Morgunblaðið - 09.03.1985, Síða 2
2
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
f GÆRKVÖLDI gekkst Nefnd ’85 fyrir baráttufundi í Háskólabíó, þar sem lögð var áhersla á baráttu kvenna
fyrir launajafnrétti. Um 500 manns sóttu fundinn. í ræðum kvenna úr launþegastétt kom fram að enn er langt
í land með að launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaðnum sé náð. Kvöttu þær allar til samstöðu kvenna í
baráttunni fyrir bættum kjörum. I>að verkefni væri fyrst og fremst í höndum kvenna sjálfa. Lokaár kvennaára-
tugarins yrði að nýtast konum á íslandi þannig að mannréttindin: sömu laun og kjör fyrir sömu vinnu verði jafn
sjálfsögð og þau mannréttindi sem kosningarétturinn er. Myndina tók RAX á fundinum í Háskólabíói í
gærkvöldi.
Raufarhö'fn:
Eignir Jökuls seld-
ar nýju hlutafélagi
R»uf»rhöfii. 8. mam.
Á hiutahafafundi í Jökli hf. 7.
mars síðastliðinn var samþykkt að
selja nýstofnuðu hlutafélagi eignir
Jökuls í landi, frystihús og aðrar
eignir sem félagið á til fiskverkun-
ar á um tólf milljónir króna, sem
eru skuldir Jökuls við ýmsa aðila
umsamdar.
Nýja hlutafélagið byggir hér
nýtt frystihús svo framarlega
sem til þess fáist fyrirgreiðsla.
Jökull hf. rekur áfram togara
sinn Rauðanúp og kemur til með
að skuldbinda sig til þess að út-
vega nýja hlutafélaginu hráefni
fyrst um sinn. Að þessu nýja
hlutafélagi koma til að standa
Raufarhafnarhreppur og íbúar,
40%, KNÞ Kópaskeri, sem rekur
útibú á Raufarhöfn, 40%, og
Formaður samninganefndar rikisins:
Kennarar þurfa að vera í hærri launaflokk-
um en önnur félög BHM, segir formaður HÍK
„ÉG GET ekki verið bjartsýnn á
lausn mála nú. Hugmyndir samn-
inganefndar ríkisins um leiðréttingu
á kjönim kennara ganga allt of
skammt,“ sagði Kristján Thorlacius,
formaður HIK, að loknum fundi
með samninganefnd rfkisins í gær.
Kristján sagði hugmyndir
samninganefndarinnar ganga út á
leiðréttingu á mismun sem verið
hefur í röðun innan BHM. „Hug-
myndin sjálf er allra góðra gjalda
verð, en við teljum að skýrsla
endurmatsnefndar gefi tilefni til
meiri kjarabóta en þessarar 6%
hækkunar sem hún felur í sér,“
sagði hann. „Við lögðum sjálfir
fram tillögur í dag um röðun i
launaflokka. Kennari er eingöngu
í einum launaflokki og á enga
möguleika á starfsheitahækkun-
um eins og önnur félög hafa. Við
teljum því að kennarar verði að
vera í hærri launaflokkum en önn-
ur félög til að vega upp á móti
þessu."
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði
Jón Baldvin skorar
á Pál — en Páll neitar
„ÉG SENDI Páli Péturssyni frá Höllustöðum eftirfarandi skeyti í kvöld:
„Hafandi hlýtt á fáryrði þín og svívirðingar um formann Alþýðuflokksins í
fréttatíma Rikisútvarpsins í kvöld, skora ég hér með á þig, að mæta mér í
öðrum hvorum ríkisfjölmiðlanna og standa fyrir máli þínu, ef þú ert maður
til“,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins í samtali
við Morgunblaðið seint í gærkveldi.
Páll Pétursson, forseti Norður-
landaráðs, viðtakandi skeytisins,
var spurður hvort hann hygðist
verða við áskoruninni: „Ég hef ekki
fengið neitt skeyti í hendur frá Jóni
Baldvin Hannibalssyni, og ég sé
enga ástæðu til þess að láta Jón
Baldvin Hannibalsson verða sér
meira til skammar."
