Morgunblaðið - 09.04.1980, Qupperneq 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
Mannleg
að Ibsen
Ösló. 8. april.
Frá Jan Erik Laure. fréttaritara Mbi.
NORSKUR ulíuiðnaður varð fyrir
öðru áfalli á skömmum tíma er
íbúðarpallurinn Ilenrik Ibsen var
nærri því að sökkva í höfninni í
Tananger. sem er skammt fyrir
utan Stavanger, á sunnudaxskvöld.
Ein af fimm undirstöðum pallsins
fylltist af sjó ug fékk pallurinn á
sig 20 gráða slagsíðu. Það varð til
láns að undirstaðan steytti á botni
hafnarinnar, en ef það hefði ekki
gerst hefði pallinum að öllum
líkindum hvolft.
Henrik Ibsen er systurpallur íbúð-
arpallsins Alexander I. Kielland sem
hvolfdi á olíuvinnslusvæðinu Edda. í
Norðursjó fyrir skömmu, en þá
fórust yfir 100 manns. Allt bendir nú
til þess að Ibsen verði ekki tekinn í
gagnið á olíuvinnslusvæðunum, en
hann átti að leysa Kielland af hólmi.
Samtök olíustarfsmanna hafa þegar
lýst því yfir að þau muni banna sínu
fólki að búa á pallinum.
Mannleg mistök urðu þess vald-
andi að Ibsen fór á hliðina á
sunnudagskvöld. Lokið hafði verið
að mestu við rannsókn á pallinum,
en vegna rannsóknarinnar voru und-
irstöður pallsins tæmdar af sjó.
Þegar lækka átti pallinn í sjónum
voru of margar lokur opnaðar af
vangá og streymdi sjórinn eingöngu
í eina undirstöðuna af fimm. Nú
hefur sjónum verið dælt úr undir-
stöðunni, og er Ibsen kominn á
réttan kjöl.
í dag var frá því skýrt að fjögurra
sentimetra löng sprunga sé í einni af
undirstöðum borpallsins „West
Ventúre" á gasvinnslusvæði í Norð-
ursjó norðvestur af Bergen. Yfir-
völdum var tilkynnt um skemmdirn-
mistök
hvolfdi
ar í marzbyrjun, en þá var veitt
undanþága frá viðgerð þar til að
borpallurinn hefur lokið sínu hlut-
verki á þessu svæði. Fjórum sinnum
á dag er sprungan athuguð og
starfsmenn borpallsins æfa björgun-
araðgerðir oft í viku.
Vegna síðustu atburða hefur eig-
endum borpalla og íbúðarpalla á
norskum svæðum í Norðursjónum
verið fyrirskipað að láta fara fram
hið fyrsta gagngera athugun á pöll-
unum. Heyrst hefur að vegna slys-
anna í sambandi við Kielland og
Ibsen verði eftirlit með pöllunum
hert. Rætt er m.a. um að árlega verði
allir borpallar færðir til lands til
gaumgæfilegrar skoðunar, en slíkar
skoðanir á pöllunum fara nú fram á
fjögurra ára fresti. Verði þessum
hertu reglum komið í framkvæmd
mun samdráttur verða í olíuvinnsl-
unni og tekjur af henni að sama
skapi minnka.
Símamynd AP.
íbúðarpallurinn Henrik Ibsen skammt írá Stavangri eftir að sjór flæddi í eina af undirstöðum pallsins svo
á hann kom slagsíða. Þeir sem um borð voru, 57 manns, sluppu ómeiddir. Pallurinn átti að taka við af
íbúðarpallinum Alexander Kielland, sem hvolfdi í Norðursjó 27. marz sl. með þeim afleiðingum að 123
manns fórust. Nú þykir sýnt að Ihsen verði aldrei tekinn í notkun.
Þjóðfrelsisöflin ná á sitt
vald sovézkri f lugstöð
Islamabad. Moskvu. Nýju Dehlí,
New York, 8. apríl. AP.
ÞJÓÐFRELSISÖFLIN í Afganist-
an náðu í gær á sitt vald flugstöð
sovézka hersins í Bagram, sem er
70 km fyrir norðan Kabul, að því
er útvarpið í Pakistan skýrði frá í
dag. Hafði útvarpið eftir uppreisn-
armönnum. að í átökum um stöðina
hefðu 75 sovézkir hermenn verið
Tveir þeirra liggja í blóði sínu á þessari mynd. Símamynd AP.
Skæruliðaárás
á barnaheimili
Tel Aviv, 8. apríl — AP.
KYRRT var á norðurlandamærum
fsraels i dag eftir árás pale-
stinskra hermdarverkamanna á
samyrkjubúið Misgav þar sem
fórnarlömb árásarinnar voru
jarðsett i dag.
Menachem Begin forsætisráð-
herra ætlaði að mæta við útför 37
ára gamals ritara samyrkjubúsins
sem beið bana og tveggja og hálfs
árs gamals drengs.
