Morgunblaðið - 09.04.1980, Qupperneq 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
Hjónaminnina:
Dómhildur M. Sveinsdótt■
ir og Óli G. Baldvinsson
bessar vinknnur. Jóhanna Kristín Birnir, Sif MarKrét Hrafnsdóttir
og Svala Guðmundsdóttir, efndu til hlutaveltu fyrir nokkru að
Blönduhlið 6 hér í bænum. til ágóða fyrir Blindrafélagið og söfnuðu
þær rúmlega 17.800 krónum.
Árbók Barða-
strandarsýslu
Ellefti árgangur Árhókar
Barðastrandarsýslu er kominn
út. Sagt er í bundnu og óbundnu
máli frá opinberri heimsókn for-
setahjónanna i sýsluna.
Það má segja, að Árbókin sé að
þessu sinni öðru fremur helguð
frásögnum af Landnámshátíð
Vestfirðinga i Vatnsfirði á
Barðaströnd. Þeim frásögnum
fylgja margar myndir, m.a. af
minnisvarða þeim, sem Vestfirð-
ingar reistu Ifrafna-Flóka við það
tækifæri í Flókalundi, svo og af
víkingaskipi því hinu mikla á
Vatnsdalsvatni, sem átti sinn þátt
í að gefa hátíðahöldunum á Vest-
fjörðum sitt sérkennilega svipmót.
Að öðru leyti flytur Árbókin
margvíslegan sögulegan fróðleik,
auk föstu þáttanna, sem hún
ávallt flytur, svo sem Fréttaann-
ála úr öllum hreppum sýslunnar
og þáttarins: „Látnir sýslungar",
sem einnig tekur til allra safnaða
prófastsdæmisins.
„ Hér í Reykjavík fæst seinasta
Árbók Barðastrandarsýslu hjá
Sögufélaginu, Garðastræti 13 b,
en þá fæst Árbókin einnig ásamt
eldri árgöngum í Sýsluskrifstof-
unni á Patreksfirði. Árbókin er
270 bls. í Skírnisbroti.
Dómhildur
Fædd 1. desember 1900
Dáin 28. mars 1980.
óli
Fæddur 15. apríl 1897.
Dáinn 16. september 1979.
Hinn 25. apríl árið 1925 voru
gefin saman á Akureyri, heimabæ
brúðarinnar, Dómhildur M.
Sveinsdóttir og Óli G. Baldvins-
son. Giftingarvottorðið er eitt
þessara fallegu skrautrituðu
skjala sem á þeim tíma voru gefin
út með konungsleyfi. Þau höfðu
kynnst á Siglufirði ári áður, þar
sem unga stúlkan var í vist á
heimili kaupmanns, er Óli vann
hjá sem verslunarmaður. Hann
hafði þá verið 2 vetur í Verslun-
arskóla íslands. Ungu hjónin áttu
sína fyrstu búsetu á heimili for-
eldra Öla, Kristínar og Baldvins á
Siglufirði en þau höfðu flutt
þangað frá Ólafsfirði 1912, þegar
hann var 15 ára gamall.
Dómhildur og Óli áttu heimili á
Siglufirði í 36 ár. Þar vann Óli hjá
Siglufjarðarbæ í 25 ár, aðallega
við skrifstofustörf, og lengst hjá
Rafveitu Siglufjarðar. Þau eignuð-
ust fjórar dætur: Olgu, Svanhildi,
Kristínu og Ólafíu, sem allar voru
búsettar í Reykjavík þegar þau
fluttu þangað frá Siglufirði árið
1961.
Dómhildur Magnea Sveinsdóttir
var fædd á Akureyri 1. desember,
Lítil spenna í undan-
keppni Islandsmótsins
lagar
undankeppni í Islandsmótinu í
bridge, sveitakeppni. 24 sveitir
víðs vegar að af landinu spiluðu
um 8 sæti í úrslitakeppninni.
Spilað var í 4 sex sveita riðlum
og komust tvær efstu sveitirnar
í riðlunum í úrslit. Eins og svo
oft áður voru flestar sveitirnar
úr Reykjavík en allar sveitirn-
ar í úrslitakeppninni eru af
Suð-vesturhorninu. Fátt mark-
vert bar til tiðinda á mótinu
nema hvað sveit Hjalta Elías-
sonar átti erfitt uppdráttar og
á tímabiii leit út fyrir að sveitin
myndi ekki komast i úrslit.
