Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1980
34
Sjötugur:
Baldvin Þ. Kristjáns-
son félagsmálafulltrúi
Baldvin Þ. Kristjánsson verður
sjötugur í dag. Hann er einn mesti
félagshyggjumaður íslands á
þessari öld. Hefur átt mikinn þátt
í stofnun þriggja landssamtaka
auk fjölda annara félagsstarfa.
Baldvin fæddist 9. apríl 1910, á
prestsetrinu Stað í Aðalvík, sonur
merkishjónanna Halldóru Finn-
bjarnardóttur og Kristjáns Eg-
ilssonar.
Þegar Baldvin var á barnsaldri
fórst faðir hans í fiskiróðri frá
Hnífsdal, því þangað höfðu for-
eldrar hans flutt.
Frá áttunda aldursári ólst Bald-
vin upp hjá hjónunum Guðbjörgu
Pálsdóttur og Ásgeiri Guðbjarts-
syni útgerðarmanni. Baldvin
stundaði sjómennsku og algenga
vinnu frá fermingaraldri. Sautján
ára fór hann til náms á Núpsskóla
ög var þar veturna 1927—1929.
Frá Núpsskóla fór Baldvin í Sam-
vinnuskólann.
Ekki lét hann þar staðar numið
á sinni mennta- og þroskabraut,
heldur fór á Samvinnu lýðháskól-
ann á Jakopsbergi í Svíþjóð, með
námsstyrk Sænska samvinnusam-
bandsins 1937—1938. Síðan átti
hann námsdvöl í hinum kunna
Samvinnuskóla Svía, „Várgárd".
Þessi haldgóða menntun varð
honum dýrmætt vegarnesti til
hins þýðingarmikla lífsstarfs, er
varð hlutskipti hans. Eftir að hafa
notið framangreindrar menntunar
hóf Baldvin störf hjá samvinnu-
félagi Isfirðinga, síðan hjá síldar-
útvegsnefnd frá stofnun hennar
1935. Var gjaldkeri og aðalbókari
til ársins 1944, einnig tók hann að
sér ritstjórn á blaði síldarverkun-
armanna er nefndist „Síldin".
Baldvin starfaði sem erindreki
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, beitti sér fyrir stofnun
útvegsmannafélaga í flestum út-
gerðarstöðum landsins og aflaði
fjárframlaga frá þeim félögum til
innkaupadeildar L.Í.Ú.
Hann tók mikinn þátt í félags-
málum á Isafirði og Siglufirði
meðan hann dvaldist þar, einkum
verkalýðs og kaupfélagsmálum.
Um skeið var hann varaformaður
Kaupfélags Siglfirðinga og full-
trúi þess á aðalfundum S.I.S.
Baldvin var líka formaður Nor-
ræna félagsins, einnig formaður
fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélags-
ins. Hann var í kjöri til alþingis í
Borgarfjarðarsýslu 1946, fyrir Al-
þýðuflokkinn.
Baldvin var framkvæmdastjóri
við uppbyggingu Bifrastar, áður
en Samvinnuskólinn tók til starfa.
Seinna tók hann að sér fram-
kvæmdastjórn hraðfrystihúss
S.Í.S. á Kirkjusandi.
Erindreki
Sambandsins
Baldvin var erindreki sambands
íslenskra samvinnufélaga 1946—
1953, ferðaðist um land allt, flutti
erindi á vegum S.I.S. og sambands
félaganna. Sum árin allt að 100.
Sýndi kvikmyndir víða þar sem
þær höfðu aldrei áður sést. Víða
var þá ekkert rafmagn, en hann
hafði með sér eigin rafmótor, sem
hann flutti ýmist á árabátum eða
hestbaki, lang oftast einn á ferð,
sem bílstjóri, ræðumaður og kvik-
myndasýningamaður.
Safnaði þá allmiklú fé í fram-
kvæmdasjóð S.Í.S. sem var undan-
fari skipadeildar Sambandsins.
Útbreiðslustjóri
Samvinnutrygginga
Baldvin hafði verið lánaður til
kynningar á Samvinnutrygging-
um sumarið 1948, og ferðaðist þá
um landið ásamt Jónasi Jóhann-
essyni, tryggingarmanni, og tóku
þeir miklar tryggingar á sjálfum
fundunum. Félagsmálafulltrúi
Samvinnutrygginga 1964, og er
það ennþá. Hefur flutt erindi í
félögum, skólum og klúbbum um
tryggingarhugsjón þeirra og
skipulag. Stofnaði Gjallarhornið,
málgagn fyrir Samvinnutrygg-
ingarmenn 1961, og ritstýrt því
síðan, sá einnig um tímaritið
Samvinnutryggingu til 1966.
Hann var elsti hvatamaður að
stofnun Klúbbanna Öruggur akst-
ur á vegum Samvinnutrygginga,
samtals 33ja, í öllum lögsagnar-
umdæmum landsins, á árunum
1965—1968. Hann hefur mætt á
flestum fundum klúbbanna í
þrettán ár og flutt fræðslu- og
hvatningarerindi. Veitt þeim for-
stöðu alla tíð og í sambandi við
klúbbastarfsemina, átt sæti í Um-
ferðarráði 1972—1975, og fram-
kvæmdanefnd þess sama tíma.
