Breiðablik varð að
ná stigi til að sigra í deildinni.
Dómarar mættu ekki en með
herkjum tókst að fá menn til þess
að dæma! Breiðablik sigraði ör-
ugglega 30:22 (17:10).
Á þriðjudagskvöldið léku svo
loks Grótta og Stjarnan á Sel-
tjarnarnesi og Stjarnan sigraði
29:27 (13:16).
Lokastaðan í 3. deild
Breiðabl. 14 12 1 1 388:266 25
Akranes 14 10 3 1 320:267 23
Stjarnan 14 9 2 3 357:281 20
óðinn 14 6 4 4 317:312 16
Keflavik 14 6 1 7 297:282 13
Dalvik 14 4 0 10 289:364 8
Grótta 14 3 1 10 317:349 7
Selfoss 14 0 0 14 256:420 0
Sigurliðið Breiðablik
Sigur Breiðabliks var verð-
skuldaður og sérstæður á fleiri en
einn máta. Liðið fékk á sig fæst
mörk í deildinni eða 266, aðeins þó
marki minna en næsta lið, Akra-
nes, en skoraði langflest mörk í
allri deildakeppninni eða 388. Að-
eins efsta liðið í 1. deild Víkingur
og efsta liðið í 2. deild Fylkir
fengu á sig færri mörk, Víkingur
253 og Fylkir 262, en þau skoruðu
aðeins á móti 325 óg 292 mörk.
Markamunurinn hjá Breiðabliki
varð sem sé 122 mörk! Hjá Víkingi
72 og Fylki 30. Lið Breiðabliks er
einnig í sérflokki þeirra liða sem
náðu árangri í deildakeppninni
hvað aldur leikmanna snertir, með
24 ára aldursforseta og hina
17—21 árs alla með tölu, en 16
menn léku með liðinu í deildar-
keppninni í vetur. Þá teflir
Breiðablik fram allt að 8 vinstri-
handarútileikmönnum, sem líkleg-
ast er heimsmet! Og í vetur var
það undantekning ef einhver úti-
leikmaðurinn skoraði ekki.
Þjálfari Breiðabliksliðsins í vet-
ur var Sigfús Guðmundsson lands-
liðsmaður úr Víkingi en þrjú árin
á undan var Stefán Sandholt
landsliðsmaður úr Val þjálfari
liðsins.
Vésteinn öruggur með 50 m
VÉSTEINN Hafsteinsson KA
virðist vera orðinn öruggur með
50 metra köstin i kringlukasti,
þar sem hann kastaði um helgina
á móti i Kaliforníu í þriðja
skiptið í röð yfir 50 metra.
Vésteinn kastaði kringlunni
50,52 metra og átti 52 metra kast
sem reyndist hárfínt ógilt.
Á æfingum hefur Vésteinn
kastað 54 metra. í spjalli við Mbl.
í gær sagði Vésteinn að æfingar
hefðu gengið vel og vonaðist hann
til að bæta sig enn meir í sumar.
Vésteinn hefur æft nokkuð undir
handleiðslu Bandaríkjamannsins
John Powell, fyrrum heimsmet-
hafa í kringlukastinu, en Powell er
enn á fullri ferð og kastaði um 69
metra á æfingu með Vésteini í
síðustu viku. Powell er þegar
búinn að kasta yfir 66 metra í
keppni í ár, gerði það á sama móti
og Vésteinn, kastaði 50,52 metra,
minningarmótinu um Martin
Luther King. Powell starfar sem
þjálfari á San Jose State háskól-
anum í Kaliforníu og vill hann
ólmur fá Véstein í skólann í haust.
Þórdís Gísladóttir ÍR keppti í
hástökki á Martin Luther King
mótinu en tókst iila upp og stökk
„aðeins" 1,73 metra.
Erlendi Valdimarssyni ÍR hefur
verið boðin þátttaka í einu allra
sterkasta frjálsíþróttamóti
Bandaríkjanna, Bruce Jenner
Classic, sem haldið verður í San
Jose í Kaliforníu í næstu viku.
