Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 9
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
9
úrval
af reiknivélum.
Canon
Canola P1016D
Shrifuéiin hf
• Suðurlandshniul 12
Sími: 685277.
PAPPÍRSST ATÍV
MARGAR GERÐIR
1 <OMNAR AFTUR i [■
( E í H F
TSl^amaílcaduZLnn
Nissan Cherry 1,5 1983
Brúnsans, 5 gíra, ekinn 37 þús. km. Útvarp
o.fl. Verö kr. 260 þús. (Skipti á ódýrari.)
Toyota Cressida DX
statíon 1982
Brúnsans. sjáltskiptur, ekinn 29 þús. km.
Útvarp. segulband. snjódekk, sumardekk.
silsalistar o.fl. Verö 370 þús.
Volvo 244 DL 1982
Gulur, sjálfskiptur. aflstýri o.fl., ekinn 54 þús
km. Verö kr. 420 þús.
Lada Sport California 1984
Graenn og hvítur, ekinn 4 þús. km. Ath.:
Bíllinn er endurbættur í Þýskalandi. Sólluga,
sporttelgur o.ll. Verö 375 þús. Elnnlg Lada
Sport '78 Mjög gott etntak. Verö 130 þús.
Pajero diesel 1983
Blár, ekinn 50 þús km. Power-stýrl, útvarp +
segulband o.fl. Verö kr. 600 þús.
Toyota Corolla GL 1982
Blár, ekinn 48 þús. km. Útvarps, snjódekk +
sumardekk. Fallegur bill. Verö kr. 270 þús.
Honda Civic 1981
Rauösanseraöur. Ath.: Sjálfsklptur, úrvals-
bill. Verö kr. 225 þús.
Subaru 1800 1983
Gullsanseraöur. power-stýrl, hátt og lágt
dril. Rafmagn i rúöum o.fl. Verö kr. 430 þús.
Einnig Subaru 1984
Kr. 340 þús. og Subaru 1981 kr. 285 þús.
Blazer (c,10) 1983
LJósbrúnn, 6 cyl., sjálfsskiptur m/öllu. Ekinn
aóems 9 þús km. Verö kr.
Fullveldi
*
Islands
Tómas Ingj Olrich segir f
forystugrein ísk'ndings:
„Árlega minnast Islend-
ingar fulkeldisins sem eins
mikilvægasta áfanga í bar-
áttu þjóöarinnar fyrir
sjálfstæði sínu. Þau tíma-
mót verða oft tilefni til að
leiða hugann að því, hvað
felst í því að vera sjálfstæð
þjóð, sem stendur vörð um
sjálfstæði sitL
Sjálfstæði er, eins og
frelsið, einfalt og auðskilið
þeim einum sem ekki njóta
þess. Ilínurn, sem búa við
það, daprast oft tilfinningin
fyrir þvf, hvers virði sjálf-
stæði er, rétt eins og menn
njóta hversdagslegra þæg-
inda án þess að taka sér-
staklega eftir þeim, uns
þau bifa.
íslendingum er tamt að
líta svo á, að þær hættur
sem að sjálfstæði þeirra
steðja, séu utanaðkomandi
og augljósar. Aðild þeirra
að varnarsamtökum vest-
rænna þjóða er til þess
gerð að verja sjálfstæði
þjóðarinnar fyrir hug-
myndafræði og hernaðar-
mætti gerræðisríkja. Önn-
ur fylking, fámennari þó,
telur sjálfstæði þjóðarinnar
stafa meirí hætta af aðild-
inni að varnarbandalaginu
en af hervæddri hug-
myndafræði ríkisforsjár-
innar. Báðir aðiiar samein-
ast að einhverju leyti í
óttanum við kjarnorku-
styrjöld, sem reiknar allt
jafnt fánýtt.
A meðan okkur verður
starsýnt á þessar meiri
háttar ógnir, á sjálfstæði
okkar í vök að verjast á
ýmsum smærri vígstöðv-
um, sem — þegar á allt er
litið, geta skipt sköpum,
þótt þar sé jafnan tíðinda-
lítið."
