Morgunblaðið - 20.05.1982, Qupperneq 18
Akureyri:
Dvalarheimili og fjölbýlis-
hús fyrir aldraða brýn verkefni
eftir Bergljótu Rafnar
Stefnuskrá sjálfstæðismanna á
Akureyri hefur verið borin í öll
hús í bænum. Henni er skipt í 10
meginþætti, þar sem hún er skýrð
í einstökum atriðum. Síðan er
dregið fram til frekari glöggvunar
neðanmáls, hvað liggur henni til
grundvallar og á hvað við viljum
leggja sérstaka áherzlu. Þetta er
gert til þess, að bæjarbúar geti
með aðgengilegum hætti kynnt sér
sjónarmið okkar og baráttumál.
í síðasta tölublaði íslendings
gerði ég íþrótta- og æskulýðsmál
að sérstöku umræðuefni og skal ég
ekki endurtaka það hér heldur
snúa mér að öðru um leið og ég
undirstrika hvaða þýðingu holl
tómstundaiðja, útivist og líkams-
rækt hefur fyrir æskufólk bæjar-
ins og raunar alla bæjarbúa og
bætir bæjarbraginn.
Skólamálin
Við sjálfstæðismenn erum
þeirrar skoðunar, að uppbygging
grunnskólanna skuli við það mið-
uð, að þeir verði hverfisskólar, þar
sem nemendur geti lokið námi
sínu. Síðan tekur framhaldsskól-
inn við, en mótun hans er nú í
deiglunni og unnið að endurskipu-
lagningu á starfsháttum hans.
Hér á Akureyri höfum við markað
þá stefnu, að nýr verkmenntaskóli
rísi sunnan við Elliheimilið, en
menntaskólinn haldi sér í stórum
dráttum.
Því er ekki að neita, að bygg-
ingaráætlun verkmenntaskólans
er reist á mikiili bjartsýni. Sú
hugsun liggur til grundvallar, að
þar verði látin í té undir einu þaki
bezta fræðsla og starfsþjálfun,
sem völ er á. Þetta verður mikið
átak fyrir bæjarfélagið á næstu
árum, en það veldur vonbrigðum,
að stjórnvöld skuli hafa dregið við
sig þær fjárveitingar úr ríkissjóði
sem gefin voru fyrirheit um, þegar
fyrsta skóflustungan var tekin á
sl. hausti. Það hlýtur að torvelda
skólastarfið til muna, ef óeðlilegur
dráttur verður á því að nýi verk-
menntaskólinn rísi og starfsemin
verði á tveim stöðum.
I þessu sambandi er nauðsyn-
legt að taka það með í reikninginn,
að uppbygging og rekstur hinnar
eiginlegu verkmenntadeildar er
mjög kostnaðarsöm. Þjóðfélagið
getur ekki risið undir slíkri starf-
semi í einstökum greinum nema
hér og í Reykjavík. Af þeim sökum
er brýnt, að þegar verði að því
hugað að heimavistarrými verði
aukið hér á Akureyri, svo að við
getum fullnægt þörfum Norðlend-
inga og jafnvel Austfirðinga í
þeim greinum framhaldsskólans,
þar sem mestar kröfur eru gerðar
um starfsþjálfun og tækjabúnað.
Slíkt heimavistarrými kæmi einn-
ig í góðar þarfir yfir sumartím-
ann, þegar ferðamannastraumur-
inn er mestur.
Tónlistarlíf í blóma
Tónlistarlíf stendur hér á göml-
um merg. Tónlistarskólinn hefur
vaxið og dafnað svo á seinni árum,
að það gengur kraftaverki næst.
Ég er ekki í vafa um, að tónlistar-
iðkun hefur mikið uppeldislegt
gildi. Reynzlan er lika sú, að þeir
nemendur, sem náð hafa góðum
árangri í hijóðfæraleik, standa sig
einnig vel í öðrum námsgreinum.
Því veldur sú mikla sjálfsögun,
sem því fylgir að ná tökum á
hljóðfæri sínu. Unglingunum lær-
ist að skipuleggja tíma sinn og
vinnu. Kannski stendur engin
listgrein með jafnmiklum blóma
um þessar mundir hér á landi og
einmitt tónlistin og það er vel.
