Morgunblaðið - 09.04.1980, Qupperneq 40
Sími á ritstjórn -10100
og skrifstofu: IUIUU
r
Síminn á afgreiöslunni er
83033
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
„Svo sögðu þau heima. að ég íyndi engan íjársjóð í þessari ferð,“ sagði Jón
Grímsson sjómaður, er hann kom úr kafi í Sundahöfninni á ísafirði á föstudaginn
langa — sjá Fann „fjársjóð“ á bls. 2. LJósm. Mbl. Fríða Proppé.
Listviðburður í Norræna húsinu:
Málverk Picassó,
Matisse og Munch í
fyrsta skipti á íslandi
Dýrmæt verk meistaranna virt á
milljarða íslenzkra króna
MÁLVERK eftir marga
kunnustu málara heims
verða sýnd í fyrsta skipti á
Islandi í Norræna húsinu
á sýningu sem verður opn-
uð um næstu helgi og lista-
og menningarsjóður Kópa-
vogs stendur fyrir. Hér er
um að ræða listaverk úr
Sonja Henie-Niels Onstad
safninu í Ósló og hefur
Frank Ponzi listfræðingur
haft frumkvæði og for-
göngu að því að fá sýning-
una hingað til lands. Alls
koma hingað 40 málverk
eftir meistara eins og Pic-
asso, Matisse, Munch,
Miro, Gris, Bonard, Klee,
Ernst, Villon, Dubuffet,
Hartung og fleiri. Málverk
eftir alla fyrsttöldu málar-
ana hafa ekki verið sýnd á
íslandi fyrr. Þessi 40 fá-
gætu listaverk sem eru
komin til landsins eru
tryggð fyrir milljarða
íslenzkra króna.
Frank hefur haft allan veg og
vanda af því að fá þessi verk
hingað og sótti hann verkin til
Noregs, en hann bauð lista- og
menningarsjóði Kópavogs að
standa fyrir sýningunni 13,—26.
apríl til þess að afla fjár í
byggingarsjóð fyrir listasafn í
Kópavogi en Frank er ráðgjafi
byggingarnefndar við þá fram-
kvæmd. Margir aðilar hafa lagst á
eitt með að aðstoða við að koma
þessum listaverkum til Islands,
m.a. með niðurfellingu flutnings-
gjalda, en mörg þessara 40 verka
eru talin hin beztu í hinu heims-
kunna safni í Noregi.
Alþýðusamband Vestfjarða:
Hvetur til sjómannaverkfalls
á Vestf jörðum 20. apríl
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur óskar eftir sérviðræðum
Hækkun
á pylsum
og bjúgum
HÆKKUN hefur verið heimiluð á
pylsum, bjúgum og öðrum unn-
um kjötvörum og er hækkunin á
bilinu 6,9—7,8%. Hækkun þessi
er til komin vegna búvöruhækk-
unar 1. marz og vegna launa-
hækkana.
STJÓRN Alþýðusambands Vestfjarða samþykkti á fundi í gær tilmæii
tii stjórna þeirra fólaga, sem fengið hafa verkfallsheimiid, að þau
framfylgi henni og lýsi yfir vinnustöðvun 20. apríl og ítrekaði fyrri
tilmæli um að stjórnir sjómannafélaga afli sér verkfailsheimilda.
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur hefur hins vegar óskað
eftir sérviðra'ðum við Einar Guðfinnsson hf. í Bolungarvík og sagði
Karvel Pálmason formaður félagsins í samtali við Mbl. í gærkvöldi, að
stjórn félagsins liti svo á að henni bæri skylda til að ræða við sinn
samningsaðila „áður en lengra er haldið". Mbl. tókst ekki í gærkvöldi
að ná tali af Guðfinni Einarssyni forstjóra Einars Guðfinnssonar hf.,
en Kristján Ragnarsson formaður LÍU sagði, að lög Útvegsmannafé-
lags Vestfjarða kvæðu á um að samningar væru gerðir af því en ekki
einstökum fyrirtækjum og yrði það því félagið. sem gengi til
sérviðræðna í Bolungarvík. ef til þeirra kæmi.
