Morgunblaðið - 09.04.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
37
Minning:
Knut Ottersted
rafveitustjóri
Fæddur 11. des. 1891.
Dáinn 1. apríl 1980.
í dag er til moldar borinn Knut
Otterstedt rafveitustjóri, sem lést
í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 1. apríl, eftir alllanga legu á
89. aldursaíi. Með honum er horf-
inn einn elsti starfsmaður bæjar-
ins, og um leið sá maður, sem var
einn af frumherjunum í rafvæð-
ingu hans þar eða hann hafði
stjórn þeirra mála á hendi um 40
ára skeið.
Þegar vér lítum á þessi atriði
sjáum vér best, hversu íslensk
rafvæðing og sú iðnþróun er henni
fylgdi, er ung. Knut Otterstedt
kemur hingað þrítugur að aldri,
gerist fyrsti rafveitustjórinn, og
hefir þannig lifað alla þróunar-
sögu þessa mikla fyrirtækis, sem
undir hans stjórn þróaðist frá
smáorkuveri við Glerá upp í hina
miklu Laxárvirkjun, sem var ný-
reist eitt af stærstu orkuverum
landsins. Með starfi sínu um
áratugi varð Knut Otterstedt
þannig einn frumherjanna í raf-
væðingarsögu landsins, og þar
lagði hann fram krafta sína og
kunnáttu meðan starfsdagur ent-
ist, en um leið varð hann einn
þeirra manna, er sköpuðu sögu
Akureyrar um áratugi á fyrri
hluta þessarar aldar og fram yfir
hana miðja, einmitt á þeim árum,
sem vöxtur bæjarins var örastur,
og hann óx úr viðjum gelgju-
skeiðsins yfir í fullmótaðan bæ.
Fátt er það, sem átt hefir meiri
þátt í þeim vexti en rafvæðing
bæjarins en þau mál voru í hinum
traustu höndum Knut Otterstedts
Knut Otterstedt fæddist 11.
desember 1891 í Dalsland í
Svíþjóð, þar sem faðir hans var
kornmyllueigandi. Var hann fjórði
í röðinni í 10 systkina hóp, en af
honum lifa nú þrjár systur.
Otterstedt lauk raffræðings-
prófi frá Chalmers tekniska Inst-
itut í Gautaborg 1919. Næstu árin
starfaði hann við ýmis rafveitu-
störf einkum í Helsingborg og
veitti þá um skeið forstöðu Hels-
ingborgardeild fyrirtækisins J.L.
Eriksen. Til Akureyrar fluttist
hann 1922, og þar varð síðan
starfsvettvangur hans og saga.
Rafveita Akureyrar varð til á
árunum 1921—1922, með því að
virkja Glerá sunnan við Banda-
gerði, sem enn má sjá merki til.
Ekki var þá íslenzkri verktækni
lengra komið en fá varð sænskt
fyrirtæki til að byggja virkjunina,
sem ekki mundi þykja nú stórt
mannvirki, enda var orka hennar
einungis 330 hestöfl, en var samt
næst stærsta virkjun í landinu á
þeim tíma. Fyrir atbeina umsjón-
armanns verksins, er Sandell hét
var Otterstedt ráðinn til að sjá um
lagningu bæði háspennu- og lág-
spennulína, en línubygging mun
hafa verið sérgrein hans. Þegar
rafveitan síðan tók til starfa
haustið 1922 var hann ráðinn
rafveitustjóri. Það mætti ef til vill
þykja undarleg ráðstöfun, að ráða
útlendan mann til slíks trúnaðar-
starfs, en þar kom til, að naumast
var um nokkurn Islending að ræða
á lausum kili, sem hefði kunnáttu
og færni til að takast þann vanda
á hendur, og þann stutta tíma,
sem Otterstedt hafði starfað hér
hafði hann skapað sér traust og
vináttu þeirra, sem honum kynnt-
ust, og sýnt að honum var lagið að
setja sig inn í íslenska staðhætti
og viðhorf. Og Otterstedt brást
ekki trausti því, er honum var
sýnt. Hann var framkvæmdar-
stjóri Rafveitu Akureyrar í rúm
40 ár eða til ársloka 1962, og frá
því Laxárvirkjun var gerð var
hann einnig framkvæmdastjóri
hennar til ársloka 1965. Hann var
þannig í fararbroddi um raf-
magnsmál Akureyrar og nær-
sveita í meira en fjóra tugi ára.