Þegar verkmenntaskólinn tekur
til starfa hefur iðnskólinn við
Þingvallastræti lokið hlutverki
sínu sem slíkur. Vel kæmi til
greina að fullorðinsfræðslunni
yrði valinn þar staður. Endur-
menntun er að verða snar þáttur í
okkar fræðslukerfi og nauðsynleg-
ur, ekki sízt með hliðsjón af því, að
auðvelda þarf konum að koma aft-
ur út á vinnumarkaðinn, eftir að
þær hafa um sinn gætt bús og
barna. En einnig hlýtur að koma
til álita, hvort skynsamlegt sé að
tónlistarskólinn flytjist í iðn-
skólahúsið ásamt myndlistarskól-
anum. Það er enginn vafi á því, að
textíl-hönnunardeild við mynd-
listarskólann mætti tengja ullar-
iðnaðinum hér á Akureyri með
góðum árangri og vinna þannig
markaði fyrir ullarvörur okkar
erlendis. Þannig er hægt að tengja
skólastarfið atvinnuvegunum.
Listsköpunin getur orðið bakhjarl
framleiðslunnar, ef vel tekst til.
Við getum litið til frænda okkar á
Norðurlöndum, einkum Finna og
Dana, til að sannfærast um það.
Þarfir eldri borgara
Akureyri er menningarbær og á
sér merka sögu sem slíkur. Þó
hvílir á honum sá skuggi, að ekki
hefur verið nægilega vel séð fyrir
þörfum elztu borgaranna. Það á
sér þá eðlilegu skýringu, að meðal-
aldur hefur farið mjög hækkandi
og fjölskylduböndin ekki eins
sterk og áður. Mikið átak hefur
verið gert með byggingu Dvalar-
heimilisins Hlíðar. Það leysir þó
engan frambúðarvanda, heldur er
nauðsynlegt að hugsa fyrir því
strax, að bygging nýs dvalarheim-
ilis fyrir aldraða geti hafizt á nýj-
um stað, auk þess sem hafizt verði
handa um að reisa fjölbýlishús
fyrir aldraða.
Þessu tengd er frekari uppbygg-
ing sjúkrahússins. Nú er verið að
taka kjarnahúsið í notkun og því
er brýnt, að þegar í stað verði ráð-
ist í fyrirhugaða byggingu á nýrri
sjúkrahúsálmu til þess að gera
reksturinn hagkvæmari og nýta
þá sérfræðikunnáttu, sem læknar
bæjarins búa yfir.
Það er borin von, að okkur hald-
ist til lengdar á ágætum læknum
og starfsfólki við sjúkrahúsið,
nema það búi við sómasamleg
starfsskilyrði. Því má heldur ekki
gleyma, að fjórðungssjúkrahúsið
gegnir mikilvægu hlutverki sem
varasjúkrahús fyrir landið allt og
er þannig hugsað af Almanna-
vörnum ríkisins, þótt þeir, sem nú
fara með stjórn heilbrigðismála,
reyni að gera lítið úr því.
Eigið húsnæði
Það er grundvallarstefna
sjálfstæðismanna, að sérhverri
fjölskyldu sé gert kleift að eignast
og búa í eigin húsnæði. Til þess að
svo megi verða er nauðsynlegt að
gera hvort tveggja í senn, að
hækka lánin og lengja lánstím-
ann. Við höfum miðað við 80% af
verði íbúðar og að lánin verði til
a.m.k. 40 ára. Þessi langi lánstími
er ekki óeðlilegur með hliðsjón af
endingartíma húsanna og viðráð-
anlegt hverjum og einum að
standa í skilum án þess að vera
undir of miklu vinnuálagi.
Nú má auðvitað spyrja, hvort
ekki sé auðveldara fyrir ungt fólk
að setjast í leiguíbúðir í opinberri
eigu. Leiguíbúðir eiga rétt á sér
undir vissum kringumstæðum og
þá sem undantekning en ekki
regla. Hitt hlýtur að vera heilbrigt
markmið fyrir ungt fólk að keppa
að því að vera efnahagslega
sjálfstætt og engum háð í sínu
einkalífi. Auk þess sem reynzlan
sýnir, að annar sparnaður er ekki
meiri í þjóðfélaginu en sá sem
tengist híbýlum manna, sem þeir
eiga sjálfir. Menn ganga betur um
og ieggja metnað sinn i að halda
húsum sínum vel við og hafa góða
hirðu á umhverfinu.
