Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
47
Carter rýfur allt
samband við íran
Teheran. 8. apríl. AP.
KHOMEINI trúarleiðtogi eyðilagði síðustu tilraunina til að ná
sættum í deilunni um gíslana í Teheran um helgina með því að
hafna tillögu Abolhassan Bani-Sadr forseta um að byltingarráðið
tæki gíslana í sína vörzlu og Jimmy Carter forseti svaraði með því
að slíta stjórnmálasambandi við íran, skipa írönskum diplómötum
í Bandaríkjunum að fara af landi brott innan eins sólarhrings og
banna nánast öll bandarísk viðskipti við íran.
Símamvnd AP.
ÍRANI í FYLGD FBI-MANNS. Aðstoðarræðismaður írans í New
York, Fadi Fard, er hér leiddur frá sendiráðsskrifstofunni í New
York á mánudagskvöld eftir að ákvörðun hafði verið tekin um
stjórnmálaslit tafarlaust. Skipaði hann öllum írönskum sendi-
mönnum að hafa sig á brott frá Bandaríkjunum.
Þetta eru hörðustu aðgerðir
Bandaríkjamanna gegn Irönum í
rúma fjóra mánuði og Carter
varaði við því að ef þeir héldu
áfram að neita að frelsa gíslana
„mundi það koma æ harðar
niður á írönsku stjórninni".
Carter skýrði bandarísku þjóð-
inni frá hinum nýju hefndar-
ráðstöfunum eftir langa fundi
með helztu ráðunautum sínum,
en í þeim felst:
• Stjórnmálasambandi verði
slitið.
• Allir íranskir diplómatar og
embættismenn sem enn eru í
Bandaríkjunum verða reknir úr
landi fyrir miðnætti á þriðjudag.
• Nánast allur útflutningur til
írans verður bannaður. Carter
kvaðst gera ráð fyrir því að
jafnvel útflutningur á matvæl-
um og lyfjum yrði í lágmarki.
• Úttekt verður gerð á frystum,
írönskum innstæðum í Banda-
ríkjunum með það fyrir augum
að hefja fjárhagsaðstoð við
gíslana og fjölskyldur þeirra og
undirbúa skaðabótakröfur
bandarískra fyrirtækja og ann-
arra aðila á hendur Iran. Talið
er að Carter hafi fryst innstæð-
ur íransstjórnar að upphæð 8
milljarðar dala í fyrrahaust þeg-
ar hann greip til fyrstu hefndar-
ráðstafananna.
• Vegabréfsáritanir handa
írönum sem vilja fara til Banda-
ríkjanna verða felldar úr gildi.
Nýjar vegabréfsáritanir verða
ekki gefnar út nema í undan-
tekningartilfellum og gamlar
áritanir verða ekki endurnýjað-
ar.
Hafnbann?
Carter greindi ekki frá því
hvaða aðrar ráðstafanir kunna
að verða gerðar, en vitað er að
hafnbann á Iran hefur verið í
athugun og Bandaríkjastjórn
kann að reyna að fá liðsinni
bandalagsríkja í Evrópu við
frekari efnahagslegar refsiað-
gerðir. En þótt látið sé í það
skína að valdi kunni að verða
beitt óttast starfsmenn banda-
ríska landvarnaráðuneytisins að
valdbeiting geti orðið til þess að
gíslarnir verði beittir ofbeldi og
jafnvel drepnir.
Sá möguleiki er einnig talinn
vera fyrir hendi að Rússar grípi
til gagnráðstafana og þótt íran-
skir leiðtogar hafi bæði fordæmt
Bandaríkin og Sovétríkin telja
sumir bandarískir sérfræðingar
að íranir kunni að snúa sér til
Moskvu ef þeim verður ógnað.
Hafnbann gæti leitt til vopnaðra
átaka við Rússa. Enginn veit
hvernig hafnbanni yrði fram-
fylgt, til dæmis hvort vissum
skipum yrði hleypt í gegn eða
ekki. Óvíst er hvaða áhrif hafn-
bann hefði á Saudi-Arabíu eða
hvernig það mundi mælast fyrir
hjá vinaþjóðum Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn og Rússar hafa
25 herskip hvor í nánd við
Persaflóa.