Þrjú félög; á Bíldudal, Suðureyri
og Patreksfirði, héldu fundi laug-
ardaginn fyrir páska, þar sem
samþykktar voru verkfallsheim-
ildir tii handa stjórnum og trún-
aðarmannaráðum með áherzlu á
10-12 Afríkufíl-
ar í Öræfaferð
TÍU til tólf Afríkufílar eru
væntanlegir til íslands í sumar
til þess að leika í kvikmynd sem
bandaríska kvikmyndafyrir-
tækið Twentieth Century Fox
er að framleiða um þróun
mannsins frá öpum og munu
Afríkufílarnir leika mammúta.
Munu fílarnir væntanlega
koma flugleiðis til landsins.
Hér er um að ræða cirkusfíla
sem eru vanir ferðalögum milli
landa, en ráðgert er að kvik-
mynda víða á Suðurlandi m.a. og
í Öræfunum.
Páll A. Pálsson yfirdýralækn-
ir sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að þetta mál hefði
verið reifað og rætt, en það væri
ráðherra að veita umbeðið leyfi
þegar formleg umsókn hefði
borizt.
Þess má geta til gamans ef
fólki finnst ótrúlegt að fílar séu bals á fílum yfir Alpafjöllin og á
á ferð um öræfi og jökla þá má s.l. ári for blaðamaður á fílum
minna á hina frægu för Hanni- sömu leið yfir Alpafjöllin.
Frá blaðamannaleiðangrinum á filum í fótspor Hannibals.
samflot við önnur félög á Vest-
fjörðum og Alþýðusamband Vest-
fjarða. Stjórn félagsins á Flateyri
fékk verkfallsheimild fyrir
nokkru, en félögin í Súðavík, á
Tálknafirði og Þingeyri hafa ekki
tekið afstöðu til tilmæla ASV, en
félagið á Þingeyri hefur ekki sagt
upp samningum.
Karvel Pálmason formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungarvíkur sagði i samtali við
Mbl. í gærkvöldi, að félagið hefði
átt tvo óformlega viðræðufundi
við fulltrúa Einars Guðfinnssonar
hf. og hefði stjórn félagsins í gær
óskað eftir formlegum samninga-
viðræðum við fyrirtækið. „Við
teljum rétt að láta reyna á, hverju
við náum fram af okkar málum í
sérviðræðum við okkar viðsemj-
anda í Bolungarvík," sagði Karvel.
Bjargaði
dreng frá
Ólafsvík. 8. apríl.
SÍÐDEGIS sl. laugardag var 6 ára
dreng bjargað frá drukknun í
Ólafsvíkurhöfn. Ungur maður,
Randver Steinsson, sem ók í bil
götuna með hafnarsvæðinu, veitti
athygli tveimur börnum sem voru
að leik í fjöruborðinu hins vegar í
höfninni. Örskömmu síðar sást þó
aðeins annað barnið. Ók hann
strax á vettvang, óð út í sjóinn og
sex ára
drukknun
tókst að ná drengnum sem hafði
þá sopið mikinn sjó og gat enga
björg sér veitt. Drengurinn fékk
þó strax meðvitund við meðhöndl-
un, en var í öryggisskyni komið
undir læknishendur. Er vist að
þarna hefði litli drengurinn
drukknað ef athygli og snarræðis
Randvers hefði ekki notið við.
— Helgi
Ragnar Arnalds:
Bensínið hækkar um
leið og söluskatturinn
- ÉG geri fastlega ráð fyrir því að bensínhækkunin komi um leið og
söluskattshækkunin enda ómögulegt að hækka bensínið með fárra
daga millibili. sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra. þegar Mbl.
spurði hann um væntanlega bensinhækkun. sem legið hefur til
afgreiðslu hjá rikisstjórninni i hálfan mánuð.
Ragnar sagði að stefnt væri að
því að söluskattur hækkaði um 1 Vi
stig nk. mánudagsmorgun og mun
þá bensínið hækka jafnt og aðrar
söluskattsskyldar vörur. Verðlags-
ráð hafði samþykkt hækkun á
bensínlítranum úr 370 í 423 krónur
en vegna söluskattshækkunarinnar
mun bensínlítrinn væntanlega
hækka í 430 krónur. Stærstur hluti
hækkunarinnar er vegna hækkunar
á bensíngjaldi, sem heimild er að
hækka til samræmis við hækkun
byggingarvísitölu. Sú heimild hefur
ekki verið nýtt síðan í júlí í fyrra en
verður nú nýtt til fulls, að sögn
Ragnars Arnalds, enda ráð fyrir því
gert í fjárlagafrumvarpinu.