Morgunblaðið - 02.04.1985, Qupperneq 7
Bókin opnar alla heimæ
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
7
Viðurkenningar
fyrir framúrskar-
andi fræðibækur
fyrir börn
DAGANA 11.—29. mars var haldin í
Kennslumiðstöd Námsgagnastofn-
unar sýning á fræðibókum fyrir börn
og uppsláttarritum sem henta I
skólastarfi. Sextán útgáfufyrirtæki
þáðu boð um þátttöku og sýndu
rúmlega 400 bókatitla á sýningunni
sem nefnd var Bókin opnar alla
heima.
Dómnefnd sem starfaði i tengsl-
um við sýninguna veitti skriflegar
viðurkenningar fyrir þær bækur
sem þóttu skara fram úr á þessu
sviði. í dómnefndinni áttu sæti
Andrea Jóhannsdóttir aðstoðar-
bókafulltrúi í menntamálaráðu-
neytinu (formaður dómn.), Hrólf-
ur Kjartansson deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, Hulda
Ásgrímsdóttir forstöðumaður
skólasafnamiðstöðvar Skóla-
skrifstofu Reykjavíkur, Ingibjörg
Sverrisdóttir formaður Skólavörð-
unnar, Ingvar Sigurgeirsson for-
stöðumaður Kennslumiðstöðvar
Námsgagnastofnunar, Jónína
Friðfinnsdóttir formaður Félags
skólasafnvarða, Ragnar Gislason
stjórnarmaður í Hagþenki, Þór-
hildur Sigurðardóttir bókasafns-
fræðingur á Bókasafni Kennara-
háskóla íslands og Sigrún Klara
Hannesdóttir dósent í bókasafns-
fræðum við Háskóla íslands en
þau voru jafnframt fulltrúar
þeirra aðila er unnu að undirbún-
ingi og framkvæmd þessarar sýn-
ingar og dagskrár er haldin var í
tengslum við hana.
Eftirfarandi fyrirtæki fengu
viðurkenningu:
Bjallan hlaut viðurkenningu
fyrir þrjár bækur:
Húsdýrin okkar eftir Stefán Að-
alsteinsson og Kristján Inga Ein-
arsson (Reykjavík 1982). í umsögn
dómnefndar er þessi bók talin
„framúrskarandi að allri gerð ...
gott dæmi um það þegar fræðim-
anni tekst vel að miðla þekkingu
sinni til ungra lesenda.“
Orðaskyggni eftir Árna Böð-
varsson (Reykjavík 1983, 4. út-
gáfu) sem þykir einkar „hentugt
uppsláttarrit í móðurmálsnámi".
Sauðkindina — Landið og þjóð-
ina eftir Stefán Aðalsteinsson
(Reykjavík 1981). Bókin „fjallar á
fjölbreyttan hátt um einn af und-
irstöðuatvinnuvegum þjóðarinn-
ar“.
Fjölvi hlaut viðurkenningu fyrir
íslenska fiska eftir Gunnar Jóns-
son (Reykjavík 1983). Bókin „er
dæmi um afar vandaða islenska
útgáfu á uppsláttarriti fyrir al-
menning sem nýtist vel í skóla-
starfi".
Iðunn fyrir íslenska flóru með
litmyndum eftir Ágúst H. Bjarna-
son (Reykjavík 1983). Myndir
gerði Eggert Pétursson. Bókin
„nýtist vel í skólum vegna skýrrar
og greinargóðrar framsetningar".
Námsgagnastofnun fyrir Min
danske ordborg eftir Gurli Dol-
trup, Stellu Guðmundsdóttur o.fl.
(Reykjavík, útgáfuár ótilgr.). en
„útlit og frágangur hennar er til
fyrirmyndar".
Setberg fyrir bækurnar Svona
er tæknin (1979), Svona erum við
(1980), Svona er heimurinn (1981),
Svona eru dýrin (1983) eftir Joe
Kaufman í þýðingu Örnólfs Thorl-
aciusar. Mat dómnefndar er að
þessar bækur eru „vel þýddar og
skemmtilega myndskreyttar".
