Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 42
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981 SIGUR MITTERANDS BASTILLUKVÖLD — Þúsundir manna sofnuðust saman til að fagna sigri Mitterands á Bastillutorginu i París. Markar si^ur Mitterands upphaf vinstri sveiflu? París. liUndúnum. Bonn. 11. mai. AI*. MED SIGRI sínum hefur Francois Mitterand, leiðtoKÍ sósíalista í Frakklandi. velt af stalli einum áhrifamesta stjórnmálamanni á meKÍnlandi Evrópu. Þetta Kcrðist án þess, að utanrikismál va*ru nokkurn tíma sett á oddinn í kosninKaharáttunni ok aldrei kom til snarpra orðaskipta þeirra Mitterands ok Valery Giscard d'EstainKs um utanríkismál. Giscard var óumdeilanleKa einn áhrifamesti leiðtoKÍ í Evrópu. IIvernÍK Mitterand tekst að fylla það skarð sem Giscard skilur eftir sík á sviði utanríkismála er enn á huldu. Mitterand lagði alla áherzlu á innanrikismál í kosninKabaráttunni. Ekki eru merkjanleKar neinar afdrifaríkar breytinKar í utanrík- isstefnu Mitterands. Hann hefur látið í Ijósi harðari afstöðu gagn- vart Sovétmönnum en Giscard, en jafnframt áhuga á viðræðum við Sovétmenn, þrátt fyrir innrásina í Afganistan. Sovétmenn tóku ekki beina afstöðu í kosninKabarátt- unni en Kreinilegt var, að herrarn- ir í Kreml hefðu helst kosið, að Giscard bæri sigur úr býtum. Mitterand hefur tekið sömu af- stöðu og aðrir vestrænir leiðtogar til Póllands. Sem sé, að Pólverjar leysi eigin vandamál og ef Sovét- menn ráðast inn í landið, þá muni Frakkar slíta öll tengsl við Sovét- ríkin. Hins vegar hefur Mitterand sagt, að hann sjái ekkert til fyrirstöðu góðum samskiptum við Kreml. Mitterand er einarður stuðn- ingsmaður Efnahagsbandalags Evrópu. Þó er Ijóst, að hann mun leggja áherzlu á breytta stefnu í fjárlögum EBE, og einnig á um- bætur í landbúnaðarmálum. Mitterand hefur lýst yfir stuðn- ingi við Camp David-samkomu- lagið og stefnu Bandaríkjanna í málefnum Mið-Austurlanda með undantekningu þó. „Frelsissamtök Palestínumanna eru helsti fulltrúi palestínsku þjóðarinnar," hefur hann látið hafa eftir sér. Þarna greinir hann á við Bandaríkin, sem hafa lýst því yfir, að PLO séu hermdarverkasamtök og hefur PLO verið haldið utan við friðar- viðræður Egypta, ísraela og Bandaríkjamanna. Mitterand hefur verið gagnrýn- inn á stefnu Bandaríkjanna í latnesku Ameríku. Þar kemur helst til ágreinings Frakka og Bandaríkjamanna. Mitterand hefur lýst því yfir, að breytinga sé þörf á afstöðu Frakka til Atlanstshafsbanda- lagsins. En það sem fyrst og fremst setur spurningamerki yfir utanríkisstefnu Mitterands eru kommúnistar; hver verða ítök þeirra í stjórn landsins. Margrét Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands og Helmut Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, komu í dag saman til funda í Lundúnum. Vinátta þeirra Gisc- ards og Schmidts er öllum kunnug og var stundum talað um „Bonn- Parísareykið" og vitnað til vináttu og náins samstarfs þeirra. Mitter- and sagði, að hann myndi kapp- kosta góða samvinnu við V-Þýzka- land, en útilokaði jafn náið sam- band við Schmidt og Giscard hafði átt. Bæði Helmut Schmidt og Margrét Thatcher sendu Mitter- and heillaóskaskeyti í dag og létu í ljósi vonir um góða samvinnu landanna og leiðtogafund. Ljóst er, að Thatcher sér lítið eftir Giscard. Sambúð þeirra var alltaf stirð og litlir kærleikar voru með þeim. Hvort betur fer á með henni og Mitterand leiðir framtíðin í ljós; raunar er ólíklegt að svo verði. Svo sem vænta mátti létu leið- togar sósíalista í Evrópu mikinn fögnuð í ljós í dag yfir kosninga- sigri