Morgunblaðið - 20.05.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982
41
Frambjóðendur
Sjálfstæðis-
flokksins
á Akureyri
fram. Loforð um malbikun gatna
og gangstétta hafa heldur ekki
verið haldin. En það eru ekki að-
eins loforð af þessu tagi, sem ekki
hefur verið staðið við; bæði Al-
þýðubandalagið og Alþýðuflokk-
urinn höfðu eins og kunnugt er að
vígorðum fyrir síðustu kosningar
„Samningana í gildi“ og „Kosn-
ingar eru kjarabarátta". Allir vita
hvernig við þetta hefur verið stað-
ið, og launþegar eru alveg reiðu-
búnir til að taka Alþýðubandalag-
ið á orðinu og gera kosningarnar
að kjarabaráttu. Eða hvernig
gengur mönnum nú að láta ný-
krónurnar hrökkva fyrir hvoru
tveggja, daglegum nauðþurftum
og hæstu beinu sköttum í sögu
þjóðarinnar."
IJrbætur í atvinnumálum
efstar á blaði
— Hver eru helstu baráttumál
sjálfstæðismanna?
„Efst á blaði okkar eru úrbætur
í atvinnumálum, í anda þeirrar
stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur markað, bæði á landsvísu og
heima í héraði. í þessu sambandi
viljum við efla framkvæmdasjóð
Akureyrar, gera hlutverk atvinnu-
málanefndar stærra og uppbygg-
ing og stofnun verkmenntaskóla
er að sjálfsögðu ekki lfitill þáttur í
viðleitni okkar til úrbóta í at-
vinnumálum.
Við leggjum líka höfuðáherzlu á
að nýta orkuna í fallvötnum og
jarðvarma með skynsamlegum
hætti. Við fögnum því ákvörðun
um Blönduvirkjun, og viljum gera
það sem við getum til þess að kom-
ið verði upp orkufrekum nýiðnaði
á Eyjafjarðarvæðinu. Að því til-
skyldu að sjálfsögðu að fullkom-
inna mengunarvarna og náttúru-
verndar verði gætt.“
Óskaverkefni
„Af einstökum framkvæmdum
sem ýmist eru á vegum bæjarins
eins eða bæjar og ríkis, nefni ég
sem óskaverkefni uppbyggingu
fjórðungssjúkrahússins, verk-
menntaskólans, svæðisíþrótta-
hússins, lyftumannvirkja í Hlíð-
arfjalli, brú yfir Glerá og nýja
sundlaug í Glerárhverfi.
í húsnæðismálum viljum við af
fullum krafti framfylgja þeirri
grundvallarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins að hverri fjölskyldu
verði gert kleift að byggja og búa í
eigin húsnæði. Til þess viljum við
að byggingarlánakerfið láti í té
80% af kaupverði með lánstíma
sem ekki sé skemmri en 40 ár. Það
er kappsmál okkar að alltaf sé til
nóg af lóðum og byggingarsvæði
fyrir verktaka. Að tillögu bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins var
gjaldskrá byggingargjalda á Ak-
ureyri breytt fyrir skemmstu, og
fengust á henni verulegar lagfær-
ingar, sem meðal annars auðvelda
iðnfyrirtækjum og annarri at-
vinnustarfsemi að tryggja sér
nægjanlegt framtíðarrými þar
sem nú má greiða byggingargjöld
af hverjum framkvæmdaáfanga
fyrir sig. Við teljum að efla þurfi
Byggingarlánasjóð Akureyrar
með árlegum framlögum úr bæj-
arsjóði og einnig að framlag til
húsfriðunarsjóðs verði hærra en
verið hefur, því við viljum gjarna
varðveita gömul og sögufræg hús
sem setja sinn sérstaka svip á bæ-
inn og gæða þau nýju lífi en láta
þau ekki verða að dauðum safn-
gripum.
Bæjarkerfíð opnara
„Við viljum gera það sem í
okkar valdi stendur til þess að
glæða lifandi og fjölbreytilegt
menningar- og listalíf með því að
búa sem best í haginn fyrir slíka
starfsemi en við vörum við þeirri
hugmynd sem fram hefur komið,
að reisa af opinberri hálfu eitt
báknið enn til þess að stýra allri
þessari starfsemi að ofan. Við vilj-
um gera bæjarkerfið opnara til
þess að gera öllum almenningi
auðveldara að fylgjast með því
sem er að gerast á vegum bæjar-
ins. Slíkt er forsenda nauðsynlegs
aðhalds almenningsálitsins og við
viljum gera það sem í okkar valdi
stendur til þess að létta af fólki
þeim ofurþunga beinna skatta sem
lagður hefur verið á, þannig að
mönnum er nú hreinlega refsað
fyrir dugnað, afburði og heiðar-
leika."
— Ertu bjarsýnn á úrslit kosn-
inganna?
„Af viðræðum okkar við fólk og
undirtektum við stefnu okkar og
málefnayfirlýsingu þá teljum við
okkur mega vera bjartsýn. Nú
biðjum við kjósendur að gefa
okkur tækifæri til þess að láta
stefnu okkar og störf njóta sín í
framkvæmd; tækifæri til þess að
mynda nýjan meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar. Ef við misnot-
um það umboð sem við kunnum
þannig að fá, þá er lýðræðisskipu-
lagi okkar svo fyrir að þakka, að
það er þá hægt að refsa okkur með
fylgistapi eftir á, ef við stöndum
ekki við þá stefnu sem við höfum
boðað og viljum fylgja," sagði
Gísli Jónsson.
Sumarhús í
SVISS.Oö
41 Sll Ifllll
í beinu leiguflugi 11-20 júni, 10 dagar
Verð frá kr.
2.920
miðað við flug og gengi 18. janúar 1982.
Sumarhús frá kr. 4.970
Innifaiið í verði hópferðar: Flug, rútuferðir,
gisting, 1/2 fæði í Austurríki, akstur til og frá
flugvelli erlendis, lestarferðir, skoðunarferðir
til Innsbruck og Lichtenstein, íslensk farar-
stjóm.
Það verður seint flogið á fallegri slóðir en til
svissnesku og austurrísku Alpanna. 11. júni
efnum við til 10 daga ferðar til Sviss og bjóðum
m.a. hópferð með dvöl í sumarhúsum í Sviss og
Austurríki. Sjálfsagt er einnig að hafa í huga
það upplagða tækifæri sem leiguflugið býður
á ódýrri sjálfstæðri ferð um mið-Evrópu, t.d.
með bílaleigubíl eða járnbrautarlestum. í hóp-
ferðinni er gist í eina nótt í Zurich en að öðru
leyti er dvölinni skipt bróðurlega á milli sumar-
húsanna í Altenmarkt í Austurríki og
Wildhaus í Sviss. Farið verður í fjölda
skoðunarferða um hið gullfallega umhverfi
þeirra, borgir verða heimsóttar, Rínar-foss-
arnir skoðaðir og farið í fjallakláfum upp í
svissnesku Alpana. i
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
í tengslum við leiguflugið 11. júni efnum við
við einnig til ferðar þar sem einungis er dvalist
í sumarhúsunum í Wildhaus, örskammt frá
bænum Buchs á landmærum Sviss og smá-
ríkisins Lichtenstein.