Morgunblaðið - 17.02.1981, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1981
31
Óvenjulegir
selaflutningar
- hringanóri fluttur frá Hollandi til Akureyrar
NOKKUÐ óvenjulegir selflutn-
ingar áttu sér staó nú um helxina
og í gær, er selur af tegund
hringanóra var fluttur frá Hol-
landi til Akureyrar. Þessi sela-
tegund er mjög sjaldga>f við
Hollandsstrendur og er þetta 10.
hringanórinn sem þar finnst frá
1880. Iscargo flutti selinn flug-
leiðis frá Hollandi til Reykjavík-
ur, en síðan flaug leiguvél frá
Sverri Þóroddssyni með selinn
frá Reykjavík til Akureyrar. þar
sem honum var sleppt í Pollinn í
gær.
í för með selnum var Lenie’t
Hart, sem starfrækir spítala fyrir
að meðaltali 30 selum ár hvert, en
alls munu vera 500 selir við
Hollandsstrendur. Hún hélt að
selum hefði fækkað mjög undan-
farin ár við Holland, en nú stæði
stofninn nokkurn veginn í stað. Þá
sagði Lenie’t Hort:
„Þessi hringanóri, sem nú
fannst í skipaskurði inní miðju
Hollandi er sá 10. sinnar tegundar
sem fundist hefur við Hollands-
strendur sl. 100 ár, og vegna
mengunar var hann nær dauða en
lífi og vó aðeins 13 kíló. Hann var
fjóra mánuði hjá okkur á sela-
sjúkrahúsinu, og er nú orðinn
næstum 50 kíló og mjög lífsglaður
að okkur finnst. Mengun er nú
Hringanórinn loks í sjóinn eftir langa landvist. Ljósm. Kristinn.
seli í Hollandi. Þar tekur hún við
selum, sem hafa orðið fyrir barð-
inu á mengun eða sýkst með
öðrum hætti, læknar þá og sleppir
síðan lausum um leið og þeir eru
orðnir frískir. Lenie’t Hart sagði í
samtali við Mbl., að hún bjargaði
veruleg við strendur Hollands og
selurinn hefði vafalaust drepist
þar í sjó, svo ég gladdist ákaflega
þegar Iscargó-menn buðu mér að
flytja selinn endurgjaldslaust til
íslands, þar sem lífsskilyrði sela
eru mjög hagstæð."
Tveir bílanna i fjögurra bila árekstrinum á Grindavíkurvegi á
laugardagskvöldið.
Sigaunahljómsveitin sem leika mun fyrir gesti ungversku vikunnar á Hótel Loftleiðum
Kynna Ungverjaland
á Hótel Lof tleiðum
Söngkonan Eva Jeremias mun skemmta gestum með söng.
UNGVERSKUR matur, ung-
versk sígaunatónlist og ung-
verskir listmunir setja svip
sinn á Hótel Loftleiðir næstu
vikuna. Þar hefst nefnilega i
dag svokölluð ungversk vika.
Ungverjaland verður kynnt,
bæði land og þjóð, svo og
ferðamöguleikar og ferðir þær
sem Ferðaskrifstofa Kjartans
Ilelgasonar efnir til á vori og
sumri komanda, sem og undan-
farin ár, í samvinnu við Flug-
leiðir. Auk ferðaskrifstofunnar
og Hótels Loftleiða standa að
kynningunni Ferðamálaráð
Ungverjalands, ungverska flug-
félagið Malév, ungverska ferða-
skrifstofan Ibuzs og Hótel
Szabadság leggur til mat-
reiðslumenn og sér um að út-
vega hráefnin. Fulltrúar þess-
ara aðila eru staddir hér á landi
auk tveggja fararstjóra.
í Víkingasal Loftleiða verður á
hverju kvöldi borinn fram ung-
verskur matur með þarlenskum
vínum og ungversk skemmtiat-
riði verða flutt. Matreiðslumað-
urinn Zoltan Bara, sem vann
fyrstu verðlaun í evrópskri
keppni matsveina, sér um mat-
reiðsluna ásamt matsveinum
hótelsins. Sígaunahljómsveit
leikur ungversk lög en í hljóm-
sveitinni eru fimm hljóðfæra-
leikarar og ein söngkona.
Matseðlarnir verða númeraðir
og verður dregið um vinninga á
hverju kvöldi. Síðasta kvöld
ungversku vikunnar, þ.e. sunnu-
dagskvöld 22. febrúar, verður
dregið um aðalvinninginn sem er
ferð fyrir tvo til Ungverjalands
og dvöl þar í landi.
Auk þeirrar Ungverjalands-
kynningar sem fram fer í Vík-
ingasal á hverju kvöldi verður
Ungverjalandskynning í Blóma-
sal í hádeginu. Þar munu ung-
verskir réttir verða á kalda
borðinu og sígaunahljómsveitin
leikur. Þá verður ungverskur
réttur á matseðli Veitingabúðar
þá daga sem kynningin stendur.
