Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981 IIÆTTAN á stjórnarbylt- injíu á Spáni er ekki liðin hjá, þótt byltingartilraun þjóðvarðliða færi út um þúfur á döKunum. Juan Carlos konungur hefur ráðlajít, að herinn verði ekki styggður að óþörfu og ef ekki verður farið að ráðum hans getur verið að skriðdrekar verði aftur sendir út á göturnar. En ef önnur byltingartilraun verður gerð vita hægri- sinnaðir herforinjíjar, að þeir Keta ekki treyst kon- unginum ok hann verður aðalskotmark þeirra. Ef annað samsæri á að takast verður að jjera konunginn áhrifalausan. Talsvert fleiri deildir úr hernum voru viðriðnar byltingartilraunina en talið var í fyrstu, þótt aðeins hafi verið skýrt frá handtökum þriggja hershöfðingja, rúmlega 30 liðsforingja og þeirra 240 þjóð- varðliða, sem réðust á þinghúsið. Meðal hinna handteknu eru Al- fonso Armada hershöfðingi, vara- forseti herráðsins, Luis Torres Rojas hershöfðingi, fyrrverandi yfirmaður brynvædda herfylkis- ins í Madrid, og Jose Ignacio San Martin hershöfðingi, yfirmaður leyniþjónustu Rojas. Fjórði hers- höfðinginn, Jose Leon Pizarro, var sviptur stöðu yfirmanns 3. vél- vædda herfylkisins. Þar sem talið er fullvíst að byltingartilraunin hafi ekki verið einangrað fyrirbæri er því haldið fram að önnur byltingartilraun verði gerð ef ekki takist að mynda styrka ríkisstjórn. En hugmynd- um um myndun samsteypustjórn- ar Miðflokkasambandsins og sósí- alista hefur verið hafnað þar sem óttast er að slík stjórn mundi vekja ugg í heraflanum. Sýnilegt þykir, að mótmælaaðgerðirnar í kjölfar byltingartilraunarinnar, einhverjar hinar mestu er um getur á Spáni, hafi lítil sem engin áhrif haft á hægrisinnaða herfor- ingja, sem enn halda tryggð við minningu Francisco Franco ein- ræðisherra. Foringi árásarinnar á þinghús- ið, Jose Maria Tejero undirofursti, stóð fyrir svipaðri byltingartil- raun 1979, en tilraunin var ekki talin alvarleg og hann var aðeins dæmdur í eins árs varðhald. Samt kom fram í réttarhöldunum að 200 lögreglumenn, sem fylgdu honum að málum, ætluðu að umkringja höll forsætisráðherrans utan við Madrid og halda ráðherrum í gíslingu meðan konungurinn var í Suður-Ameríku. Tvö hundruð lögreglumenn til viðbótar vissu um samsærið, en sögðu ekki frá því. Ætlunin var að hvetja til myndunar stjórnar til að bjarga þjóðinni. Það þykir tii marks um áhrif francoista að þegar Tejero hafði afplánað dóminn sem hann Tejero með byssu í hendi í þinginu. fékk tók hann aftur við fyrri stöðu sinni í Madrid. Tejero leit aðeins á sig sem framvörð annars leiðtoga, sem mundi koma til þinghússins síðar um kvöldið og tilkynna þingmönn- um, sem þjóðvarðliðarnir héldu í gíslingu, að lýðræðið á Spáni væri liðið undir lok. Þingmennirnir gerðu sér grein fyrir því að aðeins konungurinn stóð á milli þeirra og einræðisstjórnar. En samsærið gekk ekki nógu vel til þess að hinn tilvonandi Franco byltingarinnar stigi fram í dagsljósið og samsær- ið naut ekki stuðnings meginhluta Þjóðvarðliðsins undir forystu Jose Aramburu hershöfðingja eða landhersins. Nú er vitað að sá maður, sem átti að verða Franco byltingarinn- ar, var enginn annar en varafor- seti herráðsins, Alfonso Armada hershöfðingi, sem nú hefur verið handtekinn. Franco fól honum á sínum tíma að annast nám Juan Carlosar í hermennsku, hann var um tíma yfirmaður starfsliðs kon- ungsins og afi konungsins, Al- fonso XIII, var guðfaðir hans. Enginn hefur haft eins greiðan aðgang að konunginum og það var hlutverk Armada að fá hann til að samþykkja byltinguna. En samsærismennirnir þekktu konunginn greinilega ekki nógu vel. Hann sagði einum þeirra að þeir yrðu fyrst að ganga af sér dauðum ef byltingin ætti að tak- ast. Hann skipaði herforingjum, sem hann treysti, að opna innsigl- uð umslög með áætlunum ríkis- stjórnarinnar um aðgerðir, sem gripið skyldi til ef reynt yrði að gera byltingu, en þær