Morgunblaðið - 20.05.1982, Side 38
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ1982
Hugmynd h/f og Saga Film h/f vinna nú
að gerð kvikmyndarinnar Trúnaðarmál,
sem verður tekin í Reykjavík á næstu
vikum. í því sambandi leitum við til almenn-
ings með eftirfarandi:
1. ÞÁTTTAKENDUR í HÓPATRIÐI: Allt að 300
manns 20 ára og eldri, sem gesti á tónleika, veg-
farendur og fl. Hér er um að ræða eins dags þátt-
töku í senn. Þeir sem hafa áhuga komi til
skráningar fimmtudaginn 20. maí milli kl. 14 og
18 að Suðurlandsbraut 10, bakhús.
2. ÍBÚÐIR: 2-3 rúmgóðar eldri íbúðir með 20 - 25 ára
gömlu innbúi til að kvikmynda einstök atriði í.
Hér er um að ræða 1 dag eða hluta úr degi.
3. LEDCMUNI: Vönduð borðstofuhúsgögn frá ca.
1940 (sporöskjulagað borð, 8 stólar og skápar),
ljósakrónur frá 1940 (loftljós og veggljós), sófa-
sett gólfteppi og annað innbú frá þessum árum.
Þeir sem telja sig geta veitt okkur aðstoð vinsam-
legast hringið í síma 84045 milli kl. 9-17 alla virka
daga.
Með fyrirfram þökk
GMYND
SAGA FILM
Minning:
ÓlöfJónsdóttir
frá Alftárósum
Fædd 14. nóvember 1892
Dáin 2. apríl 1982
Ólöf Jónsdóttir var fædd að
Hofsstöðum í Álftaneshreppi,
Mýrasýslu, og voru foreldrar
hennar Sesselja Jónsdóttir og Jón
Samúelsson, bóndi þar, — víðkunn
sæmdarhjón. Nám stundaði Ólöf í
Kvennaskóla Reykjavíkur. Ólöf
giftist Sigurjóni Erlendssyni
bónda á Álftarósi 14. september
1923, og skipaði þar húsfreyjusess
þar til hún í hárri elli fluttist í
vistheimili aldraðra í Borgarnesi.
Leið henni þar vel, en seinustu
vikur ævi hennar voru erfiðar, þar
sem heilsu hennar fór þá síhrak-
andi, en andlega hress hafði hún
verið allan dvalartíma sinn þar til
þessi breyting varð á. Hún fékk
hægt andlát. Lík hennar var jarð-
sett í grafreit þeirra hjóna í Borg-
arneskirkjugarði. Þau hjónin voru
af aldamótakynslóðinni og varð-
veittu alla tíð sem sína dýrmæt-
ustu fjársjóði hugsjónir þeirra
tíma. Þegar Sigurjón var jarð-
sunginn frá Borgarneskirkju var
þar bláhvíti fáninn, en meginþorri
landsmanna ól þær vonir um, að
hann yrði framtíðarfáni landsins.
Séra Leó Júlíusson flutti útfarar-
ræðuna og kvað það vera í fyrsta
sinn, sem kista hjúpuð bláhvíta
fánanum væri borin í Borgarnes-
kirkju, og minntist með hlýlegum
viðurkenningarorðum tryggðar
hins látna við þær göfugu hug-
sjónir, sem hann hafði alið með
sér frá unglingsárum, ræktarsem-
ina við það, sem hann vissi fegurst
og bezt. Hygg ég að engum við-
staddra hafi dulist sá bjarmi, sem
var yfir orðum prófastsins. Mér
finnst rétt að geta þess, að fáninn,
sem breiddur var yfir kistu hins
látna, var upphaflega eign tengda-
föður hans, Jóns bónda á Hofs-
stöðum og tíðum blakti á stöng á
báti hans á Mýramiðum, en báðir
unnu þeir fánanum, Jón og Sigur-
jón — og sjónum.
Fyrstu kynni mín af Ólöfu get
ég rakið til bernskuára minna. Ég
man enn glöggt hve glaður var sá
ungmeyjahópur, sem varði frí-
míútunum milli kennslustund-
anna í Kvennaskólaportinu, eins
og það ávallt var kallað. Skemmtu
þær sér við leik og tóku þá stund-
um lagið, og þá stundum í minn-
ingunni er sem ég heyri enn óminn
af söng þeirra. Kvennaskólaportið
var milli húss foreldra minna og
húss Páls Melsteðs sagnfræðings
og Þóru konu hans. Bjuggu þau í
húsinu uppi, en kennslustofur
voru niðri. Frú Þóra var sem
kunnugt er, stofnandi og forstöðu-
kona skólans. Þau hjónin voru
aldavinir foreldra minna. Er mér
minnisstætt hve oft þær sátu og
röbbuðu saman, einkum að sumar-
lagi við glugga í borðstofunni,
gegnt Austurvelli, en Páll ræddi
þá við föður minn, í skrifstofu
hans uppi, „kóntórnum" eins og
skrifstofur þá voru kallaðar. Þær
voru skólasystur í Kvennaskólan-
um Ólöf og Þórunn systir mín,
sem enn er á lífi nær níræð, og
fluttist hún til Danmerkur með
eiginmanni sínum. Aldrei kom ég
svo að Álftárósi að Ólöf minntist
ekki á Þórunni, spurði um líðan
hennar eða bæði fyrir kveðju, en
ég hafði að sjálfsögðu haft bréfa-
samband við systur mínar. Góðar
eru þær minningar sem endast
ævilangt og skiptir þá engu um
neinar fjarlægðir. Skylt er að
minnast órofa tryggðar vinarþels.