Hefði það verið skarð fyrir
skildi að sveit Iljalta hefði ekki
náð í úrslitin. Sveit Óðals sigldi
mjög glæsilega í gegnum und-
ankeppnina og fékk 100 stig af
100 mögulegum og vel það því
tvær sveitirnar fengu mínusstig
á móti þeim. Þá má geta þess að
sveit Sævars Þorbjörnssonar
fékk 96 stig í sínum riðli og
fengu allar sveitirnar mínus-
stig nema sveit Jóns Páls Sigur-
jónssonar sem tapaði „aðeins"
4-16.
Úrslit í A-riðli:
í þessum riðli var mikil
keppni. I fyrstu umferð vann
sveit Alfreðs sveit Hjalta. Vann
sveit Alfreðs síðan þrjá næstu
leiki og var í efsta sæti fyrir
síðustu umferðina en þá var
staða efstu sveita þessi:
Alfreð með 64 stig
Hjalti með 54 stig
í þessum riðli var keppnin
milli Jóns Páls og Kristjáns um
annað sætið. Báðar sveitirnar
unnu 3 leiki en munurinn var sá
að sveit Jóns Páls náði 4 stigum
á móti Sævari á meðan Kristján
fékk mínus 5 stig.
Úrslit í D-riðli:
Skafti með 53 stig Sveit stig
Tryggvi með 37 stig Helga Jónssonar 85
Sveit Alfreðs sem hafði spilað Þórarins Sigþórssonar 77
mjög vel átti að spila við Skafta Sigurðar B. Þorsteinssonar 55
í síðustu umferð og Hjalti við Jóns Á. Guðmundssonar 36
Tryggva. Skafti tók leikinn gegn Óiafs Valgeirssonar 29
Friðjóns Vigfússonar 11
Sveit stig
ÓðalslOO
Ólafs Lárussonar 69
Ármanns J. Lárussonar 40
Kristjáns Kristjánssonar 33
Stefáns Ragnarssonar 32
Haralds Gestssonar 15
Engin keppni var í þessum
riðli um tvö efstu sætin.
Bridge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Alfreð í sínar hendur og sigraði
örugglega 18—2. Sveit Tryggva
stóð í sveit Hjalta og var jafnt í
hálfleik en í síðustu spilunum
gerði Hjalti út um leikinn og
vann 18—2. Varð því sveit Al-
freðs að gera sér, að góðu 3. sætið
enda þótt þeir ynnu 4 leiki. Sveit
Hjalta vann aðeins 3 leiki og
gerði eitt jafntefii og tapaði
fyrir Alfreð eins og áður sagði.
Úrslit í B-riðli: Úrslit í C-riðli:
Sveit stig Sveit stig
Hjalta Elíassonar 72 Sævar Þorbjörnsson 96
Skafta Jónssonar 71 Jón Páil Sigurjónsson 61
Alfreðs Viktorssonar 66 Kristján Blöndal 57
Tryggva Gíslasonar 39 Arnar Hinriksson 45
Gests Jónssonar 32 Björn Pálsson 16
Aðalsteins Jónssonar 17 Gunnar Þórðarson 1
Þrjár sveitir frá Bridgefélagi
Reykjavíkur voru í þessum riðli
og mátti búast við hörkuátökum.
Sveit Helga Jónssonar byrjaði
vel og fyigdi vel eftir og vann
alia sína leiki. í síðustu umferð-
inni spiluðu sveitir Þórarins og
Sigurðar B. saman og var það
úrslitaieikurinn um annað sætið
í riðlinum. Sveit Þórarins hafði
fengið 60 stig en sveit Sigurðar
52. Sveit Þórarins vann jeikinn
örugglega.
Það er mat úndirritaðs að
undankeppnin sé oft mun
skemmtilegri en sjálf úrsiita-
keppnin. Má eflaust rekja það til
spilaranna utan af landi sem oft
spila af meiri innlifun og
stemmningu en tækni. Árangur-
inn er kannski ekki alltaf eins
góður en ég held að aðalatriðið
sé að hafa gaman af leiknum og
get ég ekki stillt mig um að
nefna nafn Aðalsteins Jónssonar
í þessu sambandi. Slíkt líf er í
kring um Austfirðingana að það
fer ekki fram hjá neinum sem í
spilasalinn kemur að þeir
skemmta sér um leið og þeir
spila.
