Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1981
5
Tónleikar að Kjarvalsstöðum
TÓNLEIKAR verða að Kjarvalsstöðum í kvöld klukkan 20.30. Þá leika
Bjarni Guðmundsson, túbuleikari, og William Gregory, básúnuleikari,
nokkur verk eftir Hindemith, Krnek, Vaughan Williams og fleiri. Með
þeim koma fram Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Þorkell Sigurbjörnsson,
David Johnson og Nora Kornblueh.
Heldur burtf ar-
arprófstónleika
í KVÖLD, þriðjudag 12. maí,
heldur Áslaug Jónsdóttir burt-
fararprófstónleika frá Tónlist-
arskólanum í Görðum. Tónleik-
arnir verða i safnaðarheimili
Garðaba'jar og hef jast kl. 20.30.
Áslaug hóf ung nám í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík og nam
píanóleik hjá Rögnvaldi Sigur-
jónssyni og Árna Kristjánssyni.
Undanfarin ár hefur hún stund-
að nám hjá Gísla Magnússyni.
Áslaug Jónsdóttir
Akranes:
Heildaraflinn 10.611
lestir á vetrarvertíð
Akranesi 11. maí.
IIEILDARFISKAFLI á hinni hefð-
hundnu vetrarvertíð varð hór á
Skaga 10611 lestir. Þar af báta-
fiskur 5201. en togarafiskur 5307
lestir.
Aflahæsti báturinn var vs.
Grótta með 855 lestir, skipstjóri er
Oddur Gíslason. Aflahæstur togar-
anna varð Haraldur Böðvarsson
með 1949 lestir, skipstjóri Kristján
Pétursson. í fyrra var aflinn heldur
betri á sama tíma.
Erindi um hrefnur
ÞRIÐJUDAGINN 12. maí heldur
Jóhann Sigurjónsson erindi á veg-
um Líffræðifélags íslands. sem
hann nefnir _l)m lifnaðarhætti
hrefnu og nýlegar rannsóknir á
stofninum hér við Iand".
Erindið byggir að mestu á þeim
rannsóknum, sem á undanförnum
árum hafa farið fram á vegum
Hafrannsóknarstofnunar og beinst
hafa að öllum þeim þáttum er
auðvelda kunna stjórnun hrefnu-
veiðanna hér við land.
Erindið verður haldið í stofu 158 í
húsi verkfræði- og raunvísinda-
deiidar, Hjarðarhaga 2—4 og hefst
kl. 20.30. Öllum er heimill aðgangur.
30. sýning á
sölumanninum
SÖLUMAÐUR DEYR eftir Arthur
Miller verður sýnt í 30. skipti í
Þjóðleikhúsinu nk. föstudag 15. maí
og er fólki jafnframt bent á að nú
eru aðeins fáar sýningar eftir á
leikritinu, því leikárið fer að stytt-
ast og munu leiksýningar ennfrem-
ur liggja niðri um Hvítasunnuna t.d.
Togararnir lönduðu hér í síðustu
viku. Haraldur Böðvarsson 50 lest-
um, en hann kom inn með bilaða
togvindu til viðgerðar. Krossvíkin
var með 140 lestir og Óskar Magn-
ússon með 178 lestir.
— Július
Ferðafélagið
kynnir ferðir
FERÐAFÉLAGIÐ ætlar nú i
vor að taka upp þá nýbreytni
að kynna í máli og myndum
ferðir félagsins á þessu ári.
dagsferðir, helgarferðir og
sumarleyfisfcrðir.
Á hverju ári er reynt að efna
til nýrra ferða, skoða náttúru
landsins frá nýjum sjónarhorn-
um, ennfremur að breyta um
fyrirkomulag á ferðum, sem
farnar hafa verið mörg undan-
farin ár. Sérstaklega verða
kynntar ferðir, sem eru nýjar í
ferðaáætluninni og gefst fólki
kostur á að bera fram spurn-
ingar varðandi ferðirnar.
Þessi ferðakynning verður að
Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18,
miðvikudaginn 13. maí nk. kl.
20.30.
(Fréttatilkynning)
60 þús. rúmmetrar af mold
í f jöruna við Faxaskjól
Ibúar nærliggjandi hverfa mótmæla
„VID ÞURFIJM að koma fyrir
æði miklu magni af mold. sem
kemur upp úr grunnum á Eiðs-
granda. í fjörukrikanum á móts
við Faxaskjól," sagði Þórður Þor-
hjarnarson borgarverkfræðingur
í samtali við Morgunblaðið.
„Það er álitið að það magn sem
þarna þarf að koma fyrir sé um
60 þúsund rúmmetrar. en það er
að visu um 80% vatn. þannig að
þetta sígur verulega saman."
sagði Þórður.
fram að fjaran verði ekki metin til
fjár og sé um „veigameiri verðmæti
að tefla en svo að þau verði mæld í
krónum, og sá kostnaður sem spar-
ast við fyrihugaða aðgerð, er óveru-
legur miðað við þau náttúruspjöll,
sem yrðu unnin, næði áætlunin
fram að ganga," eins og segir í
greinargerðinni.