Þingið ákveður
Talsmaður námsmannanna í
bandaríska sendiráðinu sagði í
viðtali áður en ákveðið var að
gíslarnir yrðu í vörzlu náms-
mannanna þar til nýkjörið þing
ákvæði örlög þeirra að hann
gerði ráð fyrir að „frjálslyndari"
öflin í stjórninni reyndu aftur að
koma gíslunum í vörzlu stjórn-
arinnar áður en þingið kæmi
saman. Teheran-útvarpið sagði
að sonur og tengdasonur Khom-
einis hefðu farið ásamt nefnd
trúarleiðtoga í heimsókn til
námsmannanna í sendiráðinu á
mánudagskvöld.
Talsmaður íranska sendiráðs-
ins í Washington sagði að
ákvörðun Carters hefði ekki ver-
ið nauðsynleg. Starfsmönnum
sendiráðsins hafði verið fækkað
úr 250 í 35 síðan í fyrrahaust,
Um 1200 Iranir efndu til mót-
mælaaðgerða fyrir utan Hvíta
húsið, en urðu fyrir aðkasti
vegfarenda og ökumenn þeyttu
bílflautur sínar á þá.
Bylting?
I Brússel sagði Shapour
Bakthiar fyrrverandi forsætis-
ráðherra að kommúnistar sem
nytu stuðnings Rússa og styddu
stjórn Khomeinis murtdu taka
völdin í sínar hendur þegar hann
létist. „Þeir eiga peninga og fá
nákvæm fyrirmæli," sagði hann.
Moshe Dayan, fyrrverandi
landvarnaráðherra Israels, sagði
í Miami Beach, Florida, að
gíslamálið hefði haft þau áhrif
að Bandaríkjamenn væru ekki
eins trúverðugir og áður því að
málið hefði opinberað þann
skort sem Bandaríkjamenn
hefðu á hernaðarlegum valkost-
um. Hann gekk þó ekki svo langt
að lýsa yfir stuðningi við hern-
aðaraðgerðir til þess að bjarga
gíslunum.
Símamynd AP.
Þúsundir Kúbumanna i Bandarikjunum söfnuðust saman fyrir utan
ráðhúsið I Miami City i Florida i gær til að láta i Ijós stuðning sinn við
þúsundir Kúbumanna sem leitað hafa skjóls i sendiráði Perú i
Havana. Við sama tækifæri létu Kúbumennirnir i Bandarikjunum i
ijós megna andstöðu við Castro forseta.
Óbreytt ástand í
sendiráði Perú
Lima. New York. Miami. 8. april — AP.
Utanríkisráðherrar Bólivíu.
Kólumbíu, Equador, Venezuela
og Perú koma í dag saman til
fundar í Lima til að móta sameig-
inlega afstöðu rikjanna og við-
brögð þeirra við innrás um
10.000 Kúbumanna í sendiráð
Perú i Ilavana i siðustu viku.
Arturo Garcia utanríkisráð-
herra Perú sagði að óbreytt
ástand væri í sendiráðinu frá því
að fólkið réðst inn í það á
sunnudag. Hann sagði að Kúbu-
menn hefðu brotið Vínarsam-
komulagið um vernd diplómata
með því að leggja niður öryggis-
gæzlu við sendiráðið.
Hermt var í dag að hermenn
hefðu tekið sér stöðu á götum í
nágrenni sendiráðsins. Kúbu-
stjórn lýsti því yfir að öllum sem
„væri í nöp við sósíalismann og
hið kúbanska þjóðskipulag" yrði
leyft að fara úr landi.
Leiðtogi Kúbumanna í Banda-
ríkjunum sagði í dag að samtök
hans, sem væru í andstöðu við
Castró forseta, hefðu þegar útveg-
að þrjár flugvélar til að flytja
matvæli og lyf til flóttamannanna
í sendiráðinu, en ekkert benti þó
enn til þess að kúbönsk yfirvöld
myndu leyfa flugvélunum að lenda
í Havana.
Mikið banka-
rán í Svíþióð
Stokkhólmi. 8. apríl — AP.
ÞRÍR vopnaðir menn komust
undan með um 1,4 milljónir
sænskra króna, jafnvirði hátt á
annan milljarð ísl. króna, í reiðu-
fé og ávisunum, eftir að hafa
rænt bankaútibú í stórmarkaði i
úthverfi Stokkhólms, Tæby, á
þriðjudag.