Undir hans stjórn óx fyrirtækið úr
litlu Glerárvirkjuninni með sín
330 hestöfl í Laxárvirkjun II er
gaf 11500 hestafla orku. Þessar
tölur gefa nokkra hugmynd um
hversu umsvif og ábyrgð rafveitu-
stjórans uxu frá ári til árs, en þó
kemur það ef til vill enn betur
fram, er vér athugum, að á sama
tíma meira en fjórfaldaðist fjöldi
bæjarbua, og notkun rafmagns
varð sífellt víðtækari eða frá því
að vera nær eingöngu til ljósa, í
það að verða meginorkan til
hverskonar iðnaðar, sem óx upp á
Akureyri í ríkari mælikvarða en
annars staðar á landinu, auk þess
sem hin daglegu not urðu sífellt
meiri og mikilvægari með tilkomu
allra hugsanlegra tækja. Það leik-
ur ekki á tveimur tungum, að
rafmagnið átti drýgstan þáttinn í,
að gera Akureyri að iðnaðarbæ.
Þegar Otterstedt hóf störf voru
umsvif rafveitunnar lítil, starfs-
menn fáir og starfsskilyrði frum-
stæð. Svo mátti kalla fyrstu árin,
að rafveitustjórinn yrði alls stað-
ar að hafa hönd í bagga, og taka
sjálfur til höndum, bæði til að
leiðbeina óvönum starfsmönnum
og vinna með þeim störfin. Kom
honum nú að góðu haldi, að hann
var eigi síður vanur hverskyns
útistörfum en hinni fræðilegu
hlið, sem til starfs hans heyrði.
Margt var við að stríða. Bilanir
voru alltíðar, og eftir að Laxár-
virkjun kom til sögunnar hinar
miklu og tíðu rennslistruflanir,
sem myrkvuðu bæinn og stöðvuðu
æðaslátt hans ef svo mátti segja
dögum saman. Spurði hann þá
hvorki um erfiði eða lengd vinnu-
tíma, heldur var á verði og að
vinnu, svo lengi sem nauðsynin
krafði. Hann skildi flestum betur,
hvað í húfi var og þörfinni varð að
sinna. Var hann fáum mönnum
líkur í þeim efnum enda vinnu-
þrek hans flestum mönnum meira.
Naumast mun Ottersted hafa
hugsað sér að setjast að á íslandi,
er hann kom hingað fyrst. En
enginn má sköpum renna. Og
drengskaparbragð var það af hans
hálfu, að hverfa frá ættlandi sínu
og fjölskyldu til að taka a sér
erfitt og annasamt starf hér úti í
fásinninu. Var það gæfa Akureyr-
ar, að hann réðst til starfans og
gæfa hans, því að hér eignaðist
hann ágæta konu, og leysti af
hendi mikið þjóðnytjastarf, sem
ekki gleymist. Vel má vera, að til
þessa starfs hefði fengist maður
með meira frumkvæði og ákafari
framkvæmdahug, en enginn, sem
var fyrirtækinu trúrri eða traust-
ari, og mörgum betur skildi hann,
hvað var fært, og hverju væri unnt
að fresta, því að honum var gætni
í blóð borin. Þykist ég mæla þar af
nokkrum kunnleika á stjórnun
hans og starfi, þar eð ég sat í
stjórn rafveitunnar og Laxár-
virkjunar í nær tvo áratugi. Það
var fátt ,sem fór framhjá Otter-
stedt í daglegum störfum og
rekstri, án þess þó að yfirsýn hans
drukknaði í smáatriðum. Hvert
mál, sem til stjórnarinnar kom,
lagði hann vel undirbúið fyrir
fundi, svo að létt var að átta sig á
því, og sjaldan fundust þar betri
lausnir en þær, sem hann lagði til.
