Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
Systir okkar og fóstursystir
KRISTRÚN JÓNSDÓTTIR
handavínnukennari,
lést 20. mars s.l.
Kveöjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Starfsfólki á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund eru færöar
sérstakar þakkir fyrir þá góöu umönnun er þaö veitti henni og
þeim þakkaö. er heimsóttu hana og sýndu henni vináttu í
langvarandi veikindum.
Þökkum auðsýnda samúö.
Þorbjörg Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir,
Jón Guðmann Jónsson, Karl Jónsson,
Kristrún Skúladóttir.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJORG GUDRUN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Vallargerði 2, Kópavogi,
lést í Landspítalanum aöfararnótt 6. apríl.
Sveinn A. Sæmundsson,
Alda Sveinsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson,
Ólína Sveinsdóttir, Burkni Dómaldsson
og barnabörn.
t
Móöir, fósturmóðir, tengdamóðir og amma okkar,
GUÐRÚN GUDMUNDSDÓTTIR,
lézt aö Hrafnistu, laugardaginn 5. apríl.
Þórarinn Gunnarsson, Ásta Engilbertsdóttir,
Haukur Jónasson, Helga Guðmundsdóttir,
Sigrún Þórarinsdóttir,
Birgir Þórarinsson,
Gunnhildur Þórarinsdóttír.
t
Jaröarför eiginkonu minnar
JÚLÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Hagamel 18,
fer fram fimmtudaginn 10. apríl kl. 1,30 e.h. frá Dómkirkjunni.
Blóm vinsamlega afþökkuö. Þeim, sem vildu minnast hennar er
bent á Hallgrímskirkju eöa Kristniboösfélög K.F.U.M. og K.
Minningarspjöld fást í húsi félaganna aö Amtmannsstíg 2B.
F.h. barna, tengdasonar, barnabarna og annarra aöstandenda,
Guðbjörn Guömundsson.
t
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐMUNDÍNA ÓLAF3DÓTTIR,
fyrrum húsfreyja á Hvallátrum,
Þjórsárgötu 11, Reykjavík,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag miövikudaginn 9. apríl
kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á líknarstofnanir.
Margrét Guðbjartsdóttir, Guðjón Guöbjartsson,
Árni Guðmundsson, Katrín Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúö og viriarhug
viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
INGVELDAR GUÐFINNU BALDVINSDÓTTUR,
Skorhaga, Kjós.
Magnea Guöjónsdóttir, Gunnar Hálfdánarson,
Baldvin Júlíusson, Guöbjörg Þóröardóttir,
Sigurlaug Júlíusdóttir, Sigurþór Hallmundsson,
Eygló Óskarsdóttir, Steinólfur Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Jóhann Vilhjálms-
son Hafnarfiröi
Hinar gömlu góöu dyggðir, að
standa við orð sín, að vera trúr í
hverju því verki, sem að var unnið,
að bregðast ekki skyldum sínum,
að vera heill og heiðarlegur,
prýddu mjög Jóhann Vilhjálmsson
bifreiðastjóra í lífi hans og starfi.
Jóhann andaðist 31. marz s.l. á
Landsspítalanum eftir stutta legu
en hann átti við mikla vanheilsu
að búa hin síðari ár.
Jóhann var fæddur 14. júlí 1907
að Grænagarði í Leiru, sonur
hjónanna Bergsteinunnar Berg-
steinsdóttur og Vilhjálms Guð-
mundssonar er þar bjuggu. Árið
1915 fluttust þau hjón til Hafnar-
fjarðar og bjuggu þar síðan. Er
Bergsteinunn orðin háöldruð og
dvelur nú á Sólvangi. Jóhann var
ásamt tvíburasystur sinni, elstur
11 systkina. Varð hann snemma
að fara að vinna fyrir sér, enda oft
þröngt í búi á mannmörgu heimili.
Á bernsku- og unglingsárunum
fór Jóhann til starfa í sveit en
tvítugur að aldri tók hann bif-
reiðastjórapróf og gerðist þá vöru-
bifreiðastjóri og stundaði þá at-
vinnu um 50 ára skeið. Síðustu
starfsárin vann hann sem ganga-
vörður í Flensborgarskóla. Öll
störf sín vann Jóhann af stakri
reglusemi og alúð. Hann var
sérstakt snyrtimenni og bar vel
hirt bifreiðin þess vitni. Mönnum
þótti gott að hafa hann í vinnu því
öruggt var að vel væri unnið og
verki skilað eins og til var ætlast.
