Morgunblaðið - 17.03.1981, Side 33

Morgunblaðið - 17.03.1981, Side 33
41 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981 _____ ■ ------------------------------- fclk í fréttum Barnsrán á fæðingarstofnun + Fyrir skömmu var framið barnsrán í fæðingarstofnun einni í Danmörku. Rannsóknarlögreglu- mönnum tókst nokkrum klukku- stundum eftir ránið að kortiast á slóð ræningjans, sem skilið hafði eftir hótunarbréf um að sprengja fæðingarstofnunina í loft upp og deyða barnið. Þetta gerðist í bænum Næstved. Kona nokkur sem hér átti hlut að máli hafði skipulagt barnsránið gaumgæfilega. — Hún komst inn á fæðingarstofnunina undir mið- nætti kvöld eitt, á fölskum for- sendum. — Þar voru þá miklar annir lækna og hjúkrunarliðs. Hún beið síðan færis til að komast inn á vöggustofuna þar sem reifa- börn voru í rúmum sínum og þar greip hún 4ra daga gamalt barn og hafði á brott með sér en skildi eftir morðhótunarmiða í rúminu. Starfsfólk deildarinnar varð barnsránsins áskynja í þann mund og konan komst út um bakdyr stofnunarinnar með barnið. Næt- urlangt voru rannsóknarlögreglu- menn að störfum við að upplýsa ránið. Um kl. 8 næsta morgun knúðu þeir dyra hjá 24 ára gamalli konu, sem þeir töldu hér hafa verið að verki. Þar var barnið í besta yfirlæti í vöggu. — Konan sem framið hafði ránið var hand- tekin og sett í gæsluvarðhald. Hún kvað ástæðuna hafa verið lífstíð- arósk sína að eignast barn. — Hótunarbréfið hefði átt að beina athygli lögreglunnar fyrst og fremst að sprengjuleit í fæð- ingarstofnuninni, en ekki að leit- inni að barninu. Myndin er af móður barnsins, en hún er 19 ára og er myndin tekin í fæðingar- stofnuninni er komið var með barnið aftur, eftir ránið. „Friðar- stjarnan” seld + Arabi nokkur keypti fyrir skömmu „Friðarstjörnuna“ (The Star of Peace) en það er einn stærsti og verðmætasti demantur í heimi. Hann var áður í eigu Manfreds Horovitz sem er Sviss- lendingur og tóku samningavið- ræður fjóra mánuði. Kaupverð fékkst ekki uppgefið en demantur- inn er talinn a.m.k. virði 12 milljóna bandaríkjadala. Demant- urinn er 170,49 karata og fannst fyrir fimm árum í Mið-Afríku. Þau hanna kjól Díönu + Þetta unga, laglega fólk heitir Elísabet og David Emanuel og eru fatahönnuðir hjá fyrirtækinu Mayfair. Ástæðan fyrir kátínu þeirra er sú að þau hafa verið valin til að teikna og hanna brúðarkjól Lafði Díönu Spencer. Þau gerðu einnig brúðarkjóla hertogaynjunnar af Kent og Michael prinsessu af Kent. KARLMENNSKA OG KVENLEG FEGURÐ + Hér er mynd af fjórum frægum leikurum, Dean Martin, Roger Moore, Burt Reynolds og Farrah Fawcett. Þau leika öll í mynd sem verið er að gera og nefnist „The Cannonball Run“. Þetta ku vera afskaplega spennandi mynd, þrungin karlmennsku og kvenlegum yndisþokka. Hún fjallar um kappakstur án nokkurra reglna eða verðlauna. / Bíail iii *il gi.lHll 11111»' .lÓ’Fg ttOUL ODYR G/STING ÍHJARM BORG4RINNAR Bergstaðastræti 37, Reykjavik. Simi 21011.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.