Örn og örlygur hlutu viður-
kenningu fyrir tvo bókaflokka:
Landið þitt — ísland eftir
Þorstein Jósepsson, Steindór
Steindórsson o.fl. (Reykjavík 1980,
2. útgáfa). Fjölmargir hafa lagt
hönd á plóginn við þessa bókagerð.
M.a. má nefna þá Kristin Sigur-
jónsson og Helga Magnússon.
Þessi bókaflokkur „bætir úr
brýnni þörf fyrir aðgengilegt og
vandað uppsláttarrit um sögu og
umhverfi á íslandi“.
Heim þekkingar (Reykjavík
1982 og 1983). Að mati dómnefnd-
ar eru þessar bækur „hentug upp-
sláttarrit þar sem fjallað er á að-
gengilegan hátt um fjölbreytt svið
náttúru og menningar“.
I frétt frá Námsgagnastofnun
segir, að það sé álit dómnefndar-
manna að starfsfólk ofangreindra
fyrirtækja og aðrir aðstandendur
þeirra bóka er viðurkenningu
hlutu eigi heiður skilinn fyrir að
hafa með alúð, metnaði og vand-
virkni lagt sitt af mörkum til þess
að íslensk börn eigi aðgang að
vönduðu og fræðandi lestrarefni.
Dómnefndin vekur athygli kenn-
ara, starfsfólks skólasafna og al-
menningsbókasafna, foreldra og
annarra uppalenda á þessum úr-
valsritum.
EAPS heldur
þing á íslandi
EUROPEAN Association of Prof-
essioanl Secretaries, sem er sam-
tök einkaritara í stórfyrirtækjum
í 17 Evrópulöndum, hyggjast
halda árlegt þing sitt og aðalfund
hér á landi í september 1986. Þetta
kom fram á fundi stjórnar og full-
trúaráðs samtakanna, sem hald-
inn var i Reykjavík dagana
22.-24. mars sl. Fundinn sóttu 30
manns.
Forseti fslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, er verndari þess-
ara samtaka ásamt Christinu
Svíaprinsessu og Philippe Clém-
ent, formanni Verslunar- og
iðnaðarráðs Parísar. Forsetinn
bauð fundarmönnum til móttöku á
Bessastöðum 23. mars og lét þar í
ljós ánægju sína með samtökin og
þá virðingu, sem sér væri sýnd.
Samtökin European Association
of Professional Secretaries eru
nýlega orðin tíu ára gömul og eru
félagar rösklega 600.
fltovstiit&lftfeife
Gódan daginn!
MorgunblaAið/ól.K.M.
Frá afhendingu viðurkenninga Námsgagnastofnunar síðastliðinn föstudag. Sitjandi frá vinstri: Herdís Sveinsdóttir,
Stefán Aðalsteinsson, Ragnhildur Helgadóttir og Krístfn Unnsteinsdóttir. Standandi frá vinstrí: Andrea Jóhannsdótt-
ir, Helgi Magnússon, Ágúst Arnbjörnsson, Kristinn Sigurjónsson, Gunnar Jónsson, Bogi lndriðason, Kristján Ingi
Einareson, Gurli Doltrup, Örnólfur Thorlacius, Stella Guðmundsdóttir og Árni Böðvarason.
Hin stórkostlega skemmtun meö hin-
um frábæru félögum í RÍÓ ásamt
stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar
veröur í Broadway 3. apríl, skírdag 4.
apríl og II í páskum.
Páskaskemmtun í Broadway er kjör-
in skemmtun fyrir alla. Ljúffengur
þríréttaöur kvöldveröur framreiddur
og dansaö aö lokinni skemmtun.
Ath.: Skírdag veröur húsiö opnaö kl. 18.00
fyrir matargosti. Tryggiö ykkur miöa og borö
tímanlega því síöustu páska seldist upp.
Miöa- og boröapantanir í dag kl. 2—5 í síma
77500.
Stórhljómsveit Gunnars ásamt Björgvin,
Sverri og Þuríöi leika fyrir dansi.
Ein allra besta danshljómsveit sem fram hef-
ur komið í mörg ár.
Verið velkomin vel klædd í