Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 19 Sigurður Sigurjónsson, Bjarni Steingrímsson og Bríet Héðinsdóttir í hlut- verkura sínum i einþáttungi Brechts „Vopn frú Carrar“. Baldvin Halldórsson leikstýrði. „Dags hríðar spor“, nýstárlegt verk eftir Valgarð Egilsson lækni. Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Júlíus Brjánsson í hlutverkum sínum. Leikstjóri var Brynja Benediktsdóttir. Fyrsta verk sem sett var upp á Litla sviðinu var „Liðin tíð“ eftir Harold Pinter. Erlingur Gíslason, Kristbjörg Kjeld og Þóra Friðriksdóttir í hlutverk- um sínum. Stefán Baldursson leikstýrði. skipti á sýningu á Litla sviðinu. En það er vonandi að sú nýjung að bjóða handhöfum áskriftarkorta að Stóra sviðinu 20% afslátt af aðgangsmiðum að Litla sviðinu, breyti þessu. Af reynslunni höfum við lært að hafa aðeins eitt leikrit í gangi í einu. Það sem við sýnum nú er „Lokaæfing", verk sem Svava Jak- obsdóttir hefur skrifað sérstak- lega fyrir þetta svið. Það hefur fengið svo góðar viðtökur og mikla aðsókn að við urðum að hætta við að taka upp sýningar á „Súkkulaði handa Silju" eftir Nínu Björk Árnadóttur og fresta auk þess frumsýningu á nýju verki sem átti að koma hér upp í byrjun febrúar. En nú förum við að hætta með „Lokaæfingu" og bendi ég leikhús- áhugafólki á að láta þessa sýningu ekki fram hjá sér fara." Stórkostlegur tími — Hvernig hefur þú svo kunnað við þig í kjallaranum, Þorlákur? „Eg hef starfað við Þjóðleikhús- ið frá því það hóf starfsemi sína fyrir tæpum 34 árum og verð að segja, að á þeim tíu árum sem ég hef starfað hér niðri hef ég kynnst starfsfólki hússins mun betur en á 24 árum uppi. Þetta hefur verið stórkostlegur tími sem ég hefði ekki fyrir nokkurn mun viljað fara á mis við og vil í tilefni afmælisins þakka starfsfólkinu fyrir sam- starfið og þá ekki síst Sveini Ein- arssyni, fyrrum Þjóðleikhússtjóra, fyrir hans framlag til Litla sviðs- ins. Starfið er mjög fjölbreytt, ég er eini fastráðni starfsmaður kjallarans og hef því verið svona allt í öllu. A hverjum degi bíður eitthvað nýtt og hef ég ævinlega hlakkað til að mæta í vinnuna." — Hvers óskar þú Litla sviðinu í framtíðinni? Það er nú fyrst og fremst von- andi að ekki verði langt í að þessu bráðabirgðaástandi Ijúki og við komumst á nýtt leiksvið. Annað sem hefur verið draumur minn lengi er að varðveita merkar upp- setningar á filmu og láta fagmenn um upptökuna. Þegar eytt hefur verið tima og fé í uppsetningar finnst mér það ekki vera stórt skref að taka, sérstaklega þegar tekið er mið að því mikilvægi sem þessar upptökur gætu haft seinna fyrir menningarsögu okkar. Sum- ar uppsetningar verða ekki endur- teknar og leikarar eldast eins og annað fólk.“ aö Austurstræti 7. Opið öiium á afgreiöslutíma bankans. v - ’ - 1 '*■ i Simir siálfvirkninnar Einkarádoiafi ritarans Með Silver Reed EX 55 hefur sjálfvirknin verið kórónuð á skrif- stofunni. Hraðari prentun, villulaus og áferðarfalleg verður leikur einn með • sjálfvirku línuminni • sjálfvirkri leiðréttingu á tveimur línum í fullri lengd • sjálfvirkri endurprentun á leiðréttum línum • sjálfvirkri línufœrslu____________________________________________ • sjálfvirkri undirslrikun og síritun______________ • sjálfvirkum miðjuleitara og • sjálfvirkum dálkastilli Yfirburðimir eru síðan undirstrikaðir með hljóðlátri prentun, mörgum tegundum leturhjóla og hönnun sem hæfir nútímalegustu skrifstofum. KRIFSTOFU Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Pósthólf 377

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.