Morgunblaðið - 12.06.1982, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ1982
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1982
25
Lukkutákn
HM-keppninnar
• Meðal þeirra grafískra merkja, er einkenna skipulags-
nefnd HM á Spáni, eru skjöldur, lukkutákn, staðarmerki
og veggspjald. Skjöldurinn er aöaltákn sjálfrar skipu-
lagsnefndar HM og er öllum öðrum aðilum óheimil notk-
un hans. Hér er um aö ræöa skjaldarmerki með
spænsku fánalitunum. í míðjunni er hvítur og grænn
bolti meö korti af Spáni og ártalinu ’82. Fyrir ofan bolt-
ann er orðið Espana (Spánn). Efst konungleg kóróna.
Samkeppni fór fram vegna vals á lukkutákni HM 1982.
Fyrir valinu varð „Naranjito“; appelsína klædd knatt-
spyrnubúningi með fótbolta undir öörum handleggnum.
Höfundar eru tveir teiknarar frá auglýsingateiknistof-
unni „Bellido". Einnig var kynntur á sama tíma „Billy“,
lukkutákn FIFA. Staðarmerkiö sýnir fótbolta og
spænska fánann. Joan Miró var falin gerð veggspjalds-
ins. Listamaðurinn gaf því nafniö „La Fiesta“. Auk
veggspjalds Miró voru 14 önnur hönnuö af frægum lista-
mönnum, innlendum og erlendum.
• Enda þótt fjárfestingar vegna HM 1982 séu geysiháar,
eru tölur um fyrirhugaöar tekjur einnig með mörgum
núllum. Ætla má, samkvæmt þessum tölum, að hagnaö-
ur verði mjög mikill. í reglugerö FIFA varðandi HM 1982
er m.a. fjallað um fjárhagsáætlun fyrir undanriöla
keppninnar og sjálfa lokakeppnina, þar sem tekjur
vegna lokakeppninnar eru sérstaklega skilgreindar:
miöasala, sala sölu- og verslunarréttinda, sala á rétti til
útsendinga í hljóðvarpi og sjónvarpi, sala á rétti til aug-
lýsinga, kvikmyndir o.s.frv.
• Alþjóðafyrirtækiö „West Nally“ keypti sölu- og versl-
unarréttindi fyrir upphæö er nemur 30 milljónum svissn-
eskra franka og einnig keypti sama fyrirtæki réttindi
vegna vissra tegunda auglýsinga fyrir upphæöina 36
milljónir svissneskra franka. Erlendar sjónvarpsstöövar
munu greiöa 39 milljónir svissneskra franka fyrir heimild
til útsendinga í hljóðvarpi og sjónvarpi.
• Útgjöld skipulagsnefndar eru m.a. opinberir skattar,
leiga á leikvöngum, ferðakostnaður leikmanna, dvalar-
kostnaður leikmanna, feröa- og dvalarkostnaður og laun
dómara og fulltrúa frá FIFA, skipulagskostnaöur nefnd-
arinnar, tryggingarkostnaður, aöstaða fyrir fjölmiðla o.fl.
o.fl.
• Ef um ágóða veröur að ræða veröur honum skipt
þannig: 10% til FIFA, 25% til skipulagsnefndar, 65% til
þátttökuliöa í lokakeppninni.
• Aðrar tekjur er bæta upp skipulagskostnaö eru þær
sem koma frá sérstökum happdrættum og aörar vegna
söluleyfa, er skipulagsnefnd veitir, er styrkja málefni og
starfsemi hennar. Hér er t.d. átt við Mundiespana ’82, er
hefur einkaleyfi á sölu aðgöngumiða ( öörum löndum.
Dregið verður í síðasta happdrættinu vegna HM þann 19.
júní í Barcelona.
• Mundiespana ’82 býður upp á 3 tegundir „feröa-
pakka“, þar sem innifalið er húsnæði og hálft fæöi, flutn-
ingur frá flugvelli að hóteli, flutningur frá hóteli að leik-
vangi, innanlandsflug milli keppnisstaða, feröatrygging
og aðgöngumiðar á 15, 9 eöa 6 leiki.
