Morgunblaðið - 02.04.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
23
Nokkrar spurningar
til alþingismanna
— frá Pétri H. Ólafs-
syni fiskmatsmanni
Áður en ég ber fram spurningar
mínar þá vil ég segja til glöggvun-
ar háttvirtum alþingismönnum
hvert tilefni þeirra er.
Þann 22. maí 1984 samþykkti
Alþingi lög um Ríkismat sjávaraf-
urða, sem tóku gildi frá 1. ágúst
1984.
í tilefni þessara laga og sem
túlkun á þeim gaf sjávarútvegs-
ráðherra út reglugerð þann 15.
mars sl.
1. spurning: Er það ekki rétt skil-
ið hjá mér að reglugerðir sem
settar eru verði að vera í sam-
ræmi við þau lög sem þeim er
ætlað að túlka?
Þar sem mér þykir á skorta, að
hin nýútgefna reglugerð sjávar-
útvegsráðherra geri þetta, þá vil
ég benda á eftirfarandi máli mínu
til sönnunar.
Upphaf 14. gr. laga um Ríkis-
mat sjávarafurða hljóðar svo:
„Afurðadeild annast yfirmat á
öllum fiskafurðum til útflutn-
ings.“
Og í 18. gr. laganna eru hlutverk
eftirlitsmanna útflutningsaðila og
yfirfiskmatsmanna skilgreind
þannig:
„Eftirlitsmenn skulu vinna að
samræmingu mats og eftirlits
ásamt yfirfiskmatsmönnum og
fylgjast með yfirmati á afurðum
áður en útskipun fer fram.“
Ég tel að þetta séu það skýr
ákvæði í lögunum að menn ættu
ekki að misskilja þau. En þrátt
fyrir þetta, þá telur sjávarút-
vegsráðherra sig hafa heimild til
þess að ráðstafa til annara aðila
réttinum um úttekt sjávarafurða
til útflutnings, sem er yfirmat af-
urðanna. Þetta felst í 3. grein
hinnar nýútgefnu reglugerðar
hans. 1 sömu grein afsalar ráð-
herra einnig í hendur annarra,
réttinum til að setja reglur um út-
flutning fiskafurða. En þessi rétt-
ur hefur alla tíð, allt frá upphafi
fiskmats á íslandi árið 1904, verið
í höndum þess opinbera valds, sem
með þessi mál hefur farið á hverj-
um tíma. Ég birti nú 3. gr. reglu-
gerðarinnar í heild til þess að
menn sjái hvað um er að ræða:
Fundabanní
Suður-Afríku
Beinist gegn and-
stæðingum aðskiln-
aðarstefnunnar
Jóhannesarbori;, 29. mars. AP.
STJÓRN Suður-Afríku setti í dag
þriggja mánaða bann við fundahaldi
29 stofnana og félaga sem andvíg
eru aðskilnaðarstefnu stjórnarinnar.
Nær bann þetta til 18 héraða í land-
inu og kemur í kjölfar margra vikna
óeirða blökkumanna, þar sem fjöldi
manns hefur beðið bana.
Það var LouiS le Grange, lög-
reglumálaráðherra Suður-Afríku,
sem lýsti yfir þessu banni með til-
kynningu í stjórnartíðindum
landsins í dag. Á bannið að taka
gildi þegar í stað og gilda til 30.
júni nk.
Bann þetta nær m.a. til innan-
hússfunda hreyfinga eins og Sam-
einuðu lýðræðisfylkingarinnar
(UDF), sem er fjölmennasta
stjórnmálahreyfing landsins, er
berst gegn aðskilnaðarstefnunni.
Útifundir hafa verið bannaðir í
Suður-Afríku frá árinu 1976.
Héruðin, sem bannið nú nær til,
eru flest I austurhluta Suður-
Afríku.
