Morgunblaðið - 09.03.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
7
Hvergerðingar og
Eyjamenn skoða vatns-
rennibrautir á Florida
SENDINEFND Sunnlendinga,
frá Hveragerði og Vestmannaeyj-
um, heldur til Bandaríkjanna í
dag í nokkurra daga ferð til þess
að skoða stærsta vatnsrenni-
brautagarð í heimi sem er stað-
settur í Orlando á Floridaskaga.
Skuttogarinn Ingólfur
Arnarson fær nýtt nafn:
Freri skal
hann heita
ÖGURVÍK, hinn nýi eigandi
skuttogarans Ingólfs Arnarson-
ar, hefur nú, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, ákveðið að
gefa honum nafnið Freri.
Skipinu verður breytt í
frystiskip og þykir því nafnið
Freri vel við hæfi. Skrásetn-
ingarnúmer skipsins verður
RE 73. Auk Frera á Ögurvík og
gerir út skuttogarana Vigra
RE 71 og Ögra RE 72.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
og hreppsnefndarmenn í Hvera-
gerði hafa hug á að kanna
möguleika á uppsetningu tækja
fyrir börn og fullorðna í tengsl-
um við sundlaugarnar á báðum
stöðunum. Vatnsrennibrautir
tilbúnar á markaði eru mjög
dýrar, en markmiðið með ferð-
inni er að kanna hvort ekki sé
hægt að byggja upp slíka að-
stöðu á einhvern hátt við hæfi
viðkomandi staða og án þess að
kostnaður fari upp úr öllu valdi.
Flugleiðir hafa hlaupið undir
bagga með að gera þessa ferð
framkvæmanlega, en Flugleiðir
hafa sem kunnugt er hafið flug
til Orlando fyrir skömmu.
INNLENT
Frá æfingu Sinfóníuhljómsveitar æskunnar, sem heldur tónleika í Menntaskólanum við Hamrahlíð í dag.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar æskunnar
FYRSTU tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Æskunnar verða haldnir í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð laug-
ardaginn 8. mars kl. 19.00. Hljóm-
sveitin var stofnuð nú í janúar, i
byrjun Árs æskunnar og Árs tónlist-
arinnar, skv. ákvörðun tónlistar-
skólastjóra landsins.
Meðlimir hennar eru tónlistar-
nemendur og eru yfir 80 ungir
hljóðfæraleikarar í hljómsveitinni
að þessu sinni. Tónleikar þessir
eru árangur hálfs mánaðar nám-
skeiðs sem hófst föstudaginn 22.
febrúar i Hagaskólanum, og er
stjórnandi Paul Zukofsky. Æft
hefur verið frá kl. 6—9 á hverju
kvöldi og um helgar frá kl. 10—5.
Á tónleikunum nú á laugardag
verða fluttir þrír þættir úr „Wozz-
eck“ eftir Alban Berg og er Elísa-
bet Erlingsdóttir einsöngvari í því
verki og Sinfónía nr. 1 í c-moll
eftir Johannes Brahms. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
(Frétutilkynning.)
A HORTDA
>4ccord
4-door Sedan EXS
Margfaldur verölaunabíll á ameríska bílamarkaðnum.
Bifreiö er vekur óskipta athygli og aörir biiaframleiöendur hafa tekið til
fyrirmyndar. Já þaö er ekkert smáræöi sem boöiö er uppá í þessum bíl.
Sérklæðning, aflstýri, rafdrifnar rúöur, sóllúga, útvarp/kassettutæki, raflæs
ingar, 440 lítra farangursrými og margt fleira.
Verö: 593.800 beinsk. EXS
614.330 sjálfsk. EXS
2-door Hatchback
Hinn sívinsæli Civic er nú á ótrúlega hagstæöu veröi. Þessi
bíll er svo sannarlega peninganna virði, því rúmbetri 5
manna smábíll er ekki á markaönum. Vél: 1350 cc, 71 DIN
— hestöfl, 5 gíra eöa sjálfskiptur og allt annaö.
Verö aðeins frá kr. 368.000,-.
CIVIC SPORT — enn betri útfærsla á hinum vinsæla Civic. Viöbragö er ótrúlega gott aðeins 9,7
sek á 100 km hraöa. Vél. 1500 cc, 85 DIN — hestöfl, 5 gíra, litaöar rúöur, sóllúga — sérhönnuö
sportsæti og margt fleira.
En þaö sem vekur athygli er veröiö aöeins
kr. 414.600,-.
4-door Sedan gl
Þessi stórskemmtilegi og rúmgóöi fjölskyldubíll kem-
ur þér svo sannarlega á óvart. Hér er lagt mest uppur
rými, þægindum og sparneytni.
Vél 1500 cc, 85 DIN — hestöfl. Viöbragö 10,7 sek. í
100 km hraöa. Farangursrými 420 lítra.
Verö aöeins frá kr. 420.000.-.
Reykjavík: Bílasýning í dag laugardag frá 1—5. Akureyri: Bílasýning Þórshamri í dag laugardag kl. 1—5.
Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMAR 38772 — 39460.