Fyrr um daginn átti blm. Mbl.
samtal við Pál á Norðurlandaráðs-
þingi, þar sem hann sagði m.a. um
Jón Baldvin: „Aðalbréfið þarf hann
að senda þjóð sinni þar sem hann
biður hana afsökunar á að hafa orð-
ið henni til skammar."
t samtali i útvarpsfréttum i
gærkvöldi lét Páll meðal annars
efnislega sömu ummæli falla i garð
Jóns.
Morgunblaðið spurði Páll i
gærkvöldi hvort hann óttaðist ekki
að neitun hans hefði það í för með
sér að talið yrði að hann þyrði ekki
í kappræður við Jón Baldvin: „Ég
mun tala við Jón Baldvin, en hann
velur hvorki stund né stað,“ svaraði
Páll.
- Gerir þú það, Páll? „Já, svaraði
Páll Pétursson á Höllustöðum.
að hugmyndir nefndarinnar um
leiðréttingu á kjörum kennara
væru þær, að þeim yrði raðað í
sömu launaflokka og háskóla-
menntuðum mönnum með sömu
menntun. „Munurinn þar á hefur
yfirleitt verið 1—3 launaflokkar,
sem hefur munað um 6%,“ sagði
Indriði. „Þeirra tillögur, sem þeir
lögðu fram í dag, hljóða hins veg-
ar upp á að kennurum verði raðað
14—18 launaflokkum ofar en öðr-
um háskólamenntuðum mönnum,
en það þýðir 50—65%. Einnig
krefjast þeir hækkunar á yfir-
vinnu, sem þýðir 10—20% í viðbót,
auk annarra sérstakra greiðslna.
Alls vilja þeir því fá 70—80%
meiri hækkun en samið yrði um
við önnur félög. Þessu vísuðum við
að sjálfsögðu á bug.“
Ekki hefur verið ákveðinn næsti
fundur HÍK og samninganefndar
ríkisins, en hugsanlega verður
hann í dag. Kristján Thorlacius
kvaðst ekki þora að vera bjart-
sýnn á að samkomulag, sem yrði
til þess að kennarar sneru aftur til
vinnu, væri næsta leyti, og það
yrði alla vega ekki um þessa helgi.
Sjá viðtal við Ragnhildi Helga-
dóttor, menntamálaráðherra, á
miðopnu.
Jón Baldvin Hannibalsson á fundi í Osló:
Krafðist þess að tala íslensku
og mætti með túlk með sér
Á FUNDI formanna krataflokkanna á Norðurlöndum í Osló í janúar sl.
krafðist Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, þess að fá
að flytja allt sitt mál á íslensku, og láta túlka jafnóðum fyrir sig yfir á
norsku, hvað var samþykkt, samkvæmt því sem Jón Baldvin upplýsti blm.
Mbl. um í gær.
„Það er rétt að ég krafðist
þessa og hafði með mér túlk, sem
er Helgi Haraldsson, sérfræð-
ingur í rússnesku við Oslóarhá-
skóla,“ sagði Jón Baldvin í sam-
tali við Morgunbiaðið.
Jón Baldvin var spurður hvað
hefði búið að baki þessari kröfu
hans: „Við höfum mikil sam-
skipti við Norðurlandabúa og
þeim þykir kannski sjálfsagt að
þeir tali á fullum hraða allar
sínar mállýskur, en þær munu
nema tugum ef ekki hundruðum
i Noregi einum. Auk þess eru
danskar mállýskur, sænskar
mállýskur, skánska og norður-
sænska ef hún er til. Auðvitað
höfum við og Finnar ekki allar
þessar mállýskur á valdi okkar,
þó að við getum talað einhverja
staðlaða skandinavisku. Samt
sem áður telja Norðurlandaþjóð-
irnar það sjálfsagðan hlut að við
gerum okkur þetta að góðu.
Þetta lýsir hroka. Ég er algjör-
lega sammála þvi sjónarmiði að
íslenska sem móðurtunga nor-
rænna mana eigi að hafa fullan
rétt á þessum málþingum. Hún
er náttúrlega göfugasta og feg-
ursta málið af þeim öllurn."
