Morgunblaðið - 20.05.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1982
21
Friðarviðræður SÞ
að fara út um þúfur
Breski árásarflotinn siglir noröur með Falklandseyjaströndum
Sameinuðu þjóðunum, London,
Buenos Aires, 19. maí. AP.
BRESKA stjórnin hefur svo gott
sem hafnað siðustu friðartillögum
Argentínumanna að því er talsmað-
ur stjórnarinnar gaf í skyn í dag en
í morgun hyggst hún gefa út til-
kynningu um gang viðræðnanna.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var kvatt saman til óformlegs fund-
ar í dag um Falklandseyjadeiluna
skömmu eftir að samningamaður
Breta hafði gefíð aðalritara SÞ síð-
ustu svör stjórnar sinnar við tillög-
Jerúsalem, 19. maí. AP.
RÍKISSTJÓRN Menachem Begins
hélt í dag velli á ísraelska þinginu
þegar til atkvæða kom vantrauststil-
laga frá Verkamannaflokknum. 58
greiddu stjórninni atkvæði og 57 á
móti og komu þau úrslit nokkuð á
óvart því að talið hafði verið, að í
besta falli fyrir stjórnina félli tillag-
an á jöfnu. Þetta er í sjöunda sinn
sem borin er fram vantrauststillaga
á stjórn Begins síðustu tíu mánuð-
ina.
Ástæðan fyrir vantrauststillögu
Verkamannaflokksins er sá mikli
fjörkippur, sem hlaupið hefur í
verðbólguna en í aprílmánuði
jókst hún um 10,7%. Það þótti
um Argentínumanna en nokkru
fyrr hafði de Cuellar sagt, að
„næstu klukkustundir“ skæru úr
um hvort stríð yrði háð á Suður-
Atlantshafí.
Hermt er, að breska flotanum sé
nú ekkert að vanbúnaði að hefja
innrás í Falklandseyjar.
Eftir fund bresku ríkisstjórn-
arinnar í kvöld um síðustu tillög-
ur Argentínumanna sagði Mar-
garet Thatcher, að enn bæri
„mikið á milli" og þegar frétta-
heldur ekki auka likurnar á lang-
lífi stjórnarinnar, að tveir stuðn-
ingsmanna hennar hafa gengið til
liðs við Verkamannaflokkinn þar
sem þeir áttu áður heima. Umræð-
urnar á þingi í dag voru mjög
harðar og einkenndust af brigsl-
yrðum á báða bóga.
Það eina, sem óvissu olli um úr-
slitin, var afstaða eins þingmanns
Tehiya-flokksins, hægriflokks,
sem á fimm menn á þingi, en áður
var ljóst, að tveir félagar hans
ætluðu að greiða atkvæði gegn
Begin og tveir að sitja hjá. Þegar
til kastanna kom ákvað þingmað-
urinn að sitja hjá og er þá sagt, að
feginsandvarp hafi liðið frá Begin.
menn spurðu talsmann stjórnar-
innar hvort það táknaði að frið-
arviðræðurnar væru farnar út
um þúfur sagði hann það ekki
óeðlilega ályktun. Sir Anthony
Parsons, samningamaður Breta,
sagði við fréttamenn í dag, að
hann hefði komið „athugasemd-
um“ stjórnar sinnar við friðartil-
lögur Argentínumanna á fram-
færi en minntist ekkert á hvort
væntanlegar væru gagntillögur
frá Brétum eða frekari funda-
höld með aðalritara SÞ. Hjá
Sameinuðu þjóðunum eru menn
að verða úrkula vonar um að
friðsamleg lausn finnist í deil-
unni.
Leopoldo Galtieri, Argentínu-
forseti, átti í dag fund með helstu
ráðgjöfum sínum en að honum
loknum settist Jorge Anaya,
hershöfðingi, sem sæti á í herfor-
ingjastjórninni, á rökstóla með
yfirmönnum allra greina herafl-
ans í flotastöðinni í Puerto
Belgrano. Argentínsk blöð hafa
það eftir heimildarmönnum sín-
um innan hersins, að þar sé búist
við innrás Breta í Falklandseyjar
á hverri stundu.