Jóhann var mjög hugsandi
maður. Hann var úrræðagóður og
hjálpsamur og því gott að leita til
hans. Hann var heilsteyptur og
mátti ekki vamm sitt vita. Hann
fylgdist vel með í þjóðmálum, var
ákveðinn og traustur Sjálfstæðis-
maður en í stefnu Sjálfstæðis-
flokksins fann hann lífsskoðunum
sínum braut. Jóhann var vinfastur
og vel gerður maður og hið mesta
ljúfmenni.
Árið 1933 kvæntist Jóhann
Halldóru Guðjónsdóttur ættaðri
af Suðurnesjum. Hinni ágætustu
konu og lifir hún mann sinn. Börn
þeirra eru þrjú og eru þau öll
búsett í Hafnarfirði. Þau hjónin
voru mjög samhent um að gera
heimili sitt sem hlýlegast og stóðu
vel að uppeldi barna sinna. Var
heimilið, börnin og barnabörnin
ávallt efst í huga Jóhanns og var
hann alltaf boðinn og búinn til
þess að vinna fjölskyldu sinni sem
best.
Með Jóhanni er genginn einn
þeirra mörgu, sem lagt hafa fram
sitt lið á framfarabraut þjóðar-
innar. Þótt slóð hans verði ekki
rakin sérstaklega nema skamman
veg, þá var hann einn þeirra, sem
af festu, reglusemi, öryggi og
hógværð gekk veginn og var öðr-
um samferðarmönnum bæði yngri
+
Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vinarhug við
andlát og útför
STEFÁNS EIRÍKSSONAR.
Jódis Kristín Jósepsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
og eldri gott fordæmi. Það má
þakka mönnum eins og Jóhanni þá
kjölfestu, sem hvert þjóðfélag þarf
á að halda eigi farsællega að fara
á framtíðarbraut. Við biðjum góð-
um vini blessunar og sendum
eiginkonu, börnum, aldraðri móð-
ur og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Páll V. Daníelsson.
í dag er kvaddur hinstu kveðju
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
Jóhann Vilhjálmsson vörubifreið-
arstjóri, sem andaðist 31. mars s.l.
í Landspítalanum í Reykjavík.
Jóhann var fæddur 14. júlí 1907
að Grænagarði í Leiru, sonur
Vilhjálms Guðmundssonar og
konu hans Bergsteinunnar Berg-
steinsdóttur, er þar bjuggu. Vil-
hjálmur er látinn fyrir nokkrum
árum, en Bergsteinunn dvelur að
Sólvangi í Hafnarfirði. Jóhann var
elstur ellefu systkina og eru tvö
þeirra látin.
Jóhann fluttist með fjölskyldu
sinni til Hafnarfjarðar árið 1915
og átti heima þar upp frá því.
Jóhann var í eðli sínu hæfur og vel
gerður maður og gekk til allrar
algengrar vinnu í bænum. Á
þessum tíma fer bifreiðin að ryðja
sér til rúms og urðu þá bifreiðar
og vélar hans áhugamál. Jóhann
byrjaði að aka bíl fyrir Bjarna í
Víðistöðum og fleiri, þar til hann
keypti sinn fyrsta vörubíl til
leiguaksturs. Hann starfaði á eig-
in bifreiðum í rúm 40 ár þar til að
hann lagði aksturinn á hilluna og
gerðist gangavörður í Flensborg-
arskóla og annaðist gangavörsl-
+
ÁSGEIR H. KARLSSON,
verkfræóingur,
Markarflöt 39,
er andaöist í Borgarspítalanum 2. þessa mánaðar, veröur
jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. apríl kl. 3 e.h.
Þeir sem vildu minnast hans láti Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra
njóta þess.
Ingibjörg Johannesen og börn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, sonar, föður, tengdafööur og afa,
GUNNARS BJARNASONAR,
fró Öndverðarnesi, Ásgarði 9.
María Árnadóttir,
Kristín Halldórsdóttir,
Anna Gunnarsdóttir, Þráinn Tryggvason,
Jón K. Gunnarsson, Kristrún Pétursdóttir,
barnabörn.
una með prýði þar til heilsan
bilaði.