Starf Otterstedts hafði það í för
me sér, að hann hafði frá upphafi
nokkur mannaforráð, sem vitan-
lega jukust eftir því sem fyrirtæk-
ið óx. Frá upphafi lét hann sér
annt um starfsmenn sína var eigi
síður félagi þeirra og vinur en
húsbóndi. Gat hann sér miklar
vinsældir meðal þeirra, enda var
það ekki einungis, að hann væri
stjórnandinn, heldur tók hann
þátt í vandamálum þeirra, og var í
senn traust margra og hjálpar-
hella ef með þurfti.
Ekki munu þeir margir útlend-
ingarnir, sem gerst hafa íslensk-
ari en Knut Otterstedt. Hann hóf
þegar að leggja sig eftir íslenskri
tungu, og náði á henni betri tökum
en þorri annarra útlendinga.
Hann háði sér snemma mikinn
orðaforða, enda las hann mikið
íslenskar bækur og blöð, og ekki
síst fornsögurnar á fyrstu árum
sínum hér. Taldi hann sig einkum
hafa lært málið af þeim. Sjald-
gæft var að hann beygði orð
skakkt, en þó hygg ég málið hafi
ætíð verið honum nokkur fjötur
um fót, ef hann þurfti að tjá sig í
ræðu, og kom þar ekki síst til sú
vandvirkni hans og stolt, að segja
heldur færra, en skrumskæla mál
sitt. En það var ekki einungis að
hann lærði íslenska tungu. Hann
samdi sig í hvívetna að íslenskum
háttum og hugsunarhætti. Var í
einu orði sagt íslenskur í anda og
athöfnum, þótt fjarri færi því, að
hann gieymdi föðurlandi sínu, sem
hann ætíð var tengdur traustum
böndum.
Otterstedt kvæntist Lenu Krist-
jánsdóttur 29. jan. 1927, og var
það honum mikið gæfuspor. Lena
er innborinn Akureyringur, mikil
húsmóðir, gáfu kona og listhneigð.
Var hún um langt skeið virk í
tónlistarlífi bæjarins. Heimili
þeirra var í senn hlýtt og fagurt,
bar það vitnisburð um smekkvísi
og prúðmennsku húsbændanna og
sameinaði sænska og íslenska
heimilismenningu. Var heimili
þeirra víða kunnugt fyrir gestrisni
og menningarbrag. Voru þeir eigi
fáir gestirnir, innlendir og erlend-
ir, sem notið hafa gestrisni þeirra
hjóna, því að margir áttu erindi
við húsbóndann vegna starfs hans,
en allir eru á einu máli um það, að
í návist þeirra leið þeim vel.
Sonur þeirra hjóna er Knútur
rafveitustjóri, er tók við lífsstarfi
föður síns, og kjörson áttu þau
Hauk, sem heima á í Reykjavík.
Knut Otterstedt var manna
mestur á velli, höfði hærri en
flestir aðrir, beinvaxinn, virðu-
legur í framgöngu og hélt reisn
sinni fram í háa elli. Vafalaust var
hann afrenndur að afli og fór
þannig saman líkamlegt atgervi
og sterk skaphöfn, hvorttveggja
rismikið og traust. Svipmikill var
hann og sviphreinn. Hversdags-
lega var hann fálátur gat jafnvel
virst stuttur í spuna við fyrstu
kynn, en það hvarf brátt, því að
hjartað var hlýtt og hugurinn
góðviljaður. Hann var manna
glaðastur í góðum vina hópi,
vinsæll og vinafastur. Ekki tók
hann mikinn þátt í almennum
félagsskap, en löngum var gott til
hans að leita um aðstoð við góð
málefni, enda maður örlátur í eðli
sínu og ljúft að leysa hvers manns
vanda.
Og nú er Knut Otterstedt allur.