Verður það fyrsta keppni Erlend-
ar á árinu, en hann hefur verið að
kasta 58—60 metra á æfingum í
Kaliforníu að undanförnu.
—ágás.
F r jálsíþróttamennir nir
góðkunnu, óskar Jakobs-
son ÍR og Hreinn Hall-
dórsson KR, virðast vera
að sækja í sig veðrið og að
komast í keppnisform, þar
sem þeir náðu báðir ágæt-
um árangri í sínum grein-
um um helgina, kringlu-
kasti og kúiuvarpi, á mót-
um í Bandaríkjunum um
helgina.
Óskar kastaði kringl-
unni 62,36 metra á móti í
Dallas í Texas og sigraði.
Er þetta hans langbezti
árangur í ár, og ekki langt
frá hans bezta í greininni,
en hann á bezt 62,54 metra
frá 1978.
Hreinn varpaði kúlunni
20,27 metra á móti í Ala-
bama, og sigraði hann
einnig. — ágás.
Óskar og Hreinn
sækja í sig veðrið
• Alfreð Gislason sem á myndinni sést lyfta sér og reyna skot hefur
átt mjög góða leiki i vetur með liði sínu KA. Alfreð skoraði átta mörk
á móti Þrótti á laugardag. Ljósm. sor.
Þróttur ÍR
ÞRÓTTARAR voru ekki í vand-
ræðum með að tryggja sér 2.
sætið í 2. deild með tveimur
sigrum yfir KA frá Akureyri.
Eins og áður hefir komið fram
sigraði Þróttur KA örugglega í
Laugardalshöll með 21 marki
gegn 16 og i síðari leiknum, sem
fram fór á Akureyri á laugardag
fyrir páska sigraði Þróttur aftur
og nú með 26 mörkum gegn 21.
Þar með hafa Þróttarar tryggt
sér réttinn til að leika til úrslita
við ÍR-inga um laust sæti í 1.
deild að ári og kæmi það undirrit-
uðum ekki á óvart að Þróttarar
gangi sem sigurvegarar af þeim
hólmi.
Leikurinn fyrir norðan á laug-
ardag var fremur jafn framan af.
Þannig var jafnt á öllum tölum
upp í sjö mörk, en Þróttarar gerðu
mæstu þrjú mörkin og staðan því
10 gegn 7, en KA-mönnum tókst
aðeins að laga stöðuna áður en
blásið var til leikhlés með tveimur
mörkum. Staðan því 10 gegn níu í
hléinu.
KA náði að jafna í upphafi
síðari hálfleiks, 11 gegn 11, en
síðan brast KA allan þrótt, sem
Þróttarar höfðu hins vegar næg-
an, og Þróttarar tryggðu sér
stóran og öruggan sigur 26 mörk
gegn 21.
Það var einkennilegt hvað varn-
arleik KA viðvék að Sigurður
Sveinsson, sem ekki hafði verið
mjög atkvæðamikill í fyrri hálf-
leik, tók á sig rögg í þeim síðari og
skoraði grimmt, en þrátt fyrir það
var hann ekki tekinn úr umferð
fyrr en fjórar mínútur voru til
leiksloka, og sigur Þróttara þá
tryggður. Sigurður og Páll Ólafs-
son voru bestu menn Þróttara.
Það er sárgrætilegt fyrir Akur-
eyska handknattleiksunnendur að
KA skyldi ekki takast að tryggja
sér sæti í 1. deild að ári. Staða KA
fyrir síðasta leikinn í deildinni var
einkar góð og allir möguleikar, en
dæmið gekk ekki upp hverju sem
um er að kenna. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem herslumuninn
vantar hjá KA og einhvern veginn
virðast menn ekki hafa trú á að
dæmið geti gengið upp.
Markhæstu menn: Þróttur: Sig-
urður 10, Páll 5. KA: Alfreð 8,
Gunnar 5, Ármann 3.
Sigb.g.
mmmmmmmmmmm i