Morgunblaðið - 12.05.1981, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981 3 5
Einar Hannesson:
Að auka
laxagengd
Öll fiskræktarstarfsemi stefnir
beint eða óbeint að því að auka
fiskgengd og veiði og þar með gera
þessa auðlind verðmætari. Einn
þáttur fiskræktar er að setja
gönguseiði af laxi úr eldisstöð í
árnar til að bæta við það magn
fiskjar, sem náttúran sjálf leggur
til. Seiðin ganga síðan til sjávar
eins og seiðin úr ánni og skila sér
aftur sem fullvaxnir laxar úr sjó,
eins og kunnugt er.
Ljóst er þeim, sem til þekkja að
ýmis mistök hér og þar hafa átt
sér stað í sambandi við göngu-
seiðasleppingu, vegna þess ein-
faldlega að menn hafa ekki staðið
rétt að verki. Víst þarf tíma til
þess að yfirvinna byrjunarörðug-
leika sem fylgja þessari fiskrækt-
arframkvæmd, eins og nýjungar á
öðrum sviðum. Það sama má segja
um fiskeldið sjálft. En margt
hefur eigi að síður þegar áunnist á
þessum vettvangi.
Eldi og slepping gönguseiða af
laxi hefur þróast mjög jákvætt
þann tiltölulega stutta tíma sem
liðinn er frá því að slík starfsemi
hófst hér á landi. Varðar þetta
flýtingu á klaki laxahrogna, betri
árangur í eldinu sjálfu og aðlögun
laxaseiða að náttúrulegum að-
stæðum. Þegar hefur tekist að fá
fram góð gönguseiði, 12—15 sm að
lengd, á rúmlega einu ári í eldis-
stöð, en tekur yfirleitt 3—4 ár í
náttúrunni. Þegar rætt er um góð
gönguseiði, er átt við seiði sem
fengið hafa nauðsynlega meðferð í
eldinu, hvað snertir náttúrulega
birtu vissan tíma vetrar, til þess
að seiðin fari í göngubúning að
vorinu eða fyrrihluta sumars sem
er forsenda þess að þau séu hæf til
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
U (iI.Vsiní, \
SÍMINN KH:
22480
sjávargöngu. Auk þess þurfa seið-
in að hafa náð vissri stærð til að
teljast til gönguseiða, sem fyrr
greinir.
Hitt atriðið, sem miklu varðar
um' góðan árangur sleppinga
gönguseiða í árnar, er meðferð
seiðanna þann tíma frá því að þau
eru flutt úr eldisstöðinni og sett í
ána sjálfa eða á annan sleppistað.
I þessu efni er nauðsynlegt að láta
seiðin vera í sleppitjörn eða netkví
við ána eða í henni vissan tíma,
2—3 vikur, til aðlögunar náttúru-
legum aðstæðum. Skiptir hitastig
árinnar verulegu máli um sleppi-
tíma og jafnaðarlega er best að
seiðin fái göngubúning á sleppi-
staðnum. Þarf því að flytja seiðin
í sleppitjörnina nokkru áður en
ætla má að hitastig árinnar verði
hæfilegt (8—10°C) til að náttúru-
leg gönguseiði haldi til sjávar.
Víst má fullyrða að sleppitjörn
ásamt fóðrun seiðanna gegni lyk-
ilhlutverki til góðs árangurs í
sambandi við sleppingu göngu-
seiða. Tilraun með sleppingu
gönguseiða og árangur þess sem
framkvæmd var við Elliðaár fyrir
nokkrum árum og unnið var vand-
lega að, gaf rúmlega 8% endur-
heimtu fullorðinna laxa í Elliðaár
úr sjó. Gönguseiðin voru frá
Kollafjarðarstöðinni, merkt þar,
sett í sleppitjörn við Elliðaár og
endurheimtust sem fyrr greinir í
Elliðaám. Sumarið 1978 voru sett
gönguseiði frá Kollafirði í sleppi-
tjörn í Súgandafirði á Vestfjörð-
um og í Fossá á“Skaga í Skaga-
firði, sem skiluðu endurheimtum á
viðkomandi staði 1979 og 1980.
Hið sama er að segja um göngu-
seiði frá Laxamýrarstöðinni í
Suður-Þingeyjarsýslu, ættuð úr
Laxá, sem sleppt var í sleppitjörn
í Kollafirði 1978 og endurheimtust
í Kollafirði.
Netkví í Botni í Súgandafirði.
Nýjasta framför við sleppingu
gönguseiða er flotkví með sjálf-
virkan fóðrara, sem staðsett er á
ósasvæði ár með aðstöðu til að
láta seiðin aðlagast sjó. Þegar
þessi aðferð er notuð er gönguseið-
um sleppt úr kvínni beint i sjó við
ós árinnar.
í upphafi þessa spjalls var vikið
að gildi gönguseiða af laxi til
fiskræktar, þ.e. þau kæmu sem
viðbót við framlag náttúrunnar
sjálfrar í viðkomandi straum-
vatni. Kunnugir þessum málum
hafa bent á, að mest hagnýtt gagn
gönguseiðasleppinga væri vafa-
laust í ár, sem gefa tiltölulega litla
laxveiði frá náttúrunnar hendi,
því þar muni hvað mest um
aukningu á laxgengd og þar með
veiði. Með þessum hætti væri unnt
að gera laxveiðina að stóru ævin-
týri fyrir stangveiðimennina og
veiðieigendur.
Ogetið er um hafbeit í stórum
stíl, er skilar sláturlaxi í ríkum
mæli, eins og hafbeitarstöðvarnar
eru ljós vottur um. Framtíð stór-
iðju á þessu sviði á vegum lands-
manna sjálfra ætti ekki að valda
ágreiningi þó stóriðja af öðru tagi
sé umdeild hérlendis.
Einar Hannesson
Ef þú gerir hröfur um gæói ryösritun,
en tehur fá eintöh á ári,
er nýja u-bix 90 yósritunars/élin
fyrir þig
U-BIX 90 notar eina tegund af dufti ftonerj.
U-BIX 90 ijósritar á allan venjulegan pappír, einnig þitt eigió bréfsefni.
U-BIX 90 skilar fyrsta afriti eftir 6 sekúntur.
U-BIX 90 kostar 25.780.-
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
+ =
x ^ Hvcrfisgötu 33
S,mi 20560
ÓSA
HVITASUNNUFERÐ Tlli
Ennþá eru örfá sæti laus í átján daga ferð til BENIDORM á suð-austurströnd Spánar. Hótel eða íbúðir, mpð og án fæðis.