Þá hefur Baldvin verið formað-
ur eða ritari ýmissa bindindis-
verkalýðs- og stjórnmálasamtaka,
bæði á ísafirði og Siglufirði,
einnig fyrsti ritstjóri „Hlyns",
starfsmannablaðs S.I.S. Hefur rit-
að margar greinar í blöð og
tímarit, einkum „samvinnuna".
Var um tíma framkvæmdastjóri
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, landssöfunar hennar hér,
þeirrar fyrstu og mestu.
Formaður hinnar víðtæku
landsnefndar þá var Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson, einnig
formaður Rauða krossins, og fékk
heiðurspening S. Þ. fyrir framlag
íslendinga.
Viðurkenningarvottur
Baldvin var sæmdur Gullmerki
Samvinnutrygginga 1969 fyrir
ómetanleg félagsmálastörf.
Sæmdur Silfurbíl Samvinnu-
trygginga fyrir framlag til aukins
umferðaröryggis. Sæmdur fyrsta
og hingað til eina heiðursskildi
F.S.S.A. fyrir frábær störf að
félagsmálum samvinnumanna.
Þýðingar úr erlendum- málum,
svo sem bækur eftir hinn heims-
kunna ameríska prédikara og rit-
höfund Norman Vincent Peale.
Dr. Phil.
Baldvin er hörkugreindur og
hreinskiptinn drengskaparmaður,
hraðmælskur, og eins og sagt var
til forna, höfðingjadjarfur. Hann
fylgir hverju máli með fullri
einurð, er hann telur rétt vera,
móti hverjum sem er. Oft ólgar
skapið innra, er hann mælir fram
meitlaðar setningar, því málefni
til framdráttar, er hann berst
fyrir.
Fyrir hálfri öld bar fundum
okkar Baldvins saman á ísafirði.
Ég var þá skipstjóri á ísfirskum
vélbát, en hann skrifstofustarfs-
maður hjá Samvinnufélagi ísfirð-
inga.
Það sem sérstaklega vakti eftir-
tekt mína, var hinn leiftrandi
áhugi, er neistaði frá augum hans
og öllum hreyfingum. Hann vildi
hvers manns vanda leysa með
ráðum og eigin framkvæmdum.
Síðan lá leið okkar saman á
Siglufirði, nokkrum árum síðar,
þar sem ég fékkst þá við útgerð, og
hvenær sem var, gátum við leitað
til hans sem góðs vinar.
Landssamband íslenskra
útvegsmanna
Næstu kynni voru þegar Baldvin
réðst sem erindreki L.Í.Ú. Ég
minnist sérstaklega hinnar þrótt-
miklu mælsku á aðalfundum, er
hann skýrði frá umræðum og
undirtektum útvegsmanna víðs
vegar um landið. Það var ekki
undarlegt, þótt útvegsmenn
brygðust fljótt og vel við svo
snjöllum málflutningi. Með stofn-
un L.Í.Ú. var mikið heillaspor
stigið í þágu útgerðar lands og
þjóðar. Það hefur staðið og mun
standa á þeim trausta grundvelli,
er í byrjun var lagður, og átti
Baldvin ásamt mörgum öðrum
mikinn þátt í að móta. Það hefur
verið gæfa L.Í.Ú. að til forustu
hafa valist hinir ágætustu menn á
hverjum tíma.
Samvinnutryggingar
Fyrir framkvæmd Vilhjálms
Þór og Erlendar Einarssonar hóf-
ust þáttaskil í tryggingarmálum
hér á landi með stofnun Sam-
vinnutrygginga, því á þeim 33
árum frá stofnum til þessa dags,
hafa Samvinnutryggingar með
endurgreiðslu tekjuafgangs og
ókeypis tryggingum endurgreitt á
fjórða milljarða ísl kr. miðað við
núverandi verðgildi krónunnar.
Baldvin Þ. má því ásamt öðrum
vel við una árangur þess mikla
starfs, er hann hefur innt af
höndum um áratugi í þágu sam-
vinnutrygginga. Margar hinna
snjöllu ræða hans eru mér minnis-
stæðar, en ein þó öðrum fremur,
er hann hélt í hófi eftir aðalfund
Samvinnutrygginga á ísafirði
1963.
Það var nokkuð liðið á hófið þegar
Baldvin tók til máls. Hann fór á
kostum ræðumennskunnar, er
hann lýsti útgerðarmönnum,
valdsmönnum, bændahöfðingjum,
skáldum og listamönnum, sjó-
mönnum, verkamönnum, er dval-
ist höfðu víðsvegar um Isafjarðar-
djúp og Vestfirði alla.
Hann rakti ættir þeirra og óðöl
með leifturhraða.
sú ræðusnilli mun flestum hafa
orðið minnisstæð.
Brautryðjandastarf Baldvins Þ.