Mitterands og spá margir, að sigur Mitterands marki upphaf nýrra tíma í stjórnmálalífi álf- unnar. Það er einkum á Ítalíu og Spáni sem úrslitin í Frakklandi eru talin geta markað upphaf nýrra tíma. Bettino Craxi, leiðtogi sósíalista á Ítalíu, sagði að sigur Mitterands væri fyrsta teikn um vinstri sveiflu í Evrópu; eftir hægri sveifluna, sem farið hefur um álfuna á undanförnum árum. Enrico Berlinguer, leiðtogi kommmúnista, lýsti mikilli ánægju með kosningu Mitterands og hann minnti á, að sigurinn hefði unnist með stuðningi komm- únista. Mario Soares, leiðtogi sósí- alista undirbjó ferð til Frakklands til að óska Mitterand persónulega til hamingju með sigurinn. Þá lýstu leiðtogar Verkamanna- flokksins í Bretlandi ánægju með sigur Mitterands og sagðist Denis Healey, varaformaður Verka- mannaflokksins, hlakka til náins samstarfs við Mitterand en hann spáði því, að sósíalistar á Bret- landi myndu sjálfir fljótlega kom- ast í valdastóla. Hverju vill Mitterand breyta? í VIÐUREIGNINNI við Francois Mitterand og jafnaðarmanna- flokk hans hafa hægri menn í Frakklandi haldið þvi fram, að bein afleiðing af valdaaðstöðu jafnaðarmanna yrði stjórnleysi ok önKþveiti. ekki sízt þar sem kommúnistar mundu þá komast í áhrifastöðu ok jafnvcl hafa yfir- tökin. En hvað mun breytast við það, að 23ja ára valdatíð hægri aflanna í Frakklandi er nú á enda? Ekki eru líkur á því, að breyt- ingar verði gerðar á grundvall- arstefnu Frakka í utanríkis- og öryggismálum. Ef eitthvað er, þá má telja, að Mitterand verði samvinnuþýðari innan Atlants- hafsbandalagsins og Efnahags- bandalagsins en fyrirrennari hans. Mitterand hefur hug á að þjóð- nýta ýmsar iðngreinar i landinu, auk þeirra banka sem enn eru í einkaeign. Hann hefur hvað eftir annað sagt, að baráttan gegn atvinnuleysi verði að hafa forgang og hefur hann í hyggju að efla ríkisfyrirtæki í því skyni að fækka atvinnuleysingjum. Þá vill hann stytta vinnuvikuna í 35 stundir, en í Frakklandi er við lýði 40 stunda vinnuvika. Mitterand vill efla at- vinnulýðræði og meðal helztu stefnumála hans er að tryggja láglaunafólki mun hærri tekjur en nú tíðkast, m.a. með skattaíviln- unum. Til að jafna kjör fólksins í landinu hefur hann heitið að leggja sérstakan skatt á efna- og’ hátekjufólk. Til að hrinda þessu i fram- kvæmd, þarf Mitterand að tryggja sér mun meiri stuðning á þingi en hann hefur nú yfir að ráða. Á næstu vikum kemur í ljós, hvort meðbyrinn, sem kom honum á forsetastól, endist til að koma honum til áhrifa á franska þing- inu. Ef ekki, þá er viðbúið, að á næstu misserum verði hörð átök í efnahagslífi Frakklands. Veður viöa um heim Akureyri 6 skýjað Amsterdam 27 heiðskírt Aþena 26 heiðskírt Barcelona 18 hálfskýjað Berlín 28 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Chicago 30 skýjað Denpasar 31 skýjað Dyflinni 12 heiðakýrt Feneyjar 19 skýjað Frankfurt 14 heiðskírt Faereyjar 7 alskýjað Genf 20 skýjað Hong Kong 26 rigning Jerúsalem 23 skýjað Jóhannesarborg 21 heiðskirt Kaupmannahöfn 4 skýjað Kairó 33 skýjaö Las Palmas 20 léttskýjað Líssabon 16 ngning London 22 heiðskírt Los Angeles 32 heiöskírt Madrid 13 rigning Mallorka 18 léttskýjað Malaga 18 léttskýjað Mexicoborg 25 heiðskírt Miami 32 skýjað Moskva 24 heiöskírt Nýja Delhí 34 rigning New York 20 rigning Osló 21 skýjað París 16 skýjað Perth 15 heiðskírt Reykjavík 5 skýjað Ríó de Janeiro 32 skýjaö Rómaborg 26 skýjað San Francisco 18 heiöskírt Stokkhólmur 24 heiöskfrt Sydney 21 heiðskírt Tel Aviv 25 skýjað Vancouver 15 skýjað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.