Morgunblaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1984
15
Úlfurinn á flótta.
Villtur úlfur næst
skammt frá Lundi
Eftir æsifenginn eltingaleik yfir
akra, vegi og íbúðahverfi féll loks
úlfur sá er í maí sást á Norður-
Skáni, fyrir svæfingarkúlu úr
byssu lögreglunnar. Laugar-
dagsmorgun einn í júní fékk lög-
reglan fleiri upphringingar en
vanalega frá áhyggjufullum
íbúum í Hölleviksnesi, íbúðahverfi
sem er rétt fyrir sunnan Malmö.
Fólk hafði séð úlf snuðra í görðun-
um hjá sér en lögreglan sem var á
vakt lagði lítið upp úr þessu í
fyrstu, enda gekk „varghysteria" í
Svíþjóð sl. vor.
Lögreglubíll var þó sendur af
stað og brátt var það ljóst að hér
var um stóran úlf að ræða . Svæð-
ið fylltist af lögreglumönnum í
bílum og á mótorhjólum. Veg-
tálmar voru settir upp og þyrla
send af stað með skyttur innan-
borðs. Fjöldi forvitinna fylgdist
með er úlfurinn reyndi að flýja, en
það varð til trafala því skotmenn-
irnir þorðu ekki að skjóta þó dýrið
væri í færi, af ótta við að einhver
áhorfendanna yrði fyrir kúlunni.
Eftir tveggja tíma eltingaleik
féll úlfurinn loks fyrir deyf-
ingarskoti og var fluttur í sjúkra-
bíl í dýragarðinn á Skáni þar sem
dýralæknar og hjúkrunarfólk tóku
við honum. Þar fékk hann róandi
sprautur enda æstur og yfirkeyrð-
ur eftir flóttann. Hann var síðan
látinn vakna í dimmu búri til þess
að fá að jafna sig óáreittur og eng-
um forvitnum var leyfður aðgang-
ur, hvorki blaða- né sjón-
varpsmönnum. Úlfafræðingur
dýragarðsins staðfesti að hér væri
um að ræða villtan úlf, fullvaxinn
og vek á sig kominn.
Og þá hófst annar eltingaleikur
innan kerfisins um það hver bæri
ábyrgð á skepnunni og hvað ætti
að gera við hana. Lögfræðileg
niðurstaða varð sú, að úlfur þessi
væri konungleg villibráð og því
bæri lögreglustjóranum í Malmö
að taka ákvörðun um það hvað
gera skyldi. Ekki var talið ráðlegt
að sleppa honum til hinna úlfanna
í dýragarðinum því sérfræðingar
telja að villt og fullvaxin dýr verði
taugaveikluð við slíkar aðstæður
og geti jafnvel dáið úr tauga-
spennu. Það varð úr að flytja hann
norðureftir í skóglendið þar sem
hann hefði möguleika á því að
leita uppi ættingja sína.
En það var ekki heiglum hent
því þar eru fyrir öflug samtök
úlfahatara sem harðneituðu að
taka við fleiri úlfum. Þykjast þeir
hafa nóg af þessum villidýrum
fyrir sem þeir vilja ekkert fremur
en koma fyrir kattarnef. Málið
leystist á þann hátt að timburfyr-
irtæki eitt sem á stórar lendur í
Dölunum bauðst til að taka við
úlfinum. Forstjóri fyrirtækisins
sagði að úlfurinn væri friðlýstur
og sjaldgæft dýr. Það dýr sem hér
væri um að ræða væri algerlega
villt og ætti þannig heimtingu á
því að fá að lifa og veiða í föður-
landi sínu, auk þess tilheyrði það
dýralífi okkar.
Náttúruverndaryfirvöld hafa
samþykkt þessa ráðstöfun. Litlum
útvarpssendi hefur verið komið
fyrir á úlfinum sem gerir dýra-
fræðingum kleift að fylgjast með
ferðum hans og hegðan.
„Þetta var vel til fundið," sagði
lögreglustjórinn, sem aldrei áður
hefur fjallað um mál þar sem
kvikindi af þessu tagi kemur við
sögu. Ennfremur sagði hann:
„Þetta með útvarpsendinn var vel
til fundið. Ef einhver skyldi kæra
okkur fyrir það að hafa ekki tekið
rétta ákvörðun í þessu máli, þá
vitum við alltaf hvar við höfum
hann og getum sótt hann ef i það
fer.“
Pétur Pétursson, Lundi.
Júgóslavar
og Búlgarir
reyna að bæta
sambúð sína
Belgrad, í júlí. AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Júgóslav-
íu, Milka Planinc, hefur verið í
„opinberri vináttuheimsókn“. Þetta
er í fyrsta sinn, sem júgóslavneskur
forsætisráðherra sækir Búlgaríu
heim, en þjóðirnar tvær hafa um
langan aldur átt i illdeilum vegna
Makedóníu.
Makedónía, sem áður laut
Tyrkjum og hefur m.a. í tímans
rás heyrt þremur löndum til:
Júgóslavíu, Búlgaríu og Grikk-
landi, er nú hluti af Júgóslavíu.
Búlgarir hins vegar hafa lagt
áherslu á söguleg tengsl sin við
Makedóníu, en Júgóslavar túlka
það sem tilkall til hluta landsins.
Milka Planinc mun i heimsókn
sinni ræða við búlgarska ráða-
menn, m.a. formann kommúnista-
flokksins, Todor Zhivkov, um sam-
skipti ríkjanna og önnur vanda-
mál.
Áskrifnirsiminn er 83033
í hjarta borgarinnar, Austurstræti 7, eru aðalstöðvar
erlendra viðskipta Búnaðarbankans. Þar, og
í útibúum um allt land, veitir bankinn alla gjaldeyrisþjónustu
við ferðamenn, útflytjendur og innflytjendur.
VISA greiðslukort.
BINAÐARBANKI
ÍSLANDS
NViSnN0T«lV9NlSAlOnV