Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 1
72 SIÐUR STOFNAÐ 1913 28. tbl. 71. árg. FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Svenn Stray utanríkisráðherra Noregs: Rekum hugsanlega fleiri Sovétmenn af landi brott Osló. 2. febrúar. Krá Per Borglund, fréttaritara Mbl. Norska ríkisstjórnin ákvað einróma í gær, að hætta við fyrirhugaða ferð þingmanna til Sovétríkjanna, sem fara átti fyrir vorið. Ekki höfðu dagar verið ákveðnir. Er ákvörðunin liður í viðbrögðum Norðmanna við uppljóstr- aðri njósnastarfsemi KGB í Noregi með hinn norska Arne Treholt í broddi fylkingar. Aður höfðu Norðmenn vísað fimm sendiráðsstarfsmönnum úr landi og meinað fjórum öðrum diplómötum að koma til landsins. Svenn Stray, utanríkisráðherra Noregs, sagði í gær, að ekki mætti útiloka að fleiri Rússar yrðu rekn- ir úr landi, ef rannsókn á atferli þeirra gæfi tilefni til. Engin við- brögð hafa komið fram í Moskvu vegna aðgerða Norðmanna, en sovéski sendiherran í Osló sendi frá sér klausu. Inntakið í henni Uppreisnarmenn í Chad: Segjast hafa fellt 4 Frakka París, 2. febrúar. AP. HAIT VAR eftir fréttum frá hinni npinberu líbisku fréttastofu Jana í gær, að uppreisnarmenn í ('had hafi drepið fjóra franska hermenn í miklum bar- daga stjórnarhersins og Frakka annars vegar, uppreisnarmanna hins vegar. Orrustan fór fram nærri Tokou í aust- urhluta landsins. Auk þess að hafa veg- ið Frakkana hefur Jana eftir leiðtogum uppreisnarmannanna, að þeir hafi fellt 354 stjórnarhermenn og sært hundruð til viðbótar. Ekki gátu uppreisnarmenn þess hvenær bardaginn fór fram og óljóst er hvort að um sömu orrustu var að ræða og stjórnarhermenn greindu frá nærri Monou fyrr í vikunni. Þar sögðust þeir hafa „þurrkað út“ 300-manna herdeild. Segjast upp- reisnarmenn að auki hafa eyðilagt 11 brynvarðar vígvélar og fimm jeppa búna smáfallbyssum. Frönsk stjórnvöld neita því að hafa tekið beinan þátt í átökum að undanförnu og þvertaka fyrir að fjórir franskir hermenn hafi fallið. var að ásakanir Norðmanna væru rakalausar og norska leyniþjón- ustan stæði á bak við þær. Væri markmiðið að rífa niður vináttu- bönd þjóðanna og spilla sambúð- inni. „Sovétríkin áskilja sér nú rétt til að vísa norskum diplómöt- um frá Sovétríkjunum," sagði einn- ig í tilkynningunni. Norðmenn bú- ast ekki við viðbrögðum ráða- manna í Kreml fyrr en í fyrsta lagi á mánudaginn. Dagfinn Stenseth, sendiherra Noregs í Sov- étríkjunum, hefur verið í Osló síð- ustu dagana til skrafs og ráða- gerða. Hann fer aftur utan á sunnudaginn. Danska vikublaðið Se og Hör greindi frá því í síðasta hefti sínu, að líklega hefði Sovétmaður að nafni Evgenji Beljajev verið mað- urinn sem náði tökum á Treholt þegar árið 1968. Beljajev þessi er KGB-maður sem starfaði við sendiráð Rússa í Osló frá 1967 til 1971. Hefur blaðið það eftir Brit Grön, fyrri konu Treholts. Hún segir í viðtali við blaðið að Treholt hafi marghitt umræddan Beljajev árið 1968. „Rússinn var afar vina- legur við Arne og var sífellt fær- andi honum gjafir, vodka og styrjuhrogn. Þeir hittust einnig oft á laun," segir frú Grön, sem nú býr á Spáni. Beljajev er einn diplómatanna fjögurra sem aldrei mega stíga fæti framar á norska grund. Vandamál EBE rædd Símamynd AP. Francois Mitterrand Frakklandsforseti og Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands hittust í Edenkoben i Vestur-Þýskalandi í gær. Áttu þeir fund þar sem þeir ræddu um leiðir til að rétta við fjárhag Efnahagsbandalags Evrópu. Að sögn fréttaskýrenda sagði Kohl í fundarlok að Mitterrand hefði borið fram athyglisverðar tillögur, en