Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
„Stöðva afgreiðslu
á flugvélabensíni
til einkaflugs“
Von á skipi með hálfs árs birgðir
„ÞETTA virðist ætla að standa
mjöK glöKgt með þær birgðir sem
til eru af bensíni í landinu á
minni vélarnar í flugflotanum og
við höfum því reynt að stöðva
afgreiðslu á þessu bensíni til
einkaflugs,“ sagði Böðvar Kvar-
an hjá Skeljungi í samtali við
Mbl. í gær.
Sagði Böðvar að um 30 þús.
lítrar af þessum 100 octain bensíni
væru nú til í landinu og myndi það
að öllum líkindum duga þar til
skip kemur með 900 tonna farm
frá Rotterdam um miðja næstu
viku.
Ástæðuna fyrir þessum litlu
birgðum af eldsneyti fyrir minni
vélarnar kvað Böðvar vera að
tækifæri til að flytja inn þetta.
eldsneyti væru fá og miðað væri
við að flytja flugvélabensín til
landsins tvisvar á ári, en þess má
geta að Fokkervélar Flugleiða
nota sérstaka steinolíu til
brennslu.
Lóan er komin
Borífareyrum, Vestur-Eyja-
Æireppi. 8. apríl.
er nú komin, og sást til
hennar í stórum hópum í túninu
á Ysta-Bæli undir Austur-Eyja-
fjöllum á páskadag. Þetta er
óvenjusnemma. sem við sjáum
til lóu, en boðar vonandi að
vorið sé í nánd.
Grænn litur er nú farinn að
sjást á túnum, en hér um slóðir
lætur vorið einna fyrst á sér
kræla. Þá eru stönglar einnig
farnir að koma upp úr görðum.
Klaki er enginn í jörðu. og
hefur verið mjög lítill í vetur,
og má raunar segja að hér hafi
enginn vetur komið.
Eru bændur nú bjartsýnir á
gott vor, sem ætti að vera alveg
á næsta leyti ef ekki gerir hret.
— Markús
Skíðamót barna og
unglinga á Seljalandsdal
HELGINA 29. og 30. marz sl. fór
fram á Seljalandsdal við ísafjörð
göngu- og svigkeppni barna og
unglinga. svokallað Lionsmót.
A laugardag var keppt í göngu
í 4 flokkum. Úrslit urðu þessi í
flokki 8 ára og yngri:
1. Sigurður Oddsson
2. Guðmundur S. Sigurðsson
3. Albert V. Magnússon
í flokki 9—10 ára drengja:
1. Ólafur Sigurðsson
2. Óðinn Gústafsson
3. Þórir Jakobsson
Isfirsku landsmótsfararnir voru
undanfarar i göngukeppninni.
í flokki 11 —12 ára stúikna:
1. Sigríður L. Gunnlaugsdóttir
2. Stella Hjaltadóttir
3. Friðgerður Ómarsdóttir
í ílokki 11 — 12 ára drengja:
1. Aðalsteinn Elíasson
2. Heimir Hansson
3. Friðrik Gunnarsson
Á sunnudag var keppt í svigi í 5 flokkum.
Urslit urðu þessi í flokki 8 ára og yngri:
1. Jón Ólafur Árnason
2. Kristján Flosason
3. Axel Jóhannsson
í flokki 9—10 ára stúlkna:
1. Ágústa Jónsdóttir
2. Guðbjörg Ingvadóttir
3. Ólöf Björnsdóttir
t flokki 9—10 ára drengja:
1. ólafur Sigurðsson
2. Ólafur Gestsson
3. Einar Gunnlaugsson
í flokki 11 —12 ára stúlkna:
1. Freygerður Ólafsdóttir
2. Sigríður L. Gunnlaugsdóttir
3. Katrín Þorláksdóttir
í flokki 11 — 12 ára pilta:
1. Baldur Hreinsson
2. Kristinn Jónsson
3. Gísli Þórólfsson
111 keppendur voru skráðir til keppninnar
sem fór í alla staði vel fram. Glæsileg
verðlaun voru veitt, auk þess sem allir
þátttakendur fengu viðurkenningarskjal fyrir
þátttökuna. Félagar í Lionsklúbbi ísafjarðar
sjá um alla vinnu við mótið auk þess sem þeir
gefa verðlaunin.
Úlfar.
Brezka skáldkonan Iris Murdoch og maður hennar John Bayley
komu í fjögurra daga heimsókn til íslands í gær í boði Háskóla
ísiands. Þau munu halda fyrirlestra i Árnagarði á fimmtudag og
föstudag um „The Novel“ og -The Truth of Art“. Þau hjón sjást hér
ásamt sendiherra Breta á Islandi Kenneth East skömmu eftir
komuna í gær.
Ljúmn. Mbl. ól. K. Masnússon.
Finnski konsúllinn á tslandi. Haraldur Björnsson, lengst til vinstri, þá Maija Liisa Tarkkalen
viðskiptafulltrúi finnska utanrikisráðuneytisins, næst henni eiginkona Haralds, Þóra Stefánsdóttir, og
lengst til hægri Juhani Lindfors viðskiptafulltrúi í finnska sendiráðinu i Ósló. Maija Liisa heldur á
finnskri minkakápu frá fyrirtækinu Furly, umboðsaðili hérlendis Loðskinn, Kirkjuhvoli.
