Morgunblaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 167. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Duarte leitar eftir auknum stuðningi WashÍD^ton, 23. júlí. AP. JOSE Napoleon Duarte forseti E1 Salvador sagði við upphaf viðræðna við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta að stjórnvöld í Nicaragua miðluðu andstæðingum stjórnar sinnar ennþá vopnum og öðrum hergögnum, og vísaði á bug fregnum um hið gagnstæða. Duarte ræddi við Reagan í hálfa klukkustund, og reyndi að afla frekari stuðnings við E1 Salvador. Hélt hann síðan á vit þingmanna á Capitol Hill í þeirri von að fá þá til að samþykkja auknar fjárveit- ingar til E1 Salvador. Var honum heitið áframhaldandi stuðningi i Hvíta húsinu í barfttunni við skæruliða. Lýsti hann 3ig ánægð- an með undirtektir þingmanna, og Jim Wright leiðtogi meirihluta fulltrúadeildarinnar sagði eftir fund þriggja áhrifaríkra þing- manna með Duarte að ótækt væri Metverð dollars London, 23. júlf. AP. Bandaríkjadollar stórhækkaöi í verði gagnvart evrópskum gjald- miðlum í fjörugum viðskiptum á gjaldeyrismörkuðum og setti ný met gagnvart þýzka markinu, ít- ölsku lírunni, franska frankanum og hollenzka gyllininu. Gullverð snarlækkaði í fyrstu en sótti aðeins í sig veðrið er á daginn leið. Lækkaði únsan um 4,50 dollara í 336,25 dollara í London miðað við föstudag. Lækkunin stafaði bæði af gull- sölu bandarískra spákaupmanna og styrkri stöðu dollars. Dollar hækkaði vegna frétta um meiri aukningu þjóðarfram- leiðslu í Bandarikjunum á öðrum ársfjórðungi en spáð haföi verið, eða 7,5% í stað 5,7%. Tilkynningin varð aðeins til að styrkja stöðu dollars enn frekar eftir miklar hækkanir að undan- förnu vegna vaxtahækkana í Bandaríkjunum. Um tíma var gengi dollars hærra en nokkru sinni fyrr gagn- vart svissneska frankanum en lækkaði er á daginn leið. Brezka pundið var verðminna í dag en á föstudag gagnvart dollar, og veruleg verðlækkun varð á brezk- um verðbréfamarkaði. Norska krónan lækkaði einnig gagnvart dollar. að „láta plöntu skrælna og deyja af því hana skorti vatn". Duarte skýrði Reagan frá ferð sinni til fimm Evrópuríkja, en hann kvaðst hafa boðið evrópsk- um utanríkisráðherrum til fundar Mið-Ameríkuríkja í september, og þangað þýddi ekki að koma tóm- hentur. t ferð sinni til Bretlands, Belgíu, Frakklands, Portúgal og V-Þýska- lands reyndi Duarte að vinna fylgi við málstað stjórnar sinnar og kvaðst hann ánægður með undir- tektir. I ferðinni aflétti stjórnin í Bonn fimm ára banni við aðstoð við E1 Salvador og ákvað að veita stjórn Duartes 18 milljóna dollara efnahagsaðstoð. AP/Símamynd Lögreglumenn reyna að stía í sundur tveim mönnum sem laust saman á kosningafundi Shimon Peres í Sefad í norðurhluta Israel. Annar þeirra hafði gert gys að Peres á fundinum er stuðningsmenn hans reyndu að þagga niðrí þeim háværa. Kosningaspár í ísrael á kosninganótt: Óafgerandi úrslit og erfið stjómarmyndun Tel Arhr, 23. júli. AP. W' Síðustu kosningaspár ísraelska sjónvarpsins áður en Morgunblaðið fór í prentun spáðu því að Verkamannaflokkurinn og Likud-bandalagið hlytu jafnmörg þingsæti, eða 45 hvor flokkur. Um tíma var Verka- mannaflokknum spáð 47 sætum en Likud 42. Spáð var óafgerandi úrslitum og að stjórnarmyndun kynni að reynast örðug. Talsmenn stóru flokkanna sögðu útilokað að ráða í stöðuna miðað við síðustu spár. Lengi vel spáði sjónvarpið Verkamannaflokknum 47 þing- sætum af 120 en Likud-bandalag- inu 42. 