íslensk
„einangrunar-
stefna“
l»ví næst tekur blaðið
fyrír islenzka einangrun-
Sjálfstæði og samskipti
Viö islendingar hljótum aö hafa margvís-
leg samskipti viö umheiminn: menningar-
leg, viöskiptaleg og pólitísk. Þau sam-
skipti eru ekki hættuleg sjálfstæöi okkar,
ef rétt er að málum staöiö, heldur hluti af
þvi. Sú einangrunarstefna, sem þröngsýn
öfl ýta undir, vinnur þvert á móti gegn
hagsmunum okkar. Hún getur skaðaö
okkur menningarlega og viöskiptalega og
rýrt hluta okkar sem sjálfstæös aðila í
fjölskyldu þjóöanna. Um þetta efni er
fjallaö í forystugrein íslendings á Akur-
eyri, sem Staksteinar tíunda í dag.
arsU'fnu og segir:
„Einangrun er ein af
þeim hættum, sem alltaf
steðja að sjálfstæði Islend-
inga. Keisn þjóðlegrar
menningar þeirra hefur frá
upphafi verið í réttu hlut-
falli við það, hve frjáls
samskipti þeirra við aörar
þjóðir hafa verið mikil.
Eymd íslendinga hefur
aldrei verið eins sár og
þegar að mestu var tekið
fyrir samband þeirra við
umheiminn. Háreist mið-
aldamcnning þjóðarinnar
er jafn óhugsandi án er-
lendra menningarstrauma
og þjóðlog endurreisn 19.
aldarinnar.
Ótti við erlend menning-
aráhríf verður aldrei afÞ
vaki íslenskrar menningar,
því síður henni til varnar ef
á reynir. Tortryggni gagn-
vart efnahagslegu sam-
starfi við aðrar þjóðir er
heldur ekki traustur
grundvöllur undir sókn
þjóðarinnar til bættra
lífskjara.
Þau ölf eru til, sem berj-
ast fyrír einangrun lands-
ins í nafni mcnningar og
efnahagslegs sjálfstæðis.
Þau nærast á ótta og tor-
tryggni í garð útlendinga.
sem er arfur frá niðurlæg-
ingartímum þjóðarinnar
undir danskri stjórn."
ísland, hluti
af stærra
umhverfí
Efnahagslegt og stjórn-
málalegt sjálfstæði þjóðar
verður ekki tryggt með því
að loka augunum fyrir um-
heiminum. Við þurfum
þvert á móti að horfast í
augu við veruleikann um-
hverfis okkar og forystu-
grein íslendings lýkur með
þessum orðum:
„íslendingar eru og
verða háðir öðrum þjóðum.
Því fá engin slagorö breytL
Við getum varist „erlend-
um auðhringum" og
brennimerkt þá, sem vilja
„braska" með landiö eða
„selja" það. En hvaða gagn
er okkur að svona oröa-
glamri, ef frændur okkar
og vinir, Norðmenn, kjósa
að verja olíugróða sínum til
þess að greiða niður fisk-
verð og grafa þannig und-
an íslonskum lífskjörum?
Hvaða vörn eiga Islend-
ingar gegn norskri byggða-
stefnu?
Efnahagslegt sjálfstæði
íslendinga er og verður í
ætt við línudans. Það er
gott að hafa öryggisneL en
við skulum þó framar öllu
læra sporið, fremur en að
ala með okkur ótta og tor-
tryggni og halda að okkur
höndum.
Siðferðilega er það mun
flóknara verkefni að við-
hakla sjálfstæði, en að
berjast fyrir því. Til þess
þarf aðra manngerð.
Ciimlu heiLstrengingarnar
og Oeygu vígorðin duga
okkur skammt í fallvalt-
lcika alþjóðlegs viðskipta-
lifs. Til þess að viö getum
tekið þátt í menningar- og
cfnahagslífi lýðfrjálsra
þjóða, þurfum við sveigj-
anleika, áræði og sjálfs-
trausL
TIO“
AIRAM
LJÓSAPERUR
ÞÆR LOGA LENGUR