Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR H. DESEMBER 1984
Hvernig breytast
bílarnir milli ára?
lenam á lœstu drífi
Spólarþú á einuþó að þú
sért með sandimka / skottinu?
Á HAUSTIN FER í HÖND HÁLKUTÍMI VOLVO FÆST MEÐ LÆSTU DRIFI
Þá gnpa eigendur afturdrifinna bíla til þess
ráðs að hlaða sandpokum í skottið, til að auka
þungann á afturhjólunum.
Þetta ráð dugar þó ekki alltaf. Hægt er að
losna við þessa fyrirhöfn, með því að fá bæði
afturhjólin til að snúast jafnt, hvernig sem
undirlagið er. Veltir býður læst drif í flestar
gerðir Volvo-bfla, sem bætir aksturshæfnina í
snjó og hálku.
Fyrirhyggjusamur Volvo-kaupandi pantar
nýja bílinn sinn með læstu drifi.
Eigendur eldri Volvo-bíla þurfa þó ekki
að hafa áhyggjur af þessu, því þeir geta að
sjálfsögðu fengið læst drif í bílinn.
Þú kemst lengra á læstu drifi.
Leitið upplýsinga um læst drif hjá okkur.
h 4
SUÐURLANDSBRAUT 16 SIMI 35200
Við bjóðum aðeins fyrsta flokks
DEMANTA
Demantar eru okkar sérgrein
Við bjóðum aðeins íyrsta flokks demanta greypta í hvítagull
og rauðagull.
Ábyrgðarskírteini fylgir öllum okkar demantsskartgripum.
Meðlimir í demantsklúbbi Félags íslenskra Gullsmiða.
Greiðslukortaþjónusta.
^ull (dfyöllin
Laugavegí 72 - Sími 17742
Nýi sportbfllinn frá Ford, bifreið sem við fyrstu sýn minnir á kappakst-
ursbifreið. Vélin er 230 hestöfl, með forþjöppu og millikæli, en sama
bifreið til rallaksturs verður með 380 hestafla vél.
Nýr Escort og
sportbíll frá Ford
STÓRTÆKAR breytingar verða ekki á 1985 árgerð af Suzuki-, Fiesta-
eða Escort-bifreiðum þeim sem Sveinn Egilsson hf. flytur inn, en þar er
um samtals 10 bfla að ræða, sumir með mismunandi stórum vélum. En
hins vegar hefur Ford sent frá sér
sportbfl, RS-200, og minna þeir við
Helstu séreinkenni Escort
Laser miðað við aðrar gerðir
Escort eru þau að Laserinn er
með stóra hjólkoppa, öðru vísi
sætaáklæði og kælihlíf er í lit
bílsins. Bíllinn er þriggja dyra
og ýmist með 1100 eða 1300
rúmsentimetra vél. Er minni
vélin fjögurra hraða en sú stærri
fimm. Öll stærðarmál á Laser
eru hin sömu og á Escort LX.
Verð bílsins er frá 315 þúsund-
um króna, miðað við að LX kost-
ar 379 þúsund.
Breytingar á árgerð 1985 af
Escort LX, sem verður ýmist
með 1300 eða 1600 rúmsenti-
metra vél, felast fyrst og fremst
í auknu litavali og nýju sæta-
áklæði. Árgerð 1984 af LX var
sérbúinn fyrir Norðurlöndin, og
fólst það m. a. í öflugri miðstöð,
grófari dekkjum og breyttri vél.
Hið sama verður sagt um Escort
1600-L og 1600-GL og LX-inn,
breytingarnar aðeins í litavali
og sætaáklæði. Escort XR-3i
verður óbreyttur.
Ford Fiesta breyttist mikið
1984 miðað við 1983 og verður
árgerð 1985 óbreytt. Hið sama
verður sagt um Ford Sierra GL,
GHIA og xr4i.
Suzuki Alto bifreiðin, 2ja og
4ra dyra, verður óbreytt frá
1984-árgerðinni, en þá urðu tals-
verðar breytingar á bílnum, sér-
staklega hvað varðar áklæði.
Suzuki Swift verður einnig
óbreyttur og sama er að segja
um Suzuki-jeppann, Fox. Hins
vegar senda verksmiðjurnar frá
nýjan fólksbfl, Escort Laser, svo og
fyrstu sýn mest á kappakstursbfla.
sér nýja gerð af Fox nú í des-
ember, Fox 413. Er hann með
40% aflmeiri vél og vandaðri
búnað en aðrar gerðir af Fox.
Sportbíllinn, sem fyrst var
skýrt frá opinberlega í nóvem-
ber, er tveggja sæta. Vélin er 230
hestöfl og með forþjöppu. Er
hún „miðskips", þ.e. framan við
afturöxul, og gírkassinn er aftan
við framöxul, sem gerir það að
verkum að jafnt þyngdarhlutfall
er milli fram- og afturhluta bíls-
ins.
RS-200 bíllinn er með margar
tækninýjungar, þ. á m. nýstár-
legt fjórhjóladrif, en ökumaður
getur stjórnað því úr mælaborði
hvort fjórhjóladrif eða afturdrif
er tengt og skipt átakinu á milli
hjóla. Þá er í bílnum tölvubún-
aður sem sér um að beina inn-
spýtingin og kveikjan sé jafnan
rétt stillt, allt eftir því hvemig
vélinni er beitt.
Við smíði bílsins verður stuðst
mikið við gerviefni, kol-, aramíð-
og glertrefjaefni. Við hönnunina
var kappakstursbílaþekking
beisluð, m. a. við gerð fjöðrun-
arkerfisins. Verður aflmeiri bif-
reið sömu tegundar notuð til
rallaksturs frá seinni hluta
næsta árs, fyrst um sinn af
keppnismönnum Ford-verk-
smiðjanna. Verður keppnisbíll-
inn með 380 hestafla vél. Láta
mun nærri að hann kosti um 5
milljónir kominn á götuna hér á
landi, en sportbíllinn yrði ódýr-
ari.
Sátt í Soda Stream-málinu:
Hætta að auglýsa
en gefa bílinn
SÁTT hefur orðið í Soda-Stream-
málinu svokallaða milli Verð-
lagsstofnunar og Sólar hf., að
fyrirtækið hætti algjörlega auglýs-
ingum um gjöf frá Fiat Uno til
einhvers kaupanda Soda Stream-
vélar. Samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið aflaði sér á
skrifstofu fyrirtækisins verður
hins vegar staðið við þau fyrirheit
að gefa bílinn.
A fundi sínum 23. nóvember
sl. samþykkti Verðlagsráð yfir-
lýsingu um að auglýsing í fjöl-
miðlum frá Sól hf. um gjöf á
Fiat Uno til einhvers kaupanda
Soda Stream-vélar væri brot á
ákveðnum greinum laga númer
56 frá 1978 um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti. Var Verðlags-
þessa samþykkt ráðsins. For-
ráðamenn fyrirtækisins sættu
sig ekki við þessa niðurstöðu og
m.a. lýsti forstjóri þess, Davíð
Scheving Thorsteinsson, því yf-
ir, að fyrr færi hann í fangelsi
en að falla frá bílagjöfinni til
viðskiptavina sinna. Nú hefur
hins vegar orðið sú sátt að
fyrirtækið hætti áðurnefndum
auglýsingum frá og með 7. des-
ember sl.