Morgunblaðið - 17.03.1981, Síða 40
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
Jflorjjutibln&ib
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
JWorflitnblabib
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
Sjálfstæðismenn á Alþingi:
10 ára áætlun
um 4 virkjanir
SEX ÞINGMENN Sjálfstæðis-
flokksins í efri deild alþingis
löKðu fram i gær frumvarp til
laga um ný orkuver. Frumvarpið
felur i sér, að rikisstjórnin skuli
fela Landsvirkjun eða lands-
hlutafyrirtækjum að reisa og
reka þrjár nýjar stórvirkjanir —
án þess að þeim sé raðað í
framkvæmdaröð í frumvarpinu
— sem og að stækka Hrauneyja-
fossvirkjun. Þessar framkvæmd-
ir nema samtals 710 MW og er
það 104% aukning frá uppsettu
afli i núverandi vatnsaflsvirkjun-
um, alls um 680 MW, og er þó
meðtalið 140 MW afl í Hraun-
eyjafossvirkjun, sem nú er í
smiðum. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Hallgrimsson, og
flutningsmenn frumvarpsins
kynntu frumvarp þetta fyrir
fréttamönnum á fundi i gær.
Virkjunarheimildirnar skulu ná
til eftirtalinna virkjana og er
þeim, að sögn Geirs Hallgrímsson-
ar, raðað eftir staerðum þeirra,
enda er engin ákvörðun tekin um
röðun virkjananna í frumvarpinu:
„Allt að 330 MW raforkuver í
Jökulsá í Fljótsdal, þegar ákvörð-
samtals
710
megawött
un hefur verið tekin um að setja á
stofn stóriðju á Austurlandi. Allt
að 180 MW raforkuver í Blöndu í
Austur-Húnavatnssýslu, þegar
tryggð hafa verið nauðsynleg rétt-
indi vegna virkjunarinnar. Allt að
130 MW raforkuver í Þjórsá við
Sultartanga. Allt að 70 MW
stækkun Hrauneyjafossvirkjun-
ar.“
Frumvarpið felur í sér heimild
til handa ríkisstjórninni að taka
lán og endurlána virkjunaraðilum
fyrir hönd ríkissjóðs allt að 3.500
milljón króna, til greiðslu stofn-
kostnaðar þessara virkjana. Þá
skal fella niður aðflutningsgjöld
og söluskatt af efni, tækjum,
vélum og aðalorkuveitum til virkj-
ananna.
Það kom fram á fréttamanna-
fundinum, að með frumvarpi
þessu væri ætlunin, að unnt yrði á
10 ára tímabili að gera stærsta
átakið, sem enn hefur verið gert,
til að nýta orkulindir landsins til
verðmætasköpunar fyrir þjóðar-
búið, — heildaráætlun um tiltekin
verkefni. Markmiðin eru, eins og
segir í greinargerð með frumvarp-
inu, að fullnægt verði þörfum hins
almenna orkumarkaðar, að leysa
innflutta olíu að fullu af hólmi,
bæði til húshitunar og raforku-
framleiðslu og að leggja grundvöll
að stóraukinni iðnvæðingu og
stóriðju og gjaldeyrisöflun í formi
útfluttrar iðnaðarvöru sem lið í
því að tryggja atvinnuöryggi vax-
andi þjóðar og sambærileg lífskjör
og nágrannar vorir búa við.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru sex þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í efri deild alþingis,
fyrsti flutningsmaður Þorvaldur
Garðar Kristjánsson. Að flutningi
þess standa einnig þrettán þing-
menn flokksins úr neðri deild,
þannig að allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, að undanskildum
ráðherrunum þremur, standa
sameiginlega að flutningnum.
Sjá frétt frá blaðamanna-
fundinum á bls. 20.
Nemendur mennta- og fjölbrautaskóla i Reykjavik og nágrenni
efndu til fjölmennrar kröfugöngu i gær til stuðnings kröfum
sinum um rikisstyrkt mötuneyti i framhaldsskóla. Gengið var frá
Fjölbrautaskólanum i Breiðholti, en þarna er gangan á leið eftir
Frikirkjuvegi. Sjá nánar frétt á bls. 20.
Kristin Árnadóttir og dóttir hennar Erla Björk Sveinbjörnsdóttir.
LKmm. KriMján
Var með 11 rétta og fékk 95.000 kr:
Lét eldspýtu-
stokkinn ráða
„MÉR FINNST þetta allt hálf óraunverulegt og er eiginlega ckki
búin að átta mig á þessu ennþá.“ sagði Kristin Arnadóttir sem var
með 11 rétta i siðustu knattspyrnugetraun og vann rúmlega 95.000
nýkr. „Ég hef mjög sjaldan fyllt út þessa getraunaseðla og fylgdist
ekki einu sinni með úrslitunum að þessu sinni — þeir hringdu til
min alveg óvænt i dag. ég hafði ekki hugmynd um að ég væri með
svona marga rétta.“
— Hvaða aðferð notaðirðu við
að fylla út seðilinn?
„Eg kastaði upp eldspýtustokk
og hafði aðra hliðina fyrir einn
en hina fyrir tvo. Ef eldspýtu-
stokkurinn lenti uppá rönd þá
táknaði það jafntefli. Þetta var
semsé algjört grís — ég var
ekkert búin að spekúlera í liðun-
um, hver væru líklegust til að
sigra eða hver að gera jafntefli.
