Morgunblaðið - 06.12.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
3
Dómur í Hæstarétti yfir v-þýzku hjónunum:
Fangelsisdómur
yfir Peter Baly þyngd-
ur — sekt lækkuð
Dómur yfir Gabriele Uth-Baly verulega mildaður
f HÆffTARÉTri er fallinn dómur
yfir v-þýzku hjónunum Miroslav
Peter Baly og Gabriele Uth-Baly,
sem í vor voru handtekin fyrir að
hafa tekið 8 fálkaegg úr hreiðrum í
Dalasýslu. Peter Baly var dæmdur
í 3 mánaða fangelsi og gert að
greiða 100 þúsund króna sekt til
ríkissjóðs og komi 75 daga fang-
elsi fyrir sektina verði hún ekki
greidd innan 4 vikna frá birtingu
dómsins. Hann var dæmdur ■ 3ja
mánaða skilorðsbundið fangelsi í
undirrétti í sumar og gert að greiða
300 þúsund króna sekt.
Dómur undirréttar yfir Gabri-
ele Baly var verulega mildaður í
Hæstarétti. Hún var dæmd að
greiða 80 þúsund króna sekt til
ríkissjóðs. Vararefsing sektar er
60 daga varðhald verði sektin
ekki greidd innan 4 vikna frá
birtingu dómsins. í undirrétti
hlaut Gabriele 2ja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og var gert
að greiða 200 þúsund króna sekt
til ríkissjóðs.
Hún var ekki sakfelld fyrir
eggjaþjófnaðinn, heldur einung-
is ólöglega vörzlu á fálkaeggjum.
Peter Baly var hins vegar dæmd-
ur fyrir að hafa tekið 8 egg úr
fálkahreiðrum, tvö úr hreiðri í
Hlíðardal, tvö við Geitarfell og
fjögur við Harrastaði á Fells-
strönd. Hann var settur í far-
bann, en strauk úr landi í júní
síðastliðnum.
Lögmaður Gabriele Baly, Guð-
mundur Jónsson, hdl. var víttur
fyrir ummæli í bréfi til héraðs-
dómara, sem hann einnig sendi
ríkissaksóknara og þýzka sendi-
ráðinu í sumar. Þar hélt hann
því fram, að Gabrieie hefði tekið
ákvörðun um að áfrýja ekki
dóminum í undirrétti við furðu-
legar aöstæður — henni hefð i
verið tjáð af embætti ríkissak-
sóknara, að krafa um farbann
yrði sett fram ef hún áfrýjaði
dómi undirréttar og ekki hefði
verið nóg að setja fram trygg-
ingu fyrir greiðslu sektar. Um-
mælin sem vítt voru af Hæsta-
rétti eru svohljóðandi: „Af
heilsufarsástæðum og fleiri
persónulegum ástæðum höfðaði
þetta „tilboð“ ríkissaksóknara
svo til umbj.m. að hún tók því í
þeim tilgangi að komast úr
landi. Slík „verzlun" með grund-
Fálkaeggin átta, sem tekin voru af
Baly-hjónunum.
vallarrétt þann, sem felst í
heimild til að áfrýja dómi sínum
til æðra dómsstigs, telur umbj.
m. augljóst brot á grundvallar-
reglum ísl. sakamálaréttarfars
og til þess eins fallið að grafa
undan trú manna á réttarríkinu
fslandi."
Ákærðu var gert að greiða
sakarkostnað og áfrýjun sakar-
innar, þar með talin saksóknara-
laun og málsvarnarlaun skipaðs
verjanda, Arnar Clausen, hrl.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Sigurgeir Jónsson, Guð-
mundur Skaftason, Halldór Þor-
björnsson, og Magnús Thor-
oddsen og Stefán Már Stefáns-
son, prófessor. Stefán Már skil-
aði sératkvæði varðandi vítur á
Guðmund Jónsson, hdl. Hann
taldi að í bókun í Sakadómi
mætti finna yfirlýsingu, sem
skilja mætti þannig að krafa rík-
issaksóknara um farbann hafi
verið tengd ákvörðun ákærðu um
áfrýjun á óeðlilegan hátt og taldi
fullnægjandi skýringar ekki
fyrir hendi og því ekki grund-
völlur til þess að víta Guðmund.
íslenzka sveit-
in í 15.-
ÍSLENZKA skáksveitin hafnaði í
15.—16. sæti á Ólympíumótinu í
skák, en ekki 11—15. sæti eins og
skýrt var frá í Mbl. í gær og er beð-
ist velvirðingar á þeim mistökum.
