Morgunblaðið - 11.12.1984, Side 28

Morgunblaðið - 11.12.1984, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR H. DESEMBER 1984 Hvernig breytast bílarnir milli ára? lenam á lœstu drífi Spólarþú á einuþó að þú sért með sandimka / skottinu? Á HAUSTIN FER í HÖND HÁLKUTÍMI VOLVO FÆST MEÐ LÆSTU DRIFI Þá gnpa eigendur afturdrifinna bíla til þess ráðs að hlaða sandpokum í skottið, til að auka þungann á afturhjólunum. Þetta ráð dugar þó ekki alltaf. Hægt er að losna við þessa fyrirhöfn, með því að fá bæði afturhjólin til að snúast jafnt, hvernig sem undirlagið er. Veltir býður læst drif í flestar gerðir Volvo-bfla, sem bætir aksturshæfnina í snjó og hálku. Fyrirhyggjusamur Volvo-kaupandi pantar nýja bílinn sinn með læstu drifi. Eigendur eldri Volvo-bíla þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af þessu, því þeir geta að sjálfsögðu fengið læst drif í bílinn. Þú kemst lengra á læstu drifi. Leitið upplýsinga um læst drif hjá okkur. h 4 SUÐURLANDSBRAUT 16 SIMI 35200 Við bjóðum aðeins fyrsta flokks DEMANTA Demantar eru okkar sérgrein Við bjóðum aðeins íyrsta flokks demanta greypta í hvítagull og rauðagull. Ábyrgðarskírteini fylgir öllum okkar demantsskartgripum. Meðlimir í demantsklúbbi Félags íslenskra Gullsmiða. Greiðslukortaþjónusta. ^ull (dfyöllin Laugavegí 72 - Sími 17742 Nýi sportbfllinn frá Ford, bifreið sem við fyrstu sýn minnir á kappakst- ursbifreið. Vélin er 230 hestöfl, með forþjöppu og millikæli, en sama bifreið til rallaksturs verður með 380 hestafla vél. Nýr Escort og sportbíll frá Ford STÓRTÆKAR breytingar verða ekki á 1985 árgerð af Suzuki-, Fiesta- eða Escort-bifreiðum þeim sem Sveinn Egilsson hf. flytur inn, en þar er um samtals 10 bfla að ræða, sumir með mismunandi stórum vélum. En hins vegar hefur Ford sent frá sér sportbfl, RS-200, og minna þeir við Helstu séreinkenni Escort Laser miðað við aðrar gerðir Escort eru þau að Laserinn er með stóra hjólkoppa, öðru vísi sætaáklæði og kælihlíf er í lit bílsins. Bíllinn er þriggja dyra og ýmist með 1100 eða 1300 rúmsentimetra vél. Er minni vélin fjögurra hraða en sú stærri fimm. Öll stærðarmál á Laser eru hin sömu og á Escort LX. Verð bílsins er frá 315 þúsund- um króna, miðað við að LX kost- ar 379 þúsund. Breytingar á árgerð 1985 af Escort LX, sem verður ýmist með 1300 eða 1600 rúmsenti- metra vél, felast fyrst og fremst í auknu litavali og nýju sæta- áklæði. Árgerð 1984 af LX var sérbúinn fyrir Norðurlöndin, og fólst það m. a. í öflugri miðstöð, grófari dekkjum og breyttri vél. Hið sama verður sagt um Escort 1600-L og 1600-GL og LX-inn, breytingarnar aðeins í litavali og sætaáklæði. Escort XR-3i verður óbreyttur. Ford Fiesta breyttist mikið 1984 miðað við 1983 og verður árgerð 1985 óbreytt. Hið sama verður sagt um Ford Sierra GL, GHIA og xr4i. Suzuki Alto bifreiðin, 2ja og 4ra dyra, verður óbreytt frá 1984-árgerðinni, en þá urðu tals- verðar breytingar á bílnum, sér- staklega hvað varðar áklæði. Suzuki Swift verður einnig óbreyttur og sama er að segja um Suzuki-jeppann, Fox. Hins vegar senda verksmiðjurnar frá nýjan fólksbfl, Escort Laser, svo og fyrstu sýn mest á kappakstursbfla. sér nýja gerð af Fox nú í des- ember, Fox 413. Er hann með 40% aflmeiri vél og vandaðri búnað en aðrar gerðir af Fox. Sportbíllinn, sem fyrst var skýrt frá opinberlega í nóvem- ber, er tveggja sæta. Vélin er 230 hestöfl og með forþjöppu. Er hún „miðskips", þ.e. framan við afturöxul, og gírkassinn er aftan við framöxul, sem gerir það að verkum að jafnt þyngdarhlutfall er milli fram- og afturhluta bíls- ins. RS-200 bíllinn er með margar tækninýjungar, þ. á m. nýstár- legt fjórhjóladrif, en ökumaður getur stjórnað því úr mælaborði hvort fjórhjóladrif eða afturdrif er tengt og skipt átakinu á milli hjóla. Þá er í bílnum tölvubún- aður sem sér um að beina inn- spýtingin og kveikjan sé jafnan rétt stillt, allt eftir því hvemig vélinni er beitt. Við smíði bílsins verður stuðst mikið við gerviefni, kol-, aramíð- og glertrefjaefni. Við hönnunina var kappakstursbílaþekking beisluð, m. a. við gerð fjöðrun- arkerfisins. Verður aflmeiri bif- reið sömu tegundar notuð til rallaksturs frá seinni hluta næsta árs, fyrst um sinn af keppnismönnum Ford-verk- smiðjanna. Verður keppnisbíll- inn með 380 hestafla vél. Láta mun nærri að hann kosti um 5 milljónir kominn á götuna hér á landi, en sportbíllinn yrði ódýr- ari. Sátt í Soda Stream-málinu: Hætta að auglýsa en gefa bílinn SÁTT hefur orðið í Soda-Stream- málinu svokallaða milli Verð- lagsstofnunar og Sólar hf., að fyrirtækið hætti algjörlega auglýs- ingum um gjöf frá Fiat Uno til einhvers kaupanda Soda Stream- vélar. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér á skrifstofu fyrirtækisins verður hins vegar staðið við þau fyrirheit að gefa bílinn. A fundi sínum 23. nóvember sl. samþykkti Verðlagsráð yfir- lýsingu um að auglýsing í fjöl- miðlum frá Sól hf. um gjöf á Fiat Uno til einhvers kaupanda Soda Stream-vélar væri brot á ákveðnum greinum laga númer 56 frá 1978 um verðlag, sam- keppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Var Verðlags- þessa samþykkt ráðsins. For- ráðamenn fyrirtækisins sættu sig ekki við þessa niðurstöðu og m.a. lýsti forstjóri þess, Davíð Scheving Thorsteinsson, því yf- ir, að fyrr færi hann í fangelsi en að falla frá bílagjöfinni til viðskiptavina sinna. Nú hefur hins vegar orðið sú sátt að fyrirtækið hætti áðurnefndum auglýsingum frá og með 7. des- ember sl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.