Israelskur hermaður beið einnig
bana í níu tíma umsátri sem hófst
þegar fimm Palestínumenn laumuð-
ust yfir landamæragirðingu og tóku
barnaheimili samyrkjubúsins rétt
hjá líbönsku landamærunum. Þegar
frestur sem skæruiiðarnir höfðu
sett var um það bil að renna út
gerðu ísraelskir hermenn áhlaup á
bygginguna og drápu alla Pale-
stínumennina fimm og björguðu sex
börnum og einum fullorðnum sem
þeir höfðu í gíslingu.
I Líbanon herma fréttir að pale-
stískir skæruliðar og borgarar búi
sig undir ísraelska hefndarárás. En
talsmaður Israelshers sagði að
kyrrt væri á landamærasvæðinu og
ísraelskir hermenn hefðu ekki grip-
ið til aðgerða. „Ef til þeirra verður
gripið," sagði talsmaðurinn, „mun-
um við ákveða hvenær það verður
gert. Leyfum þeim að bíða.“
Varnir hafa verið efldar í
ísraelskum byggðum nálægt
líbönsku landamærunum og rann-
sókn er hafin á því hvernig hópi
hryðjuverkamanna tókst að komast
óséðir yfir landamærin.
Elieru hermenn særðust í árás-
inni, fjögur börn og einn fullorðinn.
Enginn er lengur í lífshættu. Þetta
er fyrsta árásin sem hefur verið
gerð á ísrael til að taka gísla í tæpt
ár.
felldir, þ.á.m. 25 liðsforingjar og
einn hershöfðingi.
í árásinni eyðilagðist fjöldi
sovézkra herflugvéla, þ.á.m. fjöldi
svonefndra „fljúgandi skriðdreka",
en svo nefna uppreisnarmenn þyrlur
sem búnar eru fallbyssum og hafa
verið mikið notaðar í Afganistan frá
því að innrásin var gerð fyrir
tæpum fjórum mánuðum. Hefur
Bagram verið helzta miðstöð árás-
arferða sovézku árásarvélanna.
Fegnir herma að árásarferðum
sovézkra orrustuflugvéla hafi fjölg-
að verulega upp á síðkastið, og að
tilgangurinn hafi verið að bæla
niður andspyrnu uppreisnarmanna,
sem sótt hafi í sig veðrið að
undanförnu.
Er því þannig haldið fram að
7.000 manns flestir óbreyttir borg-
arar, hafi fallið í sprengjuárásum
sovézkra flugvéla fyrir skömmu á
Qarabagsvæðinu fyir suðvestan
Kabul.
Haroid Brown varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna sagði í dag að
sönnur hefðu verið færðar á, að
Sovétmenn beittu taugagasi í loftár-
ásum sínum í Afganistan. Áður
hefur komið í ljós að Sovétmenn
hafi varpað napalmsprengjum í
loftárásunum. Tassfréttastofan
mótmælti fullyrðingum Browns í
dag, og sagði þær vera lið í áróð-
ursherferð stjórnar Carters gegn
Sovétríkjunum. Þá mótmælti tals-
maður stjórnarinnar í Kabul full-
yrðingum íranskra stjórnvalda að
Sovétmenn hefðu yfirtekið jarðgas-
framleiðslu Afganistans og
streymdi gasið nú til Sovétríkjanna,
sem ekkert greiddu fyrir það.
Síðari fregnir herma að uppreisn-
armenn í Afganistan hafi nú öll völd
í noðurhluta Helmandhéraðs í suð-
Þetta geróist
vesturhluta landsins. Hafi þeir sett
sína menn þar í æðstu stöður. Þá
hafi 15 lögreglumenn verið felldir í
árás á lögreglustöð í héraðinu
Chanzi í suðausturhluta landsins.
Einnig hafi verið felldir sex sovézkir
og átta afganskir hermenn í árás í
nágrenni landamæra Pakistans.
Staðfestur hefur verið samningur
milli yfirvalda í Moskvu og Kabul er
tryggir áframhaldandi veru so-
vézkra herja í Afganistan, og segja
fróðir menn að samningurinn sé að
öllum líkindum sama eðlis og sam-
mingur frá 1968 er þá treysti veru
sovézkra herja í Tékkóslóvakíu eftir
innrás Sovétmanna í landið sama
ár.
Páfi ræðst gegn
guðlausum heimi
Páfagardi, 8. aprfl. AP.
JÓHANNES Páll páfi II varaði við
hættu á guðlausu samfélagi i páska-
boðskap sínum sem 350.000 píla-
grímar hlýddu á á Péturstorgi.
Páfi skoraði á núverandi og tilvon-
andi leiðtoga heimsins að setja traust
sitt á Krist og sagði: „Hafnið ekki
Kristi, þið sem byggið heim manns-
ins.“
Páfinn hvatti til einingar kristinna
manna, drap á hryðjuverk, en kvað
fastast að orði þegar hann harmaði
það sem hann kallaði óskina í heimin-
um nú á dögum um „dauða guðs“.
