Morgunblaðið - 11.12.1984, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
+ Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR, Stórholti 30, iést föstudaginn 30. nóvember. Jaröarförin hefur fariö fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auösýnda samúö og vinarhug. Jóhannes Sigurösson, Sjöfn Jóhannesdóttir, Rúnar Guömundsson, og barnabörn.
+ Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, JÓHANNA EYJÓLFSDÓTTIR, Bárugötu 16, lést i Landakotsspitaia sunnudaginn 9. desember. Valdimar Guömundsson, Valdimar Valdímarsson, Þorgeróur Einarsdóttir, Eyjólfur Valdimarsson, Hanna Unnsteinsdóttir, Helga Valdimaradóttir, Óskar Alfreósson, og barnabörn.
+ Konan min og móöir okkar, VILBORG PÉTURSDÓTTIR, Skeiöarvogi 139, andaöist aö heimili sinu 8. desember. Jón Danlelsson, Pótur Emilason, örn Jónsson.
+ Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, BJARNI ERLENDSSON, Suöurgötu 49, Hafnarfirói, andaöist i St. Jósepsspitala Hafnarfiröi 9. desember. Júlla Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ , Amma mín, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfiröi, fimmtudaginn 6. desember. Helgi Ómar Sveinsson.
+ Eiginmaöur minn, RÓBERT A. DAY andaöist að heimili sfnu 24. nóvember í Westport Connecticut. Stella Day.
+ Dóttir min, ELMA BJÖRK, veröur jarösungin frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn 15. desember kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram i Dómkirkjunni miö- vikudaginn 12. desember kl. 16.00. Fyrir hönd barna, barnabarns, systkina og annarra vandamanna hinnar látnu. Guöjón Sigurósson.
+ Eiginkona min, móöir okkar og tengdamóöir, RÓSA FRIÐJÓNSDÓTTIR, Engihjalla 9, sem lést 3. desember veröur jarösungin frá Kópavogskirkju miö- vikudaginn 12. desember kl. 13.30. Bjarni P. Jónasson, Friöjón Bjarnason, Inga Brynjólfsdóttir, Siguröur Bjarnason, Hilde Stoltz, Valgeir Bjarnason, Margrét Bjarnadóttir.
+ Móöir min, STEINUNN JÓHANNA JÓNSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu miövikudaginn 12. desember kt. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Kristján Jón Guönason.
Zophonías Jóns-
son — Minning
Fæddur 12. mars 1897
Dáinn 2. desember 1984
í dag er kvaddur frá Kópavogs-
kirkju Zophonías Jónsson, Digra-
nesvegi 24 hér í bæ.
Zophonías var fæddur að Bakka
í Svarfaðardal, 12. mars 1897 og
var því á 88. aldursári er hann
lést. Foreldrar hans voru Jón
Zophoníasson og Svanhildur
Björnsdóttir er þar bjuggu. Jóni
og Svanhildi varð 7 barna auðið og
eru nú aðeins 2 á lífi. Frímann
búsettur í Reykjavík og Jóhanna
dvelur nú á sjúkrahúsinu á Sauð-
árkróki á 96. aldursári. Þau Jón og
Svanhildur fluttust frá Bakka að
Neðra-Ási í Hjaltadal þegar Zoph-
onías var 7 ára gamall.
Zophonías minntist oft þessara
búferlaflutninga, sem munu hafa
verið meiriháttar átak, því yfir
Heljardalsheiði var að fara. Helj-
ardalsheiði var fjölfarin fyrr á ár-
um og á sér langa sögu og
ógnþrungna, eins og nafnið bendir
til. Rösklega fjögurra stunda ferð
var milli bæja, Skriðulands í
Kolbeinsdal og Atlastaöa í Svarf-
aðardal, en heiðin er 865 metrar
yfir sjávarmáli. Má af þessu ráða
að það hefur ekki verið heiglum
hent fyrir stóra fjölskyldu að ráð-
ast í slíka ferð. Foreldrar Zoph-
oníasar höfðu þá fest kaup á
Neðra-Ási enda þótt efnin væru
ekki mikil og urðu börnin því a?
taka snemma til hendinni við slík-
ar aðstæður, en dugnaði og sam-
stöðu fjölskyldunnar var vií
brugðið.
