Morgunblaðið - 20.05.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö.
Einræði — lýðræði
Vinstri flokkarnir, sem farið hafa með meirihluta í borgar-
stjórn Reykjavíkur síðan 1978, hafa verið tvístígandi hver
gagnvart öðrum í kosningabaráttunni, sem nú er að ljúka. í
öðru orðinu láta þeir sem svo, að þeir gangi til kosninganna í
óvissu um vinstra framhaldið, og í hinu orðinu sverja þeir af
sér allt sundurlyndi og lýsa glundroðakenninguna dauða.
Þessi tvískinnungur er hafður í frammi til að blekkja kjósend-
ur. Vinstri flokkarnir vita sem er, að aðeins í moldviðri ná
þeir aftur meirihlutastólunum í borgarstjórninni.
Svik Alþýðubandalagsins í launamálum síðan 1978 eru öll-
um ljós. Hitt er ekki jafn ljóst öllum þorra manna, hve al-
þýðubandalagsmenn hafa verið iðnir við að svíkja mörg lof-
orð, sem ekki hafa verið eins áberandi. Nú segjast þeir ætla að
auka lýðræðið í stjórn borgarinnar og framsóknarmenn og
kratar taka undir þann söng. Hvers vegna leggja vinstri flokk-
arnir svo mikla áherslu á þetta tal sitt um lýðræði? Sá áróður
er sprottinn af sömu þörf og tilraunir Alþýðubandalagsins til
að slá sig til riddara sem málsvari launþega. Það er verið að
fela einræðislega stjórnarhætti í Reykjavík síðustu fjögur ár
— stjórnarhætti, sem hafa einkennst af pólitískum hrossa-
kaupum, stjórnarhætti, sem eru í hróplegu ósamræmi við þá
starfshætti sjálfstæðismanna að hafa víðtækt samband við
borgarbúa. Og nú í kosningabaráttunni hafa sjálfstæðismenn
náð beint til um 6000 kjósenda í Reykjavík með vinnustaða-
fundum sínum.
Þegar menn velta fyrir sér einræði og lýðræði, dugar ekki
einvörðungu að líta til þess, hvort kosningaréttur sé almenn-
ur. Einnig verður að gæta að því, hvort hinn almenni borgari
getur haft áhrif á stjórn eigin mála á öðrum dögum en kjör-
degi. í tíð vinstri stjórnar í Reykjavík hefur þessi réttur verið
stórlega skertur. Óþarft er að tíunda dæmi um það, þúsundum
Reykvíkinga nægir að líta í eigin barm. Málum hefur verið
ráðið til lykta á lokuðum samningafundum vinstri meirihlut-
ans eða þau hafa verið látin dankast vegna skorts á samkomu-
lagi. En hver hefur haft úrslitavaldið í hinum pólitíska sam-
tryggingarhópi vinstri manna? Að sjálfsögðu Alþýðubanda-
lagið, skipunarvaldið hefur verið í þess höndum.
Hróplegasta skrípamynd af lýðræðislegum stjórnarháttum
hafa vinstri flokkarnir svo dregið með yfirlýsingum sínum um
það, að lýðræði aukist við að þríflokkarnir ráði borgarstjóra í
vinnu hjá sér í stað þess að borgarbúar kjósi hann, eins og
sjálfstæðismenn vilja. Allir hljóta að samþykkja það, að
meira lýðræði felst í því að borgarbúar geti kosið stjórnendur
sína en þeir séu embættismenn í skjóli stjórnmálamanna. Með
því að hafa pólitískan borgarstjóra er lýðræðið tryggt, með
því að ráða borgarstjóra án beinnar ábyrgðar gagnvart borg-
arbúum er gengið á svig við lýðræðið. Þetta eru sv.o einfaldar
staðreyndir, að ekki ætti að þurfa að rifja þær upp, en er þó
nauðsynlegt til að benda á einn veikasta hlekkinn í áróðri
vinstri flokkanna nú og þann, sem þeir hampa mest.
Eitt er víst, lýðræðið eykst ekki við það, að vinstri flokkarn-
ir verði fjórir í meirihluta í Reykjavík. Þá verður mun nauð-
synlegra en áður að halda öllum málum leyndum, þar til
óhagganleg lokaákvörðun hefur verið tekin. Margt bendir til
þess, að Alþýðubandalagið óski þess nú heitast að verða öflug-
ast í fjögurra flokka vinstri meirihluta, því að þá gefist betra
tækifæri til að deila og drottna að hætti þeirra, sem meta
einræði meira en lýðræði.
