Morgunblaðið - 09.03.1985, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
• Mikil gróska er nú í handknattleiksstarfinu hjá Ungmennafélaginu Stjörnunni í Garöabæ. Allir yngri flokkar félagsins komust í úrslit í
íslandsmótinu í handknattleik, en úrslitakeppni í hinum ýmsu flokkum mun fara fram um miójan mars. Er þetta annað árið í röð sem Stjarnan
á lið {úrslitum í öllum flokkum. Flokkarnir eru 3. og 2. flokkur kvenna, 5., 4., 3. og 2. flokkur karla. Meðfylgjandi mynd er af keppnisflokkunum
sex úr Stjörnunni og þjálfurum ungmennanna: Eyjólfi Bragasyni, Magnúsi Teitssyni og Brynjari Kvaran en á myndina vantar þjálfara eins
flokksins, Hannes Leifsson.
Akurnesingar,
Borgfiröingar
í Skagaradíó,
Garðabraut 2,
Akranesi.
AIWA^ÍS
;v-v
Þad er engum ofsögum sagt um útlit, endíngu og gæði
AIWA hljómtækjanna. _
er stora
stjarnan
í hljómtækjum
í dag.
AIWA
Skagaradíó,
Garðabraut 2,
Akranesi
HLJOMUR
FRAMTÍÐARINNAR
ARMULA38 Selmúla metjin 105REVKJAVIK
ÍIMAR 3U33 83177 POSTHOLF 1366
Þorleifur
leikur sinn
500. leik
HINN gamalreyndi línumað-
ur, Þorleifur Ananíasson úr
KA frá Akureyri, mun ná
þeim merka áfanga að leika
sinn 500. leik með meistara-
flokki KA í handknattleik er
KA mætir fslandsmeisturum
FH í æfingaleik á miöviku-
dagskvöld á Akureyri.
IÞorlelfur hefur verið í eld-
línunni í handknattleiknum í
meira en tvo áratugi. Hann á
stutt í 40 árin og er enn á fullu
með KA í 2. deildinni.
Aöeins einn annar Islend-
ingur hefur náö aö leika 500
leiki í meistaraflokki í hand-
knattleik, þaö er Birgir
Björnsson, fyrrum þjálfari KA
og leikmaður með FH í ára-
raöir.
íslandsmeistarar FH sækja
KA-leikmenn heim á miöviku-
dagskvöld og leika í íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Geir Hallsteinsson, fyrrum
leikmaöur FH og íslenska
landsliösins sem nú þjálfar liö
Stjörnunnar, mun leika meö
liði KA gegn sínu gamla fó-
lagi, FH.
Tilkynning frá
Skíðafélagi
Reykjavíkur
UM HELGINA fer fram skíða-
mót á vegum Skíöaráðs
Reykjavíkur. Mótiö fer fram í
Bláfjöllum og hefst kl. 9.30 í
dag. Þá veröur keppt í svigi
fullorðinna og stórsvigi 13 til
14 ára. Á sunnudag veröur
keppt í stórsvigi fulloröinna
og í flokki 15 til 16 ára.
Keppt í
Bláfjöllum
VEGNA ummæla sem hafa
fallíð um aögerðaleysi
Skíöaféiags Reykjavíkur,
leyfir stjórn félagsins sér að
birta skrá yfir skíðamót sem
haldin voru á vegum Skíða-
félags Reykjavíkur á síðast-
liönu starfsári, veturinn
1984.
29/1 Toyota-göngumót á
Miklatúni.
12/2 Barnagöngumót á
Miklatúni.
3/3 Meistaramót Reykjavík-
ur á Vatnsendahæö (15
km).
4/3 Reykjavíkurmeistara-
mót í Hveradölum (boð-
ganga).
11/3 Fjölskyldudagur í tilefni
af afmæli SR (SR — 70
ára afmæli 26/2 ’84).
17/3 Framhaldsskólamót í
Hveradölum (flokkasvig
og boöganga).
21/3 Miillersmót í Hveradöl-
um (ganga).
31/3 Þingvallaganga. Hvera-
dalir — Þingvellir (42
km).
28/4 Bláfjallagangan. Bláfjöll
— Hveradalir (24 km).
2/5 Mullersmót í Bláfjöllum
(svig).
6/5 Sportvalsgangan í
Bláfjöllum (13 bikarar).
16/5 Innanfélagsmót SR í
Bláfjöllum.
Öldungamót isl. á Akur-
eyri (ganga).
11 manns fóru frá SR, og
höfnuöu flestir í verölauna-
sætum.
Tilsögn í skíöagöngu á veg-
um SR var haldin á Miklatúni
og í Hveradölum flestar helg-
ar.
Skíðafélag Reykjavíkur