Morgunblaðið - 20.05.1982, Side 32
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982
BÆJAR- OG
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Kópavogur
í Kópavogi, sem í dag telur rétt um fjórtán þúsund íbúa, hefur umræðu um
skólamái borið hvað hæst á þessu kjörtímabiii og sýnist sitt hverjum um
framtíðarlausn þeirra mála. Ekki fer hjá því að skólamálin beri á góma í
kosningabaráttunni, en margt fleira er sett á oddinn svo sem gatnagerðar-
framkvæmdir, fjármál og fleira. Þá hefur frambjóðendum í Kópavogi orðið
tíðrætt um lagningu svonefnds Kópavogsræsis, ræsi úr Kópavogsdal út í sjó.
Þeir sem aka daglega yfir brúna í Kópavogsdal, að ekki sé talað um þá sem
búa í nágrenninu, geta áreiðanlega tekið undir yfirlýsingar um nauðsyn
þessarar framkvæmdar, en hún mun nokkuð kostnaðarsöm.
Að þessu sinni eru fjórir listar í boöi en í síðustu bæjarstjórnarkosningum
voru þeir sex. í bæjarstjórn sitja 11 fulltrúar, þrír frá tveimur listum Sjálf-
stæðisflokksins, einn af S-lista, tveir af D-lista. Þá tveir alþýðuflokksmenn,
tveir framsóknarmenn, þrír alþýðubandalagsmenn og einn af Borgarlistan-
um. Sjálfstæðismenn bjóða nú fram sameinaðan lista, en Borgaralistinn
býður ekki fram. Meirihlutann í dag mynda Alþýðubandalag, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur.
Flokkarnir fjórir efndu til sameiginlegs prófkjörs 6. mars sl. 2.604 tóku
þátt í prófkjörinu en á kjörskrá eru 8.927. 41% þátttakenda hlutaðist til um
niðurröðun lista Sjálfstæðisflokks, 23,04% Alþýðubandalags, 21,7% Fram-
sóknarflokks en Alþýðuflokks 14,25%. Ef niðurstöður prófkjörsins eru
marktækar hvað varðar fylgi flokkanna í komandi kosningum má búast við
nokkurri sveiflu hvað varðar niðurstöður þeirra. Samkvæmt niðurstöðu
prófkjörsins fengju sjálfstæðismenn 5 menn, Alþýðubandaiag 3, Framsókn 2
og Alþýðuflokkur 1.
í kosningunum á laugardag gefst Kópavogsbúum tækifæri á að segja sína
meiningu um hundahald í Kópavogi, hvort það skuli leyft eða bannað áfram.
Texti F.P. Ljósm. Emilía.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins:
Það er ekki réttlátt að Kópavogsbúar
greiði hærri skatta en Garðbæingar
Lækkum álögur niður í það sem
þær voru í okkar stjórnartíð
„I>að verður kosið um Sjálfstæðis-
flokkinn eða vinstri flokkana," sagði
Kirhard Björgvinsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins, er Mbl.
hitti fimm af sex efstu að máli í Kópa-
voginum nýverið til að forvitnast um
stöðu mála og hvað frambjóðendurnir
settu á oddinn. Ásthildur Pétursdótt-
ir, sem skipar þriðja sætið var stödd
erlendis þennan dag, en hún er les-
endum Mbl. vel kunn fyrir störf sín í
þágu aldraðra og var hún einmitt
stödd erlendis sem fararstjóri með
hóp aldraðra.
Richard sagði upphafsorðum sín-
um til skýringar, að vinstri menn í
Kópavogi hefðu lýst því yfir að þeir
hyKK* ó áframhaldandi samstarf
undir leiðsögn Alþýðubandalags.
„Atkvæði greidd vinstri flokkunum,
Alþýðuflokki og Framsóknarflokki
eru því til framdráttar fyrir Al-
þýðubandalagið." Richard sagði
einnig, að frá því að vinstri flokk-
arnir komust í meirihluta eftir síð-
ustu kosningar hefðu allar álögur á
bæjarbúa verið settar í hámark.
Sjálfstæðismenn hefðu á stefnu-
skrá sinni að lækka gjöldin niður í
það sem þau voru í þeirra stjórnar-
tíð og yrði það gert í áföngum á
þriggja ára tímabili. „Það er ekki
réttlátt," sagði hann, „að Kópa-
vogsbúar þurfi að greiða hærri
skatta en nágrannar þeirra í
Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar
sem sjálfstæðismenn ráða“.
