Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 5 Þrátt fyrir grósku í atvinnulífi á Patreksfirði: íbúum þarf að fjölga um 200—500 manns - ef bæjarfélagið á að geta staðið undir fjárfestingu undanfarinna ára, segir stjórnarmaður í Vatneyri hf. „ÞEGAR vió leituðum til banka- kerfisins um fyrirgreiðslu til upp- byggingar fiskvinnsluhússins, fengum við dræmar undirtektir, það verður að segjast. Það var vís- að á þennan venjulega áróður um að Patreksfjörður gæti ekki einu sinni borið eitt frystihús, hvað þá tvö,“ sagði Bolli Ólafsson, for- stöðumaður heilsugæslustöðvar- innar og stjórnarmaður í Vatneyri hf. á Patreksfirði, í samtali við blaðamann Mbl. Vatneyri hf. vinn- ur nú að endurbótum á frystihúsi því er félagið keypti af Byggðasjóði síðla sl. hausts. „Á þessu þarf að verða veruleg breyting, því á Patreksfirði hef- ur á undanförnum árum verið byggt upp eins og hér væri 1200—1500 manna byggð," sagði Bolli. „Hér hefur t.d. verið reist heilsugæslustöð, félagsheimili og fleira. íbúar á staðnum eru innan við eitt þúsund, svo við þurfum að fjölga um 200—500 manns, ef bæjarfélagið á að geta borið sína fjárfestingu." Á Patreksfirði eru nú uppi áform um byggingu verbúða fyrir 50—60 manns og liggja teikningar hússins þegar fyrir. Það eru allir fiskverkendur, bæj- arfélagið og ýmsir atvinnurek- endur aðrir á staðnum, sem ræða málið'sín á milli og hafa í hyggju að byggja verbúðirnar í sameiningu. „Það eru allir sam- mála um að eina leiðin til að ná okkur upp úr lægðinni, sem við höfum verið í, sé að byggja á aðkomufólki,“ sagði Bolli Olafs- son. Með því að byggja myndar- legar verbúðir hér getum við átt von á að hingað komi fólk til vinnu og reynsla fyrri ára hefur kennt okkur, að alltaf ílendist eitthvað af því fólki. Þessa dag- ana er verið að athuga með fjár- mögnun þessa fyrirtækis." Að vissu leyti er nú gróska í atvinnulífi á Patreksfirði. At- vinnuleysi er þar ekkert sem stendur, bátar eru á sjó og fiska vel og eftir um það bil mánuð má búast við að nýja hlutafélagið, Vatneyri hf., hefji fiskvinnslu í gamla frystihúsinu, sem jafnan er kallaö Skjaldarhúsið. Tíu út- lendingar, frá Nýja-Sjálandi og Suður-Afríku, eru í vinnu hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar. Hlutafélagið Vatneyri var stofnað sl. haust til að kaupa Skjaldarhúsið af Byggðasjóði, sem hafði leyst það til sín á upp- boði. Bolli Ólafsson sagði í sam- tali við blaðamann Mbl., að væntanlega yrði hægt að hefja vinnslu í húsinu, með 1015 starfsmönnum, undir eða um næstu mánaðamót. „Bátar hér hafa fiskað vel að undanförnu og ég á von á að við förum að beita fyrir þá fjóra 15—20 tonna báta, sem við verðum með í viðskipt- um, upp úr miðjum mánuðin- um,“ sagði Bolli. Hann kvað mikla vinnu hafa farið í endurbætur á frystihús- inu undanfarnar vikur. „Frysti- klefi verður ekki til strax en við höfum góðar kæligeymslur á meðan og leigjum okkur frysti- gáma ef á þarf að halda. Nú velt- um við því fyrir okkur hvort við kaupum loðnuhrognaskilju, sem kæmi að góðum notum á næstu 3—4 vikum, þegar búist er við að loðnan gangi á okkar slóðir. Fiskimjölsverksmiðjan hér hef- ur mikla afkastagetu og ef hún nýtir loðnuna en við frystum einhverja tugi tonna af hrognum þá lítur þetta mjög vel út.“ Bolli sagði að til þessa hefði félagið notað innborgað hlutafé til að standa straum af kostnaði við endurbætur á húsinu og kaup á vélum, hins vegar hefði banka- kerfið tekið dræmt í óskir um aðstoð, eins og áður sagði. Hjá Hraðfrystihúsi Patreks- fjarðar er nóg vinna, raunar svo mikil að flytja hefur orðið inn útlendan vinnukraft, að því er fram kom í samtali blm. við Jens Valdimarsson, stjórnarformann HP. „Það er allt á fleygiferð. Ég segi ekki að allt sé í blóma en fólk fær sín laun og bátarnir fiska vel — enda er fiskur for- senda fyrir öllu lífi hér á staðn- um, eins og hefur sannast ræki- lega á undanförnum mánuðum. En nú er þetta allt á réttri leið hjá okkur,“ sagði Jens. Jón G. Bene- diktsson, Vogum, látinn Jón Gestur Benediktsson fyrrv. framkvæmdastjóri í Vogum lést í Landakotsspítala aðfaranótt 1. febrú- ar. Jón fæddist í Suðurkoti í Vogum 23. maí 1904, sonur hjónanna Benedikts Péturssonar og Sigríðar Brynjólfsdótt- ur. Hann vann við landbúnað og sjó- sókn til 1925. Þá tók hann að sér akstur og flutninga milli Voga og Reykjavíkur fyrir Bifreiðafélag Vatnsleysustrandar og stundaði það starf um þriggja ára skeið. Ár- in 1928 til '42 rak hann eigin útgerð og saltfiskverkun. Jón var einn stofnenda Útgerðarfélags Vatns- leysustrandar 1930 og sat í stjórn þess til 1934 og var framkvæmda- stjóri félagsins 1932 til ’34. Hann stofnaði ásamt öðrum Voga hf., sem rekur útgerð og alhliða fiskverkun, sat í stjórn félagsins og var fram- kvæmdastjóri þess frá stofnun 1942 ti! ársloka 1977- Jón G. Benedikts- son átti sæti í hreppsnefnd Vatná- leysustrandarhrepps 1938 til ’74 og var oddviti hreppsins í 16 ár frá árinu 1938. Hann var auk þess í stjórnum ýmissa félagasamtaka innan hreppsins. Árin 1957 til ’73 sat hann Fiskiþing og var lengi trúnaðarmaður Fiskifélags Islands. í stjórn Skipaafgreiðslu Suðurnesja var hann frá stofnun 1963 til '78. Jón gegndi ýmsum trúnaðarstörf- um fyrir Sjálfstæðisflokkinn um áratuga skeið, og var nú síðustu ár- in umboðsmaður Morgunblaðsins í Vogum. Jón G. Benediktsson lætur eftir sig eiginkonu, Helgu Þorvaldsdótt- ur, og þrjú börn, tvö þeirra frá fyrra hjónabandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.