Finnland í vefnaðar-
og fataframleiðslu
Finnsk fyritæki sýna framleiðslu sina
á Hótel Loftleiðum í dag og á morgun
Níu finnsk vefnaðar- og
fataiðnaðarfyrirtæki opn-
uðu sýningu á framleiðslu
sinni í Kristalsal Hótels
Loftleiða í gær. Sýningin
verður opin í þrjá daga, þ.e.
til 10. apríl, frá kl. 9 að
morgni til kl. 16 fyrir
verzlunarmenn og frá 17 til
20 fyrir almenning. Tízku-
sýningar verða í dag og á
morgun kl. 18 í ráðstefnu-
sal Hótels Loftleiða.
Sýningin var opnuð við há-
tíðlega athöfn í gær og viðstaddir
voru finnskir og íslenzkir um-
boðsmenn fyrirtækjanna. Maija
Liisa Tarkkalen viðskiptafulltrúi
finnska utanríkisráðuneytisins
sagði þá í viðtali við Mbl., að þetta
væri í annað skiptið, sem finnsk
iðnfyrirtæki héldu sýningu á
framleiðslu sinni hérlendis. Út-
flutningur Finna næmi nú rúm-
lega einni millj. dollara og hefði
aukist verulega á síðustu árum.
Fulltruar MurvorulyrirtakÍKÍnH Fiitala.
Peik Kuuluvainen »k eÍKÍnkuna hans. Peik
er iklæddur sportjakka úr leðri. sem vakti
óskipta athyKli viA opnun sýninKarinnar.
Finnsk vefnaAarvara á sýninKunnl er óhiA ikveAnum linum eAa litum. 1 tizku er i daK aA söKn
Finnanna allt sem smekkur ok huKur manna Kirnist. f miAIA i myndinni er finnski fulltrúi
fyrirtakisins Tampella. henni i vinstri hónd er umhoAsmaAur fyrirtækisins hérlendis.
SÍKríAur ÁKÚstsdóttir. ok þi Arl BerKmann Einarsson. en þau reka fyrirtækiA ÁkltrAi ok
KluxKatjold i Skipholti.
Byggja vinsældir sín-
ar á íslenzku loðskinni
FINNSKA leðurvörufyrirtækið
Friitala, sem er einn af sýningar-
aðilum á finnskri vefnaðar- og
fataframleiðslusýningu á Hótel
Loftleiðum, sem opnuð var í gær,
byggir að sögn útflutningsstjóra
fyrirtækisins, Peik Kuuluvainen,
vinsældir sínar að mestu á sölu
fatnaðar úr íslenzkri gæru.
í viðtali við Mbl. í gær sagði
Peik Kuuluvainen, að um 35%
heildarframleiðslu fyrirtækisins á
loðskinnum væru úr íslensku
loðskinni. Fyrirtækið seldi á árinu
1979 um 9.000 yfirhafnir unnar úr
íslenzku skinni, af þeim fjölda
voru um 5.000 fluttar út frá
Finnlandi.
Peik sagði einnig að vinsældir
fyrirtækisins erlendis byggðust
mikið á vinsældum íslenzka
skinnsins og ættu íslendingar og
Finnar sameiginlega hagsmuni í
þessari iðngrein. Hann sagði að-
spurður að ekki væru neinar
yfirhafnir fyrirtækisins á sýning-
unni unnar úr íslenzku skinni og
að þeir hefðu ekki í hyggju að
bjóða þær til sölu hérlendis, þar
sem hann teldi eðlilegt að íslenzk-
ir framleiðsluaðilar hefðu einir
sinn eigin markað. v
Finnska fyrirtækið hefur gert
samning við Samband ísl. sam-
vinnufélaga á Akureyri um kaup á
250 þús. ferfetum af skinni á ári,
en fengu á sl. ári um 180 þús.
ferfet. U.þ.b. 6 ferfet eru í einu
skinni.
Mörg innbrot um páskana
ÓVENJU mikið var um inn-
brot á höfuðborgarsvæðinu
um páskana en ekki var um
nein stórinnbrot að ræða, að
sögn Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Einn morguninn
voru t.d. 8 menn í fanga-
geymslum lögreglunnar, sem
yfirheyra þurfti vegna inn-
brota. Tilkynnt var um stuld
á 500 þúsund krónum en
þegar til kom reyndist um
misskilning að ræða, pen-
ingarnir höfðu bara verið
faldir svona vel.
Að öðru leyti voru páskarnir
ekki tiltakanlega annasamir hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Árekstrar voru með fæsta
móti og aðeins eitt umtalsvert
slys. Það varð klukkan 22.30 sl.
miðvikudagskvöld þegar tvær bif-
reiðar rákust saman á mótum
Álfabakka og Stekkjarbakka.
Fernt var flutt á slysadeild en
meiðsli reyndust ekki vera alvar-
leg.