„Allir ykkar sem lýsa yfir „dauða
guðs“, sem reynið að reka guð út úr
heimi mannsins, staldrið við og hugs-
ið um það að „dauði guðs“ ber með sér
„dauða mannsins" líka.“
Carter og Reagan
sigra auðveldlega
New Orleans, 8. apríl. AP.
JIMMY Carter forseti vann auðveld-
an sigur á Edward Kennedy öld-
ungadeildarmanni í forkosningun-
um í Louisiana á laugardaginn og
Ronald Reagan vann jafnvel enn
meiri sigur í forkosn ingum re-
públikana í ríkinu. Carter fékk 56%
atkvæðanna, Kennedy 22%. Forset-
inn fær stuðning 39 fulltrúa ríkisins á
flokksþingi demókrata en Kennedy
12. Reagan hlaut 74% atkvæða, en
George Bush 19%. Reagan fær 29 af
31 fulltrúa Louisiana á flokksþingi
repúblikana. Tveir fulltrúanna eru
óháðir. Forkosningarnar vöktu lítinn
áhuga í Louisiana og keppinautarnir
lögðu ekki áherzlu á baráttuna fyrir
þær. Kjörsókn var mjög lítil þrátt
fyrir gott veður.
Jafnframt hefur Reagan tryggt sér
stuðning 34 fulltrúa Oklahoma
9. apríl
1978 — Stjórnarherinn i Sómalíu
bælir niður byltingartilraun liðs-
foringja.
1977 — Flokkur kommúnista
leyfður á Spáni eftir 38 ára bann.
1973 — Nguyen Van Thieu, forseti
Suður-Víetnams, heimaækir Pál
páfa VI sem hvetur hann til að
sleppa pólitískum föngum.
1970 — 73 fórust í gassprengingu
og bruna í Osaka, Japan.
1966 — Bretar biðja öryggisráðið
um heimiid til að beita valdi gegn
skipum sem flytja olíu til Rhó-
desíu.
1965 — Átök milli indversks og
pakistansks herliðs á landamær-
unum í Kutch.
1960 — Hendrik Verwoerd, for-
sætisráðherra Suður-Afríku, sýnt
misheppnað banatilræði af David
Pratt.
1942 — Bataan gefst upp fyrir
Japönum.
1940 — Danmörk hernumin og
árás Þjóðverja á Noreg.
1928 — Múhameðstrú ekki lengur
ríkistrú í Tyrklandi.
1917 — Árás Kanadamanna á
Vimy-hrygginn (tekinn 10. apríl).
1865 — Uppgjöf Robert E. Lee
hershöfðingja, yfirmanns Sunnan-
manna, fyrir Uiysses S. Grant
hershöfðingja, yfirmanni Norðan-
manna, í Appomattox og þræla-
stríðinu lýkur.
1783 — Tippo af Mysore neyðir
Breta til að láta Bednore af hendi.
1770 — James Cook finnur Botany
Bay.
1609 — Spánverjar semja um níu
ára vopnahlé við Hollendinga.
1440 — Þýzki greifinn Christopher
von Baúern hylltur konungur Dana
í Víborg.
Afmæli. Elias Lonnrot, finnskur
þjóðsagnasafnari (1802—1884) —
Isambard Brunei, brezkur verk-
fræðingur (1806—1859) — Charles
Baudelaire, franskur rithöfundur
(1821—1867) — Erich von Luden-
dorff, þýzkur hermaður (1865—
1937) — Lenín, rússneskur bylt-
ingarleiðtogi (1870—1924) — Léon
Blum, franskur stjórnmálaleiðtogi
(1870—1950) — Paul Robeson,
bandarískur söngvari (1898—1976)
— Hugh Gaitskell, brezkur stjórn-
málaleiðtogi (1906-1963) -
Jean-Paul Belmondo, franskur
leikari (1933----).
Andiát. 1553 Francois Rabelais,
rithöfundur — 1626 Francis Bacon,
heimspekingur — Dante Gabriel
Rossetti, listmálari & skáld.
Innlent. 1933 „Skúli fógeti"
strandar við Reykjanes (13 fórust,
24 bjargað) — 1794 Skúla landfó-
geta ákveðin eftirlaun — 1598 d.
Staðarhóls-Páll — 1601 Konungs-
bréf um að Danir eigi einir að sitja
fyrir íslenzku verzluninni — 1656
Tveir meðhjálparar á Eyrarbakka
brenndir á báli fyrir að valda
sjúkieika sóknarprests — 1869 d.
Kristján Jónsson skáld — 1931
Þingmenn Alþýðuflokks hætta
hlutleysi gagnvart stjórn Tryggva
Þórhallssonar — 1975 Togaraverk-
fail — 1978 Kröfluvirkjun hættir
að senda.
Orð dagsins. Hugrekki er fremsti
mannlegi eiginleikinn, því að sá
eiginleiki tryggir alla hina — Sir
Winston Churchill, brezkur stjórn-
málaleiðtogi (1874—1965).