• Gefin hafa verið út sérstök frímerki og slegin mynt í
tilefni heimsmeistarakeppninnar. Frímerkin voru gefin
út í 2 útgáfum dagana 23. janúar 1980 og 2. janúar 1981.
Verðmæti myntarinnar er 100, 50, 25, 5,1 og 0,5 pesetar.
• Setningarathöfn heimsmeistarakeppninnar fer fram á
leikvangi knattspyrnufélagsins Barcelona. Hámark
hennar verður myndun friöardúfu Pablo Picasso með
þátttöku yfir 2.000 manna. Sleppt veröur 10.000 blöörum
og 5.000 dúfum.
«:r
• -IMVOI
DANONFI
• Þann 11. júlí verður úrslitaleikurinn í heimameistarakeppninni í knattspyrnu. Leikurinn fer
fram á hinum stórglæsilega velli Real Madrid, Bernabeau. Eins og sjá má á myndinni hér að
ofan er leikvangurinn engin smásmíöi. Hann tekur 130 þúsund áhorfendur. Og fyrir löngu er
uppselt á úrslitaleikinn. A litlu myndunum tveimur sem felldar eru inn í stóru myndina má
sjá að oft er þröngt setinn bekkurinn á vellinum, jafnframt að allar leiöir eru farnar til að
komast inn sé uppselt. Ómögulegt er um það að spá hvaða þjóöir það verða sem etja kappi
saman á vellinum 11. júlí. En eitt er víst. Enginn einn kappleikur, eöa íþróttaviðburöur á
árinu mun fá jafnmikla athygli. Gert er ráö fyrir því aö 2.000 milljónir manna um allan heim
muni fylgjast með leiknum í beinni sjónvarpsútsendingu. Augu alheimsins munu því hvíla á
Bernabeau-leikvanginum 11. júlí.
Flestir veðja á Brasilíu, Argentínu, V-Þýskaland eða
Spán en svar fæst ekki fyrr en 11. júlí næstkomandi
11. JÚLÍ fer úrslitaleikurinn í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu fram á Santiago
Bernebao-leikvanginum í
Madrid, heimavelli hins
fræga Real Madrid. Leikvang-
urinn rúmar 125.000 manns
og er fyrir löngu uppselt á
e Piarre Littbarski, hinn aldfljóti
og markheppni útherji þýeka
landsliðsins. Þessi tvítugi Kölnari
er eitt af leynivopnum V-Þýska-
lands.
leikinn. Miðarnir seldust eins
og heitar lummur, þrátt fyrir
að ekki er vitað hvaða lið
munu leiða saman hesta sína.
En það þýðir ekki að menn
reyni ekki að leiða að því get-
ur. Fjórar þjóðir eru mjög al-
mennt taldar sigurstrangleg-
astar, á því er ekkert launung-
armál. Það eru Brasilíumenn,
sem eru efstir á blaði flestra
veðmangara, heimsmeistar-
arnir frá Argentínu, Vestur-
Þjóðverjar sem hafa aðeins
tapað einum landsleik á síð-
ustu tæpum 40, og heimaliðið
Spánn. Spánverjar eru einung-
is í þessum hóp vegna þeirrar
hefðar sem skapast hefur að
heimalið sé sigurstranglegt,
enda hefur það gerst æ oftar
að heimaliðin hafa nýtt sér
þann liðsauka sem fellst í því
að leika á heimavelli.
Brasilíumenn eru sem sé sigur-
stranglegastir, en þó er lið þeirra
tæplega fullmótað að því er þeir
sjálfir telja. Vörnin er pottþétt
með bakvörðinn frábæra, Junior,
í broddi fylkingar og af miðlín-
unni geislar allt það besta í
knattspyrnu. Þar ræður Zico ríkj-
um og þykir mörgum hann gefa
Maradona lítið eftir. Framlínan
er hins vegar höfuðverkurinn.
Þar hefur landsliðsþjálfarinn
reynt hina og þessa og í síðasta
upphitunarleik liðsins þótti loks
sem vel hefði tekist til, er liðið
burstaði írskt úrvalslið 8—0.
