Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
vl EP
MORÖJKí-
MtFINU
GRANI GÖSLARI
Þú hefur munað að loka hurðinni?
tiV/ 3W
Þetta verður skemmtileg mynd!
Asfalt
fyrir 900
milljónir
REYKJAVÍKURBORG og Akur-
eyrarhær hafa fest kaup á 10
þúsund tonnum af asfalti, sem er
að verðmæti um 900 milljónir
króna og á að nota þetta asfalt til
gatnagerðar bæði í Reykjavík og
á Akureyri. Hlutur Reykjavíkur
er um 8 þúsund tonn. en Akur-
eyrar um 2 þúsund tonn.
Kaupin eru gerð við Skeljung,
sem var iægstbjóðandi í þessu
útboði. Fyrsta skipið með þetta
asfalt er þegar á leiðinni með það
til Akureyrar. Þetta mun vera í
þriðja sinn í röð, sem Skeljungur
hreppir þessi viðskipti, en asfalt-
kaup hafa verið boðin út um
alllangt skeið.
COSPER
8265 COSPER
Afganginn matbý ég svo á morgun!
Hættum að þrátta
um keisarans skegg
Velvakandi góður.
Margir íslendingar, bæði leik-
ir og lærðir, hafa nú að undan-
förnu gert sig að kjánum, síðan
það uppgötvaðist að lítill og sak-
laus fiskur, sem loðna nefnist,
heldur sig hluta úr áriu við eyjuna
Jan Mayen.
Þó að Færeyingar væru fyrstir
allra manna til að stunda fiskveið-
ar sem nokkru næmi, bæði við Jan
Mayen, Bjarnarey og Svalbarða,
þá hefur enginn verið í nokkrum
vafa um það sl. hálfa öld, að þessi
lönd eða eyjar tilheyra Noregi. Og
ef eyjurnar eru norskar, þá er það
grunn sem þær standa á og
umlykur þær líka norskt. Það er
ekkert nema innantómt blaður, að
halda fram hinu gagnstæða.
Ég skil vel kommana í þessu
máli, því þeirra takmark er ávallt
hið sama, eins og allir vita. Það
væri þeim ekki lítill ávinningur ef
þeir fengju tvær vinaþjóðir í hár
saman út af þessu máli. Ég tala nú
Sóphus Jón Björnsson, annar af eigendum og starfsmönnum
Gljáans sf. Sóphus er hér að blanda bílalakk að óskum
viðskiptavina. Mhl RAX-
Bílamálun í Haf narfirði
NÝLEGA hóf starfsemi sína á
Dalshrauni 9 í Ifafnarfirði
Bílamálunin Gljáinn sf„ en
starfsmenn og eigendur fyrir-
tækisins eru feðgarnir Björn
H. Guðmundsson og Sóphus
Jón Björnsson.
Gljáinn sf. tekur að sér að
sprauta alla bíla og er um að
ræða bæði almálanir og blett-
anir. Fyrirtækið er í 100 fer-
rrietra húsnæði, og er miðað við
að þar sé hægt að fást við fimm
bíla í einu.
Sóphus Jón Björnsson sagði í
viðtali við Mbl. að Gljáinn væri
sennilega eina bílamálninga-
verkstæðið í Hafnarfirði.
Fyrirtækið notar eingöngu
Dupont-liti, sem eru blandaðir
á staðnum eftir óskum við-
skiptavina.
„Sjóleiðin til Bagdad“
frumsýnd í Keflavík
HJÁ Leikfélagi Keflavíkur
hafa staðið yfir æfingar á
leikritinu „Sjóleiðin til
Bagdad" eftir Jökul Jak-
obsson. og er Þórir
Steingrímsson leikstjóri.
Leikendur eru alls sjö,
ásamt aðstandendum sýn-
ingarinnar sem eru álíka
margir. Leikritið „Sjóleiðin
til Bagdad“ var sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur fyrir
nokkrum árum, og þar að
auki hefur það verið sýnt úti
á landi. Þetta er annað verk
leikfélagsins á þessu leikári,
en það fyrsta var „Útkall í
klúbbinn“ eftir Hilmar
Jónsson.
Frumsýning á „Sjóleiðin
til Bagdad“ verður í Stapa í
Njarðvíkunum hinn 9. apríl.
Leikstjóri (fremst til vinstri) ásamt leikurum og
starfsfólki sýningarinnar. Myndina tók Sigvaldi
Björgvinsson á æfingu.