Ovissa um úrslit
Um allt land búa menn sig undir að velja sér stjórnendur
eigin byggðarlaga á laugardaginn. Hvarvetna skipta úr-
slitin að sjálfsögðu miklu, athyglin beinist þó einkum að
Reykjavík. Þótt þar sé fjölmennið mest, getur oltið á örfáum
atkvæðum, hvort sjálfstæðismenn eða vinstri menn nái þar
meirihluta. Það verður óvissa um úrslitin allt þar til síðasta
atkvæðið hefur verið talið. Margir virðast enn óráðnir. Þeir
hafa um tvo sólarhringa til að gera upp hug sinn. — Vilja
menn lýðræðislega stjórn sjálfstæðismanna eða einræðislega
stjórnarhætti í vinstri glundroða? Valið ætti að vera einfalt,
því að kostirnir eru skýrir.
Alber‘ Sameinac
getum við ekki
Frá útifundi sjálfstæðismmnna. Fremat á myndinni er Magnús Kjartansson, tóniistarmaður. Síðan frá vinstri: Albert Guðmi
Birgir ísl. Gunnarsson, Katrín Fjeldsted og Ingibjörg Rafnar.
„SJÁLFSTÆÐISMENN, látum and-
stæðinga ekki trufla dómgreind
okkar. í þessum borgarstjórnarkosn-
ingum höfum við staðfest samstöðu
okkar í borgarmálum, eins og ávallt
áður. Gleymum ekki, að sundraðir get-
um við ekki sigrað, og að sameinaðir
getum við ekki tapað,“ sagði Albert
Guðmundsson, þriðji maður á lista
sjálfstæðismanna í Reykjavík á úti-
fundi þeirra í gær.
„Ef við rifjum upp kosningabar-
áttu vinstri flokkanna, kemur í ljós,
að allir sigurmöguleikar þeirra fól-
ust í þeirri veiku von, að þeim tæk-
ist að tvístra röðum okkar, en vegna
þess að það mistókst, hafa þeir tap-
að áttum. Því eru þeir nú ráðvilltir
— vegna samstöðu okkar. Þeirra trú
og von var, að innan okkar raða yrði
hörð samkeppni milli frambjóðenda
um forystuhlutverk í borgarstjórn-
arflokknum. Sú von brást — vegna
samstöðu okkar. Algjör eining ríkir
í okkar röðum," sagði Albert Guð-
mundsson og síðar:
„Þjóðviljinn, aðalmálgagn vinstri
meirihlutans, hrópar: „Við lömuð-
um Albert", og fagna vel. Ég segi
ykkur, góðir Reykvíkingar: Enginn
Lagið tekið undir forsöng Ragnars Bjarnasonar — Markús Örn Antonsson, Albert Guðmundsson, Birgir ísl.
Gunnarsson, Davíð Oddsson, Ingibjörg Rafnar, Hulda Valtýsdóttir og Katrín Fjeldsted.
Við erum í so
— sagði Geir Hallgrímsson á fulltrúaráðs
Hér fer á eftir kafli úr
ræðu Geirs Hallgrímssonar
á fulltrúaráðsfundi í gær:
Það er rökstudd von, að við
sjálfstæðismenn fáum meiri-
hluta, en til þess þurfum við að
vinna vel.
Ég vara við óhóflegri bjart-
sýni. Ég vara við skoðanakönn-
unum, sem spá okkur stórsigri.
Við höfum fyrr orðið fyrir
vonbrigðum af slíkum skoðana-
könnunum. Munum að skoðana-
könnun er ekki kosningar. Það
eina, sem gildir, eru atkvæðin
sem talin eru upp úr kjörköss-
unum. Gerum okkur Ijóst, að
enn er stór hluti kjósenda ekki
búinn að ákveða, hvern hann
kýs. Munum að í síðustu borgar-
stjórnarkosningum skiptu
nokkrir tugir atkvæða sköpum.
Það er því enn verk að vinna og
hver og einn er kallaður til
ábyrgðar.
Við göngum til þessara kosn-
inga undir glæsilegri forystu
ungs manns, Davíðs Oddssonar,