Jón Baldvin sagði jafnframt:
„Ef ég ætla að rökræða flókin
mál eins og efnahagsmál, tækni-
leg mál eða varnarmál, þá ætla
ég ekkert að hökta í fyrsta gír á
einhverri flatri skandinavísku,
ef ég á orðastað við Olof Palme.
Það er bara sjálfsagður hlutur
að Skandinavarnir verði vandir
á það að við tölum íslensku eins
og okkur sýnist.“
Aðspurður um hvernig for-
menn hinna krataflokkanna
hefðu tekið þessu sagði Jón
Baldvin: „Það veit ég ekkert um
annað en það að Jonatan Moz-
feldt, sem er mjög skemmtilegur
maður, hann sagði að þessi af-
staða mín lýsti íslenskum stór-
veldishroka."
kaupfélag Langnesinga Þórs-
höfn, 20%. Helgi.
Kennarar vilja 70—80 %
umfram önnur félög
Biskupsfrúin
prédikar í
Dómkirkjunni
Sólveig Ásgeirsdóttir
í MESSUNNI í Dómkirkjunni
kl. 2 á morgun. sunnudag,
prédikar Sólveig Ásgeirsdóttir
biskupsfrú. Olöf Kolbrún
Harðardóttir óperusöngkona
syngur einsöng, leikmenn
flytja bænir og ritningartexta,
og sr. Þórir Stephensen þjónar
fyrir altari. Eftir messu, upp
úr kl. 3, hefst svo á Hótel Loft-
leiðum árleg kaffisala kvenfé-
lags safnaðarins, Kirkjunefnd-
ar kvenna Dómkirkjunnar.
Skal fólki bent á, að hún stend-
ur til kl. 5. Oft hefur verið svo
mikil þröng, fyrri klukkutím-
ann, að fólk hefur orðið að bíða
eftir sætum, en ef aðsókn
dreifist betur á þann tíma, sem
opið er, þá ætti slíkt ekki að
koma fyrir.
Strætisvagn fer frá kirkj-
unni að messu lokinni suður að
Hótel Loftleiðum og í bæinn
aftur um kl. hálf fimm.
(Frá Dómkirkjunni.)
Þjóðleikhúsið:
Carol Niel-
son syngur í
„Chicago“
SÖNGKONAN Carol Nielsson,
sem þekkt er hér á landi frá fyrri
tfð undir nafninu Janes Carol,
verður í einu af aðalhlutverkunum
f uppfærslu Þjóðleikhússins á
söngleiknum „Chicago", sem fýrir-
hugað er að setja á svið í maf
næstkomandi. Carol Nielsson hef-
ur starfað f London undanfarin ár
og vakið þar athygli fyrir góða
frammistöðu f söngleikjum og
meðal annars hcfur hún farið með
aðalhlutverk f söngleiknum
„Cats“, sem notið hefur miltilU
vinsælda að undanförnu.
Söngleikurinn „Chicago“, er
eftir þá Fred Ebb og Bob Fosse,
höfunda hins þekkta söngleiks
„Cabarett , en „Chicago“ var
fyrst settur á svið á Broadway í
New York um miðjan síðasta
áratug og hefur síðan verið
sýndur við metaðsókn og góðar
undirtektir víða um heim. ís-
lenska þýðingu gerði Flosi
ólafsson, sem einnig þýddi söng-
leikinn „Gæjar og piur“, sem
sýndur hefur verið í Þjóðleik-
húsinu að undanförnu við góðar
undirtektir. Leikstjórar „Chic-
ago“ verða hinir sömu og í „Gæj-
ar og píur“, beir Kenn Oldfield
og Benedikt Árnason, og tónlist-
in er í höndum Terry Davies og
Agnesar Löve. Auk söngkonunn-
ar Carol Nielsson verða í veiga-
miklum hlutverkum þau Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir, Pálmi Gests-
son, Róbert Arnfinnsson og Þóra
Friðriksdóttir.