Þetta er annað mesta bankarán
í sögu Svíþjóðar. Árið 1976 tókst
þjófum að klófesta um 1,5 milljón-
ir s. króna. Fé þetta hafði verið
lagt inn í útibúið fyrir páskahelg-
ina eftir að menn höfðu gert
páskainnkaup sín í súpermarkað-
inum. Bófarnir voru með grímur-
fyrir andlitum og ógnuðu banka-
starfsmönnum með byssum. Kom-
ust þeir með þýfi sitt á braut í
vörubíl sem fannst yfirgefinn ekki
ýkja langt frá.
Klukkum
breytt
London. 8. april. AP.
FJÖLMARGAR þjóðir Evrópu
færðu klukkur sínar fram um
eina klukkustund aðfaranótt
páskadags í þeim tilgangi að
nýta betur dagsbirtuna. Hefur
fróðum mönnum reiknast til að
mikill orkusparnaður verði
samfara breytingunni, t.d.
muni Spánverjar geta sparað
um 250.000 smálestir af olíu
fram til 27. september vegna
breytingarinnar, en þann cfag
verða klukkurnar færðar aftur.
Meðal þeirra þjóða sem færðu
klukkur sínar fram eru Spán-
verjar, Vestur-Þjóðverjar, Dan-
ir, Norðmenn, Svíar, Portúgalir,
Austurríkismenn, Tékkar og
Ungverjar. Flestar þessara
þjóða hafa lengi lagst gegn því
að klukkur væru færðar á vori
og hausti. Svisslendingar ætla
áfram að halda í gamlar hefðir
og hrófla ekki við klukkum
sínum, og þar af leiðandi eru
þeir klukkustund á „eftir“ ná-
grannaþjóðunum fram til 27.
september. Óttast er að þetta
eigi eftir að valda ferðamönnum
ýmsum erfiðleikum, en m.a.
munu sumir sem fara til Sivss
frá nágrannaríkjunum koma
þangað „áður“ en þeir lögðu af
stað.
Tal stendur
höllum fæti
Moskvu, Mexlkóborg. 8. apríl. AP.
BORIS Spassky og Lajos Port-
isch gerðu i dag jafntefli í fjórðu
skák áskorendaeinvígis þeirra.
Hefur Portisch þá hlotið 2'A
vinning gegn V/2 vinningi
Spasskys. Sigraði Portisch í
fyrstu skák þeirra, en hinum
hefur öllum lokið með jafntefli.
Jafntefli varð í fimmtu skák
áskorendaeinvígis þeirra Mikhail
Tals og Lev Polugaevskys. Hefur
Polugaevsky holtið 3'/2 vinning í
einvíginu, en Tal IV2. Polugaevsky
hefur borið sigur út býtum í
tveimur skákanna, en þrjár hafa
endað með jafntefli. I áskorenda-
einvígjunum ber sá sigur úr být-
um sem fyrr hlýtur 5‘/2 vinning.
Veður
Akureyri 10 skýjaó
Amsterdam 10 skýjaó
Aþena 17 heióríkt
Barceiona 14 skýjaó
Berlín 6 skýjaö
BrUssel 11 skýjaö
Chicago 22 rigning
Denpasar 33 heióríkt
Dubfin 12 heiórfkt
Feneyjar 12 léttskýjaó
Frankfurt 14 skýjaö
Genf 8 þokumóöa
Heisinki 5 skýjaó
Hong Kong 24 heiðríkt
Jerúsalem 19 skýjaó
Jóhannesarborg 25 heiðríkt
Kaupmannahöfr i 8 akýjað
Las Palmas 21 léttskýjaó
Lissabon 20 heióríkt
London 15 bjart
Los Angeles 27 heióríkt
Madríd 18 bjart
Malaga 17 léttskýjaó
Mallorca 15 skýjaó
Miami 26 rigning
Montreal 17 skýjaó
Moskva 6 heiðríkt
Nýja Delhi 38 heióríkt
New York 17 skýjaö
Ósló 1 heióríkt
Parfs 13 skýjaó
Reykjavík 5 súld
Rio de Janeiro 28 skýjaö
Rómaborg 12 heióríkt
San Francisco 17 heiórikt
Stokkhólmur 2 skýjað
Sydney 23 heióríkt
Tel Aviv 23 skýjaó
Tókýó 17 bjart
Vancouver 17 skýjaó
Vinarborg 6 skýjaó