Zophonías ólst upp með foreldr-
um sínum að Neðra-Ási allt til 18
ára aldurs, eða til ársins 1915 en
þá hóf hann nám við Gagnfræða-
skólann á Akureyri. Hann varð
Gagnfræðingur frá þeim skóla
1918 og settist þá um haustið í 4.
bekk Menntaskólans í Reykjavík.
Hann minntist oft með hlýjum
huga skólaáranna á Akureyri, en
þar voru margir afbragðskennar-
ar og margir skólabræður hans
þar urðu síðar þjóðkunnir menn.
Vera Zophoníasar varð ekki löng í
Menntaskólanum í Reykjavik.
Ekki var það vegna skorts á
námshæfileikum því Zophonías
var ágætur námsmaður enda
fluggreindur að eðlisfari. Hins
vegar mun efnaskortur hafa átt
hér stærstan hlut að máli.
Næsta ár mun Zophonías hafa
verið heimiliskennari hjá þeim
merkishjónum Þorbirni Þórðar-
syni, héraðslækni á Bíldudal, og
konu hans, Guðrúnu Pálsdóttur,
og þar átti hann góða daga.
Á þessum árum var verka-
lýðshreyfingin á íslandi í mótun.
Zophonías varð strax mikill
verkalýðssinni. Hannn stundaði
ýmsa verkamannavinnu auk þess
sem hann var til sjós um skeið
bæði á Akureyri og Vestfjörðum.
Zophonías kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Önnu Theodórs-
dóttur, rithöfundar Friðrikssonar,
22. nóvember 1924. Hófu þau bú-
skap í Vestmannaeyjum. Þar mun
hann hafa fengið sína fyrstu skól-
un í verkalýðsbaráttunni. Síðan
fluttust þau hjónin til Stokkseyr-
ar og var Zophonías um tíma
formaður verkalýðsfélagsins þar.
Næst lá leið þeirra hjóna til Eyr-
arbakka, þar sem Zophonías varð
fyrsti starfsmaður (ásamt Sigurði
Heiðdal) vinnuhælisins að Litla-
Hrauni 1929—31. Þegar Zophonías
kom til Reykjavíkur 1931 gekk
hann þegar í Dagsbrún og var í
stjórn þess félags um skeið. Hann
gekk snemma í gamla Alþýðu-
flokkinn, en þegar Héðinn Valdi-
marsson o.fl. yfirgáfu Alþýðu-
flokkinn 1937 og stofnaður var
Sameiningarflokkur alþýðu, sósí-
alistaflokkurinn, var hann í þeim
hópi og hefur hann alla tíð fylgt
þeim samtökum að málum, sem
hafa stutt við bakið á verkalýðs-
hreyfingunni. Árið 1935 hóf hann
störf hjá Vinnumiðlunarskrifstof-
unni í Reykjavík og vann þar til
ársins 1950 er hún var lögð niður.
Næstu árin vann hann almenna
verkamannavinnu, en árið 1955
hóf hann störf hjá Skattstofu
Reykjavíkur og vann þar allar göt-
ur fram til 1975 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Zoph-
onías sat í Niðurjöfnunarnefnd
Reykjavíkur og síðar Framtals-
nefnd um langt árabil.
Zophonías bjó ásamt fjölskyldu
sinni í Reykjavík allt frá 1931,
lengst af á Óðinsgötu, en 1959
fluttist hann í Kópavog og átti þar
heima til dauðadags. Hin síðari ár
tók hann virkan þátt ásamt konu
sinni í starfi aldraðra hér í Kópa-
vogi. Eignaðist hann þar marga
vini á þessum vettvangi og aflaði
sér trausts og virðingu meðal
þeirra í ríkum mæli.
Þeim hjónum varð 4ra barna
auðið en þau eru: Jón kerfisfræð-
ingur, kvæntur Heiði Gestsdóttur
teiknikennara, búa í Kópavogi.
Sigurlaug Svanhildur íþrótta-
kennari, gift Gunnari R. Magnús-
syni, löggiltum endurskoðanda,
búa í Kópavogi. Sesselja húsmóð-
ir, gift Olafi Jónssyni sjómanni,
búa í Hafnarfirði, og Kristinn
múrari, býr í Reykjavík. Barna-
börnin eru 13 og barnabarnabörn-
in 12.
Zophonías Jónsson var á marg-
an hátt sérstæður persónuleiki.