Um áratugi gegndi hann einni af
mestu trúnaðarstöðum bæjarfé-
lagsins. Margir minnast hans
vegna starfa hans, en þeim sem
best þekktu verður þó persóna
hans hugstæðari, þar ber hann
hærra en aðra eigi síður en á
mannþingum. Bærinn er svip-
minni að honum látnum.
Að endingu þakka ég Otterstedt
fyrir löng og góð kynni, og sendi
Lenu og fjölskyldu hans allri
alúðarkveðjur.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum
Þann 1. apríl s.l. andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Knut Otterstedt fyrrverandi
rafveitustjóri. Hann var af sænsk-
um ættum, hlaut menntun sína í
Svíþjóð og kom til starfa við
byrjunarframkvæmdir Rafveitu
AkureyFar eftir að hafa starfað
um árabil í heimalandi sínu. Knut
Otterstedt var síðan rafveitustjóri
er Rafveita Akureyrar hóf starf-
semi sína. Hann kvæntist
íslenskri konu Lenu Kristjáns-
dóttur. Þau hjónin hafa ætíð átt
heima á Akureyri og var heimili
þeirra þekkt fyrir höfðingsskap og
rausn.
Þau munu varla finnast mörg
fyrirtæki sveitarfélaga hér í landi,
sem tengjast eins mikið starfs-
sögu og ævistarfi eins manns og
Rafveita Akureyrar tengist ævi-
starfi Knut Otterstedt.
Hann kom til starfa við Raf-
veitu Akureyrar áður en hún hóf
rekstur sinn, varð fyrsti rafveitu-
stjórinn og gegndi því starfi í um
fjörutíu ár eða til ársloka 1962. Ijá
tók sonur hans, Knútur, við starfi
rafveitustjóra á Akureyri og hefur
hann gegnt því með miklum ágæt-
um til þessa dags.
Knut Otterstedt stóð í farar-
broddi og leiddi Rafveitu Akur-
eyrar í gegnum alla byrjunarörð-
ugleika fyrirtækisins, og hann
stjórnaði með glæsibrag og dugn-
aði uppbyggingu og þróun rafveit-
unnar á miklu og erfiðu framfara-
skeiði. Þegar umsvif Rafveitu
Akureyrar jukust, þá urðu einnig
störf hans ábyrgðarmeiri og allt
umfang þeirra varð fjölbreyttara
og erfiðara.
Öll voru störf Knut Otterstedt
bæði heilladrjúg og farsæl, enda
var hann mjög fórnfús og ein-
staklega samviskusamur við alla
sína vinnu og mátti hvergi vamm
sitt vita. Þessir eiginleikar voru
leiðarljós í öllum störfum hans
hjá Rafveitu Akureyrar.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
stjórnar Rafveitu Akureyrar
þakka störf hans öll og þann
stórkostlega þátt, sem hann hefur
átt í sögu rafmagnsmála á Akur-
eyri.
Eftirlifandi eiginkonu hans
Lenu Otterstedt, sonunum Knúti
og Hauki og fjölskyldum þeirra
færum við okkar dýpstu samúð-
arkveðjur.
F.h. stjórnar Rafveitu
Akureyrar,
Sigurður Jóhannesson.
í dag, miðvikudaginn 9. apríl
1980, er til moldar borinn Knut
Otterstedt, fyrrverandi rafveitu-
stjóri á Akureyri og fram-
kvæmdastjóri Laxárvirkjunar.
Hann andaðist hér í bæ þann 1.
apríl sl. á 89. aldursári, en hann
fæddist þann 11. desember 1891 í
Dalsland í Svíþjóð. Verður
lífshlaup hans ekki að öðru leyti
rakið í þessum örstuttu kveðjuorð-
um, heldur vísast til ítarlegrar
minningargreinar, sem Steindór
Steindórsson, fyrrv. skólameistari
og fyrrv. stjórnarmaður í Laxár-
virkjun ritar um Knut og birtist
samtímis þessum kveðjuorðum.