Atvinnulífið
Það er í samræmi við lífsskoðun
og lífsviðhorf okkar sjálfstæð-
ismanna, að fyrsti kaflinn í
stefnuskrá okkar skuli fjalla um
atvinnulífið, enda teljum við, að
helztu viðfangsefni næstu bæjar-
stjórnar verði á því sviði. Þegar
við hugsum okkur Akureyri fram-
tíðarinnar sjáum við hana fyrir
okkur í því ljósi, að hér sé fjölþætt
atvinnulíf með ótal lífvænlegum
fyrirtækjum, smáum og stórum,
eftir eðli þeirra og umfangi.
„Mikið átak hefur verið
gert með byggingu Dval-
arheimilisins Hlíðar. Það
leysir þó engan frambúð-
arvanda, heldur er nauð-
synlegt að hugsa fyrir því
strax, að bygging nýs dval-
arheimilis fyrir aldraða
geti hafízt á nýjum stað,
auk þess sem hafízt verði
handa um að reisa fjölbýl-
ishús fyrir aldraða.“
Því miður hefur hallað undan
fæti í atvinnulífinu síðustu mán-
uði og misseri. Rekstrargjöldin
hafa hækkað meira en tekjurnar,
sem er afleiðing af þeirri stefnu,
sem stjórnvöld hafa fylgt í efna-
hags- og atvinnumálum. Þessu
tengt er, að gjaldmiðilsbreytingin
virðist hafa mistekizt í þeim skiln-
ingi, að hún hefur ekki orðið til
þess að auka sparnað. Þvert á
móti hefur verðskyn fólks aldrei
verið minna en nú.
Háværar úrtöluraddir
Mikið er rætt um nýiðnað eða
orkufrekan iðnað til þess að nýta
það afl, sem kemur úr Blöndu- og
Fljótsdalsvirkjunum. Framanaf
voru Akureyri og Eyjafjörður
nefnd í því sambandi. Svo hefur
hins vegar brugðið við nú, að þess-
um byggðarlögum hefur verið
sleppt í áætlunum stjórnvalda,
enda nógir um boðið bæði á Reyð-
arfirði, Húsavík, Sauðárkróki og
fyrir sunnan á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Við getum sjálfum
okkur um kennt. Urtöluraddirnar
eru háværar hér heima og bæjar-
stjórn Akureyrar hefur verið
einskis megnug síðasta kjörtíma-
bil, þótt bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafi tekið málið upp
hvað eftir annað. Því veldur
sundrung vinstri manna og skiln-
ingsleysi á þörfum atvinnulífsins.
Er það þó flestra manna mál, að
atvinnulífið hér á Akureyri þurfi
einmitt á því að halda, að nýjum
stoðum verði skotið undir það, að
nýiðnaðarfyrirtæki rísi hér, sem
byggi rekstur sinn á mikilli orku-
notkun.
Senn líður að bæjarstjórnar-
kosningum. Barátta okkar sjálf-
stæðismanna grundvallast á því,
að Akureyri geti ekki dafnað eins
og hún hefur gert og verið áfram
helzta mótvægi landsbyggðarinn-
ar við Reykjavíkursvæðið nema
atvinnuuppbyggingunni verði
haldið áfram. Það er forsenda
þess, að hér geti dafnað heilbrigt
mannlíf, að okkur líði vel í bænum
okkar. Um þetta snúast kosn-
ingarnar. Þess vegna ætti valið að
vera auðvelt, — að kjósa D-list-
ann, lista einstaklingsfrelsis og
framtaks.
(Áv*rp fíutt á hvt rfí.sfundi í (>lerárakóUL)
' -
Ný plastgróðurhús 9réf>kfarf%kJ- /o. 0a
f rá Plastprent hf:
Ódýr,sterkog
, auóveld
i uppsetningu
Plastprent hefur nú hafið fram-
leiðslu á nýjum plastgróðurhúsum.
Húsin eru ódýr, sterk og það er
bæði auðvelt og fljótlegt að setja
þau upp. Plastgróðurhúsin eru
fáanleg í mörgum mismunandi
stærðum, allt frá 4,8 m2 upp í 39 m2
og jafnvel enn stærri. Þau henta
því vel hvort sem er fyrir garðyrkju-
menn, bændur eða garðeigendur.
Tvö plastgróðurhús hafa verið sett
upp hjá Skógræktarfélagi Reykja-
víkur í Fossvogi, þar sem hægt er
að skoða þau á opnunartíma
stöðvarinnar.
Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
Innilega þakka ég öllum sem glöddu mig á 80
ára afmæli mínu 27. apríl sl. með heimsókn-
um, gjöfum og skeytum.
Sigurgeir Jónatansson.