1 fyrri könnun sjónvarps- ins var bilið minna, eða 46 sæti gegn 43. Náði könnunin til 30 þús- und kjósenda á 35 kjörstöðum. Reynist spárnar réttar yrði út- koman áfall fyrir hinn öfgafulla þjóðernisflokk Tehiya, sem vill innlima Vesturbakkann. Einnig fyrir Ezer Weizmann fyrrum varnarmálaráðherra og flokk hans, Yahad. Tehiya var spáð þremur sætum miðað við sjö að undanförnu og Yahad tveimur, en Weisman kvaðst óánægður ef hann fengi ekki fjögur þingsæti. Þeim flokkum tveimur, sem lögðust gegn innrásinni í Líbanon, Shinui og Borgararéttarhreyfing- unni, var spáð tvöfaldri fylgis- aukningu, fjórum sætum og þrem- ur. Trúarlegum flokkum var spáð 14 þingsætum og munu þeir ráða miklu um myndun ríkisstjórnar. Fyrstu tölur bárust frá land- búnaðarhéruðum, úr innan við 8% kjördeilda af 4.857. Hlaut Verka- mannaflokkurin 53,3% atkvæða miðað við 16,6% atkvæða Likud. Verkamannaflokkurinn hefur jafnan verið sterkur í landbúnað- arhéruðunum. Mikill fögnuður var í herbúðum Likud er niðurstöður kannana á kjörstöðum lágu fyrir þar sem bandalaginu hafði verið spáð verri útkomu. Moshe Arens var van- trúaður á að Verkamannaflokkur- inn gæti myndað stjórn og áleit að það yrði hlutskipti Likud að mynda stjórn. í herbúðum Verka- mannaflokksins sagði Moshe Shahal að þingskipan yrði „ómög- uleg“ og hvorugur stóru flokkanna væri líklegur til að geta myndað trausta stjórn. Fyrstu fangarnir í Póllandi fá frelsi Beint í mark AP/Símamynd. Bretar gerðu tilraun með nýtt flugskeyti um helgina sem ætlað er að keppa við Exocct-flugskeyti Frakka, en með slíku skeyti var bresku skipi grandað í Falklandseyjastríðinu. Á annarri myndinni sést Harrier-þota sleppa skeytinu en á hinni má sjá að flugskeytið hefur „ratað í mark“. Skipið er HMS Devonshire, 22 ára herskip sem lagt hafði verið. Liggur það nú á hafsbotni í Atlantshafi austanverðu. BríisNel, 23. júlí. AP. PAP-fréttastofan skýrði frá því í kvöld að 82 pólitískum föngum hefði verið sleppt úr fangelsi í dag, en það eru fyrstu fangarnir af 652, sem stjórnvöld hafa ákveðið að náða. Utanríkisráð- herrar ríkja Evrópubandalagsins fögnuðu í dag ákvörðun pólsku herstjórnarinnar að náða póli- tíska fanga og létu í Ijós vonir um að stjórnin kæmi frekar til móts við óskir pólsku þjóðarinn- ar um viðræður og úrbætur. Ráðherrarnir sögðust einnig vona að fleiri ákvarðanir af þessu tagi fylgi í kjölfarið, til þess að auðvelda mætti þjóðarsátt í Pól- landi. í yfirlýsingu sinni minntust ráðherrarnir ekki á efnahagslegar refsiaðgerðir eða hvort þeim verði aflétt gagnvart Póllandi vegna náðunarinnar. Pólska þingið samþykkti náðan- ir pólitískra fanga á laugardag í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá því kommúnistar komust til valda. Bandaríkjastjórn sagði ákvörðun- ina Jákvætt skref", en ekki var gefið í skyn hvort stjórnin væri reiðubúin að aflétta þeim refsiað- gerðum, sem enn eru í gildi. Gripið var til efnahagslegra refsiaðgerða gagnvart Póllandi í kjölfar herlaganna í desember 1981. Þeim hefur verið aflétt en vestræn ríki sögðu náðun póli- tískra fanga skilyrði fyrir afnámi refsiaðgerða og eðlilegu viðskipta- sambandi. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti er sagður hugleiða hvort refsi- aðgerðum skuli aflétt í framhaldi af náðun fanganna og er ákvörð- unar að vænta af hans hálfu í vik- unni. Stuðningsmenn Samstöðu stóðu þögulan mótmælavörð við aðal- fangelsi Varsjár á sama tíma og dómarar reyna að skera úr um hvaða fanga skuli náða. Hermt er að fyrst verði konum og ungling- um sleppt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.