Já, það getur vel verið að ég
haldi áfram að taka þátt í
getraunum en ég held varla að
ég vinni aftur. Eg er ekkert
tiltakanlega heppin svona yfir-
leitt — ég hef t.d. spilað í
happdrætti í mörg ár en aldrei
unnið neitt."
— Hvað ætlarðu að gera við
þessa peninga sem þú vannst?
„Ég er ekki meira en svo farin
að átta mig á að ég eigi þessa
peninga hvað þá hvernig ég
muni verja þeim. En ég var hjá
bankastjóra í morgun að biðja
um 25.000 kr. lán og hugsa að ég
byrji á því að afpanta það“, sagði
Kristín að lokum.
Átta nýjar Boeing 727-200
þotur skráðar hér á landi?
- Hlynntur málinu ef það brýtur ekki í
bága við íslenzk lög, segir samgönguráðherra
ARNARFLUG hefur sótt um
leyfi til að fá skráðar hér á landi
átta flugvélar af gerðini Boeing
727-200 og jafnvel einnig þrjár
vélar af gerðinni 747. Það er
bandariska fyrirtækið American
Airlines, sem fær þessar flugvél-
ar afhentar siðar á árinu, en
vegna fjármögnunar banka i
Bretlandi telja þessi erlendu
fyrirtæki ýmissa hluta vegna
heppilegt, að vélarnar verði
skráðar hér á landi.
Flugráð og flugmálastjóri hafa
fjallað um þetta mál og tekið
jákvæða afstöðu svo framarlega
sem skráning vélanna hér á landi
er lögleg samkvæmt íslenzkum
lögum. Steingrímur Hermanns-
son, samgönguráðherra, sagði í
gær, að mál þetta væri í lögfræði-
legri athugun í ráðuneytinu, en
sagðist vera hlynntur þessu máli
ef það bryti ekki í bága við íslenzk
lög.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins fær American Airlines
átta vélar af gerðinni 727-200
afhentar frá verksmiðju í sumar
og væntanlega einnig þrjár eldri
vélar af gerðinni 747. Fyrirtækið
mun hafa tryggt sér fjármagn í
brezkum bönkum og til að fá
hagstæða vexti á lánin þarf að
fara með þessi viðskipti eins og
um leigu bankanna til American
Airlines sé að ræða, þannig að
ekki yrði hægt að skrá vélarnar í
Bandaríkjunum. Ef vélarnar yrðu
hins vegar skráðar í Bretlandi
þyrfti að þjálfa flugmenn félags-
ins sérstaklega vegna annarra
reglna brezka loftferðaeftirlitsins
um stjórnklefa heldur en gilda í
Bandaríkjunum.
Vegna þessa fór American Air-
lines þess á leit við Arnarflug, að
fglagið fengi vélarnar skráðar á
íslandi, en hér á landi eru að
verulegu leyti gerðar sömu kröfur
til flugvéla og gerðar eru í Banda-
ríkjunum og vaxtakjör hjá bönk-
um í Bretlandi yrðu viðunandi að
mati aðila ef þessi háttur yrði
hafður á.
Arnarflug myndi sjá um eftirlit
með vélunum og yrði ábyrgt gagn-
vart íslenzkum flugmálayfirvöld-
um. Viðhald á vélunum myndi
hins vegar fara fram á vegum
American Airlines. Eftirlitsstörf-
in myndu færa Arnarflugi tals-
verðar tekjur og tryggði nokkrum
hópi flugvirkja atvinnu.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
gætu fleiri stórfyrirtæki haft
áhuga á að fara inn á svipaða
braut ef þessar 8 eða 11 þotur fást
skráðar hér á landi.
1.000 dollara
lækkun á tonninu
Sjöfn semur um sölu á lakki til Rússlands, aðrar
verksmiðjur treysta sér ekki til slíkra samninga
MÁLNINGARVERKSMIÐJA Sambands islenzkra samvinnufélaga,
Sjöfn á Akureyri, hefur samið um sölu á 2.000 tonnum af hvitu lakki
til Rússlands. Verð á hverju tonni er 1.720 dollarar tonnið, cif til
Finnlands. sem er umtalsverð lækkun á verði þessarar vöru til
Rússlands frá fyrra ári.
Þá seldi sama verksmiðja 1.600
tonn á um 1.620 dollara tonnið fob
til Finnlands, sem samsvarar
rúmum 1.800 dollurum, ef selt
hefði verið cif, eins og nú er gert.
Aðrar innlendar málningar-
verksmiðjur, sem selt hafa til
Rússlands á undanförnum árum,
hafa ekki treyst sér til að selja á
svo lágu verði, þannig að Sjöfn er
eina innlenda fyrirtækið sem selur
Rússum máíningu í ár.
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri
Sjafnar á Akureyri, sagði í viðtali
við Mbl. í gær, að hér væri um
óhagstæðari samninga við Rússa
að ræða en verið hefði í fyrra. „Þó
er þess að geta, að við höfum nú
mun hagstæðari innkaup á hrá-
efni og auðvitað værum við ekki
að þessu ef við hefðum ekkert upp
úr því,“ sagði hann. Þá sagði
Aðalsteinn, að samningarnir við
Rússa hefðu gengið illa í ár,
Rússarnir hefðu t.d. krafist þess,
að fá vöruna í nýjum tunnum, en
tekist hefðu að lokum samningar
um að málningin yrði seld í
notuðum tunnum. Um aðra máln-
ingarsölu til útlanda er ekki að
ræða hjá Sjöfn, þó er selt lítils-
háttar af plast- og gólfmálningu
til Færeyja.