Þess skal hins vegar minnst, að
Knut Otterstedt var hinn trausti
og öruggi braútryðjandi og for-
vígismaður, sem stjórnaði Laxár-
virkjun sem framkvæmdastjóri
hennar allt frá byrjun 1939 og til
ársloka 1965, er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Hann
var brautryðjandinn, sem hóf
verkið, hann hélt öruggum hönd-
um um stjórnvölinn rúman aldar-
fjórðung og skilaði traustu fyrir-
tæki í starfslok. „Betri þóttu
handtök hans / heldur en nokkurs
annars manns“ var kveðið um þá
þjóðsagnapersónu íslenzka, sem er
persónugervingur hreysti og karl-
mennsku. Þannig var það um
handtök Knuts Otterstedt, hvort
sem var á framkvæmdastjóra-
skrifstofunni eða við stjórn á
viðgerðum í stjórhríðum á fjöllum
uppi, þegar línur biluðu og orkan
hætti að veita lífi í æðar bæjarfé-
lagsins og umhverfis. Þá var hann
hraustastur í hópi hraustmenna
og barðist ótrauður þar til sigur
vannst á óblíðum náttúruöflum.
Á hraðfleygri öld gleymast verk
brautryðjendanna skjótt og fennir
fljótt í gengin spor. Fjölmenn
kynslóð nútímans elst upp við
allsnægtir og er tamt að líta hvers
kyns lífsþægindi sem sjálfsagða
hluti. Barátta forfeðranna er tæp-
ast skilin og nýtur ekki þeirrar
virðingar sem skyldi. Brotalöm
sögutengslanna skerpist og kröfu-
gerð verður meir áberandi en
fórnfýsi og jákvætt uppbyggingar-
starf. Á ýmsum sviðum hafa þó
verið unnin svo lýsandi brautryðj-
endastörf af einstökum mönnum,
að þau fyrnast tæpast þótt tímar
líði. Um þetta eigum við sem betur
fer fjölda dæma. Knut Otterstedt
var einn þeirra manna, sem vann
slíkt brautryðjendastarf á sínum
starfsvettvangi, að seint mun
gleymast. Verk hans blasa við og
hafa bein áhrif á daglegt líf okkar,
sem lifum og hrærumst í dag. „Þó
að hríði heila öld / harðsporarnir
sjást í snjónum" var kveðið eftir
Skúla Thoroddsen. Þessi hending
kemur mér í huga þegar ég hugsa
til verka Knuts Otterstedt.
Hraðfleyg öld mun tæpast gleyma
þeim. Áhrif J>eirra eru svo mikil
og lýsandi. Á hinztu kveðjustund
flyt ég honum einlægar þakkir
stjórnar Laxárvirkjunar fyrir
störfin öll og bið honum Guðs
blessunar handan móðunnar
miklu. Innilegustu samúðarkveðj-
ur sendi ég eftirlifandi eiginkonu
hans, frú Lenu Kristjánsdóttur,
sem var honum traustur og elsku-
legur lífsförunautur, ennfremur
kjörsyninum Hauki og fjölskyldu
hans, og síðast en ekki síst
synnum Knúti og fjölskyldu hans,
sem verið hafa Knut og Lenu hald
og traust á ævikvöldinu og halda
starfi þeirra áfram á traustan og
öruggan hátt, svo engin brotalöm
hefur myndast. Guð blessi þau öll.
Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður
Laxárvirkjunar.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði. að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Ilandrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
t
Útför foreldra okkar og tengdaforeldra
GUDBJARGAR SVEINFRÍOAR SIGURDARDOTTUR
Ofl
GUDJONS GÍSLA GUÐJONSSONAR
frá Hesti Önundarfirði,
Laugarnesvegi 40 fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 9.
apríl kl. 13.30.
Börn og tengdabörn.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát oq
útför
MARKUSAR H. GUDJONSSONAR.
Sérstakar þakkir til verkstjórafélagsins Þórs.
Sigurína Friöriksdóttir,
börn og fjölskyldur þeirra,
móöír og systkini hins látna.