árið 1900, dóttir Sveins S. Sölva-
sonar bakara, Ólafssonar skip-
stjóra á Ósi á Höfðaströnd, og
konu hans Ólafíu Einarsdóttur,
Magnússonar bónda í Efsta-
Hvammi í Dölum. Einar afi Dóm-
hildar var sonur Magnúsar í
Skáleyjum (d.e. 1870) og Sigríðar
Einarsdóttur, móðursystur Matt-
híasar Jochumssonar. Ólafía og
Sveinn Sölvason áttu fjögur börn
sem komust á legg, og var Dóm-
hildur þeirra næst-elst. Hin eru
Soffía, búsett í Reykjavík, María
og Georg, en þau eru bæði búsett í
Bandaríkjunum.
Donna — eins og hún var köiluð
af vinum sínum, ólst upp á
Akureyri hjá foreldrum og þrem
systkinum. Þar áttu þau heima
„inn í fjörunni" sem svo var
kallað, og þaðan átti hún góðar
endurminningar.
Óli G. Baldvinsson var fæddur
15. apríl, árið 1897 í Selaklöpp í
Hrísey. Foreldrar hans voru
Kristín S. Björnsdóttir frá Ysta-
Hóli í Sléttuhlíð og Baldvin
Sveinn Hansson. Föðurætt Óla má
rekja til prestaætta á Svarfaðar-
dal. Hans var sonur Baldvins
Þorsteinssonar, prests á Upsum í
Svarfaðardal. Baldvin var einn
sona Þorsteins prests Hallgríms-
sonar í Stærra-Árskógi, (d. 1791);
hinir voru einnig prestar: Hall-
grímur, aðstoðarprestur sr. Jóns
skálds á Bægisá, og faðir Jónasar
Hallgrímssonar. Kristján Þor-
steinsson, síðast prestur á Völlum,
var faðir sr. Þórarins í Vatnsfirði,
föður sr. Kristjáns Eldjárns Þór-
arinssonar prests á Tjörn (d.
1917), og Stefán síðast prestur á
Völlum.
Kristín Björnsdóttir og Baldvin
Hansson eignuðust fjögur börn:
Óla, Baldvinu og Svanhildi, sem
öll eru látin, og Málfríði sem á
heimili á Akureyri.
Mér er ljúft að minnast þessara
ágætu hjóna, tengdaforeldra
minna. Við höfum þekkst í æði-
mörg ár, og bjuggum síðastliðin 7
ár í sama húsi, og bar aldrei
skugga á þá sambúð.
Gunnar Guðbrandsson
Birgir Bragason
Höfn — Kveöja
spítala á hverju ári þó misjafnlega
lengi í einu. Ég veit að þessi
saklausi ungi drengur hefur feng-
ið góða heimkomu, nú er hann
umvafinn englum Guðs. Minning-
in um hann er björt og góð lifir í
mínu hjarta á meðan ég dreg
andann.
Guð blessi elsku drenginn minn.
Far þú í friði guð sé með þér.
Hafðu þökk fyrir alit og allt.
Aðstaridepdum hans öllum nær og
fjær sendi ég samúðarkveðjur.
Afi að Njálsgötu 30,
Reykjavík.
Hví fölnar jurtin fríða
og fellir blóm svo skjótt.
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt.
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf.
Hví berst svo burt í skyndi
hin besta lífsins gjöf.
Þá sefist sorg og tregi
þér saknendur við gröf
því týnd er yður eigi
hin yndislega gjöf
hún hvarf frá synd og heimi
til himins fagnið því
svo hana Guð hann geymi
og gefi fleiri á ný.
(Barnasálmur.)
Hinn 26. mars 1980 andaðist
lítill vinur, sonarsonur, minn á
Landakotsspítala, Birgir Braga-
son, frá Höfn í Hornafirði, aðeins
10 ára að aidri. Ég vil skrifa fáein
kveðjuorð og þakka honum allar
ánægjustundirnar, er hann veitti
mér meðan hann lifði. Nú hefur
hann skipt um verustað og nú er
hann kominn til Guðs sem sagði:
„Leyfið börnunum að koma til mín
og bannið þeim það ekki því að
slíkra er Guðsríki."
Þau fáu ár er hann lifði þurfti
hann að líða mikið. Hann var á