Mér er ofarlega í huga þegar ég
minnist Jóhanns hve traustur,
skemmtilegur og áhugasamur
hann var í félagsmálum. Hann var
stofnandi og meðstjórnandi í Fé-
lagi vörubílaeigenda í Hafnarfirði,
Bílaverkstæði Hafnarfjarðar. Jó-
hann var maður, sem engum vildi
skulda, ekki geyma til morguns
það sem hægt var að gera í dag.
Lofaði aldrei meiru en hann gat
staðið við og bílar hans voru alltaf
snyrtilegir og hreinir. Jóhann var
hafsjór af skáldskap, vísum og
sögum, sem unun var að hlusta á,
er hann sagði frá og hafði hann
gott lag á að gera hlustandann að
þátttakanda í viðburðarásinni.
Jóhann varð gæfumaður í
einkalífi er hann gekk að eiga
eftirlifandi konu sína Halldóru
Guðjónsdóttur frá Réttarholti í
Garði hinn 17. desember 1933 og
eignuðust þau þrjú börn, sem öll
eru á lífi, mikið mannkostafólk.
Börn þeirra eru: Guðný gift Hauk
Jónssyni, þau eiga fjögur börn;
Björgvin var giftur danskri konu
Bodil, hún er látin og áttu þau tvo
drengi, Guðrún gift Magnúsi Ein-
arssyni, þau eiga þrjá drengi.
Nú að leiðarlokum vil ég
persónulega og fyrir hönd Félags
vörubílaeigenda í Hafnarfirði
þakka Jóhanni samfylgdina og
votta fjölskyldu hans innilega
samúð.
Blessuð sé minning Jóhanns
Vilhjálmssonar.
Kristján Steingrímsson.
Vinur minn, Jóhann Vilhjálms-
son bifreiðarstjóri, verður í dag
kvaddur frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði.
Þegar kallið kom 31. marz sl.
dvaldist hann á sjúkrahúsi og
vonaðist til þess að fá nokkra bót
á þeim sjúkdómi, sem hrjáð hafði
hann um langt skeið, en sá sem
öllu ræður hafði þá ætlað hérvist
hans lokið.
I hópi 11 barna foreldra sinna
Bergsteinu Bergsteinsdóttur og
Vilhjálms Guðmundssonar ólst
Jóhann upp, fyrst í Grænugarði í
Leirunni, þar sem hann var fædd-
ur 14. júlí 1907, og síðar í
Hafnarfirði, en þangað fluttust
foreldrar hans 1915 og þar lifir
móðir hans nú í hárri elli, en faðir
hans er látinn.
Tvítugur að aldri hóf Jóhann
störf við bifreiðaakstur, sem hann
stundaði fram yfir sextugt er
hann tók að sér störf húsvarðar
hjá Flensborgarskóla sem hann
gegndi síðan. Dugnaður og sam-
vizkusemi einkenndu störf Jó-
hanns Vilhjálmssonar svo mjög að
til þess var sérstaklega tekið, enda
var hann afar eftirsóttur til starfa
og vinsæll vel. Það var ekki aðeins
í hinum daglegu störfum sem
þessir eiginleikar hans komu fram
heldur nutu þau félagasamtök sem
hann var aðili að þess í ríkum
mæli.
Við áttum náið samstarf á
vettvangi stjórnmálanna því Jó-
hann var mikill og einlægur sjálf-
stæðismaður. Hann lá ekki á’liði
sínu til sóknar eða varnar stefnu
sjálfstæðismanna og var til
síðasta dags hinn trausti mátt-
arstólpi samtaka okkar.
Jóhann naut ævinlega mikils og
góðs stuðnings sinnar ágætu konu,
Halldóru Guðjónsdóttur, sem
reyndist honum traustur lífsföru-
nautur og bjó honum og börnum
þeirra þremur það heimili sem
íslenzkar húsmæður bezt geta
gert.
Þegar ég kveð Jóhann Vil-
hjálmsson þakka ég honum ómet-
anlega vináttu hans og fórnfúst
starf. Eg veit að ungmenni sem
hann reyndi að hafa hemil á sakna
hans og flytja honum kveðjur
sínar, með þakklæti fyrir hið
mikla umburðarlyndi sem hann
sýndi þeim.
Vinir Jóhanns Vilhjálmssonar
og samfylgdarmenn kveðja í dag
góðan dreng og dugmikinn mann
og biðja honum Guðs blessunar.
Eiginkonu hans og fjölskyldu
þeirra sendum við samúðarkveðj-
ur okkar.
Matthías Á. Mathicsen.