Kristjánssonar um stofnun klúbb-
anna Öruggur akstur mun e.t.v.
lengst halda nafni hans á lofti, því
það er björgunarstarf frá slysum
og nauðum.
Enginn er dómbær um hversu
mörgum hefur verið forðað frá
slysum, limlestingu, dauða og sár-
um sorgum, og enginn getur gisk-
að á hvar þau þungu slysahögg
hefðu niður komið, sem tekist
hefur að afstýra, vegna þeirrar
starfssemi. Þeir menn, sem lagt
hafa á sig mikla fyrirhöfn, fjár-
framlög og fórnarvilja, eiga þakk-
ir alþjóðar.
Baldvin er mjög vel ritfær
maður og hefur tileinkað sér þann
ritstíl, er ber glöggvan keim
íslenskra fornsagna.
Hann kvæntist ungur hinni
ágætustu konu, Gróu Ásmunds-
dóttur frá Akranesi. Hún hefur
mótað með honum þeirra hlýlega
og friðsæla heimili á Álfhólsvegi
123 í Kópavogi. Oft orðið að
tileinka sér það hlutskipti sjó-
mannskonunnar að sjá um alla
starfsemi heimilisins og uppeldi
barnanna, þegar heimilisfaðirinn
var langdvölum vegna sinna fé-
lagsstarfa. Gróa er vel gefin
dugnaðarkona. Þau hjón eiga tvo
myndarsyni, Kristján skurðlækn-
ir og sérfræðing í kvensjúkdómum
og fæðingarhjálp, nú starfandi á
viðkomandi deild Landspítalans,
og Gunnlaug, flugvirkja hjá
Flugleiðum. Þá hafa þau alið upp
að mestu sonarson sinn Ásmund
Gunnlaugsson, sem eins og faðir
hans er nýorðinn flugvirki. Barna-
börnin eru níu.
Kæri vinur, Baldvin! Um leið og
ég þakka öll góðu kynnin á langri
ævileið, óska ég þér og fjölskyldu
þinni heilla og blessunar á ókomn-
um tímum.
Þótt halla taki af degi sjötugs
manns geturðu glaðst þá lítur yfir
farinn veg, því félagsstörf móta
vinsemd, frið og einingu milli
margra. Friður, vinsemd og eining
er sá grundvöllur, er kærleikurinn
byggist á, en kærleikann flytjum
við með okkur til nýrra lífssviða.
Karvel Ögmundsson
Félag fyrir unga alþýðu-
bandalagsmenn - en án
tengsla við Alþýðubandalagið
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stofna
„Æskulýðsfélag sósialista
Reykjavík“ á laugardaginn, 12.
apríl. Verður stofnfundurinn
haldinn i Lindarbæ, að því er
segir í fréttatilkynningu sem
Morgunblaðinu hefur borist.
í fréttatilkynningunni segir
einnig, meðal annars: „Rétt til
inngöngu í æskulýðsfélag sósíal-
ista hafa allir þeir sem telja sig
í geta unnið að sósíalisma og þjóð-
frelsi samkvæmt stefnuskrá Al-
þýðubandalagsins, og eru annað
tveggja: ekki félagar í neinum
flokkspólitískum samtökum eða
eru félagar í Alþýðubandalaginu.
Félagið verður ekki í neinum
skipulagslegum tengslum við Al-
þýðubandalagið."
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
þjónusta
Kílóhreinsunarvél +
gufuketill
Hreinsun úti á landi óskar eftir aö kaupa
notaöa hraöhreinsunarvél, gufuketil, auk
gufugínu og pressu.
Upplýsingar í síma 82220, á skrifstofutíma.
nauöungaruppboö
Nauöungaruppboö
Eftír beiöni skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboö
miövikudaginn 9. apríl 1980 aö Klapparstíg 28 og hefst þaö kl. 18.00.
Selt verður töluvert magn af allskonar harðvið, krossviö, spónaplöt-
-n, haröplastplötum, furu og öörum efniviö.
cnnfremur pússivél (dönsk frá Nordisk Maskine fabrlk) og 6 stk.
búkkablokkþvingur.
Greiösla viö hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
Sjúkraliðar — Sjúkraliöar
Aöalfundur Sjúkraliðafélags íslands veröur
haldinn í fundarsal Hótel Heklu, Rauðarárstíg
18, Reykjavík, þann 19. apríl 1980 kl. 13.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Bátar til sölu
3_4_5_6—7—8—9—11 —15—17—
20—22—29—30—35—37—47—50—
52—56—65—70—72—90—100—104—
105—145—150—180—230 tonn.
Fasteignamiðstööin,
Austurstræti, 7.
S. 14120.
Eitt ár á lýðháskóla?
Handíðir: (handavinna, rósamálun, teiknun,
keramik og fleira).
Útilíf (sjó- og fjallaferðir)
Félagssviö.
Skrifið eftir áætlun.
Sunnhordland Folkehögskule,
5455 Halsnoy Kloster, Norge.
Sími 054— 76137.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480