Ekki vildu þó allir reisa skýja-
borgir eftir sigurinn og bentu
réttilega á að írska liðið var skip-
að hálf-atvinnumönnum úr írsku
deildunum og lék hrikalega illa.
Hvað sem öllum vangaveltum líð-
ur eiga Brasilíumenn eftir að ylja
áhorfendum hvort sem þeir
standa undir nafninu „sigur-
stranglegasta liðið" eða ekki,
knattleikni þeirra og sókndirfska
hefur ætíð verið slík.
Meistararnir sjálfir'hljóta auð-
vitað að vera í flokki þeirra sigur-
stranglegustu. Byrjunarlið þeirra
skipa meira en helmingur þeirra
leikmanna sem tryggðu þjóðinni
HM-titilinn í Argentínu 1978.
Nefna má nöfn eins og Osvaldo
Ardiles, Daniel Passarella, Mario
Kempes og Daniel Bertoni. Við
hafa bæst tvær frábærar stjöpn-
ur, Diego Maradona og Ramon
Diaz. Rétt fyrir helgina var
reyndar óvíst hvort Maradona
gæti leikið fyrsta leik keppninar,
opnunarleikinn gegn Belgíu.
Hann hefur átt við meiðsl í læri
að stríða og var ekki búinn að ná
fulium bata í gær. Þó voru taldar
jafnar líkur á því að hann gæti
leikið. Ef ekki, mun piltur að
nafni Hernandes taka stöðu hans.
Með öll þessi frægu nöfn innan-
borðs má bóka að Argentínu-
menn verða í einu af efstu sætun-
um og allt eins gæti farið svo að
þjóðin verji titilinn.
Vestur-Þjóðverjar eru í hópn-
um af gömlum vana. Vestur-
þýska knattspyrnan hefur nú um
margra ára skeið þótt einhver sú
besta í heimi og fá landslið eiga
möguleika gegn fullskipuðu
landsliði Þjóðverja. Það er alveg
sama hvar á liðið er litið, í öllum
stöðum standa frábærir úrvals-
leikmenn, snjallir og sjálfsörugg-
ir. Þjóðverjarnir blanda gæfulega
saman leikni, tækni og hörku og
harkan gæti gert útslagið. Nokkr-
ir af frægustu knattspyrnu-
mönnum veraldar eru í þýska lið-
inu, Breitner, Rumenigge, Schu-
macher og fleiri og fleiri. Það
kæmi því á óvart ef Þjóðverjar
næðu ekki verðlaunasæti.
Spánverjar eru óskrifað blað.
Spænsk knattspyrna er hátt
skrifuð, en gengi landsliðsins hef-
ur ævinlega verið upp og ofan.
Hafa sveiflurnar oft verið með
ólíkindum. Enda er tilvist liðsins
á fjögurra-liða lista þessum ein-
• Bernabeau-leikvangurinn séður að utan. Hann var meira og minna endurbyggður og endurnýj-
aður fyrir HM-keppnina. Og í þær framkvæmdir var varið 90 milljónum ísl-króna. Leikvangurinn
þykir vera einn sá glæsilegasti í heimi.
ESPANA 82
ungis vegna þess að leikið er á
Spáni. Spánverjar eiga frábæra
knattspyrnumenn, en yfirleitt
hafa lið þeirra náð illa saman
sem ein heild, yfirleitt hafa 11
leiknir og snjallir verið að bauka
hver í sínu skoti. Nú er hins vegar
pressa á liðinu að standa sig og
má búast við því að annað hvort
takist óheyrilega vel til, eða
óheyrilega illa. Nái spænska liðið
góðri byrjun er það til alls líklegt
í keppninni. Hiksti liðið hins veg-
ar á fyrstu bitunum er eins lík-
legt að liðið hrynji saman, því
spænskir áhorfendur eru harðir
húsbændur og líki þeim ekki það
sem lið þeirra er að gera, fer það
ekkert á milli mála.
Auðvitað gæti farið svo að ein-
hver þjóð önnur en umræddar
fjórar hreppi titilinn, eða verð-
launasæti. Er þá rætt um Eng-
land, Frakkland, Júgóslavíu, Sov-
étríkin og mörg fleiri. Þetta skýr-
ist allt og beðið er með óþreyju
eftir opinberunardeginum.