Breski flotinn, a.m.k. 50 skip,
er nú tilbúinn til að láta til skar-
ar skríða við Falklandseyjar.
Flest voru skipin fyrir sunnan
eyjarnar en í dag fréttist, að þau
væru lögð af stað norður með
Falklandseyjaströndum. Um
borð í skipunum eru 4000 land-
gönguliðar en til varnar í landi
9000 argentínskir hermenn.
Begin stóð af
sér vantraust
Kvikmvndalcikkonan Sophia Loren á Rómarfíugvelli i dag með lögreglu-
mann til annarrar handar en systur sína, Maríu Sciocolone, til hinnar.
Sofna Loren í
30 daga fangelsi
Róraaborg, 19. maí. AP.
SOFFÍA LOREN sneri til ftalíu í dag eftir tveggja ára fjarveru, og var
henni ekið rakleiðis í fangelsi, þar
fyrir meint skattsvik.
Loren lýsti yfir sakleysi sínu við
blaðamenn við brottförina frá
Genf, og sagðist fara til Ítalíu að
heimsækja móður sína og fóstur-
jörð. Lögreglumenn tóku á móti
henni er hún gekk niður landgang-
inn á Leonardo da Vinci-flugvellin-
um og birtu henni dóminn og
fylgdu henni til lögreglustöðvar í
flugvallarbyggingunni.
Eftir 45 mínútna dvöl í lögreglu-
stöðinni var Loren ekið til Cas-
erta-fangelsisins í hvítri Alfa
Romeo bifreið. í bílnum voru tveir
óeinkennisklæddir lögregluþjónar
og systir hennar, María Scicolone.
Caserta-fangelsið er 33 kílómetra
frá heimaborg Soffíu, Napólí.
Loren var í góðu skapi er hún
kom í fangelsið, sem er tíu klefa
kvennafangelsi, að sögn fanga-
varða. Fangarnir fá að klæðast
sem hún afplánar 30 daga refsivist
eigin fötum, og var Loren klædd
grænni silkidragt er hún lokaði
sjálf klefadyrunum á eftir sér.
„Fangelsisdvölin leggst illa í
mig,“ sagði Loren við fréttamenn á
Rómarflugvelli. Hún sagðist vilja
koma „leiðindamistökum" út úr
heiminum með því að sitja inni.
Hún kvaðst saklaus af ákæru um
að hafa ekki talið fram jafnvirði
sjö þúsund dollara á skattskýrslu
sinni 1970, það hefðu verið mistök
skattasérfræðings hennar, sem nú
væri látinn.
Loren og eiginmaður hennar,
Carlo Ponti, hafa stundum átt í
útistöðum við ítölsku skattalög-
regluna, en fyrir skömmu hreins-
aði áfrýjunardómstóll Ponti af því
að hafa orðið sér út um ríkisstyrki
til kvikmyndagerðar með ólög-
mætum hætti.
Bezta bandió sem sprottið hefur á
sjónarsviðið síðustu ár.
Classiz Nouveaux hefur þegar feng-
ió mjög góðar undirtektir hérlendis
með lögin „Never Again“ og „Is It A
Dream“ sem hafa verið á tveim síð-
ustu litlu plötunum þeirra.
Bæði þessi seiðandi lög eru á nýju
plötunni þeirra „La Verité“ ásamt
„Because You’re Young“, „La
Verité“ og fleiri sérstæðum lögum.
Vafalítið hljómsveit sem á eftir að
lifa lengi og skapa góða tónlist í
framtíðinni. „
Suðurlandsbraut 8, sími 84670.
Laugavegi 24, sími 18670.
Austurveri, sími 33360.
Heildsöludreifing, sími 84670.