Áhugasvið hans voru ákaflega
fjölþætt. Hann var einn þeirra
aldamótamanna sem urðu vitni að
mestu þjóðfélagsbreytingum ís-
landssögunnar. Á þessu tímabili
fá fslendingar fullveldi síðan
stofnun lýðveldis. Hann lifir tvær
heimsstyrjaldir og verður vitni að
tæknibyltingu sem hefur breytt
hag manna úr örbirgð til velfarn-
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
ZÓPHONÍAS JÓNSSON,
Dígranesvegi 24,
Kópavogi,
veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 11. desember
kl. 13.30.
Anna Theódórsdóttir,
Jón Sigtryggur Zóphoniasson, Heiöur Gestsdóttír,
Sigurlaug S. Zóphoníasdóttir, Gunnar R. Magnússon,
Sesselja Zóphonlasdóttir, Ólafur Jónsson,
Kristinn Björgvin Zóphonfasson,
barnabörn og barnabarnabðrn.
Lokað
eftir hádegi i dag vegna jaröarfarar STEFÁNS LUTHERS
STEFÁNSSONAR.
Vélar og tœki hf.,
Tryggvagötu 10.
aðar. Jafn heilsteyptur maður og
skilningsríkur á menn og málefni
og Zophonías var hlaut að taka
ríkan þátt í þeirri þjóðlífsbaráttu
sem hér var háð sérstaklega á
fyrstu áratugum þessarar aldar.
Hann átti það að sjálfsögðu
sammerkt með öðrum að brauð-
stritið eitt var svo þrúgandi fram-
an af að ekki gafst tími til þess að
sinna hugðarefnum í nokkrum
mæli. Þó var það svo að bóklestur
var honum ætíð hugfólginn, enda
var maðurinn sérlega vel lesinn og
stálminnugur. Ég hefi örfáum
mönnum kynnst sem kunnu jafn
mikið utanbókar af fagurbók-
menntum okkar sem hann. Gilti
þar einu hvort um bundið mál eða
óbundið var að ræða.
Öllum sem höfðu af Zophoníasi
veruleg kynni hlýtur að vera það
ógleymanlegt er hann flutti án
bókar heilu kvæðabálkana og
gerði það með þeim hætti sem
honum einum var lagið.
Fátt held ég að honum hafi ver-
ið hugleiknara en ferðalög innan-
lands og utan. Hann var slíkur
ferðagarpur að varla var það fjall
eða fjara hér á landi sem hann
þekkti ekki til hlítar. Allt sem að
náttúrufræði laut var honum sem
opin bók og var þar að verulegu
leyti um sjálfsmenntun að ræða.
Hann var ákaflega vinsæll og eft-
irsóttur ferðafélagi og var stund-
um fararstjóri hjá Ferðafélagi ís-
lands.
Hann lét sér ekki nægja að
kanna fósturjörðina eina heldur
gerði hann víðreist erlendis. Hann
fór t.d. tvisvar til Kína, ferðaðist
til Austurlanda og flestra Evrópu-
landa. Flestar þessar ferðir voru
farnar eftir að hann var kominn á
efri ár. Til þess var tekið að viss
fötlun sem hann varð fyrir fyrir
fáum árum hindraði hann ekki að
klífa fjöll og firnindi. Áttræður
ferðaðist hann um allt hálendið,
kleif fjöll og gekk mikið.
Nú þegar við fylgjum Zophoní-
asi Jónssyni síðasta spölinn á
hans vegferð er okkur, sem höfð-
um af honum nánust kynni, efst í
huga þakklæti fyrir samfylgdina.
Söknuðurinn er sárastur hjá
ástvinum öllum og ekki síst hjá
barnabörnunum sem hann sýndi
ætíð mikið atlæti, umhyggju og lét
sér svo annt um velferð þeirra.
Ég hef aldrei þekkt metnaðar-
lausari mann sjálfum sér til
handa en hann, og engum var
meiri fögnuður að velfarnaði ann-
arra.
Fari hann í friði.
Gunnar R. Magnússon
Skilti á leiöi.
Útvegum krossa
ef óskaö er.
Sendum
í póstkröfu.
Tekið á móti pöntunum
alla daga
í sfma 54833.
Dalshrauni 20
Hafnarlirói
Simi 54833