'■?!
Tölvurnar spá
Brasilíu sigri
Zico og Socrates skora sigurmörkin
Tölvufyrirtæki nokkurt í Sao
Paulo í Brasilíu lét tölvur sínar spá
fyrir úrslitum á HM. Starfsfólkið
mataði tölvurnar með öllum hugs-
anlegum og tiltækum atriðum og
eftir að hafa melt gumsið kom úr-
skurðurinn.
BrasUía mun vinna titilinn.
Liðið sigrar Vestur-Þýskaland
3—1 eftir framlengdan leik. Eft-
ir 90 mínútur verður staðan
1—1, en í framlengingunni munu
þeir Zico og Socrates skora og
tryggja Brasilíu sigurinn. I
keppni um þriðja sætið mun
Spánn sigra Argentínu 3—2.
Tölvur þessar unnu það sér til
frægðar á síðasta knattspyrnu-
tímabili í Brasilíu, að spá rétti-
lega að Flamengo og Gremio
myndu leika til úrslita um bras-
ilíska titilinn.
Þá spáðu tölvurnar um hvaða
lið myndu komast í 2. umferð.
Þær verða samkvæmt spánni: ít-
alía, Pólland, Vestur-Þýskaland,
Chile, Ungverjaland, Argentína,
Tékkoslóvakía, Frakkland, Júgó-
slavía, Spánn, Brasilía og Skot-
land.
• Landsliö Brasilfu taliö mjög sigurstranglegt í
keppninni.
Péle:
„Brasilíska liðið
það besta síðan 1970“
ALLIR kannast við Pele, líklega
besti knattspyrnumaður allra tima.
Hann verður á HM á Spáni, en þó
ekki sem leikmaður. Hann mun
vera þar á vegum mexikanskrar
sjónvarpsstöðvar og lýsa leikjum.
Pele sló í gegn, 17 ára gamall, á
HM 1958, skoraöi þá tvö mörk i
5-2 sigri Brasilíumanna gegn Sví-
um í úrslitaleiknum. Á tveimur
næstu HM-keppnum varð hann
fyrir barðinu á grófum varnar-
mönnum sem gengu svo frá hon-
um að brasilíska liðið gat ekki not-
ið krafta hans. En 1970 var annað
uppi á teningnum, Pele leiddi
Brasilíumenn til sigurs og skoraði
eitt mark í 4-1 sigri liðsins í úrslit-
unum gegn ítölum. Hvað segir
Pele um HM nú, danska mánað-
arritið Alt om sport rabbaði við
hann og spurði fyrst: Hverjir verða
heimsmeistarar nú? Brasilíu-
menn?
—Það er hugsanlegt, okkar lið
er nijög gott um þessar mundir,
kannski besta lið sem komið hef-
ur frá Brasilíu síðan 1970. Ann-
ars tel ég fjögur lið vera sigur-
stranglegust og sigurinn gæti
hafnað hjá hverju þeirra sem er.
Það eru Brasilía, Argentína,
Vestur-Þýskaland og Spánn.
Spán nefni ég vegna þess að leik-
ið er á Spáni.
En hvaða 12 þjóðir komast i 2.
umferð?
— ítalia, Pólland, Vestur-
Þýskaland, Chile, Argentína,
Belgía, England, Tékkoslóvakía,
Spánn, Júgóslavía, Brasilía og
Skotland. Þó vil ég ekki ekki
þvertaka fyrir að Ungverja'r
komist áfram á kostnað Belga og
Sovétríkin á kostnað Skotlands.
Það er mín skoðun, að af þeim
liðum sem sigurstranglegust
teljast, hafi Vestur-Þjóðverjar
verið langsamlega heppnastir
með riðil, þeir eiga léttustu leik-
ina.
Nú reyna sig þarna 528 knatt-
spyrnumenn. Hver telur þú að
muni bera af?
—Brasilíumennirnir Falcao og
Zico, Diego Maradona og Vest-
ur-Þjóðverjinn Bernd Schuster,
svo fremi sem hann nær sér
fyllilega eftir hin slæmu meiðsli
sem hafa hrjáð hann.