Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
5
Jens Valdimarsson kaup-
félagsstjóri á Patreksfirði:
Leitum leiða
til að bændur fái
fulla greiðslu
„ÞETTA er einn angi af því
vandræöaástandi sem hér hefur
skapast vegna niðurskurðar
sauðfjár vegna riðuveikivarna.
Við erum hér með dýrt og mikið
sláturhús sem byggt var til slátr-
unar á 15 þúsund fjár en aldrei
hefur verið fullnýtt,“ sagði Jens
Valdimarsson, kaupfélagsstjóri
á Patreksfirði, í samtali við blm.
Mbl. þegar hann var spurður um
útborgun Kaupfélags Vestur-
Barðstrendinga til bænda vegna
sauðfjárinnleggs í haust.
f Mbl. í gær kom fram í samtali
við Árna Jóhannesson, bónda í
Saurbæ á Rauðasandi, að hann
hefði aðeins fengið 60% af grund-
vallarverði innlagðs dilkakjöts og
allt riiður í eina krónu fyrir slátr-
ið, en samkvæmt reglum Fram-
leiðsluráðs á að greiða bændum
75% af innlögðum sauðfjáraf-
urðum fyrir 15. október. Árni
kvaðst einnig hafa fengið þau
svör í kaupfélaginu að hann gæti
ekki vænst þess að fá frekari
greiðslur.
Jens sagði að kaupfélagið væri
aðeins með afurðir bænda í um-
boðssölu og því ekki hægt að
skipa því að greiða umfram getu.
Hann sagði að hér væri ekki um
lokauppgjör að ræða, verið væri
að leita allra leiða til að greiða úr
þessum sláturhúsamálum þannig
að bændur gætu fengið fulla
greiðslu fyrir afurðir sínar. Það
hlyti að vera einhver misskiln-
ingur hjá bóndanum héldi hann
annað. Jens vildi að það kæmi
fram vegna ummæla Árna að
Kaupfélag Vestur-Barðstrend-
inga hefði staðið fyllilega við sitt
gagnvart bændum og hefði á síð-
asta ári verið í hærri kantinum af
sláturleyfishöfum hvað þetta
varðaði samkvæmt yfirliti Fram-
leiðsluráðs. Þá kom það fram hjá
Jens að vegna hins mikla niður-
skurðar í sýslunni í haust hefði
um 11 þúsund fjár verið slátrað í
sláturhúsinu en þeim þætti
hinsvegar gott ef sláturfjártalan
næði tveimur þúsundum næsta
haust.
Stykkishólmur:
18 myndir af
22 seldust
.Stjkkisbólmi, 10. desember.
GUNNAR Gunnarsson hélt sölu-
sýningu á vatnslitamyndum í
Lionshúsinu í Stykkishólmi um
helgina. Allar myndirnar eru af
Stykkishólmi og nágrenni. Sýn-
ingin var ágætlega sótt. 22 myndir
voru á sýningunni og seldust 18
þeirra.
Fréttaritari.
GROHE
Ladylux - Ladyline:
Nýtt fjölhæft heimilistæki i eldhúsíð
RR BYGGINGAVÖmm HF
upio daglega kl. 1—6
föstudaga kl. 1—7
laugardag kl. 10—22
Ijólkurstóðin
Ölgerðin