Punktakerfið gegn
ungu fólki
Bragi Michaelsson skipar annað
sæti listans. Hann sagði að sjálf-
stæðismenn í Kópavogi hefðu alla
tíð lagt mikla áherslu á að ungt fólk
gæti byggt og búið í Kópavogi.
„Vinstri flokkarnir tóku upp svo-
nefnt punktakerfi við úthlutanir
lóða, eins og vinstri menn gerðu í
Reykjavík. Þetta hefur gert ungu
fólki svo til ógerlegt að fá úthlutað
lóðum Við leggjum áherslu á að
hraðað verði úthlutunum í nýjum
hverfum sunnan og vestan Engi-
hjalla og þar verði tekið sérstakt
tillit til ungs fólks.“
Bragi sagði einnig að lítið hefði
miðað síðasta kjörtímabil hvað
varðar framhaldsskólanám í bæn-
um. Sjálfstæðismenn legðu áherslu
á að komið yrði á fót samræmdum
framhaldsskóla sem aukið gæti
námsmöguleika innan bæjarins.
„Bæjarstjórnin hefur nýverið sam-
þykkt að efna til slíks skólahalds á
komandi hausti. En húsnæðismál
slíks skóla er eitt brýnasta verkefni
sem leysa þarf strax að afstöðnum
kosningum."
Eill þekktasla einkaframlak einslaklinga og félagasamtaka á síðustu árum
er eflaust bygging heimilis fyrir aldraða í Kópavogi, sem verið er að fullgera
þessa dagana. Kagnhildur Guðbrandsdótlir þáverandi elzti íbúi Kópavogs
lók fyrstu skóflustunguna á kjörtímabilinu. Var þessi mynd þá tekin.
Kimm af sex efstu frambjóðendum Sjálfsta'ðisflokksins. Talið frá vinstri: Jóhanna Thorsteinsson, Guðni Slefánsson,
Kichard Björgvinsson, Arnór Pálsson og Bragi Michaelsson.
Holan til vitnis
um framkvæmdaleysið
Guðni Stefánsson skipar fjórða
sætið. Hann kvað stöðnun hafa orð-
ið í öllu atvinnulífi bæjarins. Lóða-
úthlutanir til atvinnurekstrar á
kjörtímabilinu mætti telja á fingr-
um annarrar handar. Þá hefði upp-
bygging miðbæjarsvæðisins, sem
lögð hefði verið mikil rækt við á
árunum 1974 til 1978 alveg stöðvast.
„Meirihlutinn lét grafa eina stóra
holu á svæðinu á fyrsta ári kjör-
tímabilsins og síðan hefur ekkert
gerst. Holan stendur enn til vitnis
um framkvæmdaleysi þeirra,“ sagði
hann.
Ljúkum varanlegri
gatnagerð
í fimmta sæti er Arnór Pálsson.
Arnór kvað gatnagerðarfram-
kvæmdir eða réttara sagt fram-
kvæmdaleysi vera sér efst í huga.
„Við stefnum að því að lokið verði
varanlegum frágangi núverandi
gatnakerfis á næstu fjórum til
fimm árum. Þá er orðið bráðnauð-
synlegt að leggja holræsið í Kópa-
vogsdal. Með því opnast leið til nýt-
ingar Suðurhlíðar í Fífuhvamms-
landi, en það er eitt fallegasta
byggingarland á höfuðborgarsvæð-
inu í dag.“
Nánast ekkert verið
gert í skólamálum
Jóhanna Thorsteinsson skipar
sjötta sætið. Hún sagði að af mörgu
yrði að taka á næsta kjörtímabili.
Nánast ekkert hefði verið gert í
skólamálum á kjörtímabilinu, en
brýnt væri að hraða uppbyggingu
Snælandsskóla og Digranesskóla.
Þá hefði orðið stöðnun í dagvistar-
og leikskólamálum. „Á árunum
1974 til 1978 tvöfölduðum við dag-
vistarpláss í bænum, en á þessu
kjörtímabili hefur eingöngu verið
lokið við eina viðbyggingu með 17
plássum."
Fimmmenningarnir voru bjart-
sýnir á úrslit kosninganna. Þau
sögðu úrslit prófkjörsins gefa til-
efni til að ætla að þau næðu fimmta
manni inn. „En til þess að svo megi
verða þarf allt sjálfstæðisfólk að
leggja sitt af mörkum og vinna vel
á kjördag," sögðu þau að lokum.
0