Það atvikaðist þá þannig, að
bernskuminningar mínar um þessi
kynni frá bernskuárunum urðu
undanfari nánari tengsla milli
heimilis míns og Álftáróssheimil-
isins. Þau tengsl urðu því traust-
ari sem lengur leið og mikilvæg-
ari, því að það var ekki fyrr en á
námsárum okkar á Hvanneyri
1912—14, sem við Sigurjón kynnt-
umst og urðum tryggðavinir. Eftir
það kynntist ég Alftáróssheimil-
unum betur; og einkum eftir að
Ólöf skipaði þar húsfreyjusess.
Fór ég þangað um helgar, er ég
gat því við komið, en ungir synir
mínir áttu þar sína bernsku að
sumarlagi, eins og nánar verður
getið. I þessum helgarheimsókn-
um, sem ég svo nefndi, voru
sumarfrí á nútíma vísu óþekkt, ég
fékk alloft tveggja til þriggja daga
leyfi og stundum ekki nema blá-
helgina en í þessum ferðum hafði
ég æ nánari kynni af þessu ágæta
sveitaheimili, hinum miklu
mannkostum Ólafar, tryggð henn-
ar og takmarkalausri fórnarlund.
Um það vil ég nefna eitt dæmi,
sem sýnir hve heilsteypt hún var,
og hjartahlý og raungóð. Hún tók
að sér unga einstæðingsstúlku,
vangefna, tók hana inn á heimili
sitt og reyndist henni sem bezta
móðir, og þegar Ólöf fluttist á
vistheimilið í Borgarnesi tók hún
hana með sér þangað. Undi hún
sér þar hið bezta í návist þeirrar
konu, sem hafði gengið henni í
móðurstað fyrrum. Þessi einstæð-
ingur er nú látin. Einstæðings-
stúlkan, sem frá upphafi setti allt
sitt traust á Ólöfu, var henni
ávallt hjálpleg á Álftárósi, eins og
takmörkuð geta hennar leyfði.
Hún átti þar vinsemd allra og var
allra vinur, manna og dýra. Hún
var í sannleika góð manneskja.
Við þurfum ekki að fere langt til að óska
íslandsmeisturunum í vaxtarrækt til ham-
ingju. Þau eru bæði leiðbeinendur
hjá LÍKAMSRÆKTINNI.
Ef þú átt þér leynda drauma eöa óskir gagn-
vart því aö bæta eigin líkama, þá snúöu þér
til okkar. Hjá okkur ert þú í öruggum hönd-
um.
íslandsmeistararnir í vaxtarrækt, þau Hrafn-
hildur Valbjörnsdóttir og Guðmundur Sigurðs-
son, leiðbeina og veita persónulegar ráölegg-
ingar í vaxtar- og líkamsrækt.
Hinir reyndu leiðbeinendur, Gústaf Agnarsson
og Finnur Karlsson, eru einnig til staöar og
gefa alla þá ráðgjöf sem þeim er unnt í sam-
bandi við líkamsþjálfun, megrun, mataræði
o.fl.
Ef þú hefur áhuga á:
Aö þjálfa þig í vaxtarrækt,
aö stunda líkamsrækt eöa losa þig viö offitu,
aö búa þig undir aörar íþróttir,
aö styrkja þig,
aö losna viö cellulite (staöbundin fita),
þá snúöu þér hiklaust til okkar.
Læknir staðarins er reiðubúinn með ráölegg-
ingar þegar þörf er á. Sérhannaðir matseölar
fylgja megrunar- og cellulite-kúrnum.
Sérprentaöar uppl. varðandi meöferö á cellu-
lite og offitu.
Æfingaaðstaða eins og hún gerist best.
Vatnsnudd — Gufuböð — Solarium-samlokur
Allt þetta er innifaliö í mánaöargjaldinu.
Opiö fyrir bæöi kynin mánud. til föstud. frá kl.
07.00 til kl. 21.30.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00 til
14.30.