gengu undir nafninu „Hernaðaraðgerð Diana". Meðan Tejero beið taugaóstyrkur í þinghúsinu eftir hjálp, sem aldrei barst, talaði konungurinn í síma við yfirmenn herráðsins og yfir- menn herstjórnarumdæma og skipaði þeim að sýna rósemi og halda öllum hermönnum innan búða sinna. Konungurinn varð að koma til bjargar lýðræði Spánar, sem hvíldi algerlega í hans höndum. Allir helztu valdamenn landsins voru fangar í þinghúsinu, þar sem byssum var miðað á þá og þeim gefin skipun um að leggja hend- urnar á borðin fyrir framan sig. Þessi og önnur reynsla mun seint líða þeim úr minni. Ókvæðisorð voru hrópuð að Adolfo Suarez fyrrverandi forsætisráðherra og lögreglumenn leituðu að vinstri- sinnuðum þingmönnum, sem þeir gætu leitt burt og veitt sérstaka meðferð. Þingmennirnir létu sér hvergi bregða og lýstu yfir trú sinni á hið unga lýðræði Spánar. Hægrileiðtoginn Manuel Fraga, sem hefur kallað sig „bezta vininn sem þjóðvarðliðar hafa átt“ fékk sig fullsaddan á því að byssum var miðað á hann allt kvöldið, reis á fætur og hrópaði reiður: „Skjótið mig. Ég hræðist ekki að deyja fyrir Spán.“ Hann var borinn út úr þingsalnum. Seinna sagði Jose Maria de Areilza fyrrum utanríkisráðherra að þingrnenn allra flokka hefðu sýnt „virðuleika og samstöðu". Með þeim tókst ný vinátta. Eina samband þeirra við umheiminn var lítið ferðaútvarpstæki í skjalatösku miðflokkaþingmanns- ins Fernando Abril, sem sat á bak við súlu og grúfði sig yfir töskuna á borðinu fyrir framan sig eins og hann væri örþreyttur til þess að heyra í tækinu. Frá honum bárust skilaboð með mikilli hvíslherferð um allan þingsalinn og ganga hússins um tíðindi utan veggja þinghússins og þingmenn urðu rórri. Samsærismennirnir virtust hins vegar vita fátt og lítið samband hafa sín á milli. Hálf- gerður óperettubragur var á bylt- ingartilrauninni. „Ég var að þvo bílinn minn,“ sagði einn þjóðvarð- liðanna sem tók þátt í árásinni, „þegar þeir réttu mér vélbyssu og sögðu: Komdu með okkur." Flestir þjóðvarðliðarnir héldu að þeir ættu að hrinda árás hryðju- verkamanna Baska úr skilnaðar- samtökunum ETA á þinghúsið. Næst á eftir töku þinghússins átti að tryggja liðveizlu Milans del Bosch hershöfðingja, yfirmanns 3. hersins í Valencia, þriðju stærstu borg Spánar. Tejero ofursti gerði árásina á þinghúsið þar sem hann taldi að hún mundi leiða til uppreisnar og sagði að uppreisn- armenn færu eftir skipunum Del Bosch. Tejero tilkynnti Del Bosch í síma skömmu eftir töku þing- hússins: „Góðar fréttir, hershöfð- ingi, allt er í lagi.“ Del Bosch flýtti sér að lýsa yfir neyðarástandi í Valencia, fyrirskipaði útgöngu- bann og sendi skriðdreka út á göturnar. Del Bosch er þekktur fyrir hægrisinnaðar skoðanir og hefur lengi verið talinn hugsanlegur byltingarleiðtogi. Hann var harð- ur stuðningsmaður Francos og brottvikning hans úr stöðu Brunete-skriðdrekaherfylkisins 12 km frá Madrid 1977 og skipun hans í stöðu yfirmanns hersins í Valencia 1977 átti greinilega að draga úr ógnuninni sem stjórnin taldi sér stafa frá honum. í borgarastyrjöldinni tók hann þátt í vörn Alcazar-virkisins í Toledo, sem lýðveldissinnar sátu um í nokkra mánuði. í síðari heims- styrjöldinni var hann höfuðsmað- ur í Bláa herfylkinu, sem Franco sendi á austurvígstöðvarnar til að berjast við hlið Þjóðverja gegn Rússum og var sæmdur Járn- krossinum. Eftir stríðið var hann lengi hermálafulltrúi í sendiráð- um Spánar í Argentínu, Chile, Uruguay og Paraguay. Hann kom aftur til Spánar 1966 og var skipaður yfirmaður vélvædds herfylkis. Þegar stuðningur Del Bosch hafði verið tryggður gerðu sam- særismennirnir ráð fyrir að skriðdrekar úr Brunete-herfylkinu utan við Madrid sæktu inn í höfuðborgina og tækju mikilvæg- ustu mannvirki. Brunete-herfylk- ið, hið gamla herfylki Del Bosch og úrvalsdeild, er þekkt vígi hægrimanna á sama hátt og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.