þær voru ekki tíundaðar nánar. A meðfylgjandi mynd svala þeir Mitterrand, nær, og Kohl, fjær, þorstanum. Bréfi Walesa til Jaruzelski svarað: Ný rógsherferð komin á fulla ferð Varajá, 2. febrúar. AP. PÓLSKA herstjórnin svaraði opinberlega einkabréfi sem Lech Walesa, Nób- elsverðlaunahafi og verkalýðsleiðtogi ritaði Jaruzelski hershöfðingja 29. des- ember síðastliðinn. Er í hæsta máta óvenjulegt að yfirvöld bregðist þannig við, en tækifærið var notað til að gera enn eina árásina á persónu Walesa. í bréfi sínu kvartaði Walesa yfir því að yfirvöld hefðu með „undir- lægjuhætti" reynt að eyðileggja mannorð sitt og áhrif. Mótmælti hann því að þurfa að sitja undir kerfisþundnu níði löggæslustofn- ana landsins auk hinna ríkisreknu fjölmiðla. Svar stjórnarinnar, sem undir- ritað var af Zdzlislaw Jurek, yfir- manni í kvartanadeild stjórn- valda, var 4000 orð að lengd og birtist í dagblaðinu Dzennik Balt- yski, og var að auki dreift af hinni opinberu fréttastofu PAP. Þar var farið hörðum orðum um Walesa og sagt að bréfið væri einn vottur- inn enn um hroka hans. í svar- pistlinum var Walesa sakaður um að hafa „mikla tilhneigingu til að setja sig á stall lögum ofar“ og að „gera sig stóran og merkilegan í augum vestrænna fréttamanna." I bréfinu kom auk þess fram, að ástæðan fyrir því að hirt væri um að svara bréfi Walesa væri, að hann hefði laumað frumritinu til vestrænna fréttamanna, en sent Svenn Stray Suður-Afríka: Nýtt njósna- hneyksli í burðarliðnum Hbfbaborg, Subur Afríku. 2. febrúar. AP. MAGNUS Malan, varnarmálaráóherra Suður-Afríku, skók þingheim í heima- landi sínu í gær. Ilann sat fyrir svörum á þinginu og þingmenn spurðu ákaft um hvernig það hefði átt sér stað, að Ilieter Gerhardt sem handtekinn var fyrir njósnir í þágu Sovétríkjanna og dæmdur til lífstíðar fangelsis fyrir mánuði síðan, gat stundað þá iðju sína í 20 ár án þess að upp kæmist. Malan tilkynnti þá að annar foringi úr hern- um sæti nú í prísund grunaður um njósnir. Malan lét ekki uppi hver hinn nýi grunaði njósnari væri og um fátt er meira rætt í Suður-Afríku nú, en hver huldunjósnarinn muni vera. Dagblaðið Citizen, sem er hliðhollt stjórnvöldum nafngreindi heldur ekki manninn, en sagði hann lágt settan foringja úr leyniþjónustu hersins. Sagði blaðið tvo óbreytta borgara einnig vera undir smásjá yfirvalda í sama máli, en það væri óskylt máli Gerhardts. Walesa stjórnvöldum afrit. Þessu hefur Walesa harðneitað og fréttamenn AP í Varsjá fengu heimsókn stjórnarerindreka í síðustu viku. Reyndi hann að selja þeim frum- ritið af bréfi Walesa. Fárlegir bardagar í Beirút Bcirút, 2. fcbrúar. AP. HÖKKUBARDAGAR geisuðu í Beirút, höfuðborg Líbanon, og ná- grenni hennar í gær. Annars vegar héldu drúsar í fjöllunum umhverfis borgina og stjórnarherinn uppi linnulausri fallbys.su- og eldflauga- skothríð hvorir á aðra. Hins vegar gerðu shitar áhlaup á mikilvægar stöðvar stjórnarhersins. Shitarnir hröktu herinn á flótta, en í gær- kvöldi hófst gagnsókn stjórnar- hcrsins og náði hann svæðinu aftur á sitt vald. Tölur lágu ekki fyrir um mannfall að öðru leyti en því að það var mikið. Sókn shitanna var fyrsta áhlaupið í borgarastríðinu í heil- an mánuð. Var aðgerðin djarfleg, en undanfari hennar var mikil sprengjuhríð. Aðilar sökuðu hvor annan um að hafa átt upptökin. Fallbyssuskothríð drúsa og hersins var geysileg og féllu margar sprengjukúlur drúsa í íbúðarhverfum kristinna manna. Þar voru flestir íbúar heilu hverfanna ofan í kjöllurum með mat og vistir í allan gærdag og langt fram á kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.