Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
27
eignarrétt í búinu. Það getur hins
vegar oft reynst erfitt fyrir þann
aðila, sem ekki er skráður fyrir
eignunum, að sanna eignarrétt
sinn og framlög til eignarinnar.
Oftar en ekki kemur þetta verr
niður á konunum. Því það virðist
algengara að þær noti sín laun til
daglegrar framfærslu fjölskyld-
unnar, í mat, barnaheimili o.s.frv.
en karlarnir borgi víxlana og geti
þannig sannað sitt framlag á
áþreifanlegri hátt en konurnar.
Það má því alveg segja að ég sé
eindreginn fylgismaður hjóna-
bandsins", segir Svala. „Og ég skil
satt að segja ekki hvað fólk hefur
á móti því að koma við hjá borg-
ardómara, sýslumanni eða presti
og láta pússa sig saman. Sumir
nota þá röksemd gegn hjónaband-
inu, að skilnaður sé miklu einfald-
ari þegar sambúðarfólk á í hlut,
en því er einmitt öfugt farið.
Erföaskrána á ekki að gera á
grafarbakkanum né kaup-
málann við skilnað
Hvað varðar sifjaréttinn al-
mennt, þá er allt of lítið gert af
kaupmálum og erfðaskrám. Ef
slíkt væri algengara mætti oft
forðast mikil leiðindi í fjölskyld-
um. í engilsaxneskum löndum
þykir sjálfsagt að ganga frá þess-
um málum, en hér á landi virðist
sú skoðun ríkjandi, að fólk geri
ekki erfðaskrá nema það sé komið
á grafarbakkann eða kaupmála
nema ólag sé komið á hjónaband-
ið.
Sem dæmi um það hvernig þetta
getur komið út, get ég nefnt tví-
giftan mann, sem dó frá seinni
konu sinni eftir langt hjónaband.
Af því að maðurinn hafði ekki gert
erfðaskrá missti ekkjan íbúð hjón-
anna til uppkominna barna
mannsins af fyrra hjónabandi".
Áhugamálin
Áður en blm. heldur aftur niður
á jörðina í nýja miðbænum, víkj-
um við sem snöggvast talinu að
áhugamálum hæstaréttarlög-
mannsins utan réttarsalanna.
Þar eru börnin efst á blaði. En
af þeim á Svala þrjú; Sif, sem er
tuttugu og tveggja ára og nemur
lögfræði eins og margir aðrir í
fjölskyldunni, Kristján Birgi,
fimmtán ára, og Ragnhildi, fimm
ára.
„Svo má auðvitað flokka lög-
fræðina undir áhugamál," segir
hún. „En ég hefði ekki viljað vera
án barnanna, að vera með þeim er
það skemmtilegasta sem ég geri
og ég held, að maður hafi meiri
tíma til að sinna börnunum þegar
það er svona langt á milli þeirra.
Það gerir líka það að verkum, að
það er alltaf eitt lítið bam í fjöl-
skyldunni á hverjum tíma. Það
finnst mér ágætt fyrirkomulag —
svo ég tali nú ekki um hvað það er
gaman,“ segir Svala og horfir
brosandi út um gluggann. Enda
klukkan að verða fimm og „litla
barnið" í fjölskyldunni á leið í
heimsókn.
Viötal: Hildur Helga
Sigurðardóttir
Frá framkvæmdum við Óshlíð.
Stórvirk vinnutæki unnu í sumar
að því að gera stalla í hlíðina og
skurð við veginn til að draga úr
hættu af hruni.
Stallar í Óshlíð-
ina til að draga
úr grjóthruni
í SUMAR var unnið við Óshlíðarveg
fyrir 12,6 milljónir króna. Unnið hef-
ur verið að því að gera stalla i hlíð-
ina fyrir ofan veginn til þess að
draga úr hruni og hefur vegurinn að
hluta verið færður frá hlíðinni. Sam-
kvæmt áætlun, sem gerð var 1981, er
fyrirhugað að gera vegþekjur þar
sem snjóflóð hafa verið tíðust.
Verða nokkurs konar göng
byggð yfir veginn á köflum, svo
öflug að þau eiga að standa af sér
snjóflóð og grjóthrun. Samkvæmt
Ó-áætluninni er kostnaður við
Óshlíðina áætlaður um 200 millj-
ónir reiknaður til núverandi verð-
lags og er áætlað að framkvæmd-
um verði lokið 1990.
Svo sem kunnugt er er fram-
kvæmdum við Ólafsfjarðarenni
lokið og reyndist kostnaður við
Ennið minni en kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á. Við þriðja Ó-veg-
inn, Ólafsfjarðarmúla, er fyrir-
hugað að gera jarðgöng, skammt
utan við Kúhagagil Ólafsfjarð-
armegin og er fyrirhugað að koma
út við Tófugjá hinum megin. Alls
verða göngin um 3,2 kílómetra
löng.
Morgunblaðid/Snorri Snorrason.
NYJUNG FRA ALÞYÐUBANKANUM
ÞU GETUR LAGTINN SPARIFEÐ
ÁN NOKKURS TILLITS TIL ÞESS
HVENÆR ÞÚ ÞARFT ÁÞVÍ AÐ HALDA
AFTUR EN SAMT TRYGGT
ÞÉRALLTAÐ
ÁN NOKKURRAR BINDISKYLDU!
Sérbók Alþýðubankans er einstök leið til
góðrar ávöxtunar án þess að leggja í óþægilega og óvissa spádóma
um hvenær þú þurfir aftur á sparifé þínu að halda.
Þú leggur einfaldlega inn á Sérbókina, færð strax 23% grunnvexti
og síðan hækka vextir um 2% fyrir hverja þrjá mánuði
sem innstæðan stendur óhreyfð.
Takirðu ekki út í eitt ár eru nafnvextir síðustu þriggja mánaða því
orðnir 29% og ársávöxtun 28,6% — og það á opinni bók!
Vextir leggjast ávallt við höfuðstól bókarinnar.
Þeir teljast því með þegar vextir næsta tímabils eru reiknaðir út
og skila um leið einstaklega góðri ársávöxtun.
Sé tekið út af bókinni haldast nafnvextir hins vegar óbreyttir
næsta þriggja mánaða tímabil.
Standi Sérbókin óhreyfð í tvö ár er ársávöxtun komin í
31,1% - og enn á óbundinni bók!
ATHUGAÐU NÁLIÐ
— Sérbók Alþýðubankans er frjáls leið til farsællar ávöxtunar.
Það er leitun að öðru eins tilboði
Alþýðubankinn hf.
staögreiösluafsláttur
_____STENDUR FYRIR SÍNU
^^ÍDgarvörur
Verkfsen
Hreínleetístseki
fePPadeiíd
Harðviðarsala
k/
l(
BYGGINGAVORURl
■■■■■
HRINGBRAUT120: Simar: Harðviftarsala.............28 604
Byggingavörur..............28-600 Malningarvörur og verklæri-28 605
Góllteppadeild.............28-603 Flisar og hreinlætistæki 28-430
renndu við eða hafðu samband
1
AUGLÝSINGAÞJÓNUSTAN