Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 55 Axel Thorstein■ son — Minning Fæddur 5. mars 1895 Dáinn 3. desembcr 1984 Axel Thorsteinson er nú fallinn í valinn í hárri elli, nærri níræður, einn þeirra manna sem fæddust í lok fyrri aldar og settu sinn hug- þekka svip á 20. öidina, mótaður af menningu sem nú er næstum und- ir lok liðin; illu heilli munu sumir segja. Foreldrar Axels voru Stein- grímur Thorsteinson skáld, síðast rektor Lærða skólans í Reykjavík, og seinni kona hans, Birgitta Guð- ríður Eiríksdóttir járnsmiðs Ei- ríkssonar í Stöðlakoti í Reykjavík. f ætt Axels hillir uppi stóra tinda í mennta- og embættismannastétt á íslandi langt aftur í aldir. Amma hans var Þórunn Hannes- dóttir biskups, Finnssonar bisk- ups í Skálholti, sem Finsensætt er við kennd, en afi hans Bjarni Þor- steinsson amtmaður á Stapa. Hann var af hinni merkilegu skagfirsku Steingrímsætt, bróð- ursonur Jóns Steingrímssonar eld- klerks, en þau systkin fluttust úr Skagafirði suður í Skaftafells- sýslu. Helga, systir þeirra Jóns og Þorsteins, var móðir Steingríms Jónssonar biskups sem almenn- ingslof hlaut fyrir gáfur og mann- göfgi. Steingrímur skáld, faðir Axels, var heitinn eftir honum. Steingrímur Thorsteinson lést árið 1913. Þá var Axel sonur hans ungur að aldri, aðeins 18 ára. Þó undarlegt kunni að virðast hafði hann, sonur rektorsins, lagt fyrir sig búnaðarnám á Hvanneyrar- skóla. Hugur hans hneigðist líka snemma til skáldskapar og hann gaf út sína fyrstu bók, Ljóð og sög- ur, árið 1916. Næstu árin komu frá hans hendi smásagnasöfn, ljóð og skáldsögur. Þeim sem þetta ritar er sérstaklega í fersku minni skáldsaga hans Börn dalanna, sem lesin var í þann mund sem ungl- ingshugurinn er næmastur og gljúpastur. Þessi rómantíska harmsaga eignaðist þá sinn fasta sess í huganum, hugljúf og hrein, rituð á fögru máli minnti hún meir en lítið á snilld Steingríms föður Axels. Ungur hleypti Axel heimdrag- anum. Dvaldist hann fyrst í lýð- háskóla á Eiðsvelli í Noregi 1916—17, en síðan um fimm ára skeið vestan hafs í Kanada og Bandaríkjunum og gerðist sjálf- boðaliði í Kanadaher undir lok styrjaldarinnar 1918. Hann gekk að eiga belgfska konu, Jeanne Fafin, 1919. Synir þeirra þrír eru: Steingrímur, Axel Grímur og Halldór. Þau hjón slitu síðar samvistum. Árið 1940 kvæntist Axel í annað sinn, Sig- ríði Þorgeirsdóttur, og áttu þau tvo syni, Birgi og Gunnar. Utan hjónabands átti Axel eina dóttur, Sigríði Breiðfjörð, sem gift er Kjartani Guðjónssyni listmálara. Axel Thorsteinson fluttist aftur heim til íslands 1923. Eftir heim- komuna lagði hann skáldskap og fagurfræði að mestu á hilluna, en stundaði þó ritstörf alla ævi, þýddi fjölda bóka, gaf út tímaritið Rökkur, ritaði ferðasögur og sögu dagblaðsins Vísis og sá um útgáf- ur af ýmsum verkum föður síns — svo að nokkuð sé nefnt. En störf hans í hálfa öld tengjast þó öðru fremur blaðamennsku við Morg- unblaðið og Vísi, þar sem hann var aðstoðarritstjóri um árabil, og fréttamannsstörfum hjá útvarp- inu. í útvarpinu hafði hann um langt skeið það sérstaka verkefni með höndum að sjá einn um söfnun og flutning morgunfrétta. Hann er enn mörgum minnisstæður frá því hann flutti þær fréttir á stríðsár- unum og lengi síðan. Til þess starfa þurfti stundvísan mann og léttsvæfan. í því efni mátti treysta á Axel, aldrei lét hann sig vanta með fréttirnar á réttum tíma hvernig sem vindur blés, og var elju hans og nákvæmni við brugðið. Axel þótti vænt um þetta starf, og til hins síðasta hélt hann stöðugu sambandi við okkur í út- varpinu og var þar alltaf kærkom- inn gestur. Það var fátt sem glapti fyrir Axel Thorsteinsyni í störfum hans. Þó hafði hann líklega alla ævi einn veikleika, ef svo má að orði komast. Sveitalíf og náttúra landsins hafði undra sterk tök á honum, og hann varð stundum að gefa sér tíma til að sinna störfum á eignarjörð sinni, Þverholti á Mýrum. Fegurð og dýrð náttúrunnar var honum uppspretta mikils unaðar. Var það vafalaust arfur frá Steingrími föður hans, og vel gat Axel gert orð hans að sínum: Þú bláfjallageimur með heiðjökla hrin^, um hásumar flý ég þér að hjarta, ó, tak mig í faðm, minn söknuð burt eg syng um sumarkvöld við álftavatnið bjarta. Axel Thorsteinsyni fylgja nú að leiðarlokum þakkir okkar allra sem honum kynntumst. Hann var falslaus maður, friðsamur og óáleitinn, alla sína löngu ævi unn- andi og leitandi fegurðar og hrein- leika. Andrés Björnsson Kveðja frá Blaðamanna- félagi íslands Með Axel Thorsteinssyni, heið- ursfélaga Blaðamannafélags fs- lands, er genginn einn af frum- herjum íslenskrar blaðamennsku, maður sem fékkst við blaða- mennsku og ritstörf lengur en flestir aðrir. Þeir, sem nú eru að ganga sín fyrstu spor á þeirri braut, þekkja Axel Thorsteinsson Ivarla nema af afspurn; við sem |erum nokkru eldri munum hann ! t'inkum af Lundúnafréttum hans í morgunútvarpinu. Hann var meðal fyrstu íslend- inga, sem gerðu blaðamennsku að ævistarfi sínu — leit á starfið sem fag en ekki bókmenntalegan án- ingarstað eða pólitískt trúboð. Hann var forstöðumaður frétta- stofu BÍ á meðan hún starfaði og átti sem slíkur þátt í umtalsverðri breytingu á fjölmiðlun innan- lands. Lengst af var Axel blaðamaður, og síðar aðstoðarritstjóri, á Vísi og síðar á útvarpinu. Alla tíð var hann fyrst og fremst fréttamaður, sem tók alvarlega það hlutverk sitt að koma á framfæri við ís- lenskan almenning hlutlausum og réttum fréttum og upplýsingum. Um áratuga skeið var hann í fremstu röð íslenskra blaðamanna og ævinlega stétt sinni til sóma. íslenskir blaðamenn standa í þakkarskuld við Axel Thorsteins- son. tímar Valdimarsson, form. BÍ. Sanitas VERDLÆKKUN! VíftOMUNUft Witír 0,251 M KK m, 11 Ktl Gleðíleg jól. Sanitas hf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.