Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
35
Nýr sjúkrabíll
til Kópaskers
Skinnastað. 1. apríl.
SÍÐASTA sunnudag afhenti Kiw-
anisklúbhurinn Faxi heilsu-
gæslustöðinni á Kópaskeri nýjan.
fullbúinn sjúkrabíl af Chverolet-
gerð. Bíllinn mun þjóna umdæmi
Heilsugæslustöðvarinnar á Kópa-
skeri, sem hjúkrunarkona veitir
forstöðu, þ.e. Presthólahreppi,
Öxarfirði og Kelduhverfi.
Umsjón með bílnum mun hafa
Skúli Þór Jónsson, slökkviliðs-
stjóri á Kópaskeri. Kaup sjúkra-
bílsins er mikið átak fyrir svo
fámennan félagsskap sem Kiwan-
isklúbburinn Faxi er. Félagsmenn
öfluðu fjár með ýmsu móti, t.d.
gáfu rækjusjómenn árlega afla úr
einum rækjuróðri og eiginkonur
þeirra og dætur unnu aflann í
fiskvinnslustöð staðarins. Þá fóru
klúbbfélagar í uppskipunarvinnu
oggáfu klúbbnum vinnulaunin. Þá
má geta þess, að verkalýðsfélagið
á staðnum lánaði eina milljón
króna vaxtalaust. Klúbburinn
beitti ýmsum öðrum fjáröflunar-
aðferðum. Segja má því að klúbb-
félagar hafi sýnt einstaka atorku
og fórnfýsi til að afla þessa
bráðnauðsynlega farkosts fyrir
héraðið. Næsta sjúkrahús er á
Húsavík.
— SÍKurvin
Olíumöl hf.:
Heimild til að breyta
kröfum ríkis í hlutafé
ALÞINGI hefur samþykkt með
44 atkvæðum gegn 5, átta þing-
menn sátu hjá og þrír voru
fjarverandi, tillögu fjárveitinga-
nefndar um heimild til ríkis-
stjórnarinnar að breyta kröfum
ríkissjóðs á hendur Olíumalar hf.
i hlutafé að fengnu samþykki
fjárveitinganefndar.
„Það má segja, að málið hafi
verið þannig lagt fyrir okkur, að
ekki yrði um að ræða lagningu
slitlaga úr olíumöl, ef þetta mál
yrði ekki skoðað nánar og okkur
fannst ástæða til að það yrði
gert,“ sagði Eiður Guðnason for-
maður fjárveitinganefndar í sam-
tali við Mbl.
Eiður sagði, að hvað hann sjálf-
an varðaði þá skorti hann ýmsar
upplýsingar til að taka enn endan-
lega afstöðu til málsins. „En ég
mun leita eftir þeim,“ sagði hann.
Nýjar reglur um
gjaldeyrisviðskipti
Nýjar reglur um gjaldeyr-
isviðskipti tóku gildi 1. apríl.
Viðskiptaráðuneytið skipaði
Samstarfsnefnd um gjaldeyr-
ismál í janúar sl. og er hún
skipuð fulltrúum ráðuneytis-
ins, Seðlabankans, Lands-
bankans og Útvegsbankans.
Hinar nýju reglur veita
gj aldeyrisviðskiptabönkunum
víðtækar heimildir til af-
greiðslu allra venjulegra yfir-
færslna, en Samstarfsnefndin
semur heildarreglur um fram-
kvæmdina og fjallar auk þess
um erindi, sem fara út fyrir
heimildir bankanna, og berast
henni fyrir milligöngu þeirra.
Jafnframt leggst starfsemi
Gjaldeyrisdeildar bankanna
niður.
Standa vonir til, að gjald-
eyriserindi fái með þessu móti
skjótari afgreiðslu en unnt
hefur verið að veita til þessa.
Ferðagjaldeyrir miðast við
jafnvirði 1000 Bandaríkjadoll-
ara eða rúmlega 430 þúsund
miðað við núverandi gengi.
10% sérstakt gjald á ferða-
gjaldeyri verður óbreytt.
Hinn nýi sjúkrabill Siglfirðinga.
Ljósm. S.K.
Nýr sjúkrabíll
til Siglufjarðar
Sigluíirði. 31. marz.
NÝR sjúkrabíll kom til Siglu-
f jarðar sl. laugardag og er hann í
umsjá Siglufjarðardeildar Rauða
kross íslands og fjár til kaupa
hans aflað af henni í samvinnu
við Rauða krossinn.
Sigluvík landaði milli 60—70
tonnum af blálöngu og karfa í gær
og Siglfirðingur landaði álíka
magni í Sandgerði. Þá mun Sigur-
ey selja ytra á miðvikudag 185
lestir. Snjóföl setti hér niður í dag,
en hún náði þó ekki að spilla
vegasambandi svo vitað sé.
m.j.
Verksmiöjusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Gerið góö kaup í úrvalsvöru.
Opid virka daga kl. 10—18. Föstudaga kl. 10—19.
Laugardaga kl. 9—12.
Skipholti 7.
Sími 28720.
• syjoidájsar.
•••••••
Ben-ti íhandhægum umbúðum.
Prófaðu þig áfram . Finndu þitt bragð.
Salmiak-lakkris, salt lakkrís, mentol-
eucalyptus eða hreinn lakkris.
Kosta ekki meira
en venjulegar hálstöflur!
(32 ípakka)
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M Al'GLYSIR I M ALLT LAND ÞEGAR
Þl AUGLÝSIR I MORGl'NBLAÐINl'