Morgunblaðið - 12.06.1982, Side 15

Morgunblaðið - 12.06.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1982 15 Kristinn Guðbrandsson í Björgun — Kristinn Guöbrandsson í „Björgun" verður sextugur á morgun. Hann er fæddur í Rakna- dal við Patreksfjörð 13. júní 1922. Um tvítugsaldur fluttist hann til Reykjavíkur og hefur starfað hér síðan. Árið 1950 stofnar hann fyrirtækið „Björgun" hf., gerðist þá framkvæmdastjóri þess og hef- ur verið það frá þeim degi. Kristinn hafði ekki dvalið hér lengi, þegar nafn hans var orðið vel þekkt hér í borg og jafnvel um allt land, fyrir framúrskarandi dugnað og lagni hans við að bjarga strönduðum skipum og bátum víðs vegar meðfram ströndum landsins. Oft gerðist það að Kristni og mönnum hans tókst að ná út skipi, sem aðrir, sextugur eftir ítrekaðar tilraunir, töldu vonlaust að bjarga. Ekki hef ég tölu á þessum björgunum á reið- um höndum, en þeir sem best þekkja til, álíta þær vart undir 40. En þótt Kristni tækist björgun- arstarfsemin vel, varð honum fljótt ljóst að björgun strandaðra skipa gat aldrei orðið atvinnuveg- ur, sem dyggði til lífsframfæris (Guði sé lof). Því varð það hann réðist í að kaupa sanddæluskip frá Þýskalandi. Þetta mun hafa skeð fyrir um það bil 25 árum síðan. Hér hafði þá um nokkurt skeið verið starfandi danskt sanddælu- skip við dýpkun á höfnum o.fl. Það var því orðið ljóst að nokkurt verkefni væri fyrir slíkt eða slík skip, jafnvel árið um kring. Fyrir- tæki Kristins mun nú hafa yfir að ráða þremur slíkum skipum, sem öll virðast hafa næg verkefni að vinna. Ber þar hæst dýpkanir og uppfyllingar á vegum Reykjavík- urhafnar. Kristinn hefur nú komið sér upp ágætri aðstöðu við Ártúnshöfða, með tilheyrandi vinnuvélum, til greininga á sjávarsandi og möl. En áhugamál Kristins ná langt út fyrir sand og möl. Hann hefur um áratuga skeið sýnt fiskrækt- armálum mikinn áhuga. Hann og félagar hans hafa í mörg ár rekið tilraunastöðvar með fiskeldi í Hveragerði eða nágrenni og á landareign hans, Tungulæk við Skaftá. Þá hafa hann og félagar hans nú nýlega stofnað til félags- skapar við Norðmenn norður í Kelduhverfi. Það mun vera fyrsta laxeldisstöð hér á landi, þar sem laxinn er alinn upp, þar til hann er hæfur til átu, en gengur aldrei til hafs. Fyrir á að giska þremur áratug- um síðan, byggði Kristinn fjöl- skyldu sinni myndarlegt sumar- hús í landareign sinni, Tungulæk í hraunjaðrinum vestan Skaftár. Þegar sæmilegt vatnsrennsli er í Skaftá, myndar lækurinn litla tæra rennu í kolmórauðu jökul- vatninu, niður með árbakkanum. Þar í vatnamótunum er oft dágóð veiðivon, stór sjóbirtingur úti í Skaftá og smábleikja uppi í lækn- um. í fjölda ára höfum við, örfáir félagar Kristins, átt ánægjulegar stundir þar fyrir austan, í upphafi og við lok hins löglega veiðitíma. Fyrir þessar stundir og margar fleiri á öllum þessum árum, viljum við félagarnir þakka Kristni, um leið og við óskum honum til ham- ingju með áratugina sex. Einnig flyt ég kveðju og árnaðaróskir okkar allra til frú Gyðu, en hún biður mig að segja frá því að þau hjónin munu með ánægju taka á móti afmælisgestum milli kl. 4 og 6 í dag, laugardaginn 12. júní. S.F. Páfí til Póllands? Varsjá, Póllandi, 10. júní. AP. JOZEF Glemp erkibiskup til- kynnti í dag 50.000 pílagrímum að Pólverjar byggjust við Jóhannesi Páli páfa II. í opinbera heimsókn til Póllands 26. ágúst nú í sumar þrátt fyrir ríkjandi herlög í land- inu. Glemp sagði þetta ósk allrar þjóðar sinnar og tók fram að landar hans ættu að geta tekið á móti páfa með friði og spekt. „Enginn ætti að óttast boðskap páfa, þar sem hann boðar trú og kærleika" sagði hann að lokum og beindi orðum sínum augljós- lega til yfirvalda. Kirkjuleiðtogar og stjórnvöld hafa hafið umræður um hugsan- lega komu páfa og kirkjuyfir- völd endurnýjuðu heimboð sitt til páfa sl. þriðjudag. Páfi kom síðast í opinbera heimsókn til heimalands síns 1979, aðeins tæpu ári eftir að hann var kjör- inn í október 1978. Rétt er að taka fram að verðiið þarf ekki að vera ná- kvæmt þar eð aðeins var um skyndikönnun að ræða. Engu að síður ætti það að gefa vís- bendingu um verðið í grófum dráttum. Bestu pillurnar eru þær þrjár efstu sem sýndar eru í töflunni. Innihalda þær öll helstu víta- mín, þ.á m. fólasín (fólinsýru) og auk þess steinefnin járn, kopar og zink í nokkurn veginn hæfi- legum hlutföllum. Tegundir sem reyndust lak- ari að gæðum voru m.a. Geri- komplex, Bisks Overplus, Livol Universal, Anduvite, Pharmaco Grænar, Toro, ABSDin og Bioc- ical (Dr. Schieffen). Eftir þennan samanburð er nú síður mælt með Sanasol vegna þess hve sú blanda inni- heldur fá bætiefni og alls ekki minierallán eða járnkraft, en þessar tvær blöndur eru frá sama fyrirtæki. I öllum þeim fimm tegund- um sem mælt er með er bæði A og D-vítamín. Er þá óþarfi að taka lýsi eða lýsispillur. Ef bætiefnapillur eru ekki notað- ar verða börn og unglingar að taka lýsi. Bætiefnatöflur Tejfund Fram- leióandi Veró Innih. Pharmaco, brún ar Pharmoaco hf. 0,94 V.S Livol, super Dansk Droge AS 0,43 V+S Vita-mineral Dumex 0,44 V+S Multitabs Ferrosan 0,53 V.S Maxivit Lanes 1,34 V+S V: vítamín S: Htrinefni (járn, zink, kopar) Aldrei höfum viö boóið eins glæsilegt úrval og núna af notuðum Mazda bílum í 1. flokks ástandi og með 6 mánaóa ábyrgð. Nú þurfid þió ekki lengur ad vera sérfræóingar i því aó velja og kaupa notaðan bíl, því að þið athugið útlit bílsins, ástand hjólbarða og annars sem sést og við ábyrgjumst það sem ekki sést. Athugið sérstaklega að veró notaðra bíla hefur lækkað eins og nýrra. Komió því á sýninguna í dag og tryggið ykkur úrvals Mazda bíl fyrir sumarió, meóan lága verðið helst. BÍLABORG HF Smiöshöföa 23, sími 81299. I SÖLUSÝNING á notuóum ÍH3ZD3 bílum laugardag frá kl.10-4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.