íslenzka skáksveitin hlaut 31'/2 vinn-
-16. sæti
ing ásamt sveit Filippseyja.
Lokastaöa efstu þjóða varð: 1.
Sovétríkin 41, 2. England 37, 3.'
Bandaríkin 35, 4. Ungverjaland 34,
5. Rúmenía 33, 6.-7. V-Þýzkaland
og Frakkland 32%, 8.—14. Júgó-
slavía, Holland, Kúba, Búlgaría,
ísrael, Kína og Argentína 32,
15.—16. fsland og Filippseyjar
31%, 17.—20. Tékkóslóvakía,
Danmörk, Kanada og Brazilía 31.
fslenzka kvennasveitin hafnaði í
30.—33. sæti með 21 vinning
ásamt Finnlandi, Austuríki og
Malaysíu. Sovéska kvennasveitin
varð Ólympíumeistari, hlaut 32
vinninga. Búlgarska sveitin hlaut
silfrið og rúmenska sveitin bronz-
ið.
Kvæði 84 — ný
ljóðabók eftir
Kristján Karlsson
ÚT ER komin hjá Almenna bóka-
félaginu ný Ijóðabók eftir Kristján
Karlsson sem nefnist Kvæði 84 og er
þetta fjórða Ijóðabók skáldsins. f
frétt frá AB segir: „Kristján er eitt
af sérstæðustu skáldum okkar, nýr
og ferskur og er óhætt að segja að
Ijóð hans séu uppspretta nýrra
hugmynda og nýrra aðferða í skáld-
skap.
f einni af fyrri ljóðabókum sín-
um segir Kristján Karlsson að
„kvæði sé hús sem hreyfist". Hann
hefur ennfremur látið svo um
mælt að „kvæði eigi hvorki að vera
flöt rökræða né blaut dula, það
verður að rísa af pappírnum af
eigin rammleik. Ef það gerir það
ekki væri efni þess betur komið í
öðru formi. Hugsun kvæðis og til-
finning er ekkert annað en kvæðið
sjálft: hús þess.“
Kristján Karlsson er eitt af sér-
stæðustu skáldum samtímans, ef
til vill nokkuð seintekinn, en þeim
mun stórkostlegri við nánari
kynni. Ljóðagerð hans verður
sennilega ekki lýst öllu betur í ör-
Kristján Karlsson
fáum orðum en með þessum ljóð-
línum úr síðustu bók hans, — New
York:
Ljóðið ræður, þess ræða er frjáls
þess rök skulu geyma yður litla stund!“
Kvæði 84 eru 90 bls. að stærð og
prentuð í Prentsmiðjunni Odda.
Islendingar eiga
108.200 bifreiðir
f upphafi árs 1984 áttu íslend-
ingar 97.307 fólksbifreiðar, þar af
95.982 sjö farþega og færri en
1.325 átta farþega og fleiri. Á
sama tíma var vörubílaeign þeirra
10.947, þar af 5.607 undir tvö tonn
og 5.300 yfir tvö tonn. Samtals bif-
reiðaeign 108.254. Auk þess vóru
rúmlega 800 bifhjól í landinu.
Flestar vóru bifreiðarnar af
Ford-gerð, langleiðina í 8.100, eða
8,3% af bifreiðaeign landsmanna.
Bifreiðategundir sem fara yfir
fimm þúsund að tölu farartækja
eru, auk Fordbifreiða: Mazda 7.541
(7,7%), Volvo 6.186 (6,4%), Lada
5.956 (6,1%), Toyota 5.787 (5,9%),
Volkswagen 5.680 (5,8%). Meðal-
aldur almennra fólksbifreiða var
7,9 ár. 1.804 bifreiðar eru taldar 25
ára eða eldri og 1734 20—24 ára.
Flestar eru innan við 5 ára eða
36.794. (Heimild: Hagtíðindi
10/1984.)
'rj'íis Va ...
rsgott
;UvéluVl A** -'erlsp
ta*leot 1 ‘ ritJs Va . frajnleitt
?eri* eftir?gðg°tt oo j rSútlLUtn kókóhll>'
' hy“fid:
Síríus
Kbnsum
suðustddodaði
Gamla góða Sírtus Konsum
súkkulaðið er í senn úruals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og dijúgt til suðu
og i bakstur, enda jafnvinsælt í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er vinsælast hjá
þeim sem velja bara það besta.
JMOD ö