Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 72
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
S1AÐFEST lANSTOAUST
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Topriu Þórhallur Dmníelsson SF,
áéur Erlingur GK, en skipið v»r
fyrir skönunu keypt til HomafjnrAar.
Vestmannaeyjan
Lóðsinn
bjargar
togara
VefltmuRMyjnn, 10. desember.
VÉLARBILUN varA í skuttogaran-
um Þórhalli Daníelssyni SF 71 frá
HornafirAi, þegar skipiA var á leiö til
veiAa vestur með landi í slæmu veAri
á laugardaginn.
Þegar skipið var statt suðaustur
af Hafnarnesi viö Þorlákshöfn bil-
aði keflablásari, sem drífur loft inn
á aðalvélina og varð skipið algjör-
lega vélarvana. Var kallað á aðstoð
lóðsins frá Vestmannaeyjum, sem
hélt úr höfn kl. 20 á laugardags-
kvöld og var kominn að togaranum
eftir fjögurra klukkustunda sigl-
ingu. Var þá togarinn sex sjómilur
frá ströndinni og hafði skipið rekið
allhratt að landi.
Vel gekk að koma taug frá lóðsin-
um yfir í togarann og kom lóðsinn
með togarann í togi til hafnar I
Eyjum laust fyrir kl. átta í gær-
morgun. Vonskuveður var á þessum
slóðum, hvassviðri og stórsjór.
Þórhallur Daníelsson SF 71 var á
leið í sína fyrstu veiðiferð, eftir að
skipið var keypt til Hornafjarðar,
en togarinn hét áður Erlingur GK 6
og var gerður út frá Garðinum. Sjó-
próf fóru fram í dag hjá embætti
bæjarfógetans í Vestmannaeyjum.
hkj.
Milljónatjón og at-
yinnuleysi blasir við
MorgunblaðiÖ/ Friöþjófur.
Óttast er að meirihluti um 4 þúsund kassa af frystum fiski hafi skemmst í brunanum hjá Jökli á Raufarhöfn í gær. Á
mvndinni er veriA að kanna skemmdir í einni kassastæðunni. Fyrir ofan piltinn sést brunnið og hálfhrunið þakið.
TALIÐ er að 10—15 milljóna króna
tjón hafi í gærkvöldi orðið er mikiil
bruni varð í frystihúsi Jökuls á Rauf-
arhöfn. Reikna má með að um 50 til
70 manns missi atvinnu sína vegna
þessa um langan tíma, en vinna var
nýhafin eftir 7 til 8 vikna stöðvun.
Frystihúsið er stærsta fyrirtækið á
Raufarhöfn að öllu jöfnu. Einn mað-
ur slasaðist lítilsháttar er unnið var
að slökkvistörfum.
Eldsins varð vart um klukkan
15.30 er starfsfólk var að fara í
kaffi í vesturenda hússins. Þar eru
til húsa umbúða- og vélasalur,
kaffistofa og vélaverkstæði. Eldur-
inn kom upp í herbergi vélstjóra og
talið er að kviknað hafi út frá raf-
magnsofni. Eldurinn komst siðan í
gegnum timburloft og upp í um-
búðalager frystihússins og þaðan
eftir þaki hússins til austurs eftir
vindátt. Tókst að ráða niðurlögum
eldsins skömmu eftir klukkan 20 og
höfðu þá 20 heimamenn unnið við
slökkvistörf með tveimur slökkvi-
bilum auk sex manna með einn bíl
frá Þórshöfn.
Jón Ólafsson, verkstjóri, varð
fyrstur var við eldinn og sagði hann
svo frá í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi: „Ég var að fara í kaffi,
sá þá reyk koma meðfram hurð inn
í vélstjóraherbergið, opnaði dyrnar
og sá þar eld í rafmagnsofni og stól,
sem var fyrir framan hann. Eg tók
stólinn og henti honum út um dyr á
gafli hússins, en við það magnaðist
eldurinn. Ég lét þá aðalverkstjór-
ann vita og hljóp síðan út I Síldar-
verksmiðjur til að láta slökkviliðs-
stjórann vita. Er ég kom til baka aö
tveimur mínútum liðnum stóðu log-
arnir út um dyrnar og ég fékk ekk-
ert að gert.“
Skemmdir eru ekki fullkannaðar,
en stór hluti hússins er illa farinn,
umbúðaleger er ónýtur og mikil
hluti um 4.000 kassa af fiski.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Sérstök sovésk áætlun um
að losa ísland úr NATO
ENGINN þarf að vera í vafa um, að
ísland er í hættu í hernaðarlegu til-
liti. Nauðsynlegt er því að gera hér
ráAstafanir á friðartímum til að
trvggia öryggi þjóðarinnar, þetta hef-
ur verið gert með varnarsamstarfi
við vestrænar þjóðir, sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, í ræðu á laugardaginn
sem hann flutti á vegum Samtaka
um vestræna samvinnu og Varð-
bergs.