„Þeir aðilar sem hlotið hafa við-
urkenningu sjávarútvegsráðu-
neytisins samkvæmt 2 gr. hér að
framan hafa með höndum eftirlit
með hréfni og vinnslu, og sjá um
flokkun og úttekt sjávarafurða til
útflutnings. Þeir skulu ganga úr
skugga um að framleiðendur hafi
tilskilin vinnsluleyfi. Þeir gefa út
flokkunar- og pökkunarreglur og
senda þær til framleiðenda og
skulu þær tilgreina hvernig hrá-
efnisvali vinnslustöðvar, afurða-
mati, flokkun, pökkun, viktun og
Anerkingu skuli háttað. Ríkismat
sjávarafurða hefur aðgang að
pökkunarreglum.“
I 5. gr. reglugerðarinnar sem
fjallar m.a. um saltfisk og skreið
„En þrátt fyrir þetta, þá
telur sjávarútvegsráö-
herra sig hafa heimild
tii þess aö ráöstafa til
annarra aöila réttinum
um úttekt sjávarafuröa
til útflutnings, sem er
yfirmat afurðanna.“
er réttur hinna viðurkenndu eftir-
litsaðila útflytjenda undirstrikað-
ur með þessum orðum:
„Ríkismat sjávarafurða eða við-
urkenndir eftirlitsaðilar annast
úttekt skreiðar og saltfisks, áður
en útskipun fer fram og skal út-
tektarvottorð fylgja afurðunum
við útskipun."
í ofanrituðu er það staðfest, að
útflutningsaðilar sem hafa eftir-
litsmenn í sinni þjónustu og hafa
hlotið viðurkenningu sjávarút-
vegsráðuneytis séu jafnréttháir að
framkvæma yfirmat og yfirfisk-
matsmenn ríkismatsins. En þó
stendur í sjálfum lögunum að af-
urðadeild þ.e. yfirfiskmatsmenn
annist yfirmat á öllum fiskafurð-
um til útflutnings. Og í 18. gr. lag-
anna segir að eftirlitsmenn út-
flytjenda skuli bara vera viðstadd-
ir yfirmatið. Hér álít ég að ráð-
herra hafi farið út fyrir það vald-
svið sem lögin um Ríkismat sjáv-
arafurða heimila honum.
Það þarf að koma fram hér, að
frá sl. áramótum, áður en þessi
reglugerð var gefin út, þá hafa eft-
irlitsmenn Sölusambands ísl. fisk-
framleiðenda einir tekið út allan
blautverkaðan saltfisk sem fluttur
hefur verið úr landi, en yfirfisk-
matsmenn Ríkismatsins ekki
komið þar nærri. Þrátt fyrir þenn-
an hátt á úttektinni gaf Ríkismat
sjávarafurða útflutningsvottorð.
Því legg ég eftirfarandi spurn-
ingar fyrir alþingismenn:
2. spurning. Ef alþingismenn við
samanburð á lögum og reglu-
gerð komast að sömu niður-
stöðu og ég að sum ákvæði
reglugerðarinnar séu í ósam-
ræmi við sjálf lögin, á ýmsan
hátt. Hvað ætla alþingfsmenn
þá að gera?
3. spurning. Getur ráðherra á ís-
landi í dag, komist upp með það
átölulaust frá hendi Alþingis ef
hann við framkvæmd laga fer
út fyrir það valdsvið sem lögin
heimila?
Allar þessar spurningar varða
heiður alþingismanna og virðingu
Alþingis, því eru þær að gefnu til-
efni fram bornar.
Pétur H. Ólaísson er fiskmatsniad-
Uppskrift I
Jurtakryddad eda raudvinsleglð
lambalæri frá SS
700 g kartoflur
2 stórir laukar
Hitiðofninn í 180°C. riysjið kartöflumarog
laukana, sneiðið niður og raðið sneiðunum
á botninn á stóru fati. Stráið dálitlu salti yfir.
Setjið síðan lærið ofan á sneiðarnar og lokið
fatinu. Kjötið er steikt í 2 klukkustundir.
Hæg steiking tryggir að kjötið helst meyrt
og gott.
Berið hrásalat frá SS og uppáhalds græn-
metið fram með matnum.
Uppskriftin dugar rifiega fyrir 4 veislugesti.
Það er vel við hæfi að SS kynni nýtt yúfmeti skömmu
fyrir páska: Jurtakrydduð og rauðvfnslegin lambalæri.
Kjötiðnaðarmenn SS hafa lagt metnað sinn í þessa nýjung.
Bæði lærin eru vandlega krydduð og tilbúin beint í ofninn
þegar þau koma í þínar hendur.
Kynning í Austurverl, Glæsibæ og Víði.
Líttu inn á einhvetjum stöðunum þriðjudaginn 2. apríl, milli kl.
16.00 og 18.00, eða, miðvikudaginn 3. apríl, milli kl. 16.00 og
19.00. Þá verða nýjungarnar kynntar og þér gefst kostur á að
smakka. Páskamaturinn í ár er frá SS.
Heildsölubirgðir: SS Skúlagötu (SÁ25355)
og Kópavogi (s. 72000).
: Á'.--í í'
. i „ -■■■ *