Þá var áskorun borin upp á
fundinum og hún samþykkt. í
áskoruninni segir að fundurinn
skori á borgaryfirvöld að hverfa frá
þeirri hugmynd að nota fjöruna
fyrir Faxaskjóli og Ægissíðu sem
losunarsvæði. Einnig er því beint til
yfirvald að fjaran verði hreinsuð af
mengun og skolpræsi verði breytt
þannig að fjaran geti „orðið sá
yndisauki í lífi Reykvíkinga sem
hún á skilið". Þá bjóðast fundar-
menn til þess að verða borgaryfir-
völdum til aðstoðar við hreinsun
fjörunnar.
Sýnir 34 grafíkverk
í Norræna húsinu
Þórður sagði að ekki væri um
marga staði að ræða þar sem hægt
væri að koma efninu fyrir, en þessi
kostur væri auðveldastur og hag-
kvæmastur. Þórður sagði að ekki
sýndist mikið gróðurríki á þessum
stað og svæðið ekki vænlegt til
útivistar.
Þórður gat þess að ef hægt væri
að koma öllu efninu fyrir á þessu
svæði, sparaði það borginni um 3
milljónir króna, þannig að veruleg
rök styddu þennan kost.
Vegna þessarar fyrirhuguðu
framkvæmdar héldu íbúar við
Faxaskjól og í nærliggjandi hverf-
um, fund, þar sem lögð var fram
greinargerð með mótmælum vegna
þessa. í greinargerðinni kemur
Himinn og jörð
EINN stafur týndist framan af
einu orði i greinaflokknum „Him-
inn og jörð" síðastliðinn laugar-
dag og gjörbreytti þar með
merkingunni. Rétt er setningin
svohljóðandi: Venjulega sígur þá
þyngri platan undir hina og
bráðnar smám saman.
SETT IIEFUR verið upp sýning á
grafíkmyndum eftir norska lista-
manninn Anne-Lise Knoff í Nor-
ræna húsinu i Reykjavík og stend-
ur sýningin fram til 24. maí nk.
Hér er um að ræða myndskreyt-
ingar, sem hún hefur gert við
Sólarljóð, íslenzk helgikvæði frá 13.
öld. Ivar Orgland þýddi kvæðið á
norsku, og bókin var gefin út af
Dreyers forlag á síðasta ári.
Ennfremur sýnir hún myndir,
sem hún hefur gert við Lilju
Eysteins Þorvaldssonar og myndir
gerðar við sögu eftir norska rithöf-
undinn Veru Henriksen, sem nefn-
ist Dronningsagaen.
Alls eru á sýningunni 34 grafík-
myndir, allar unnar með svokall-
aðri þurrnál.
Anne-Lise Knoff er kennari að
mennt, en sneri sér að grafík- og
málaralist. Hún hefur haldið marg-
ar sýningar og tekið þátt í mörgum
samsýningum, bæði á Norðurlönd-
um og víða um Evrópu.
Anne-Li-sc Knoff
Sýning listakonunnar stendur
eins og áður sagði fram til 24. maí
nk. og er hún opin daglega frá 09.00
til 19.00, nema sunnudag, þegar hún
er opin frá 12.00—19.00. Aðgangur
er ókeypis.
í ró og næði
\ heima
og á þeim tíma dagsins sem hentar þér,
getur þú æft þig með vaxtarmótar
Sendið mér: □ . stk vaxtarmotari kr 99 OO ♦ póstkostn
Nafn
Heimilisf
Pöntunarsími 44440
Póstverslunin Heimaval Box 39. Kópavogi
anum. Milljónir manna, konur og
karlar nota vaxtarmótarann til að
ná eðlilegri þyngd og til að
viðhalda líkamshreysti sinni
í ró og næði heima.
• • Vaxtarmótarinn styrkir.
fegrar og grennir likamann •• Árangurinn er
skjótur og áhrifaríkur. • • Æfingum meö tnkinu
má haga eftir því hvaöa líkamshluta menn vilja grenna
eöa styrkja • • Vaxtarmótarinn mótar allan líkamann, arma,
brjóst. mitti. kviðvööva. mjaömir og fœtur • • Islenskar
þýöingar á œfingakerfinu fylgja hverju tœki. • • Huröarhúnn
nngir sem festing fyrir vaxtarmótarann. • • Reyndu þetta
einfalda og hentuga nýja tœki til aÖ ná aftur þinni fyrri
líkamsfegurö og lipurö I hreyfingum. ••14 daga skilafrestur
þ.e. ef þú ert ekki ánœgöur meö árangurinn eftir 14 daga getur
þú skilaö þvi og fengið fullnaöargreiöslu