Jón Baldvin Hannibalsson lagði
út af þvi í máli, að menn yrðu að
hafa þrek til að gera greinarmun á
lýðræði annars vegar og alræði
hins vegar. Sovétstjórnin stefndi
að því í krafti alræðis að leggja
undir sig aðrar þjóðir. í Sovétríkj-
unum hefði til að mynda verið gef-
ið út rit, trúlega á vegum varn-
armálaráðuneytisins, þar sem sú
skoðun væri sett fram að tsland
væri veikur hlekkur innan NATO
og áherslu bæri að leggja á það að
losa íslensku þjóðina úr NATO:
„Það yrði ótrúlegur pólitískur
ávinningur fyrir Sovétríkin ef
tækist að losa Island úr NATO,“
sagði Jón Baldvin.
Formaður Alþýðuflokksins
sa.’ði, að samkvæmt sérstakri
áætiun sem samin hefði verið að
undirlagi Sovétmanna um „frið-
arstarf" á Vesturlöndum mættum
við íslendingar vænta þess, að
haldið yrði uppi hvers kyns áróðri
hér á landi til að losa um tengsl
íslands við NATO og búa til þá
mynd, að öryggi íslendinga sé í
raun ógnað af Bandaríkjunum.
miíi
13
DAGAR
TIL JÓLA
Þess megi sjá merki að vinna sam-
kvæmt áætluninni sé hafin hér á
landi.
Sjá frásögn á miðopnu.
Flutningaskipið Akranes
Ms. Akranes komið á siglingu að nýju:
Töfin kostaði 3 milljónir
VIÐGERÐ á Valleyfield-brúnni við Montreal er nú lokið og komst Ms
Akranes áleiðis inn á Vötnin miklu í gær eftir rúmlega hálfs mánaðar töf.
Beint fjárhagslegt tjón skipafélagsins Nesskip vegna þessa er um þrjár millj-
ónir króna og hefur það áskilið sér rétt til skaðabóta. Vegna þessarar tafar er
óvíst hvort skipið getur lestað kísiljárn að verðmæti um 150 milljónir króna á
Grundartanga fyrir áramót.
Guðmundur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Nesskip, sagði í sam-
tali við Morgunblaöið, að vegna
þessarar tafar væri nú nánast
frágengið að Akranesið landaði öll-
um stálfarmi sínum í Ashtabula í
stað þess aö landa helming hans í
Chicago. Vonandi næði skipið til
Grundartanga í tíma til þess, að
útskipun á kísiljárni þar gæti orðið
fyrir áramót.
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Járnblendifélagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
seinkun Akranessins hefði valdið
tölverðum vandkvæðum, sem ekki
væri enn séð fram úr. Skipið hefði
átt að vera á Grundartanga 15. des-
ember með rúmar 7.000 lestir af
kolum og taka 6.000 til 7.000 lestir
af kísiljárni til Japan.
„Það eru um 50 milljónir króna,
sem hanga á spýtunni í þessu
dæmi, hvoru megin við áramótin
þessi afskipun lendir. Þetta eru síð-
ustu 10% ársframleiðslunnar, sem
að sjálfsögðu skila mestu. Það er
hins vegar ljóst, að reksturinn skil-
ar hagnaði á árinu hvort sem þessi
farmur kemst af stað fyrir eða eftir
áramót. Hins vegar hlýzt af þessu
þó nokkuð tjón þar sem greiðsla
þessarar framleiðslu dregst og
vextir af upphæðum sem þessari
eru miklir,“ sagði Jón Sigurðsson.