Hilmar Jónsson veitingastjóri
Hótels Loftleiða, sem undanfar-
ið hefur haft sýnikennslu í
matargerðarlist hvert þriðju-
dagskvöld kl. 18, mun ásamt
Zoltan Bara sýna gerð ung-
verskra rétta í kvöld, 17. febrúar.
8 manns á slysavarð-
stofu eftir árekstur
(■rindavik, 16. (ebrúar
ÁTTA manns voru fluttir á
slysavarðstofu i Reykjavik eftir
harðan árekstur á Grindavíkur-
vegi á laugardagskvöldið og eru
bílarnir ónýtir eftir. Áreksturinn
varð við Seltjörn um klukkan 18.
Bíll var að koma frá Grindavík
og mætti þarna öðrum híl. sem
var að koma frá Reykjavik.
Siðarnefndi billinn var heldur
illa búinn, m.a. á sumardekkjum.
og talið er að hann hafi runnið
yfir veginn framan á hilinn. sem
kom á móti. Mikil hálka var,
skafrenningur og mjög hvasst.
Þá varð einnig í vikunni harður
árekstur fjögurra bíla á Selhálsi
við Þorbjörn. Tveir bílanna voru
kyrrstæðir þarna á vegarkantin-
um er áreksturinn varð. Lítil slys
urðu á fólki, en tveir bílanna eru
ónýtir. Svo harður var árekstur-
inn, að kona, sem sat fram í öðrum
kyrrstæða bílnum braut bak
framsætisins við höggið og hentist
aftur í bílinn. Guðfinnur
Minning:
Ólafía Kristín
Auðunsdóttir
Þann 9. þ.m. andaðist á Borg-
arspítalanum í Reykjavík Ólafía
Kristín Auðunsdóttir frá Minni-
Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd,
eftir langvarandi veikindi. Mér er
ljúft og skylt að minnast þessarar
mágkonu minnar, með nokkrum
orðum.
Ólafía var dóttir Auðuns Sæ-
mundssonar útvegsbónda og Vil-
helmínu Þorsteinsdóttur, er
bjuggu á Minni-Vatnsleysu um
árabil.
Eignuðust þau hjón alls þrettán
börn, sjö syni og sex dætur og var
Ólafía þeirra elst. Hún var fædd 9.
apríl 1914.
Tíu þessara systkina komust til
fullorðinsára, eina dóttur misstu
þau nýfædda og tveir synir þeirra
dóu um tvítugsaldur.
Sæmundur, elstur þeirra
bræðra, dó árið 1977 tæplega
sextugur að aldri. Ég kynntist
Ólafíu heitinni ekki fyrr en ég
tengdist henni í kringum árið
1947. Þá bjó hún með manni
sínum, Þórði Sigurðssyni skip-
stjóra, ættuðum frá Hvassahrauni
á Vatnsleysuströnd og bjuggu þau
lengst af í Suðurhlíð við Þormóðs-
staðaveg hér í Reykjavík.
Einnig bjuggu þau um tíma á
Eskifirði og Seyðisfirði, en Þórður
var þá skipstjóri á togurum, er
voru gerðir út frá þeim stöðum.
Ólafía og Þórður eignuðust fjög-
ur börn og eru þau þessi: Vil-
hjálmur Auðunn, flugmaður, kona
hans, Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
kennari, Sigurður Rúnar, mat-
vælatæknifræðingur, kona hans
Ásdís Magnúsdóttir, skrif-
stofumaður, Jón Ársæll, sálfræð-
ingur, ógiftur og Kristrún, kenn-
ari, maður hennar Stefán Þórar-
insson, félagsfræðingur. Barna-
börnin eru fimm. Mann sinn, Þórð
Sigurðsson, missti hún fyrir
nokkrum árum, var hún þá sjálf
orðin sjúk og dvaldi oft eftir það á
heilsuhælum og sjúkrahúsum, þar
til hún lést á Borgarspítalanum
eins og fyrr segir.
Ólafía var glæsileg kona og
vakti fljótt á sér athygli á manna-
mótum. Er mér í fersku minni hve
hún var oft hrókur alls fagnaðar á
samkomum fjölskyldnanna og
hafði innilega gaman af að syngja
og kom öllum nærstöddum í gott
skap, enda hafði hún góða söng-
rödd og kunni fjöldann allan af
sönglögum. Hún var líka fram-
úrskarandi gestrisin og höfðingi
heim að sækja, enda var oft
gestkvæmt á heimili þeirra hjóna.
Um leið og ég kveð þessa
mágkonu mína í hinsta sinn, vil ég
þakka henni allar ánægjustundir,
sem ég og mín fjölskylda höfum
átt í návist hennar og allan
rausnarskap fyrr og síðar og bið
Guð almáttugan að varðveita sál
hennar.
Öllum aðstandendum hennar
votta ég innilegrar samúðar.
Ó.J.S.